Morgunblaðið - 10.12.1987, Page 1
96 SÍÐUR B
281. tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
Prentsmiðja Morgimblaðsins
Reuter
Hér á myndinni má sjá þá Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta, og Mikhaíl Gorbatsjov, Sovétleiðtoga,
gantast í forsetaskrifstofunni í Hvíta húsinu meðan á stuttu fundarhléi stóð.
Spenna eykst á leiðtogafundinum:
Ýtt undir bjartsýni á
tímamótayfirlýsingar
Washington, frá Agnesi Bragadóttur og Aageirí Sverrissyni, blaðaniönnum Morgunblaðsins.
SPENNAN í andrúmsloftinu magnaðist mjög hér i Washington í
gær, eftir að þeir Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta hússins, og
Gennadíj Gerasimov, talsmaður Sovétstjómarinnar, héldu fund með
fréttamönnum að afloknum fundi þeirra Reagans og Gorbatsjovs,
þar sem mikil bjartsýni og jákvæður andi endurspegluðust i svörum
talsmannanna. Fréttaskýrendur hér vestra telja margir hveijir að
afstaða talsmannanna og viðhorf á fundinum i gær geti vart boðað
annað en að tímamótayfirlýsinga leiðtoganna sé að vænta að fundin-
um loknum, síðdegis í dag.
Marlin Fitzwater greindi frá því
að fundur leiðtoganna í gærmorgun
hefði dregist á langinn, annan dag-
inn í röð. Gennadíj Gerasímov bætti
því við að hann hefði dregið þá
ályktun af fundi leiðtoganna í gær,
að hann hefði verið nytsamlegur
og jákvæður, vegna þess að þegar
þeir hefðu komið út úr skrifstofu
Reagans í Hvíta húsinu hefði
Gorbatsjov brosað til hans og Reag-
an veifað.
Báðir talsmennimir lýstu því yfir
að viðræðumar hefðu verið mjög
gagnlegar og báðir lögðu áherslu á
þýðingu þess að leiðtogamir rædd-
ust við undir flögur augu, að túlkum
einum viðstöiddum, áður en þeir
áttu sameiginlegan fund með helstu
ráðgjöfum sínum.
„I dag var Grettistaki lyft í við-
ræðum leiðtoga okkar," sagði
Fitzwater í upphafi fundarins og
um tólf hundmð fréttamenn setti
hljóða í eftirvæntingu eftir því sem
Gerasímov myndi segja við þessari
yfirlýsingu. Þeir máttu bíða hljóðir,
því Gerasímov hafði ekki eina at-
hugasemd fram að færa við yfírlýs-
ingar Fitzwaters, hvorki ofan-
greindar né aðrar.
Talsmennimir greindu frá því að
það sem hefði farið leiðtogunum á
milli á fundinum í gær, sem alls
stóð í tvær klukkustundir, hefði
snert stríðið í Afganistan og Persa-
flóastríðið Auk þess hefðu þeir rætt
um afvopnunarmál, einkum fækkun
langdrægra kjamorkuvopna og
hvaða þýðingu hugsanlegt sam-
komulag hefði fyrir báðar þjóðir.
Gorbatsjov átti í gær fund með
leiðtogum þingsins. Einn þingmað-
urinn spurði Gorbatsjov hvort fyrir
lægi hvenær brottflutningur innrás-
arliðsins frá Afganistan hæfíst. „Ég
mun skýra ykkur frá því bráðlega,"
svaraði Gorbatsjov og minnti á að
Sovétmenn hefðu þegar boðað að
hersveitimar yrðu kallaðar heim.
Sovétleiðtoginn hvatti þingmennina
til að tryggja að sáttmáli risaveld-
anna um upprætingu skamm- og
meðaldrægra kjamorkuvopna hlyti
staðfestingu öldungadeitdar Banda-
ríkjaþings.
I gærkvöldi var þess vænst að
vinnuhópar, sem leiðtogamir
ákváðu að skyldu ræða ágreining
ríkjanna á sviði mannréttinda- og
afvopnunarmála, skiluðu átiti.
Sjá ræður leiðtoganna á siðu
28, sem og fréttir á síðu 2, 38
og 39.
Blaðamannafundur Gorbatsjovs í dag:
Fréttamenn lítt hrifn-
ir af fundartilhögun
Washington, frá Agnesi Bragadóttur og Ásgeiri Sverrissyni, biadamönnum Morgunblaðsins.
MJÖG hörð gagnrýni hefur komið fram af hálfu blaðamanna hér
í Washington vegna þess að sovéskir embættismenn hafa ákveðið
að fundur Míkhaíls Gorbatsjov með fréttamönnum verði haldinn
í salarkynnum sovéska sendiráðsins, sem rúma aðeins 350 manns.
Þykir þetta í litlu samræmi við glasnost-stefnu Sovétleiðtogans.
Gagnrýni þessi kom fram á fundi sem talsmenn stórveldanna, þeir
Gennadíj Gerasímov og Marlin Fitzwater, héldu með fréttamönnum
síðdegis í gær. Hátt í 7.000 blaðamenn eru að störfum hér í Wash-
ington og brugðust þeir hinir verstu við þegar tilkynnt var hvemig
staðið yrði að fundinum.
