Morgunblaðið - 26.11.1987, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1987
19
íslendingar og Þjóðverjar
eiga margt sameiginlegt
- segja hjón sem reka gistiheimili í Titisee í Svartaskógi
FORSTÖÐUMENN gistiheimilis-
ins Hochfirst, í bænum Titisee, í
Svartaskógi i Vestur-þýskalandi,
hjónin Waltraud og Kurt Rösch,
heimsóttu ísland nýverið til að
kynnast betur landi og þjóð og
heilsa upp á kunningja sína frá
liðnu sumri en þá dvöldu íslend-
ingar í fyrsta skipti í Hochfirst
á vegum ferðaskrifstofunnar
Útsýnar. Rösch-hjónunum líkaði
mjög vel við íslendingana og
töldu þá og Þjóðverja eiga margt
sameiginlegt.
„Héraðið Svartiskógur afmark-
ast af Sviss í suðri en Frakklandi
{ vestri," sögðu Rösch-hjónin, „Það
er um 100 km á lengd frá suðri til
norðurs en um 60 km á breidd þar
sem það er breiðast. Hæsta fjallið
í Svartaskógi, Feldberg, er 1493
metrar á hæð en héraðið er mest-
allt vaxið dökkum og þéttum
greniskógi sem það dregur nafn
sitt af. Það hefur mjög lengi verið
vinsælt bæði af innlendum og er-
lendum ferðamönnum sem hafa
leitað sér þar hvíldar og hressingar
en Qölmörg gisti- og sjúkrahús eru
í héraðinu.
Á sumrin er t.d. hægt að leigja
báta og seglbretti og sigla á Titi-
see-vatninu, sem er eitt af mörgum
vötnum í Svartaskógi, ellegar fara
í skoðunarferðir til nálægra borga,
t.d. Freiborgar, sem er höfuðborg
Suður-Svartaskógar og mikil versl-
unarborg, eða Baaden-Baaden sem
er fræg fyrir heilsuböð. Á vetuma
er hægt að fara á skíði, t.d. eru
allt að 100 km langar gönguskíða-
brautir í gegnum skóginn nálægt
Hochfirst. Einnig er hægt að fara
á skauta á Titiseevatni.
Okkur hjónunum lfkaði mjög vel
við þá 300 íslendinga sem gistu hjá
okkur sl. sumar. íbúar Titisee vita
mjög lítið um ísland en við munum
fræða þá um landið þegar við erum
komin heim og segja þeim frá þeirr!
miklu gestrisni sem við höfum orð-
ið aðnjótandi hér á landi. Okkur
virðast íslendingar og Þjóðverjar
eiga margt sameiginlegt, t.d. virðist
kraftur og dugnaður einkenna báð-
ar þjóðimar," sögðu Rösch-hjónin.
Rösch-hjónin sem veita gistiheimilinu Hochfirst
Svartaskógi forstöðu. Á milli þeirra stendur Ása
dóttir, fararstjóri Útsýnar í Svartaskógi.
Morgunblaðið/Sverrir
í bænum Titisee í
María Valdimars-
Óvíst hvort ferða-
skrifstofan Terra
verður lýst gjaldþrota
Kaupum nýrra eigenda rift
ÁKVEÐIÐ hefur verið að kaup-
um á ferðaskrifstofunni Terru
skuli rift, en nýir eigendur
keyptu fyrirtækið í byrjun nóv-
ember. Á hluthafafundi þann 30.
nóvember verður ákveðið hvort
óskað verði eftir að fyrirtækið
verði tekið til gjaldþrotaskipta,
eða hvort reynt verður að endur-
reisa það. Skuldir fyrirtækisins
eru 20-30 milljónir króna, en
eignir þess eru aðeins brot af
þeirri upphæð.
Torfi Ásgeirsson, sem nú er
framkvæmdastjóri Terru, sagði að
hluthafafundur á fimmtudag sl.
hefði óskað eftir því að farið væri
yfir allar tölur og lögð fram ný
gögn, áður en tekin yrði ákvörðun
um framtíð fyrirtækisins. „Hlut-
hafafundur þann 30. nóvember
tekur síðan endanlega ákvörðun um
hvort við stefnum í gjaldþrot eða
endurreisum fyrirtækið," sagði
Torfí. „Það er álitamál hvort við
reynum fyrst að sækja um greiðslu-
stöðvun, en ef ákveðið verður að
halda rekstri áfram munu núver-
andi eigendur ræða við alla aðila,
sem það skuldar fé. Á fundinum á
fimmtudag var ennfremur ákveðið
að rifta kaupsamningi við þá aðila
sem keyptu fyrirtækið í byijun
þessa mánaðar.
