Morgunblaðið - 25.11.1987, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
41
Ný þingmál
Söfnunar-
sjóður
lífeyris-
réttinda
I gær var lagt fram stjórnar-
frumvarp um _ Söfnunarsjóð
lífeyrisréttinda. í greinargerð
með frumvarpinu segir að í
tengslum við kjarasamninga þá
er tókust með félögum ASÍ og
vinnuveitendum 26. febrúar
1986 hefði verið samið um tvö
atriði er snertu starfsemi lífeyr-
issjóða. í fyrsta lagi skyldu
lífeyrissjóðimir lána verulegan
hluta ráðstöfunarfjár til’Hús-
næðisstofnunar ríkisins. í öðm
lagi skyldi greiða iðgjald til
lífeyrissjóða af öllum launatekj-
um starfsmanna í stað dag-
vinnulauna. Breyting þessi ætti
að gerast í áföngum 1987-89.
í samræmi við nefnd samnings-
ákvæði breyttu flestir lífeyris-
sjóðir landsins reglugerðum
sínum á síðasta ári. Er nú ver-
ið að breyta lögum til samræm-
is við þessar breytingar.
400 milljónir vegna
breytts launaskatts
Lagt hefur verið fram fmm-
varp til breytinga á lögum um
launaskatt. Samvkæmt fjár-
lagafrumvarpi fyrir árið 1988
er gert ráð fyrir að fyrsta skref-
ið í átt til samræmingar
launaskatts verði stigið nú um
áramótin með því að leggja 1%
launaskatt á allar atvinnu-
greinar, sem nú em undan-
þegnar launaskatti, nema
búrekstur. Af þeim sökum er
þetta fmmvarp nú lagt fram.
Tekjuauki vegna þessarar
breýtingar er talinn verða um
400 m.kr. á næsta ári.
Ráðstafanir
í fjármálum
í gær var lagt fram fmm-
varp um ráðstafanir í fjármál-
um. Hér er um að ræða þau
bráðabirgðalög sem sett vom
af ríkisstjóminni vegna fyrstu
aðgerða í efnahagsmálum 10.
júlí sl.
Samræming áætlana
Steingrímur J. Sigfússon
(Abl.-Ne.) og Skúli Alexanders-
son (Abl.-Vl.) hafa lagt fram
tillögu til þingsályktunar um
samræmingu áætlana á sviði
samgöngumála og mannvirkja-
gerðar.
Verndun ósonlagsins
Alfheiður Ingadóttir (Abl.-
Rvk) hefur ásamt fleiri þing-
mönnum Alþýðubandalagsins
lagt fram tillögu til þingsálykt-
unar um vemdun ósonlagsins.
Gerir tillagan m.a. ráð fyrir að
nú þegar verið hafnar aðgerðir
til að draga úr notkun ósoneyð-
andi efna hér á landi.
Erfðalög
Guðrún Helgadóttir (Abl.-
Rvk.) spyr dómsmálaráðherra
um heildarendurskoðun á
erfðalögum.
Leiðrétting-
í frétt í Morgunblaðinu í gær þar
sem greint var frá sjúkdómi undir
Vestur-Eyjafjöllum misritaðist
nafn. Rétt er Eyþór Ó. Karlsson
læknir á Hvolsvelli. Beðist er vel-
virðingar á þessu.
Sólveig Pétursdóttir:
Brúa verður bilið milli mann-
réttinda fullorðinna og bama
UMRÆÐA um frumvarp um
umboðsmann barna hélt áfram í
neðri deild í gær. Meðal þeirra
sem tóku þar til máls var Sólveig
Pétursdóttir (S.-Rvk.). Sagði hún
spurninguna ekki snúast um það
hvort börn þyrftu á talsmönnum
að halda heldur hvert hlutverk
þeirra ætti að vera og hvar þeir
ættu að starfa. Að hennar mati
væri það skylda þingmanna að
brúa bilið milli mannréttinda
fullorðinna og barna.
Sólveig Pétursdóttir (S.-Rvk.)
sagði að til þess að tryggja réttindi
barna þyrfti að byrja á því að
styrkja hæfni foreldranna og þau
félagslegu úrræði sem gerðu bam-
inu mögulegt að þroskast innan síns
eigin heimilis. Því væri hinsvegar
ekki að neita að margt mætti betur
fara í okkar samfélagi varðandi
réttindi barna og það væri ótrúlega
skammt síðan sú hugarfarsbreyting
hefði átt sér stað að böm ættu ein-
hvem almennan rétt.
