Morgunblaðið - 25.11.1987, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 25.11.1987, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987 ^th26°MG ^..orroPRT" ^tH260 MGHIG - T ; KHÖfWgS ..«tobi“Í’vX ^“^„"ánúr- '”Eneffl®UíV,.0*“b'ran° ^^ssowH.sWe^oo. .. =r,GEBT KBISTJ^ }te£AINl^URENr KYNNINGAR Josiane Bellina, sérfrœfiingur frá YVES SAINTLAURENTí París, mun sýna föröun og /eiÖbeina um val og notkun á YSL snyrti- vörum i eftirtöldum verslunum: CLÖRU, LAUGAVEGI 15. MIDVIKUDAGINN 25. NÓV. FRÁ KL. 10-13 OG 14-18. ÓCÚLUS, AUSTURSTRÆTl 3, FIMMTUDAGINN 26. NÓV. FRÁ KL. 10-13 OG 14-18. CLÖRU, KRINGLUNNI. FÖSTUDAGINN 27. NÓV. FRÁ KL. 10-13 OG 14-18. We&\IN#JRENT Um skuldasúpu og orkuverð eftir Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra í ræðum mínum að undanfömu í tengslum við afkomu ríkissjóðs á næsta ári hef ég meðal annars leit- ast við að skýra hvers vegna hún hefur verið svo erfíð sem raun ber vitni. Þar á meðal hef ég talið til skýringa þann mikla kostnaðarauka sem ríkissjóður hefur orðið fýrir vegna yfírtöku skulda að fjárhæð um 8.400 m.kr. af orkugeiranum. Eitthvað fór þetta fyrir brjóstið á þeim sem að Sambandi íslenskra rafveitna standa því skyndilega vildu þeir upplýsa almenning í landinu hveijum væri um að kenna sbr. athugasemd í Morgunblaðinu dags. 20. nóvember 1987. Eins og er orðið svo vinsælt nú á seinni tímum þá var niðurstaða þeirra sú að sökudólgurinn væri að sjálfsögðu ríkið. Ekki hef ég hugsað mér að fara í ritdeilur um þetta mál. Þá vil ég taka sérstaklega fram að ekki hefur neinn verið ásakaður um að eiga sök í því efni. Þess í stað hef ég bent á að þessu hafí valdið ýmist byggðastefna, seinheppni í fjárfest- ingum eða áhrif kjarasamninga, eins og kemur fram í fjárlagaræðu minni. Vona ég að með þessum línum hafí sá misskilningur „Sam- bandsmanna" verið leiðréttur. Hins vegar þykir mér miður að inntak þess sem ég var að reyna að segja skuli ekki hafa komist til skila. Því verður ekki neitað, hvem- ig sem allt hringsnýst, að raforku- kerfíð í landinu hefur kostað meira en almennt raforkuverð gefur til kynna. Yfírtökur ríkissjóðs á skuld- um orkugeirans endurspegla þetta. Ríkissjóður þarf að greiða um 1.900 m.kr. í vexti og afborganir af þess- um lánum á næsta ári. Þeim greiðslum getur ríkissjóður aðeins mætt með eigin tekjum sem eru skatttekjur. Tilgangur minn var að skýra frá því að með þessu móti hefði greiðslubyrðin af þessum lán- um verið flutt frá raforkunotendum yfír til skattgreiðenda. Þetta kemur að hluta fram í grein „Sambands- manna“ þar sem segir: „Ekki má gleyma því að afnám verðjöfnunar- gjaldsins hafði í för með sér veru- lega lækkun raforkuverðs til notenda." Þetta er einmitt kjami málsins. Þó vantar að fram komi Jón Baldvin Hannibalsson að þess í stað aukist útgjöld ríkis- sjóðs og þá nauðsynleg skattheimta til að mæta þeim. Niðurstaða mín var í grófum dráttum sú að ef skuldasúpan væri flutt aftur til orkugeirans þyrfti að hækka almennt raforkuverð í landinu um fímmtung og mætti þá lækka tekjuskatta einstaklinga um rúm 20%. Sameinging Sjálfstæðisflokks og Borgaraflokks ekki á dagskrá: Sjálfsagt að hafa valkost hægra megin við miðju segir Júlíus Sólnes varaformaður Borgarflokksins XÚLÍUS Sólnes varaformaður Borgaraflokksins segir að það sé eðlileg þróun að verulegar breyt- ingar hafi orðið á flokkakerfinu undanfarin ár og sjálfsagt sé að kjósendur geti valið milli flokka sem séu hægra megin við miðju. Það sé hins vegar tilhneiging forustumanna gömlu flokkanna að setja sig upp á móti hvers kyns breytingum á flokkakerfinu og í því ljósi verði að skoða um- mæii Þorsteins Pálssonar forsæt- isráðherra í ræðu sem hann flutti á flokksráðsfundi Sjálfstæðis- flokksins um að mikilvægt sé að sameina sjálfstæðismenn í einum flokki. Júlíus sagði að Borgaraflokkur- inn hefði aldrei útilokað samstarf við aðra flokka, þar á meðal Sjálf- stæðisflokkinn, en menn skyldu ekki almennilega þessar sameiningar- hugmyndir enda væru þær varla lengur á dagskrá. „Það á svo eftir að skilgreina hvar sjálfstæðismenn eru samkvæmt túlkun Þorsteins,“ sagði Júlíus. „Hann getur útaf fyrir sig mælst tií þess að sjálfstæðis- menn allra flokka sameinist því ég hef grun um að þeir séu bæði í Framsókn og Alþýðuflokki og jafn- vel víðar og sumir halda því nú orðið fram að Alþýðuflokkurinn sé kom- inn lengst til hægri allra flokka. En við teljúm það mjög eðlilegt og sanngjamt að nú verði verulegar breytingar á flokkakerfí og stjóm- málalífí landsins, sem er eðlileg þróun með hliðsjón af breyttum tímum og viðhorfum. Og ég hélt að það væri síður en svo gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins að hafa sam- keppni hægra megin við miðju. Þá geta ' jósendur valið þann flokkinn som stendur sig best hveiju sinni og þar með er komið upp lögmál fijáls markaðar á hægri væng,“ sagði Júlíus Sólnes. Ilreggviður Jónsson alþingismað- ur sagði að hann hefði séð yfirlýs- ingar Þorsteins Pálssonar í blöðum en sagðist ekki kannast við að hafa séð eitt eða neitt í verki. „Menn geta lýst yfír öllu mögulegu í ræðum út um allt land en ef miðað er við það sem kom fram á friðardaginn og eftirköstin eftir það tekur maður ekki mikið mark á þessu. Við í Borg- araflokknum höfum ekkert rætt þetta enda hefur ekkert gefíð tilefni til þess,“ sagði Hreggviður. Oli Þ. Guðbjartsson ritari Borg- araflokksins vildi í samtali við Morgunblaðið ekki tjá sig um um- mæli Þorsteins Pálssonar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.