Morgunblaðið - 10.12.1987, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
Jerúsalem:
Sundrunff á
zíonistaþingí
Jerúsalem. Reuter.
TIL mikilla deilna kom i fyrradag
á 31. alþjóðaþingi Zíonistahreyf-
ingarinnar en það er haldið í
Jerúsalem. Höfðu fulltrúar viða
af að heimsbyggðinni hörð orð um
það, sem þeir kölluðu trúarlega
þvingun og pólitíska forsjár-
hyggju í ísrael.
Heittrúarmenn á þinginu, sem
hófst á sunnudag og stendur í fímm
daga, brugðust ókvæða við þessum
ásökunum og kom til handalögmála
þegar þeir kröfðust þess, að æðstu-
prestamir ísraelsku yrðu beðnir
afsökunar á ummælunum.
Gagnrýnendumir kváðust harma
einokun gyðingdómsins f trúarlegum
efnum í ísrael, tilraunir trúarlegra
stjómmálaflokka til að ráða því „hver
sé gyðingur" og bannið, sem sett
hefur verið í Jerúsalemborg, við öll-
um skemmtunum á hvíldardegi
gyðinga. „Messíasarstefna í stjóm-
málum er bijálæði," sagði Arthur
Werzberg, rabbíi og einn af frammá-
mönnum fijálslyndra gyðinga í
Bandaríkjunum, og var klappað mik-
ið fyrir þeim orðum hans. Sagði hann
ennfremur, að vildu trúarlegu stjóm-
málaflokkamir ekki sýna umburðar-
lyndi og raunsæi yrði að skilja alveg
á milli ríkisins og trúarinnar.
Shimon Peres utanríkisráðherra
sat fyrir svömm á þinginu og átti
nokkuð f vök að veijast, einkum
vegna tilrauna á ísraelskra þinginu
til að breyta gildandi lögum um, að
allir gyðingar, hvar sem þeir annars
búa, geti flust til ísraels og fengið
þar ríkisborgararétt. Kvaðst Peres
mundu beijast gegn breytingum á
lögunum.
Bretland:
Batman bjargaði
morgunsj ónvarpi
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
TÆKNIMENN við morgunsjón-
varp bresku sjónvarpsstöðvarinn-
ar ITV hafa verið i verkfalli f
tæpar tvær vikur. Einungis hefur
verið hægt að senda út teikni-
myndir, Batman-myndir og lesnar
fréttir. Áhorfendum hefur ekki
fækkað.
Tæknimenn við óháðu sjónvarps-
stöðvamar hafa haft sterk tök á allri
vinnslu eftiis. Þeir hafa mjög há laun;
allmargir þeirra eru með yfir 60.000
krónur á viku. Það hefur lengi stað-
ið til hjá ITV að reyna að þvinga
tæknimenn til að samþykkja sveigj-
anlegan vinnutíma og skapleg laun.
í upphafi þessara átaka fóru
tæknimenn í 24 stunda verkfall,
vegna þess að þeir vildu ekki sam-
þykkja fjölda tæknimanna, sem átti
að vinna við sérstakan jólaþátt, þar
sem safna átti fé handa fátæku og
þurfandi fólki hér í landi. Þegar þeir
ætluðu að snúa aftur til vinnu, neit-
aði yfírmaður morgunsjónvarpsins
að taka þá aftur, nema þeir skrifuðu
undir skuldbindingu um að hlýða
skipunum yfírmanna sinna. Tækni-
menn neituðu því.
Stjómendur morgunsjónvarpsins
bragðu þá á það ráð að sýna teikni-
myndir, Batman-myndir og lesnar
fréttir. Það hefur gengið vel og það,
sem er merkilegt: áhorfendum hefur
ekki fækkað. I siðustu viku horfði
að jafnaði tvær og hálf milljón manna
á morgunsjónvarp ITV, sem er nán-
ast sami áhorfendafjöldi og áður.
Yfirmenn segja, að auglýsingum
hafi ekki fækkað og hagnaðurinn af
rekstrinum hafi aldrei verið meiri.
Fréttamenn á morgunsjónvarpinu
hafa ekki stutt tæknimenn. Stuðn-
ingur við þá annars staðar frá hefur
verið hverfandi lítill.
Yfírmenn hafa gengið inn í störf
tæknimanna. í gærmorgun var svo
haldið úti eðlilegri útsendingu í
hálftfma til að koma til móts við
athugasemdir útvarpsráðs, sem tel-
ur, að morgunsjónvarpið fullnægi
ekki þeim kvöðum, sem felast í leyfí
þess til útsendinga.
1 flMr
. .... : ^ -
l|PIK!ll®lll
iir m
Leitað í braki vélarinnar, sem er dreift yfir stórt svæði.
