Morgunblaðið - 10.12.1987, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
Ljósa-
úrvalið
er í
Raforku
RAFORKAHF.,
Glerárgötu 32, simi 21867
Vandaður
karlmannafatnaður
í úrvali
Leggjum áherslu á góða
og örugga þjónustu.
Klæðskeraþjónusta.
tí
errabudin
Hafnarstrxti 92 - Sími 96-26708
r/ -
Akurliljan
Jólafatnaðinn
fœrðu hjá
okkur.
Akurliljan
Hafnarstræti 106 - @ 24261
• Vefnaðarvara
• Gardínuefni
• Gjafavara
S^(
emman
Skipagötu 13, sfmi 23S04
SIEMENS
heimilistæki
Útvarpsvekjarar
í hvítu og svörtu með
og án segulbands.
Furuvöllum 1, 600 Akureyri
Sfmi 96-27788
ÖKUMANNSHÚS
VOLVO F7 án húss
VOLVO 613 - F88
BEDallargerðir
MERC með og án húss
SCANIA 111 án húss
og margarfleiri gerðir
STAALING, Viborg
Sími: 9045 6 62 53 00
Telex: 66 264ExdytDK
Telefax: 9045 6 62 53 09
Vörður:
Grafík í
Glugganum
GLUGGINN galleri, Glerárgötu
34, opnar sýningu tíu félaga úr
íslenskri grafík nk. laugardag, 12.
desember. Á sýningnnni verða
milli 30 og 40 grafíkverk sem
gefa hugmynd um hvað islenskir
grafíklistamenn eru að fást við
um þessar mundir.
Þeir sem sýna eru: Aðalheiður
Skarphéðinsdóttir, Björg Þorsteins-
dóttir, Daði Guðbjömsson, Guð-
mundur Armann Siguijónsson, Jón
Reykdal, Ragnheiður Jónsdóttir,
Sigrún Eldjám, Valgerður Hauks-
dóttir, Þórður Hall og Öm Þorsteins-
son.
Sem fyrr segir verður sýningin
opnuð á laugardaginn kl. 16.00 og
stendur til sunnudagsins 20. desem-
ber. Glugginn er opinn daglega frá
kl. 14.00 til 20.00, en lokað er á
mánudögum.
Opirm fund-
ur um utan-
ríkismál
í Kaupangi
VÖRÐUR, félag ungra sjálf-
stæðismanna á Akureyri, og
utanríkismálanefnd SUS halda
opinn fund um utanríkismál í
félagsaðstöðu Varðar í Kaup-
angi. Fundurinn verður haldinn
sunnudaginn 13. desember og
hefst kl. 14.00.
Fundurinn er haldinn í tilefni
samkomulags Ronalds Reagan og
Míkhaíls Gorbatsjov um eyðingu
meðaldrægra og skammdrægra
kjamaflauga. Gestur fundarins
verður dr. Gunnar Pálsson starfs-
maður hjá alþjóðadeild Atlants-
hafsbandalagsins í Brussel. Dr.
Gunnar mun ijalla um samkomu-
lag leiðtogafundarins, áhrif þess
á áframhaldandi afvopnunarvið-
ræður og bætt samskipti lýðræð-
isríkjanna og ráðstjómarríkjanna.
Fundarstjóri verður Gunnar
Ragnars bæjarfulltrúi. Allt
áhugafólk um utanríkismál er vel-
komið á fundinn.
Fiskmarkaður Norðurlands hef-
ur selt 210 tonn fyrir sjö millj.
FISKMARKAÐUR Norðurlands
hf. hefur selt alls 210 tonn af fiski
síðan markaðurinn tók til starfa
og er heildarverðmæti um sjö
milljónir króna. Fyrsta uppboðið
fór fram þann 6. október sl. og
að sögn Sigurðar P. Sigmundsson-
ar framkvæmdastjóra voru
október- og nóvembermánuðir
báðir heldur daufir hvað uppboð
varðar, en kippur hefur komið i
söiuna í desembermánuði. Af þeim
210 tonnum, sem boðin hafa verið
upp, er þorskur aðaluppistaðan
eða 172 tonn og 21 tonn af ufsa.
Annað er samansafn af öðrum
tegundum.
Seld voru um það bil 50 tonn í
Eftir hlákuna um nóttina
var engin ummerki að sjá
segir Signrður Björnsson lögregluvarðstjóri á OJafsfirði
„ÉG HELD að erfiðar aðstæður
hafi valdið hvað mestu um útaf-
aksturinn í Ólafsfjarðarmúlanum
sl. mánudagskvöld þegar ungi pilt-
urinn ók fram af veginum. Það
var hvasst og þíða, vegnrinn var
auður á köflum og svell á milli.
Varla er hægt að gera sér grein
fyrir því hveraig svona aðstæður
virka þegar óhöpp verða,“ sagði
Sigurður Björnsson lögregluvarð-
stjóri á Ólafsfirði í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Merking vegarins erfið
Sigurður sagði að skilti væru sitt-
hvorum megin við Múlann sem
vöruðu við gijóthruni úr íjallinu, en
þau væru út af fyrir sig engan veg-
inn nægileg aðvörun. „Það er ákaf-
lega erfítt að koma upp þama
umferðarmerkingum vegna snjó-
þyngsla. Stikur eru á öllum köntum,
en þar sem vegurinn er með þeim
snjóþyngstu á landinu vilja þær
gjaman fara þegar snjómðningstæki
moka þama. Hinsvegar hefur vegur-
inn ýerið afar vel merktur yfír
sumartímann."
