Morgunblaðið - 25.11.1987, Page 72
| ALHLIÐA PRENTWÖNUSTA
I GuÓjónÓ.hf.
91-27233
l
Þjónusta
íþínaþágu
0
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR.
SS
Watson segist vera
á leið til Islands
„ÉG KEM til íslands skömmu eftir áramót," sagði Paul Watson, for-
sprakki Sea Shepherd-samtakauna, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Watson sagði að ferðina til íslands ætlaði hann öðrum þræði að nota
til að bregðast við „háhymingaráninu", eins og hann tók til orða.
Watson vildi ekki tjá sig um í hverju viðbrögð hans yrðu fólgin. Hann
sagði að samtök sín fylgdust vel með málinu vestra og myndu beita
sér af afli gegn þvi að veitt yrðu leyfi til að flytja skepnumar inn
tíl Bandaríkjanna eða Kanada.
En Watson kveðst einnig eiga
annað erindi hingað til lands. „Eg
vil gefa íslenskum stjómvöldum færi
á að standa við stóru orðin sem voru
viðhöfð um okkur í samtökunum
fyrir ári. Þá vomm við kölluð hryðju-
verkamenn og glæpamenn og hótað
kærum og jafnvel framsali til ís-
lands. Kærumar hafa aldrei borist
og ekki hefur verið reynt að fá okk-
ur framseld. íslendingar virðast ekki
,diafa áhuga á að fylgja þessum ásök-
unum eftir með aðgerðum, en nú fá
stjómvöld færi á að ákæra mig fyr-
ir að eiga þátt í að sökkva hvalbátun-
um og geta rekið málið fyrir
dómstólum."
Watson var spurður hvort Rodney
Coronado og David Howard, sem
talið er að hafi unnið skemmdar-
verkin í hvalstöðinni í Hvalfirði og
sökkt hvalbátunum í Reykjavíkur-
höfn, yrðu honum samferða á leið-
inni hingað. „Ég kem einn,“ sagði
Watson, „en Coronado og Howard
koma kannski síðar. Við sjáum til
hvemig málin þróast og hvað íslensk
stjómvöld aðhafast. Sea Shepherd-
samtökin óttast ekki að standa fyrir
sínu máli fyrir dómstólum. Við björg-
uðum lífum og hindruðum ólöglegar
veiðar. Ef ég verð ekki ákærður þá
lítum við á það sem viðurkenningu
á réttmæti aðgerðanna."
• •
SIS kaupir hlut Ogur-
.víkur í Kirkjusandi
Ekki hætt við kaup á Fífuhvammslandi
segir Guðjón B. Ólafsson forstjóri SÍS
SAMBAND íslenskra samvinnufélaga gekk í gær frá kaupum á hlut
útgerðarfélagsins Ögurvíkur hf. í fiskvinnsluhúsinu Kirkjusandi í
Reykjavík. Þar ætlar SÍS að hafa aðstöðu fyrir starfsemi sína í fram-
tiðinni, en í haust keypti ríkið skrifstofuhúsnæði SÍS við Sölvhólsgötu.
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS, sagði að þrátt fyrir þessi kaup hefði
fyrirtækið enn áhuga á að kaupa Fífuhvammsland í Kópavogi.
„Það var gengið frá því í gær að
kaupa hlut meðeiganda SÍS í Kirkj-
usandi, Ögurvíkur hf., og það
stendur til að þama verði framtíðar-
húsnæði Sambandsins," sagði
Guðjón. „Það þarf að breyta hús-
næðinu mikið til að það verði
►nothæft undir starfsemina, en það
er ekki tímabært að nefna neinar
tölur um líklegan kostnað við það.
Varðandi Fífuhvammslandið get ég
ekkert fullyrt nú, en við emm að
velta fyrir okkur ýmsum hugmynd-
um um not á því landi og ræða við
viðkomandi aðila. Við erum ekki
hættir við kaup á því.“
Guðjón kvaðst ekki vilja gefa upp
hversu mikið SÍS hefði greitt fyrir
hlut Ögurvíkur hf. í Kirkjusandi, en
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins vom það um 45 milljónir.
Ögurvík hf. átti um 35% í fískvinnsl-
unni.
Frá siysstaðnum á Skógarhlíð.
■wjten - i.;
V*.
...
v -
Mor^unblaðið/Júlíus
Sex ára dreng-
ur fórst í bflslysi
SEX ára drengur iést um kl. una við Litluhlíð, þegar hann varð
19 í gær þegar hann varð fyrir fyrir stórri bifreið, sem var ekið
bifreið á Skógarhlíð í niður Skógarhlíð. Hann lést sam-
Reykjavík. stundis. Ekki er unnt að birta
Drengurinn var á leið yfir göt- nafn hans að svo stöddu.
Dounreay
mótmælt
ÓLAFUR Egilsson, sendiherra
íslands í London, sat sem áheyrn-
arfulltrúi á ráðstefnu um
mengun í Norðursjónum þar í
borg í gær. Þar kynnti hann sjón-
armið Islendinga og andstöðu við
stækkun kjarnorkuendurvinnslu-
stöðvarinnar í Dounreay í Skot-
landi.
Steingrímur Hermannsson, ut-
anríkisráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að honum hefði
verið boðið á ráðstefnuna, en hann
hefði ekki getað farið, og því hefði
hann beðið Ólaf að sitja hana og
koma sjónarmiðum ríkisstjómar-
innar á framfæri. Steingrímur sagði-
að ríkisstiómin hefði nú þegar mót-
mælt stækkun Dounreay-stöðvar-
innar við bresk stjómvöld, nú síðast
á fundi sjávarútvegsráðherra Norð-
urlanda fyrir skemmstu.
