Morgunblaðið - 01.12.1987, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1987
Nýr Alafoss hf. tekur til starfa í dag;
Starfsmenn 550 en
140 var sagt upp
ÁLAFOSS hf., nýtt ullariðnaðar-
fyrirtæki,_ sem orðið er til við
samruna Álafoss hf. í Mosfellsbæ
og ullariðnaðardeildar Sam-
bandsins á Akureyri, tekur til
starfa í dag. Aðalstöðvar fyrir-
tækisins verða á Akureyri og
forstjóri þess verður Jón Sigurð-
arson. Starfsmenn fyrirtækisins
verða um 550 talsins en um 140
starfsmönnum gömlu fyrirtækj-
anna tveggja hefur verið sagt
upp störfum vegna samrunans.
Um 80 starfsmenn ullariðnaðar-
deildar Sambandsins fengu upp-
sagnarbréf í gær vegna samrunans.
Marta'Aðalsteinsdóttir, sem unnið
hefur hjá ullariðnaðardeildinni í
þrettán ár, sagði að ljóst væri að
eitthvað hefði þurft að gerast í
málefnum ullariðnaðarins. Hins
vegar hefðu elstu starfsmennimir
haldið „að þetta væri eitt vælið í
viðbót og ekki kyngt því auðveld-
lega að hér væri alvara á ferðinni".
Um 60 starfsmenn Álafoss fengu
einnig uppsagnarbréf í gær vegna
samrunans. Karl M. Jensson er einn
þeirra en hann hefur starfað hjá
Álafossi í tæp 40 ár. Hann sagði
að ekki hefði verið farið eftir starfs-
aldri við uppsagnimar en allir, sem
sagt var upp, hefðu fengið þriggja
mánaða uppsagnarfrest.
Sjá frétt um hið nýja fyrirtæki
á bls. 47 og samtöl við starfs-
fólk á Akureyri á bls. 46.
Loðnukvótínn
verður aukinn
ÁKVEÐIÐ hefur verið að auka
loðnukvótann frá þvi, sem gert
var til bráðabirgða við upphaf
vertíðar. Síðari rannsóknarleið-
angur Haf rannsóknastof nunar
hefur gengið vel. Honum lýkur
um helgina og stefnt er að fundi
með norskum og grænlenzkum
rannsóknarmönnum í Reykjavík
í næstu viku. Endanlegur kvóti
verður þá væntanlega gefinn út.
Hjálmar Vilhjálmsson, leiðang-
ursstjóri á Bjama Sæmundssyni,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að yfírstandandi leiðangur hefði
gengið vel. Loðnan væri komin á
venjulegar slóðir og veður hefði
verið ágætt. Svæðið frá Víkurál og
austur að Langanesi hefði verið
kannað. Mælingar yrðu síðan kann-
aðar í Reykjavík í upphafí næstu
viku og þá legðu fískifræðingar
fram tillögur um heildarkvóta.
Eitt skip hafði þegar lokið kvóta
sínum og nokkur voru á mörkum
Vogahverfi:
Maður fletti
sig klæðum
LÖGREGLU í Reykjavík var í
gær tilkynnt að maður hefði flett
sig klæðum og verið með ósið-
lega tilburði við Vogaskóla.
Tilkynningin barst lögreglu kl.
17.10. Þegar lögreglan kom að
Vogaskóla skömmu síðar var mað-
urinn á bak og burt.
þess. Útgerðum skipanna hefur nú
verið heimilað að halda veiðum
áfram. Alls hafa veiðzt 177.000
tonn frá upphafí vertíðar og hefur
veiðin sfðustu sólarhringa verið jöfn
og góð.
Morgunblaðið/BAR
GÆSUNUM GEFIÐ
Hafnarfjörður:
Bærinn og
Flensborg
sameinast
um útvarps-
rekstur
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar
hefur ákveðið að reka útvarps-
stöð í samvinnu við skólayfirvöld
og nemendafélag Flensborgar-
skóla og verður stöðin til húsa í
skólanum. Sent verður út f tvo
klukkutíma á dag.
Að sögn Guðmundar Áma Stef-
ánssonar, bæjarstjóra, er hér um
skólaútvarp að ræða og verður stöð-
in notuð við kennslu en félagasam-
tökum og einstaklingum verður
einnig gefinn kostur á að senda út
eigin dagskrá. „Þetta verður vett-
vangur bæjarbúa, bæði þeirra sem
vilja koma fram í útvarpi og þeirra
sem vilja hlusta," sagði Guðmund-
ur.
Skipað hefur verið útvarpsráð
sem mun vinna eftir ákveðinni
reglugerð er sett hefur verið um
reksturinn. Bæjaryfírvöld leggja
fram fé í stofnkostnað en munu
ekki sjá um rekstur stöðvarinnar.
Einn starfsmaður verður ráðinn að
stöðinni í hálft starf til að byija
með.
íslensk sjónvarpshandrit meðal
verðlaunaleikrita í Genf?
Gcnf. Frá Elínu Pálmadóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
OPINBERLEGA hefur ekki
veríð upplýst hvaða 10 sjón-
varpshandrít urðu hlutskörpust
i „Genf Evrópu“-samkeppninni,
sem samtök sjónvarpsstöðva í
Evrópu efna nú til í fyrsta skipti
hér í Genf.