Tökum mark á öllum
ábendingum
Sigurður sagði að sjórinn myndi
éta bflinn með tímanum enda væri
ekkert í hann að sækja. Athugað
hefði verið daginn eftir slysið hvort
eitthvað heillegt fyndist í bílnum, en
ljóst væri að ekkert nýtanlegt væri
eftir í bílnum. „Það er með ólíkindum
hvemig gmnsemdimar um útafakst-
urinn vöknuðu. Maður, sem var á
ferð við erfíðar aðstæður í Múlanum
seint á mánudagskvöld tók eftir hjól-
fömm sem hugsanlega bentu til
útafaksturs þó það hafí alls ekki
verið augljóst að þama hafí farið
bíll út af. Þegar við komum sáum
við ekkert athugavert í myrkrinu —
aðeins lítið skarð í kantruðningnum.
í hlákunni um nóttina hvarf farið
og morguninn eftir var engin um-
merki að sjá. Annaðhvort var að taka
eftir þessu þama eða ekki. Við höfum
fengið tilkynningar, sem ekki hafa
alltaf reynst á rökum reistar, en við
tökum slíkar ábendingar alltaf alvar-
lega.
Pilturinn liggur enn þungt haldinn
á gjörgæsludeild Fjórðungssjúkra-
húss Akureyrar. Hann höfuðkúpu-
brotnaði og hlaut auk þess mikla
höfuðáverka, samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins. Hann mun vera
heldur að hressast, en var samt ekki
kominn til fullrar meðvituhdar í
gær. Það verður að teljast mildi að
ekki skuli hafa farið verr fyrir öku-
manninum, en hann mun hafa
kastast út úr bílnum áður en bíllinn
endasentist niður þverhníptan Ólafs-
flarðarmúlann og hafnaði gjörónýtur
í fjöruborðinu.
október og annað eins í nóvember.
Vikuna 30. nóvember til 4. desember
fóm fram uppboð alla dagana fímm.
Selt var úr fimm bátum, Sjöfn ÞH,
Frosta II ÞH, Særúnu EA, Svani EA
og Glað HU. Fjórir þeir síðastnefndu
höfðu ekki selt áður í gegnum mark-
aðinn.
í heild vom seld 73,7 tonn af ós-
lægðum þorski að verðmæti 2,8
milljónir króna. Meðalverð var 37,98
krónur á hvert kg. Einnig voru seld
0,4 tonn af óslægðri keilu að verð-
mæti 5.400 kr.
Selt var úr fjórum bátum síðastlið-
inn mánudag, Frosta ÞH, Sjöfn ÞH,
Særúnu EA og Glað HU. Samtals
var um að ræða 29,5 tonn af óslægð-
um þorski að verðmæti 930 þúsund
krónur. Meðalverð var 31,41 kr. á
hvert kg., sem er mun lægra verð
en vikuna áður enda um heldur
smærri físk að ræða. Seld voru 320
kg af keilu á 4.600 krónur. Á þriðju-
dag vom boðin upp sex tonn af
óslægðum þorski úr Sjöfn ÞH og á
34,20 meðalverði.
Sigurður sagði að stærri vinnsl-
umar væm famar að koma meira
inn til að kaupa físk en áður og hefði
til dæmis Útgerðarfélag Akur-
eyringa keypt 50 tonn af markaðnum
í byijun desember til að halda vinnsl-
unni gangandi. „Stærri vinnslumar
geta auðvitað yfírboðið smærri físk-
verkenduma þegar vinnslumar em
físklausar og nýta þær sér það þegar
lítið er orðið um físk. Búast má við
minni afla upp úr 20. desember, þó
vonir standi til að hægt sé að ná í
togarafísk.
Tvö banaslys hafa orðið á ná-
kvæmlega sama stað og ungi
Sauðkrækingurinn fór fram af Múla-
veginum auk þess sem önnur farar-
tæki hafa farið fram af en ökumenn
komist lífs af. „Það er ómögulegt
að gera sér grein fyrir því hvemig
óhappið vildi til. Það er um það bil
75 gráðu halli á hlíðinni sem tekur
við neðan við veginn og eftir henni
taka við 30 til 40 metra háir hamrar
þverhntptir niður í sjó svo að bíll, sem
fer þama niður, kemur lítið við. Lítið
rask er eftir bflinn og samkvæmt
athugunum virðist hann hafa komið
við hlíðina tvisvar til þrisvar sinnum
á leið sinni niður. Afar ólíklegt er
að pilturinn hafí komið sér út úr
bflnum af sjálfsdáðun — hann hefur
örugglega kastast út og öruggt er
að enginn maður hefði komist lífs
af eftir ferð niður hamrana."
Frá slysstað í Olafsfjarðarmúla.
Morgunblaðið/GSV