Gerasímov svaraði gagnrýninni á þann hátt að ekki væri hægt að
„troða 7.000 blaðamönnum inn í sovéska sendiráðið", en lét því hins
vegar ósvarað hvers vegna ekki hefði verið valið húsnæði sem rúmaði
fleiri og vakti málflutningur hans vægast sagt litla hrifningu.
Japan:
Skotið að rússn-
eskri sprengjuvél
Tókíó, Reuter.
JAPANSKAR orrustuþotur
skutu í gær aðvörunarskotum að
sovéskri sprengjuflugvél, sem
rofið hafði lofthelgi Japans yfir
eynni Okinawa. Þetta er í fyrsta
skipti frá lokum seinni heims-
styrjaldar sem japanskar her-
flugvélar hafa þurft að stugga
óboðnum gestum burt úr loft-
helgi sinni með aðvörunarskot-
um.
í gærmorgun voru tvær japansk-
ar orrustuþotur af gerðinni Pham-
tom F-4EJ sendar á loft frá
Naha-herstöðinni til þess að fylgja
sovéskri sprengjuþotu úr japanskri
lofthelgi, en vélin hafði tvívegis
brotið hana. Sovéska vélin var af
gerðinni Tu-16, sem NATO-ríkin
auðkenna með nafninu Badger, en
alls var hún um 10 mínútur í loft-
helgi Japans.
Að sögn talsmanns vamarmála-
stofnunar Japans hafði vélin
upphaflega verið í hópflugi ásamt
þremur vélum öðmm yfír Austur-
Kínahafí, en sveigði svo inn í
lofthelgi Japans.
Þegar japönsku vélamar komu
að sovésku vélinni gáfu þeir flug-
manni hennar ýmis merki og reyndu
að ná sambandi við hann á alþjóð-
legum fjarskiptatíðnum. Þegar
Perú:
Flugvél ferst með 50
manns innanborðs
Líma, Reuter.
HERFLUGVÉL frá Perú með 50
manns innanborðs, þar á meðal
helsta knattspyrnulið landsins,
fórst á miðvikudagsnótt. Flug-
vélin féll í hafið skammt frá
Límu, höfuðborg landsins, en að
sögn talsmanns sjóhersins komst
að minnsta kosti einn maður af.
Talsmaðurinn sagði að einum
manni hefði verið bjargað með þyrlu
og auk þess hefðu fimm lík fund-
ist. Maðurinn, sem af komst, mun
vera flugmaður vélarinnar, sem var
af gerðinni Fokker Friendship,
F-27.
Að sögn flugvallaryfirvalda hafði
flugmaður vélarinnar samband við
flugturninn skömmu fyrir lendingu
og sagði að hann kæmi lendingar-
hjólunum ekki niður. Honum var
sagt að hjólin væru niðri, en eigi
að síður lagði hann ekki í að lenda,
hringsólaði yfir borginni og óskaði
þess að slökkvilið og sjúkrabílar
yrðu til taks á vellinum. Skömmu
síðar tóku menn í tuminum eftir
því að ljós vélarinnar voru ekki leng-
ur sjáanleg og spurðu því ratsjár-
manninn hvar vélin væri. Þegar
hann gætti að því var vélina ekki
heldur að fínna á skjánum og var
leit hafín þegar i stað.
Hún bar þó ekki árangur fyrr en
í birtingu. Nokkurt brak hefur fund-
íst ur vélinni siðan, en
lífsmark ekki, enda hefur þoka
hamlað leit nokkuð.
Sljórnarkreppu af-
stýrt í Færeyjum:
Þyrlan leigð
- ekkikeypt
Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
Á FUNDI landsstjórnarinnar í
fyrradag voru þyrlukaupin um-
deildu rædd og urðu menn þá
loksins á eitt sáttir. Samkomu-
lagið verður þó útlátasamara
fyrir landssjóðinn en fyrri
ákvörðun.
í stað þess að landssjóðurinn
kaupi þyrluna er það ætlunin, að
fjármögnunarleigan SB-Finans
kaupi hana og leigi landssjóðnum.
Þar með hefur stjómarkreppu verið
afstýrt í bili að minnsta kosti jafn-
vel þótt niðurstaðan sé dýrari fyrir
Færeyinga en sjálf kaupin, sem allt
settu á annan endann.
Búið var að panta þyrluna og
borga inn á hana en greiðslan verð-
ur endursend landssjóðnum. Talið
er, að þyrlan verði komin í notkun
í febrúar eða mars.
Rcuter
Að ofan má sjá japanska herþotu
af Phantom-gerð, en að neðan
er Tu-16, Badger.
þessu hafði farið fram um nokkra
hríð, án þess að sovéski flugmaður-
inn sinnti þeim nokkuð, skutu
flugmennimir merkjaskotum fram
fyrir vélina og sveigði flugmaðurinn
vélinni þá út úr lofthelginni.
Formleg kvörtun verður borin
fyrir sovésk stjómvöld, en að meðal-
tali þurfa japanskar eftirlitsvélar
að fara 2-3 sinnum á loft á degi
hvetjum vegna ferða sovéska flug-