Morgunblaðið - 10.12.1987, Síða 35

Morgunblaðið - 10.12.1987, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987 35 Sala á raforku um sæstreng til Bretlands: Eg er bjartsýnni en áður - segir Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar FULLTRÚAR Landsvirkjunar og Náttúruverndarráðs ræddu sl. mánudag við ráðgjafa breska fyrirtækisins North Venture Associat- es sem hefur undanfarið kannað möguleika á kaupum Breta á raforku frá íslandi um sæstreng. Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar, sagði að þessar viðræður hefðu orðið til að auka á bjartsýni hans á hvað þennan möguleika varðaði. Ráðgjafar North Venture telja hugsanlegt að íslendingar geti selt Bretum 500 megaw- atta raforku um sæstreng eftir 5 til 10 ár. Gísli Gislason, fram- kvæmdastjóri Náttúruvemdarráðs, sagðist reikna með því að samráð yrði haft við ráðið ef ákveðið yrði að ráðast í sérstakar virkjunar- framkvæmdir vegna sölu á rafmagni úr landi. „Þessir menn, sem við ræddum kostur, þegar allt kemur til alls. við,“ sagði Halldór, „eru ráðgjafar North Venture Associates á sviði umhverfis- og orkumála og hafa unnið lengi á þessu sviði, bæði fyr- ir þetta fyrirtæki og önnur, og starfa sem sjálfstæðir ráðgjafar. Þeir eru í sjálfu sér bjartsýnir á að kaup Breta á 500 megawatta raf- orku frá íslandi geti verið fjár- hagslega hagkvæmur kostur og þá með frekari aukningu síðar meir í eitt til tvö þúsund megawött þegar til lengri tíma er litið. Það er líklegt að orkuverð fari hækkandi í Bret- landi og á meginlandi Evrópu og það gerir þennan möguleika hugs- anlega raunhæfan eftir svona 5 til 10 ár. Þeir ætla að láta Landsvirkjun í té sínar niðurstöður í þessu máli og væntanlega bjóðast til að vera Landsvirkjun innan handar við markaðskönnun, viðræður við orku- fyrirtæki og stjómvöld í Bretlandi, ef íslensk stjómvöld vilja á annað borð fylgja þessu máli frekar eftir. Þeir ætla að senda okkur skýrslu um hvaða möguleika við eigum hvað markaðshliðina snertir. Ég býst við að við getum fengið þá skýrslu eftir einn til tvo mánuði. Með stækkun Búrfellsvirkjunar, Sultartangavirkjun, Vatnsfells- virkjun, Fljótsdalsvirkjun og Vill- inganesvirkjun myndi samtals fást um 600 megawatta raforka. Ef farið yrði út í að virkja fyrir svona orkufrekan möguleika er hins vegar allt eins víst að vænlegra þætti að fullvirkja á Þjórsársvæðinu eða fljótin á Austurlandi. Það er sjálf- sagt hagkvæmara en að virkja á fleiri en einum stað á landinu í einu. Áhug'i North Venture skiptir ekki sköpum í sjálfu sér hafa þessar viðræður okkar orðið til þess að auka á bjart- sýni okkar frekar en hitt. En það er ekki hægt að segja að þessi áhugi North Venture skipti sköpum fyrir þær hugmyndir sem menn hafa gert sér hingað til um þessi mál. Yfirstandandi athugun á því að selja raforku til annarra landa hófst að fmmkvæði Landsvirkjunar fyrir u. þ.b. ári síðan og er nú á lokastigi. Meðan niðurstöður hennar liggja ekki fyrir er ekki hægt að tjá sig um einstök atriði hvað fjárhags- hliðina snertir. En þessi umræða eykur að sjálfsögðu tiltrú manna á því að þetta geti einhvem tíma orð- ið að raunhæfum möguleika. Það er svo annað mál hvað mönn- um þykir þetta vera vænlegur Það eru flestir þeirrar skoðunar að orkufrekur iðnaður sé vænlegri en að flytja rafmagnið beint út. Það verður að sjálfsögðu meiri verð- mætasköpun í landinu með orku- frekum iðnaði og menn myndu því væntanlega vilja gefa honum for- gang. En alla vega finnst okkur ómaksins vert að kanna þennan möguleika. íslensk stjómvöld ráða því hversu langt verður gengið í þessu máli. Við hjá Landsvirkjun emm einungis með innanhússat- huganir á því enn sem komið er og að þeim loknum er það stjóm Landsvirkjunar að ákveða hvað gert verður og þá væntanlega í samráði við iðnaðarráðherra,“ sagði Halldór. Ráðgjafar North Venture ræddu einnig við fulltrúa Náttúmvemdar- ráðs sl. mánudag. Gísli Gíslason, framkvæmdastjóri ráðsins, sagði að ráðgjafamir hefðu spurt um álit Náttúmvemdarráðs á þeim mögu- leika að Bretar keyptu raforku frá íslandi. „Þetta er að sjálfsögðu allt