Morgunblaðið - 25.11.1987, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
43
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
□ HELGAFELL 598711257
IVW - 2
□ GLITNIR 598711257 = 2.
I.O.O.F. 9 = 16911258'/j =
E.T.2 XX Bi.
I.O.O.F. 7 = 16911258’/! = E.T.
2 Bingó.
AGLOW
- kristileg samtök kvenna
Fundur verður haldinn nk. laug-
ardag, 28. nóvember kl. 16.00 á
Hótel Holiday Inn. Ræðumaður
verður Ásta Júliusdóttir, formað-
ur Aglow.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku
í dag, miövikudag, og á morgun,
fimmtudag, i síma 78307 (Ásta)
eða 21934 (Guöfinna).
Allar konur velkomnar.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma I kvöld kl.
20.30. Vitnisburöir.
[bjl UtiVÍSt, Grófinnl f.
''----' Simar 14606 og 23732
Aðventuferð í Þórsmörk
27.-29. nóv.
Gist i skálum Útivistar, Básum.
Takmarkað pláss. Það verður
sannkölluð aðventustemming í
Básum. Gönguferðir. Aðventu-
kvöldvaka. Fararstjórar: Ingi-
björg og Friða. Athugið að
Útivist notar allt gistipláss i Bás-
um um helgina.
Áramótaferð í Þórs-
mörk 30. des. 4 dagar.
Pantið tímanlega. Uppl. og farm.
á skrifst., Grófinni 1, simar:
14606 og 23732.
Munið tilboð á ðrsrítum Útivist-
ar frá upphafi. Sjáumstl
Útivist, ferðafélag.
Hörgshlíð 12
Samkoma i kvöld, miðvikudags-
kvöld, kl. 20.00.
IOGT
St. Einingin nr. 14
Systrakvöld í Hallarseli, Þang-
bakka 3, i kvöld kl. 20.30.
Félagar fjölmennið.
Æ.T.
Ferðafélag Islands
60 ára
Föstudaginn 27. nóvember verð-
ur Feröafélag (slands 60 ára.
Ferðafélagið efnir til hátíðarhalda
þann dag og býður félögum og
velunnurum að taka þátt í af-
mælisfagnaöi. Á afmælisdaginn
verður hátiðarfundur í Borgartúni
6 kl. 17.00. Um kvöldið kl. 20.30
veröur kvöldvaka i Borgartúni 6.
Efni hennar helgað verkum Sig-
urðar Þórarinssonar, jarðfræð-
ings, sem um árabil var
varaforseti félagsins og um skeiö
forseti þess. Flutt verða verk Sig-
urðar í bundnu og óbundnu máli
og blandað saman visindum og
gamanmálum. Kvöldvaka þessl
er undirbúin af Áma Bjömssyni,
þjóðháttafræðingi og Sigurði
Steinþórssyni, jarðfræðingi. Kaffi
verður veitt i hléi.
Ferðafélagið hvetur félagsmenn
sína til virkrar þátttöku i hátiöar-
höldunum.
Vegna 60 ára afmælis verður
skrifstofa Ferðafélagsins lokuð
frá kl. 14.00, föstudaginn 27.
nóvember.
Ferðafélag Islands.
radauglýsingar
raöauglýsingar — raöauglýsingar
Styrkir til háskólanáms
í Finnlandi, Noregi og
Sviþjóð
1. Finnsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
íslendingum til háskólanáms eða rann-
sóknastarfa í Finnlandi námsárið
1988-89. Styrkurinn er veittur til níu
mánaða dvalar og styrkfjárhæðin er
1.500-2.200 finnsk mörk á mánuði.
2. Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa
íslendingi til háskólanáms í Svíþjóð
námsárið 1988-89. Styrkfjárhæðin er
3.880 s.kr. á mánuði i 8 mánuði.
- Jafnframt bjóða sænsk stjórnvöld fram
þrjá styrki handa íslendingum til vísinda-
legs sérnáms í Svíþjóð á sama háskólaári.
Styrkirnir eru til 8 mánaða dvalar, en
skipting í styrki til skemmri tíma kemur
einnig til greina. - Ennfremur gefst
íslenskum námsmönnum kostur á að
sækja um styrki þá, er sænsk stjórnvöld
bjóða fram í löndum þeim, sem aðild eiga
að Evrópuráðinu, en þeir styrkir eru ein-
göngu ætlaðir til framhaldsnáms við
háskóla.
3. Norsk stjórnvöld bjóða fram styrki handa
erlendum ungmennum til námsdvalar við
norska lýðháskóla eða menntaskóla
skólaárið 1988-89. Ekki ervitað fyrirfram
hvort nokkur styrkjanna kemur í hlut ís-
lendinga. Styrkfjárhæðin á að nægja fyrir
fæði, húsnæði, bókakaupum og einhverjum
vasapeningum. - Umsækjendur skulu eigi
vera yngri en 18 ára og ganga þeir að
öðru jöfnu fyrir sem geta lagt fram gögn
um starfsreynslu á sviði félags- og menn-
ingarmáia.
