Morgunblaðið - 25.11.1987, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
67
Þessir hringdu . . .
Leifsstöðin og
Eden
Þórður Halldórsson hringdi:
„Það er óþarfi að segja að hug-
myndaflug skorti í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli.
Flutt hafa verið inn og sett upp
í stöðinni tvö fíkjutré frá Banda-
ríkjunum. í hinni helgu bók segir
að þegar höggormurinn hafði
freistað Evu með eplinu af skiln-
ingstré góðs og ills hafí hún
uppgötvað að hún væri nakin,
gripið þá laufblað af fíkjutréinu
og skylt sér með því. Höggormur-
inn gleymdist ekki við innflutning-
inn á tijánum en vaknaði af dvala
í líki lítillar eðlu eftir að tijánum
var komið fyrir og unin þar vel
hag sínum í von um að geta frei-
stað kynslóðanna sem eiga erindi
um flugstöðina. Adam og Eva
hafa ekki sést þama en tæplega
verður ráðamönnum skotaskuld
úr að bæta úr því þar sem húsa-
leiga kvað vera 'í „lágmarki" í
þessu frumlega húsi. Er þama
gróðavænlegt fyrirtæki í uppsigl-
inu. Þama þarf bara að koma
fyrir Adam og Evu og selja að-
gang að frumlegri sýningu með
hinum nýju Edenshjónum. Gera
má ráð fyrir að ekki skorti aðdá-
endur að sýningunni. Enda þótt
þessi tré og höggormurinn hafi
kostað rúma milljón og bygging
stöðvarinnar farið nokkur millj-
ónahundmð fram úr áætlun mun
Qárhagurinn fljótlega rétta við og
er óþarfí fyrir Jón Baldvin að
hafa áhyggjur af þessum smá
aurum. Fíkjumar af tijánum
verða einnig stór tekjulind því
farþegar munu kaupa dým verði
slíka minjagripi. Stóm skilti verð-
ur komið upp við sýningarbásinn
og innan sviga drottinn blessi
heimilið."
Veski
Grátt seðlaveski merkt Búnað-
arbankanum tapaðist sl. laugar-
dagskvöld, líklega fyrir utan Gauk
á Stöng. Finnandi er vinsamlegast
beðinn.að hringja í síma 35849.
Góöur
sj ónvarpsþáttur
Edda hringdi:
„Mig langar til að þakka Gísla
Sigurgeirssyni fyrir hinn frábæra
þátt „í minningu Jóa Kon“ sem
var á dagskrá sjónvarps miðviku-
daginn 18. nóvember. Þetta var
yndislegur þáttur og vel unninn."
Óheppilegt
orðalag
Grétar Eiríksson hringdi:
„Fyrir nokkmm dögum var les-
in í útvarpi fréttatilkynning frá
Landssambandi æðarbænda er
hljóðaði svo: „Varað skal við nið-
urskurði fjár til leiðbeiningar-
starfs og útrýmingar refs og
vargfugls." Frétt þessa las þulur-
inn á nokkurra athugasemda.
Hugsanlega er að vegna þessa
mikla niðurskurðar á fé sé einn
stórmarkaðurinn hér í borg farin
að selja diet-hangilqöt sem við
smáborgaramir höfum til þessa
nefnt fítulaust hangikjöt."
Góð
framhaldsmynd
N.N. hringdi:
„Mig langar til, þó seint sé, að
þakka Ríkissjónvarpinu fyrir
myndimar um herra Chips sem
sýndar vom þijú sunnudagskvöld
í röð. Það er sjónvarpinu til sóma
að flytja slíka þætti þar sem sam-
an fer jákvæður boðskapur og
góður leikur. Mættum við fá meira
að sjá og heyra.“
Gullúr
Gullúr tapaðist í Vesturbænum
eða Miðbænum sl. laugardag.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 23861 eftir kl.
19. Fundarlaun.
Viðkvæmar
minningar
S.P. hringdi:
„Nú er mikið rætt um fyrir-
hugað ráðhús við Tjömina. í
þættinum 19:19 á Stöð 2 f sfðustu
viku ieiddu þeir Davíð Oddsson
og Flosi Ólafsson saman hesta
sína um þetta málefni. Óneitan-
lega fannst mér Flosi komast í
rökþrot þó Davíð gerði lítið í því
að sauma að honum. Eina rök-
semd Flosa gegn ráðhúsbyggingu
þama var að hún myndi koma
róti á einhveijar ljúfsárar
bemsku- og æskuminningar
tengdar umhverfi Ijamarinna um
daga Vetrargarðsins og gamla
Tívolís. Ef þetta eru frambærileg
rök þarf víða að stöðva fram-
kvæmdir."
HEILRÆÐl
Varúð
Aldrei er nógsamlega brýnt fyrir foreldrum að láta ekki lyf eða
önnur hættuleg efni liggja á glámbekk. Gerðu ráðstafanir á þfnu
heimili til að fyrirbyggja slys af völdum þessara efna. Tryggjum
öryggi bamanna. Geymum öll hættuleg efni í læstum skápum.
BMX hjól
BMX - reiðhjól var tekið fyrir
utan flölbýlishúsið Flúðasel 61 í
Reykjavík á laugardagskvöld. Hjól-
ið er blátt með gulu sæti, lukt,
endurskinsmerki og nýjum stand-
ara. Þeir, sem geta gefíð upplýsing-
ar, era vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 71490.
Skáia
fell
John Wilson
spilar
«HBTSL«
Opið öll kvöld til
kl. 01.00.
&TDK
HUÓMAR
BETUR
Eins og undanfarin ár
býður Ferðamiðstöðin
ógleymanlega ferð til
Amsterdam um áramótin
( arió er frá Keflavík 30. des. og dvalið í 4 eða 6 daga
á hinu frábæra GRAND HOTEL KRASNAPOLSKY
Heimferð er 2. eöa 4. janúar.
/Tramótafagnaðurinnerhaldinn í hinumglæsilegasal
„Wintertuin". bar er boóið upp á veisluborð með cftir-
rctt og góðum drykkjum.
(jölbreytt skemmtiatriói eru flutt af hcimsþekktum
dans- ogskemmtikröftum. Dansaðtil kl. 03.00.
f\ nýársdager boðið uppá ,.brunch“ sem ergirnilegt
oggómsætt hlaðborð. sambland af morgun-og hádegis-
verði.
r^essi einstaka áramótaferð
til Amsterdam kostar aðeins:
Verð pr. m. í t\ íbýli/m.v. gengi 20
Ce*dtal
locwel