Morgunblaðið - 25.11.1987, Page 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
SKÍÐI / HEIMSBIKARKEPPNI KVENNA
Verður
svissnesku
stúlkunum
ógnað?
Heimsbikarinn í alpagrein-
um hefst á morgun
Pirmln ZQrbrlggnn varð flórfaldur sigurvegari í heismbikarnum í fyrra. Hann er talinn líklegur til afreka í vetur.
SKÍÐAVERTÍÐIN íalpagreinum
hefst fyrir alvöru í nœstu viku.
Þá fer heimsbikarinn af staö.
Konurnar ríöa á vaðið er þær
keppa í svigi sem fram fer í
Sestrieres á ítalfu á morgun,
fimmtudag. Búist er viö að
svissnesku stúlkurnar haldi
uppteknum hætti frá síðasta
keppnistímabili og einoki
kvennakeppnina ívetur.
Lengi var útlit fyrir að fresta
yrði keppni vegna snjóleysis en
úr því rættist á mánudag. ítalimir
búa til snjóinn í Sestriere sjálfir en
ekki hafði verið nógu kalt til að það
mætti takast. Á mánudag kólnaði
síðan niður fyrir frostmark og þá
var farið að sprauta og ætti allt
að vera til reiðu á morgun er
kvennakeppnin hefst.
Alls verða 55 heimsbikarmót í alpa-
greinum í vetur, 28 í karlaflokki
og 27 í kvennaflokki. Það hefur
aldrei skeð áður í 21 árs sögu alpa-
greinanna að ein þjóð einoki svo
keppnina í karla og kvennaflokki
• eins og í fyrra vetur. Þá unnu Sviss-
lendingar 40 gullverðlaun af 65
mögulegum, 22 gull í kvennaflokki
og 18 í karíaflokki.
Svissnesku stúlkumar siguruðu í
öllum greinum heimsbikarsins sam-
anlagt í fyrra. Michela Figini sigraði
bruni, Corinne Schmidhauser í
svigi, Maria Walliser og Vreni
Schneider í stórsvigi og Walliser í
risastórsvigi og einnig heimsbikar-
* inn samanlagt annað árið í röð.
Nú er ólympíuár og verða Vetrar-
leikamir nú haldnir í Calgary í
Kanada í febrúar. Skíðamenn búa
sig því enn betur undir veturinn en
ella. Svissneska kvenna liðið hefur
undirbúið sig mjög vel og hefur
- aldrei æft ein mikið.
r
Walliser sigurstrangleg
Hin 24 ára gamla Maria Walliser
V segist aldrei hafa æft eins mikið
og fyrir þennan vetur. „Þessi vetur
verður mun erfiðari en í fyrra, aðal-
lega vegna ólympíuleikanna. Eftir
að hafa unnið heimsbikarinn tvfveg-
is væri gaman að vinna til gullverð-
l' ■.* launa í Calgary," sagði Walliser.
i Talið er að Walliser fái harða keppni
^ í vetur frá stöllum sínum í sviss-
neska landsliðinu. Þar em sterkar
skíðakonur eins og Vreni Schneid-
er, Michela Figini, sem sigraði í
bmni á Ólympíuleikunum í Sarajevo
og Corinne Scmidhauser, en hennar
sérgrein er svig. Einnig em þær
Brigitte Oertli, Beatrice Gaftier,
Heidi Zúrbriggen og Zoe Hess lfleg-
ar til afreka.
Erika Hess hætt
iJb Ein frægasta skíðakona Svisslend-
inga fyrr og síðar, Erika Hess, hefur
lagt skiðin á hilluna og er sjónar-
sviftir af henni. Hún hætti eftir
heimsmeistaramótið f Crans Mont-
ana í fyrra, en þar vann hún tvenn
gullverðlaun. Hún hafði áður unnið
fem gullverðlaun á heimsmeistara-
móti auk fjölmargra sigra í heims-
- j bikamum.
„Zurbriggen
ersábesti“
- segir Frakkinn Jean Claude Killy
SVISSNESKI skíðakappinn
Pirmin Ziirbriggen, sem vann
fjórfaldan sigur í heimsbikarn-
um í fyrra, verður að teljast
sigurstranglegastur í karla-
flokki á komandi keppnistíma-
bili. í fyrra vann Zurbriggen
brunið, stórsvigið, risastór-
svigið og keppnina samanlagt.
Hann vann einnig samanlagt
1984, en átti við meiðsli að
stríða árið eftir. Fyrsta heims-
bikarmótið í karlaflokki verður
svig sem fram fer f Sestriere á
Ítalíu á föstudaginn.
Zurbriggen er mjög fjölhæfur
og er jafnvígur allar greinamar
fjórar. „Zurbriggen er besti og fjöl-
hæfasti skíðamaður sem uppi hefur
verið," sagði Frakkinn Jean Claude
Killy, sem talinn hefur verið einn
sá besti hingað til. Þessi orð Frakk-
ans segja allt um hæfíleika Sviss-
Það er þó talið að hún fái harða
keppni frá stöllum sfnum f svissneska
liðinu.
lendingsins.