„Staðan nú er sú, að ef við ákveð-
um að halda rekstri áfram, þá
verðum við að reyna að ná samning-
um við stærstu kröfuhafa," sagði
Torfi. „Ef fyrirtækið verður lýst
gjaldþrota þá er ljóst að ekkert er
til skiptanna fyrir kröfuhafa, því
eignir fyrirtækisins eru aðeins brot
af skuldum. Verði rekstri haldið
áfram þá er möguleiki á að leita
eftir nýjum meðeigendum, en eig-
endur verða sjálfír að borga upp
mikið af skuldum fyrirtækisins ef
það á að ganga upp.“
Ferðaskrifstofan Terra hóf starf-
semi árið 1984. Torfi Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri, sagðist ekki
vilja segja neitt um hvers vegna
staða fyrirtækisins væri jafn slæm
og raun ber vitni, þvi menn væru
ekki á einu máli um það.
STEFNA í UTANRÍKISVERSLUN
Mánudaginn 30. nóvember verður almennur félagsfundur í Félagi
íslenskra stórkaupmanna með Steingrími Hermannssyni, utanríkis-
viðskiptaráðherra.
Fundurinn verður haldinn í Hvammi á Holiday Inn og hefst kl.
12.00 með hádegisverði.
Verkefni er varða utanríkisverslun voru nýlega færð frá viðskipta-
ráðuneyti til utanríkisráðuneytis. Þar á meðal:
Útflutningsverslun.
Undirbúningur og framkvæmd viðskiptasamninga.
Skipti íslands við alþjóðleg viðskiptasamtök.
Vörusýningar erlendis.
Ráðherrann fer þannig ekki aðeins með útflutningsmál, heldur einn-
ig mikilvæga hagsmuni er varða innflutningsverslunina, s.s.
samninga er varða aðgang íslendinga að erlendum innkaupamörk-
uðum.
Á fundinum gefst félagsmönnum kostur á að kynnast viðhorfum
ráðherra og ríkisstjórnar til þessara mikilvægu mála.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 10650.
GÓÐA FERÐ MEÐ
—RATVÍS—
MAYERHOFEN
Verð frá kr. 26.628.-
2 vikur, 2 í herb.
Afsláttur 30. jan.
SKIÐAFERÐIR
SERFAUS
Verðfrákr. 37.290.-
Sérstökjólaferð 19. des.
Örfá sæti laus.
2 vikur, 2 í herb.
ZELLAMSEE
Verð frá kr. 25.463
2 vikur, 2 herb.
HFLGAR- OG VIKUFERÐIR
GLASGOW
Verðfrákr.
16.760.-
2 í herb. 3 nætur.
LONDON
Verð frá kr.
18.870.-
2 í herb. 3 nætur.
AMSTERDAM
Verð frá kr.
17.320.-
2 í herb. 2 nætur.
HAMBORG
Verðfrákr.
20.540.-
2 í gistingu. 3 nætur.
ÁRAMÓTAFERÐ TIL AMSTERDAM
Ógleymanleg áramótaferð í sex daga/
fimm nætur. Akstur til og frá flugvelli.
Dvalið á Hótel Krasnapolski. Áramóta-
fagnaður og nýárshádegisverður. Verð
aðeins kr. 29.870.-
■
ODYR FARGJOJLDIDFSFMBFR
örIvlgwofnaR
fl§i?
GLASGOW
kr. 14.040.-
AMSTERDAM
kr. 15.500.-
PANTIÐ TÍMANLEGA
LONDON
kr. 16.150.-
KAUPMANNAHÖFN
kr. 18.790.-
OSLÓ
kr. 18.490
TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ
STOKKHOLMUR
kr. 21.440.-
MVÍS
Teroir
8>J
O-
Ratvís - ferðaskrifstofa Hamraborgl— 3 Sími: 91-641 522