Bandaríkin:
Reuter
Leitað að skammbyssu
í braki f lugvélarinnar
- alríkislögreglan tekur þátt í rannsókn flugslyssins
San Luis Obispo, Kaliforniu. Reuter.
RANNSÓKN flugslyssins í
Kalifomíu beinist nú að þvi
hvort um um glæpsamlegt at-
hæfi hafi verið að ræða. Leitað
er að skammbyssu í braki vélar-
innar. Talið er að karlmaður
sem rekinn var úr starfi hjá
flugfélaginu hafi ætlað að
koma fram hefndum á fyrir-
tækinu með þvf að farga sér
og vélinni.
Richard Bretzing starfsmaður
alrikislögreglunnar er yfirmaður
rannsóknarinnar á slysinu. Alrik-
islögreglan vinnur að rannsókn
málsins í samvinnu við bandaríska
loftferðaeftirlitið. Hann sagði á
blaðamannafundi að ekki væri
hægt að ganga framhjá þessum
möguleika. „Við munum leita að
byssu í brakinu og ef hún er þama
finnum við hana,“ sagði Bretzing.
Hann neitaði hins vegar að svara
spumingu blaðamanna um það
hvort víst væri að um morð og
sjálfsmorð hefði verið að ræða
þegar vélin fórst og 43 með henni.
Haft er eftir ónefndum heimild-
armönnum að David Burk 35 ára
maður sem rekinn var frá móður-
fyrirtæki PSA flugfélaginu, sem
átti vélina, hafi skilið eftir bréf á
heimili sínu þar sem hann sagðist
ætla að laumast um borð í vélina
með skammbyssu. Hugðist hann
myrða Ray Thompson, jrfírmann-
inn sem rak hann. Alríkislögregl-
an hefur farið heim til Burks en
ekki gert þar húsrannsókn.
Skömmu áður en vélin fórst
tilkynnti flugmaðurinn að hann
hefði heyrt skothvelli úr farþega-
lými.
Oscar Arias forseti Costa Rica er nú kominn til Osló til að taka við friðarverðlaunum Nóbels. Á myndinni
sést hann með móður sinni Lillyan Sanchez de Arias, konu sinni Margaritu og tveimur bömum, Sylviu
og Oscari Felipe.
Arias í Osló
Reuter
Kína:
Stúdentar krefj-
ast afsagnar
háskólarektors
Peking, Reuter.
ÁLETRANIR á veggspjöldum
hvöttu stúdenta í Peking í gær
til að fara i verkfall til að mót-
mæla dauða félaga síns á laugar-
dag. Námsmenn segja að hann
hafi orðið fómarlamb „skrifræð-
isins“ i Kína. Einnig var þess
krafist að rektor í háskóla i Pek-
ing fyrir afburðanemendur segði
af sér vegna málsins.
Zang Wei lést á sjúkrahúsi í
Peking af völdum áverka sem hann
hlaut í deilum við hjólreiðaviðgerð-
armann á stúdentagarði. Félagar
hans segja að læknisaðstoð hafi
tafist um nokkrar afdrifarikar
mínútur á meðan útkljáð var hvem-
ig spitalinn fengi borgað fyrir
þjónustu sína. Auk þess hefði að
sögn námsmannanna verið hægt
að bjarga lífi hans ef aðstæður á
garðinum hefðu verið betri. í gær
áttu stúdentar fund með Li Lanqing
aðstoðarráðherra utanríkisvið-
skipta þar sem þeir bára fram
kröfur sínar um bættan aðbúnað
og minna skrifræði. Að sögn voru
viðræðumar vinsamlegar. Nemend-
ur í Utanríkisviðskiptaháskólanunv
í Peking njóta mikils álits í Kína
og eiga þeir að námi loknu greiða
leið í eftirsótt embætti á vegum
utanríkisráðuneytisins.
í gær var 52 ára afmæli stúd-
entauppreisnar gegn þáverandi
jrfirvöldum. Siðan kommúnistar
komust til valda hefur verið haldið
upp á afmæli uppreisnarinnar til
að minnast mikilvægs áfanga í sögu
byltingarinnar í Kína. í gær var
einnig 1 árs afmæli stúdentaóeirða
í Hefei í austur-Kína sem komu af
stað öldu mótmæla vegna skorts á
frelsi og lýðræði.
í tilkjmningu frá Æskufréttum
Kfna, opinberri fréttastofusegir að
umræðuhópar hafi starfað í gær til
að minnast uppreisnarinnar fyrir
52 áram. Einnig segir að það sé nú
í tísku hjá æsku Kína að lesa verk
Marx og Leníns. Skjöl frá nýaf-
stöðnu 13. flokksþingi kommúnista-
flokksins séu nú einnig mjög
vinsælt lesefni meðal ungs fólks.