Umsóknum um framangreinda styrki skal
komið til menntamálaráðuneytisins, Flverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. janúar nk. á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Um-
sóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina
ásamt meðmælum.
Menntamálaráðuneytið,
23. nóvember 1987.
Frystitæki
Nýtt plötufrystitæki, 8 stöðva, til sölu með
sambyggðri vél.
Upplýsingar: SJ-Frost hf., Auðbrekku 19,
Kópavogi, sími: 46688.
Ysukvóti
Til sölu er 150 tonna ýsukvóti.
Tilboð óskast lögð inn á auglýsingadeild
Mbl. merkt: „Kvóti - 4905“.
Námskeið fyrir atvinnu-
uppfinningamenn
Þörf fýrir markvissa uppfinningastarf-
semi til nýsköpunar í atvinnulifinu
The Necessity for Professional Inventions
for Industrial Delvelopment
- Markviss uppfinningastarfsemi í Evrópu
- Professional Inventions in Europe
- Verndun uppfinninga og einkaleyfi
- Protections and Patents
- Sala uppfinninga
- Sale of Inventions
- Fjármögnun uppfinninga
- Financing
- Hvernig hægt er að verða ríkur af upp-
uppfinningum
- How to work on Inventions and become
rich
- Dæmi um velheppnaðar uppfinningar
- Actual cases on successful Inventions
Fyrirlesari: Lennart Nielsson, forstjóriTekno-
vators AB, ráðgjafafyrirtækis Sænska
uppfinningafélagsins.
Námskeiðið er á ensku.
Tími: Föstudagur 27. nóvember kl. 9.00-
17.00.
Staður: Verkfræðingahúsið við Suðurlands-
braut.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Verk-
fræðingafélagsins og Mannamót sf., sími
621062.
Verkfræðingafélag íslands,
JHM, Mannamót sf.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu er ca 115 fm skrifstofuhúsnæði í
góðu húsi við göngugötuhluta Laugavegar-
ins. Laust strax.
Lögmenn Garðarog Vilhjálmur,
sími 92-11733.
Til leigu
nálægt Landakotsspítala
Glæsilegt einbýlishús með séríbúð í kjallara
ásamt bflskúr. Kjörið húsnæði fyrir skrifstofur,
læknastofur eða teiknistofur. Leigutími 5-10 ár.
Lysthafendur leggi nafn og símanúmer inn
á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Landakot -
6143“.
VERSLUNAR HÚSIÐ SF
w GERDUBERG11
111 REYKJAVlK SÍMI75800
Til leigu
verslunarhúsnæði í nýju verslunar-
miðstöðinni, Gerðubergi 1
Jarðhæð:
Nú þegar er húsnæði ráðstafað fyrir radíó-
verslun, hljómplötuverslun, myndbanda-
leigu, ísbúð og bóka- og ritfangaverslun.
U.þ.b. 75 fm eru lausir fyrir t.d. blóma- og
gjafavöruverslun.
1. hæð:
Nú þegar er húsnæði ráðstafað fyrir kaffi-
stofu og snyrtivöruverslun.
U.þ.b. 363 fm eru lausir, sem gætu skipst í
þrjár 121 fm einingar fyrir t.d. leikfangaversl-
un, sportvöruverslun, skóverslun o.s.frv.
2. hæð:
U.þ.b. 300 fm eru lausir, sem gætu skipst í
fjórar 75 fm einingar fyrir t.d. hárgreiðslu-
stofu, rakarastofu, tannlæknastofu, snyrti-
stofu o.s.frv.
Leitið nánari uppl. hjá Guðjóni Páls-
syni í síma 77772 eða 82130.
hfimdau.uk
Dansleikur
Oþið hús og dansleikur hjá Heimdalli föstudaginn 27. nóvember.
Húsið opnað kl. 21.00. Léttar veitingar og tónlist fram á rauða nótt.
Ath.l Seinasta opna húsið á þessu ári. Allir velkomnir.
-j Skólanefnd.
Mosfellsbær
Viðtalstími bæjarstjórnarmanna
Sjálfstæðisflokksins
Hilmar Sigurðsson
og Þengill Oddsson,
bæjarstjómarmenn,
verða til viðtals í
fundarsal Hlégarðs
(uppi) frá kl. 17-19
fimmtudaginn 26.
nóvember nk.
Allir velkomnir með
fyrirspurnir og
ábendingar um bæj-
armálefni.
Sjálfstæðisfðlag Mosfellinga.