Þingmaðurinn vitnaði í lög um
bamavemd og sagði að þar væri
það eftirlits- og vamaðarkerfi til
staðar, bamavemdarráð og bama-
verndunarnefnd, sem mælt væri
fyrir í frumvarpinu, og gætu verk-
efni því skarast. Ef til kæmi að
þetta embætti yrði sett á laggimar
þyrfti að marka umboðsmanninum
stöðu og verkefni gagnvart öðmm
yfirvöldum, sem fjölluðu um mál-
efni bama og ungmenna.
Sólveig Pétursdóttir
Morgunblaðið/Sverrir
Sólveig sagðist telja það verða
til verulegra bóta ef börnum yrði
skipaður talsmaður t.d. í forræðis-
málum, þ.e.a.s. þegar foreldrar eða
aðrir deila um forræði barna. Hugs-
anlega væri þess einnig þörf í
ættleiðingar- og fósturmálum. Sól-
veig sagði að að hennar mati væri
ekki spuming um það að full þörf
væri á sérstökum talsmönnum eða
umboðsmönnum bama heldur hvert
ætti hlutverkið að vera og hvar
ættu þeir að starfa? Samkvæmt
frumvarpinu væri gert ráð fyrir því
að umboðsmaður, með sérþekkingu
í uppeldismálum, starfaði í dóms-
málaráðuneytinu og hefði 7 manna
ráð sér til ráðgjafar. Það væri, sagði
Sólveig, e.t.v. heppilegra að við-
komandi væri löglærður og starfaði
í tengslum við Bamavemdarráð
íslands sem hefði yfiramsjón með
bamavemdarstarfi í landinu. Það
sem skipti þó mestu máli væri að
umboðsmaðurinn starfaði sjálf-
stætt, hann mætti ekki týnast í
kerfinu eða vera í þeirri stöðu að
geta orðið fyrir pólitískum þrýst-
ingi. Jafnframt þyrfti að efla þau
bamavemdaryfirvöld sem fyrir
væra, t.d. með fækkun barnavernd-
amefnda. Þær væra nú um eða
yfir 200 talsins og hætta á að starf-
semi þeirra yrði ekki nógu markviss
og sérhæfð í fámennum byggðar-
lögum. Ennfremur væri brýnt að
hraða gangi mála, t.d. með fjölgun -
starfsmanna.
Allt þetta væri nú til athugunar
hjá þeirri nefnd sem fyrrverandi
menntamálaráðherra skipaði til að
endurskoða lög um vemd bama og
ungmenna. Sólveig sagði það vera
eðlilegt að nefndin fengi framvarp
þetta til umfjöllunar og athugunar
og tengdi það þeirri heildarendur-
skoðun sem nú færi fram og hraða
bæri eftir föngum. Þakkaði hún
flutningsmönnum fyrir þá umræðu
sem framvarp þeirra hefði skapað.
Það væri skylda þingmanna, bæði
gagnvart bömum og þjóðfélaginu,
að brúa bilið sem væri á milli mann-
réttinda fullorðinna og bama.
niÞinci
Alþingi:
Fyrstu umræðu um bjór-
inn frestað 1 fjórða sinn
Þingmenn ræða
vinnubrögð sín
varðandi bjórinn
FYRSTA umræða um bjórfrum-
varpið hélt áfram í neðri deild
Alþingis í fjórða sinn í gær. Ekki
náðist þó að afgreiða málið f
nefnd. Þegar forseti sleit fundi
var einn maður á mælendaskrá,
Stefán Valgeirsson, en hann
hafði þegar talað tvisvar og á
þvi samkvæmt þingsköpum ein-
ungis rétt á að gera örstutta
athugasemd með leyfi forseta.
Stefán hafði vikið af fundi vegna
annarra erindagjörða og tók for-
seti þá ákvörðun að fresta fundi.
Sighvatur Björgvinsson (A.-Vf.)
gagnrýndi þá ákvörðun harðlega
og sagði hana vera hættulegt
fordæmi.