Svisslendingar voru nær einráðir í
karla og kvennaflokki síðast vetur.
Svissnesku stúlkumar unnu allar
kvennagreinaramar samanlagt og
Zurbriggen vann allt í karlaflokki
nema svigið. Þar sigraði júgóslav-
inn Bojan Krizaj.
Jámmaðurinn
Svisslendingar geta þakkað þjálfar-
anum Karl Freshner fyrir þennan
góða árangur sem náðst hefur.
Hann byrjaði að þjálfa unglinga-
landsliðið fyrir 20 árum en tók síðan
við A-landsliðinu og er nú talinn
besti alpagreinaþjálfari heims.
Hann gengur undir nafninu „Jám-
maðurinn" og skal engan undra því
hann er mjög harður og ákviðinn
þjálfari.
„Ef þú ætlar þér að verða bestur
verður þú að borga það dýru verði.
Þú verður að neita þér um margt
og fóma þér algjörlega fyrir íþrótt-
ina. Æfíngar mínar eru erfíðar og
kreflandi en þær skila árangri,"
sagði Freshner. Hann framlengdi á
dögunum samning sinn við sviss-
neska skíðasambandið fram yfír
Vetrarólympíuleikana 1992.
Helstu vonir Svisslendinga í karla-
flokki á Ólympíuleikunum í Calgary
í febrúar eru Zúrbriggen, Peter
Múller, Karl Alpiger, Joel Gaspoz
og Franz Heinzer. Gaspoz hafði í
hyggju að taka þátt í atvinnu-
mannakeppninni í Bandarflgunum
f vetur en hefur nú ákveðið að reyna
við ólypíugull í Calgary.
Marc Qirardelll helstl
keppinautur ZUrbriggen
Austurríkismaðurinn Marc Girar-
delli, sem keppir nú fyrir Luxem-
borg, verður að teljast helsti
keppinautur Zúrbriggen í vetur.
Hann sigraði f heimsbikamum 1985
og 1986 en átti við meiðsli að stríða
í öxl síðasta keppnistímabil. Hann
er jafnvígur á allar greinar eins og
Zúrbriggen.
Austurríkismenn, sem oftasta hafa
verið stórveldi í alpagreinunum,
hafa ekki náð sér á strik sfðustu
árin. Þeir áttu aðeins þrívegis sigur-
vegara á heimsbikarmóti í fyrra og
alla í bruni. Þessa sigra unnu þeir
Peter Wimsberger, Leonard Stock
og Helmut Höflehner. Þeir verða
allir með í vetur.
ftalir komu nokkuð á óvart síðasta
vetur. Richard Pramotton bytjaði
keppnistfmabilið í stórsvigi vel í
fyrra og hafði forystu þar lengi
vel. Hann meiddist sfðan og þá var
draumurinn um sigur á enda. ítalir
eiga einnig skæða keppendur eins
og Robert Erlacher, Alberto Tomba
og Michael Maier.
Síðan Mahre bræðumir bandarísku
Phil og Steve hættu keppni hefur
ekki mikið borið á bandarískum
skíðamönnum í toppsætunum. Það
er aðeins brunmaðurinn Bill Jo-
hnson sem hefur unnið mót síðan.
En átti þó ekki góðu gengi að fagna
sfðasta vetur.
Aðrir keppendur sem koma til með
að blanda sér í baráttuna í vetur
eru brunmaðurinn Rob Boyd frá
Kanda og sænski skíðakappinn In-
gemar Stenmark sem verður með
í baráttunni í vetur.
Mlchela Flglna
Wolf gætl komlð á óvart
Af keppendum annara þjóða er
búist við að Austurríkisstúlkan
Sigried Wolf, sem vann tvö síðustu
brunmótin á síðasta ári, verði til
alls Iíkleg í þeirri grein í vetur. Einn-
ig gætu þær Katrin Gutensohn, sem
var meidd f fyrra og Roswitha
Steiner komið til með að blanda sér
í baráttuna.
Líklega verður hin unga Mateja
Sveit frá Júgóslavíu helsti keppina-
utur svissnesku stúlknanna. Hún
vann þrenn verðlaun á heimsmeist-
aramótinu í Crans Montana í fyrra
og kom á óvart í heimsbikarkeppn-
inni. Hún er aðeins 18 ára.
Franska stúlkan Catherine Quitte-
et, Vestur-þýsku stúlkumar Marina
Kiehl og Michaela Gerg, kanadfska
stúlkan Laurie Graham og Tamara
McKinney frá Bandaríkjunum gætu
einnig komið sterklega til greina.
McKinney hefur átt við meiðsli að
stríða og ekki víst að hún verði með
í fyrstu mótunum.
Maria Walllaar, núverandi heims-
bikarhafi frá Sviss, er talin Ifklegust
til afreka á komandi keppnistfmabili.