Þótt dómnefnd fagfólks frá 9
löndum, undir formennsku Vigdís-
ar Finnbogadóttur, forseta íslands,
hafí unnið stíft alla helgina og
síðdegis á sunnudag og valið 10
drög að sjónvarpsmyndum úr
framlögðum handritum frá 15
löndum, verða úrslit ekki tilkynnt
fyrr en á blaðamannafundi á
fímmtudag og þá um leið afhent
í Grand Theater verðlaun, sem eru
rúmar 600 þúsund krónur á hvert
handrit. Fyrr verður ekki sagt um
örlög handritanna þriggja frá ís-
landi, sem ríkisútvarpið lagði fram,
þ.e. Steinbam eftir Vilborgu Ein-
arsdóttur, Heimkoman eftir Önnu
Heiði Oddsdóttur og Michael Dean-
ford og Engin spor eftir Viktor
Amar Ingólfsson, en ég hefí hlerað
að eitt þeirra sé meðal verðlauna-
handritanna, sem er mikill heiður,
enda samkeppnin mikil, t.d. voru
944 handrit send inn frá Spáni.
Handritin tíu sem komast í úrslit
verða fullunnin og keppa í formi
50 mínútna sjónvarpsmynda til
Grand-prix-verðlauna á árinu
1988.
Sérstök samtök Evrópulanda
um sjónvarp og menningu voru
formlega stofnuð sl. vor í þeim til-
gangi að veita annað hvert ár
verðlaun í Genf og draga fram
efni ungra höfunda. Var Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands og
fyrrverandi leikhússtjóri, beðin um
að veita fyrstu dómnefnd forstöðu
og aðrir dómnefndarmenn eru allt
fagfólk frá sjónvarpsstöðvunum í
9 löndum Evrópu og í hópnum eru
rithöfundar. Var mikil vinna lögð
í að leggja grundvöllinn að framtíð-
arvinnubrögðum og stefnu. Höfðu
allir gefíð handritunum 41 punkt
fyrirfram og þá séð hvað kæmi
helst til greina er nefndin kom
saman til viðræðna. Lofuðu dóm-
nefndarmenn. og forstöðumenn
Evrópusjónvarpsins, sem frétta-
menn hittu í höfuðstöðvum
Eurovision, skipulag og stjóm
Vigdísar Finnbogadóttur, hún
hefði á lýðræðislegan hátt og með
festu stýrt dómnefndinni. Þetta er
ekki í fyrsta sinni sem hún veitir
slíka forystu í menningarmálum
því hún var um árabil í menningar-
nefnd Norðurlandaráðs og formað-
ur þess 1978-80 auk þess sem hún
er jafnvíg á bæði tungumálin sem
unnið er á hér, frönsku og ensku.
Dagurinn í gær hjá forseta ís-
lands var helgaður sjónvarpsstöðv-
unum. Vigdís heimsótti og sat
kvöldverðarboð Evrópusjónvarps-
stöðva og heimsækir einnig og
situr hádegisverðarboð hjá Sviss-
nesk-rómanska sjónvarpinu og hún
var í beinni útsendingu í frétta-
þætti í Eurovision í hádeginu.
í dag, þriðjudag, verður forseti
íslands gestur Genfar-kantónu og
Genfar-borgar og fer m.a. í heim-
sókn í hið fræga klukkusafn og
heimsækir aðalleikhúsið, Grand
Theater, og í kvöld hefur sendi-
herra íslands hjá alþjóðastofnun-
um í Genf, Sverrir Haukur
Gunnlaugsson, móttöku í sendi-
herrabústaðnum.
í dag
RiovjjunWn&ií)
„Höfum allt að vinna
en engu að tapa"
Nýtt búvöruverð tekur gildi í dag:
Mjólk hækkar um 8%
og kindakjöt um 6,5%
WEUOÍA: ABNÓR SKORAOI/B 7.
BLAÐ B
BÚVÖRUR hækka i verði i dag,
samkvæmt ákvörðun verðlags-
nefndar búvara. Kindalgöt
hækkar um 6,5% og mjólk og
mjólkurvörur um 7—8%. Stór
hluti hækkunarinnar stafar af
þeim almennu launahækkunum
sem urðu i október.
Einn mjólkurlítri (í 1 1 pökkum)
hækkar um 3,70 kr. úr 44,20 í
47,90 kr., eða um 8,04%. Einn lítri
af tjóma (í pelafemum) hækkar
um 20,40 kr., úr 277,60 í 298
krónur, um 7,3%. Eitt kíló af 45%
osti hækkar úr 414,40 í 445,80
kr., eða um 7,3%. Kíló af lamba-
kjöti í 1. verðflokki, ósundurtekið
í heilum skrokkum, hækkar úr
303,40 í 323,20 kr., eða um 6,5%.
Meginástæðan fyrir hækkun
búvaranna er hækkun launa í
verðlagsgrundvelli og vinnslu-
stöðvum. Ýmsir aðrir kostnaðar-
liðir hækkuðu og einnig hefur það
áhrif á útsöluverð að niðurgreiðsl-
ur ríkissjóðs hækka ekki og lækka
því sem hlutfall af útsöluverðinu.
Verðlagsgrundvöllur kúabús
hækkaði um 5,84% frá grundvell-
inum sem gilt hefur frá september-
byijun. Verðlagsgrundvöllur
sauðfjárbús hækkaði um 5,63%.
Hróðný Sigurðardóttir
Jóhann Halldór Pálsson
Létust af slysförum
HJÓNIN, sem létust f umferð-
arslysi á Suðurlandsvegi við
Þrengslavegamót á laugardag,
hétu Hróðný Sigurðardóttir og
Jóhann Halldór Pálsson. Þau
voru til heimilis að Dalbæ I í
Hrunamannahreppi.
Hróðný heitin var 45 ára göm-
ul, fædd 17. maí árið 1942.
Jóhann Halldór var 51 árs, fædd-
ur 7. mars árið 1936. Þau hjón
láta eftir sig fjögur böm, 25 ára,
23 ára, 18 ára og 12 ára.