Ráðstefnuna í London sitja um-
hverfísmálaráðherrar átta landa
sem liggja að Norðursjónum. Henni
lýkur í dag, miðvikudag.
Viðey seldi í
Bremerhaven
VERÐ á ferskum fiski í Bremer-
haven lækkaði lítillega i gær,
eftir nokkuð hátt verð á mánu-
dag. Skýringin er sú, að kaup-
endum gekk illa að Iosna við
fiskinn, sem þeir keyptu á mánu-
dag, á nægilega háu verði.
Viðey RE seldi á mánudag og
þriðjudag. Meðalverð aflans á
mánudag var um 70 krónur, en
talsvert lægra í gær. Alls seldi Við-
ey 213,5 tonn að verðmæti 14
milljónir króna. Meðalverð var
65,50 kr. Vöttur SU seldi 89 lestir,
mest þorsk, í Hull. Heildarverð var
6,7 milljónir króna, meðalverð
75,22 kr.
Reykjavík - Kópavogur;
Samkomulag gert
um landamerkin
^íirkjusandur
Reykjavikurborg og Kópa-
vogsbær hafa gert með sér
samning um mörk milli bæjar-
Hrefnan frek til matarins
Etur hundruð þúsunda tonna af fiski árlega
ÁÆTLA má að hrefna hér við land éti hundruð þúsunda tonna
af flski árlega. Norðmenn telja að hver hrefna éti um 40 tonn
af fiski árlega, en hér er stofninn talinn vera 10.000 til 15.000
dýr. Hrefnan er ekki hér við landið allt árið og étur auk þess
annað en fisk. Því má ætla að hún éti um 200.000 tonn árlega
að minnsta kosti meðan hún er hér við land.
Þá er ótalið hve mikið aðrar sinni við setningu þings Far-
hvalategundir éta af fiski, svo og manna- og fiskimannasambands
selur. Fyrir nokkrum árum áætl-
uðu norskir vísindamenn að
hvalur og selur ætu um 2,4 millj-
ónir lesta af fiski í Barentshafí
árlega.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, vék að þessu í ræðu
íslands í gær. Hann nefndi að
Norðmenn teldu að hrefnan æti
um 40 tonn af fiski á ári og stofn-
stærðin hér væri 10.000 til 15.000
dýr. Hann sagði, að þó sumum
fyndist trillukarlar fá mikið af
fiski, væri það smáræði í saman-
burði við það, sem hvalimir ætu.
Yrði hvalastofnunum ekki haldið
í skefjum, gætu þeir náð yfir-
höndinni í samkeppninni um
fískinn og þá væri illa fyrir okkur
komið. Því væri það mikils virði
að eyða tíma í að kynna erlendum
þjóðum þessi mál. Samstarf við
aðrar þjóðir væri til lítils, vildu
þær ekki tala tillit til þessa alvar-
lega máls fyrir okkur.
Sjá frásögn af þingi Far-
manna- og fiskimannasam-
bandsins á bls. 31.
félganna. Samningurinn felur í
sér að Kópavogsbær fellur frá
forkaupsrétti á hluta úr landi
Vatnsenda, sem Reykjavíkur-
borg hefur gert kaupsamning
um. Einnig að fram fari maka-
skipti á löndum við Lögberg og
Þingnes. Rúmlega níu hektarar
úr landi Reykjavíkur umfram
makaskipti koma í hlut Kópavogs
og greiðir Kópavogsbær 2 millj-
ónir króna fyrir þá.
„Eins og kunnugt er höfum við
gert samning við bóndann á Vatns-
enda og buðum Kópavogi forkaups-
rétt,“ sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri. „Það komu upp hug-
myndir hjá Kópavogi að taka
forkaupsréttinn og við lýstum því
yfir af hálfu borgarinnar að það
væri okkur að meinalausu að Kópa-
vogur neytti forkaupsréttar, því við
vorum ekki í neinum landvinning-
um. Við vorum einungis að leysa
visst vandamál viðsemjanda okkar,
landeigandans."
Davíð sagði að niðurstaðan hefði
orðið sú, að ákveðið var að nota
tækifærið og lagfæra landamæri
milli Kópavogs og Reykjavíkur og
hafa skipti á löndum við Vatnsenda
og Þingnes, en Reykjavíkurborg
neitaði að ræða deiluna um Foss-
voginn á þessum grundvelli.
Borgarráð samþykkti samninginn
samhljóða og lýstu fundarmenn yfir
ánægju með hann.
„Það er ánægjulegt að samning-
ar skulu hafa tekist og þar með eru
öll mörk á milli Kópavogs og
Reykjavíkur orðin skýr, en þau hafa
verið óljós um langan tíma og verið
mikil þrætubókarlist þegar menn
hafa ýmist verið að sækja á eða
veija,“ sagði Kristján Guðmundsson
bæjarstjóri. Bæjarstjóm Kópavogs
hefiir samþykkti samninginn með
níu samhljóða atkvæðum, en tveir
sátu hjá. „Ég lít svo á að með þess-
um samningi hafi náðst ákveðin
afstaða til grannskaparins, en það
er mikilvægt að grannar geti unnið
saman," sagði Kristján.