óskoðað,“ sagði Gísli. „Menn vita ekki hvað virkjanir af þeirri stærð- argráðu, sem ráðgjafamir em að tala um, hefðu nákvæmlega í för með sér. Ef íslendingar taka þá ákvörðun að selja orku úr landi ætti að vera nægjanlegt svigrúm til að gera þær athuganir sem gera þarf áður en ákvarðanir verða tekn- ar um það hvar virkjað verður. Stækkun Búrfellsvirkjunar, Sult- artangavirkjun og Vatnsfellsvirkj- un hefðu tiltölulega lítil umhverfis- áhrif. Það hefur verið haft samráð við okkur um allatilhögun hvað þær varðar og ég reikna með því að svo verði einnig í þessu máli, ef menn meta stöðuna þannig að þetta sé alvömhugmynd," sagði Gísli. Ráðgjafar North Venture skoð- uðu aðstæður á Þjórsársvæðinu á þriðjudag. Á miðvikudag ræddu þeir við Friðrik Sophusson, iðnaðar- ráðherra, fulltrúa Orkustofnunar og Hafrannsóknastofnunar. Á fimmtudag skoða þeir aðstæður við Blönduvirkjun en þeir fara utan á föstudaginn. Morgunblaðið/Sverrir Jón Stefánsson, stjórnandi kórs Langholtskirkju, ásamt einsöngvur- unum Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, Viðari Gunnarssyni og Kristni Sigmundssyni, með eintök af nýútkomnum geisladisk kórsins. Kór Langholtskirkju: Jóhannesarpassía gefin út á geisladisk JÓHANNESARPASSÍA eftir Jo- hann Sebastian Bach er komin út á 2 geisladiskum í flutningi kórs Langholtskirkju, kammer- sveitar og einsöngvara, undir stjórn Jóns Stefánssonar. Upp- takan var gerð á tónleikum í Langholtskirkju 17 apríl sl. Flytjendur em Ólöf K. Harðar- dóttir sópran, Solveig M. Björling alt, Michael Goldthorpe tenór, Albert Jónsson SVS og Varðberg: Afvopmm nið- urstöður leið- togafundarins SAMTöK um vestræna samvinnu (SVS) og Varðberg halda sameig- inlegan hádegisfund laugardag- inn 12. desember í Átthagasal Hótel Sögu og hefst fundurinn kl. 12.00. Umræðuefni fundarins er: Staða afvopnunarmála og niðurstöður leið- togafundarins í Washington. Framsögumaður er Albert Jónsson stjómmálafræðingur og fram- kvæmdastjóri Oryggismálanefndar. Innilegt þakklœti til allra þeirra, sem minntust mín á 80 ára afmœlinu 1. desember sl. meÖ heimsóknum, skeytum og gjöfum. LifiÖ heil. Finnur Klemensson, Hóli. Fáksfélagar Sýnikennska í jólaskreytingum verður í félags- heimilinu, fimmtudaginn 10. des. kl. 20.30. Veitingar: Jólaglögg. Allir félagar velkomnir. Kvennadeildin. Karlmannaföt nýkomin Einhneppt og tvíhneppt. 10 staerðarnúmer. Margir litir. Verð kr. 7.500,- og 8.900,- Föt fyrirliggjandi kr. 3.995,- og 5.500,- Terylenebuxur nýkomnar, ný snið. Andrés, Skólavörðustíg 22, simi 18250. GEGN SI4ÐGREIÐSLII FLUGLEIDIR Kaupum og seljum hlutabréf Flugleiða gegn staðgreiðslu. Kaupverð nú er kr. 2.400,- fyrir hverjar 1.000,- kr. nafnverðs. sími Hlutabréfamarkaðurinn hf. 21677 Skólavörðustíg 12, 3.h., 101 Reykjavík. Dra uma skart Kristinn Sigmundsson bassi, Viðar Gunnarsson bassi, kór og kammer- sveit Langholtskirkju. Upptakan var gerð af Ríkisútvarpinu, og tón- meistari var Bjami Rúnar Bjama- son. Disknum fylgir bók með texta passíunnar ásamt umfjöllun um verkið, höfund þess og flytjenduma á íslensku, ensku og þýsku. Þýðing á textum passíunnar, öðmm en biblíulegum, var í höndum sr, Kristjáns Vals Ingólfssonar. Disk- hulstið prýðir mynd úr íslensku handriti frá 14. öld. „Lifandi upptaka hefur marga kosti fram yfir stúdíóupptöku." sagði Jón Stefánsson kórstjóri. „Tónleikamir vom teknir upp af Ríkisútvarpinu með stafrænni tækni, og sendir út í beinni útsend- ingu á föstudaginn langa. Tæknileg vinnsla disksins gerir það að verk- um að hljómurinn er í hæsta gæðaflokki, án þess að sú lifandi stemming, sem aðeins næst á tón- leikum, tapist.“ Jóhannesarpassían er aðeins gefin út á geisladiskum, ekki á hefðbundinni hljómplötu. Sagði Jón það vera vegna þess að gæðin væru ekki sambærileg, auk þess sem geislaspilareign væri orðin almenn. Hins vegar hygst kórinn brúa bilið fyrir þá sem ekki eiga geislaspilara með því að gefa verk- ið einnig út á snældum á næstunni. < 3ull og demantar Kjartan Ásmundsson, gullsmiður, i Aðalstræti 7. Sími 11290. J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.