Umræðan í gær hófst á ræðum
tveggja andstæðinga bjórsins,
þeirra Ólafs Þ. Þórðarsonar (F.-Vf.)
og Steingríms J. Sigfússonar (Abl.-
Ne.). Steingrímur J. sagði m.a. að
hann treysti sér ekki til þess að
leyfa bjórinn og vildi hann frekar
banna þann takmarkaða innflutn-
ing sem nú væri leyfður. Þannig
yrðu allir jafnir fyrir lögunum.
Stefán Valgeirsson tók næstur
til máls um þingsköp og sagði að
nú væri kominn klukkutími fram
yfír venjulegan fundartíma og það
væra óeðlileg vinnubrögð að halda
fundi áfram. Hann vissi ekki til
þess að þetta mál ætti að hafa sér-
stakan forgang í deildinni. Hann
væri á mælendaskrá en þyrfti nú
að víkja af fundi.
Geir H. Haarde (S.-Rvk.) sagði
málið hafa haft allt annað en for-
gang, þvl hefði verið útbýtt 26.
október og verið á dagskrá marg-
sinnis síðan. Krafðist hann þess að
umræðunni yrði haldið áfram og
henni lokið svo hægt væri að af-
greiða málið til nefndar. Sagði Geir
suma andstæðinga bjórsins reyna
að koma í veg fyrir að málið yrði
afgreitt í nefnd.
Ólafur Þ. Þórðarson sagði það
vera vafamál hvort halda ætti um-
ræðunni áfram þar sem fámennt
væri orðið í salnum. Mótmælti hann
því að eitthvað hefði verið gert til
að hindra framgang málsins.
Sighvatur Björgvinsson (A.-Vf.)
sagðist ekki vita til þess að neitt
annað mál hefði verið jafn oft á
dagskrá deildarinnar en þetta. Þau
ár sem sambærileg mál hefðu verið
til afgreiðslu hefði hann einungis
fylgst með þeim sem áhorfandi en
ekki þátttakandi. Það væri ekki
vansalaust hversu erfiðlega virtist
ætla að ganga að taka ákvörðun
um þetta mál. Annað væri fráleitt
en að þingmenn stæðu nú þannig
að málum að það kæmist í nefnd.
Taldi hann það augljóst að af-
greiðsla bjórmála á Alþingi hefði
ekki aukið virðingu þess.
Hreggviður Jónsson (B.-Rn.)
sagðist vilja mótmæla ummælum
Geirs H. Haarde. Ekki væri verið
að teíja málið en það hefði aftur á
móti haft óeðlilegan forgang.
Geir H. Haarde sagðist vilja vekja
athygli á því að helstu andstæðing-
ar bjórsins hefðu þegar talað í
tvígang. Óeðlilegt væri að tefja
málið enn frekar vegna þess að einn
þeirra vildi gera örstutta athuga-
semd. Varðandi fámenni í salnum
sagði hann annað eins hafa nú gerst
að talað væri yfir tómum þingsöl-
um;
Óli Þ. Guðbjartsson, forseti neðri
deildar, sagði fátt vera þýðingar-
meira enn að þingmenn fengju að
tjá sig um mál. Því væri umræðu
frestað.
Sighvatur Björgvinsson sagði
þingsköp gera ráð fyrir því að þing-
menn tælq'u tvisvar til máls. Ef
sérstaklega stæði á mættu þeir
einnig gera örstutta athugasemd
með leyfí forseta. Þingsköp gerðu
einnig ráð fyrir að þingmenn væra
við störf meðan dagskrá krefðist.
Aðrir þingmenn og þingmál ættu
ekki að líða fyrir það að einhveijir
einstakir þingmenn, sem þegar
hefðu talað tvisvar, vildu gera ör-
stutta athugasemd þegar þeim
hentaði. Taldi hann þetta vera
hættulegt fordæmi sem ekki væri
æskilegt fyrir starfsemi þingsins.
Guðmundur,
ekki Gunnar
ÞAU mistök urðu i frásögn af
kaupum Ávöxtunar sf. á Hverfis-
götu 12 i blaðinu í gær að fyrri
eigendur hússins voru sagðir erf-
ingjar Hannesar Gunnarssonar
læknis. Frásögnin var byggð á
samtali við Armann Reynisson
hjá Ávöxtun. Rétt mun vera að
Hannes heitinn var Guðmunds-
son, sonur Guðmundar Hannes-
sonar fyrrverandi landlæknis.
Guðmundur byggði húsið árið
1910. Morgunblaðið biðst velvirð-
ingar á mistökunum.