Morgunblaðið - 10.12.1987, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
79
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
Slök vöm þyngri á
metunum en góð sókn
Heimsmeistararnir skoruðu sigurmarkið ertværsekúndurvoru eftir
JUGÓSLAVAR sigruðu íslend-
inga með marki á lokasekúndu
landsleiks þjóðanna í Höllinni
í gærkvöldi. Það tryggði gest-
um vorum 28-27 sigur í leik
sem sýndi betur en nokkur leik-
ur annar, að það getur verið
vandasamt að vinna sigur þeg-
ar varnarleikur er í molum frá
byrjun til enda. Nægir að benda
á skorið í leiknum. Þá verður
helst að vonast til þess að
andstæðingurinn só með enn
verri vörn, en þó litlu hafi mun-
að í þessu tilviki var því þó
ekki að heilsa og tap varð stað-
reynd. Ef litið erfram hjá
Ijósum punktum og dökkum
má svo sem segja að það hafi
ekki verið ósanngjarnt að Júgó-
slavar sigruðu, ísland vann
fyrri leikinn og þessi lið virka
ákaflega jöfn að getu. Samt
voru sárgrætilegir vendipunkt-
ar sem hefðu trúlega snúið
leiknum ef þeir hefðu farið á
annan veg.
Einn slíkur vendipunktur var t.d.
þegar um þrjár mínútur voru
til leiksloka, ísland hafði þá eins
marks forystu, 26-25 og fékk
hraðaupphlaup.
Kristján Arason
komst í dauðafæri
og sveif inn í teig-
inn. Fram að því
Guðmundur
Guðjónsson
skrifar
hafði júgóslavneski markvörðurinn
varla varið skot, en auðvitað valdi
hann þetta augnablik til að gera
bragarbót. Og svo skoruðu Júgó-
slavar auðvitað tvö næstu mörk.
Annar vendipunktur var svo síðasta
sekúndan. Valdimar hafði jafnað
27-27 með glæsilegu marki úr hom-
inu, en eins og ótaloft í þessum
leik, sofnaði vömin og minni spá-
maður einn læddi sér af bekknum
og laumaðist inn á Iinuna. Það voru
tvær sekúndur eftir þegar hann
fékk knöttinn í dauðafæri, ein eftir
þegar hann sveif inn og allt búið
þegar hann lenti. Og Júgóslavar
fögnuðu sem óðir væm, föðmuðust,
kysstust og dönsuðu um allt.
Nú hefur verið frá því greint, að
vamarleikur íslenska liðsins hafí
verið vægast sagt slakur. Sóknar-
leikurinn var hins vegar oft og
tíðum augnayndi og mörg mark-
anna glæsileg þótt einstaka lykil-
menn hafí verið mistækir þar eins
og annars staðar. Ber hæst frammi-
staða Sigurðar Sveinssonar sem
fékk kærkomið tækifæri á móti al-
mennilegu liði, en í seinni tíð fær
hann helst að leika gegn þjóðum
sem flokkast undir fallbyssufóður á
leikvelli. Sigurður sýndi og sannaði
að hann „drífur enn þá“ á markið.
Hann skoraði ótrúlega glæsileg
mörk, mataði samheija sína með
snilldarsendingum og naut sín í
hvívetna. Þó lék hann aðeins rúm-
Morgunblaðið/Bjarni
Sígurður Sveinsson blómstraði
þann kafla sem hann fékk að vera
með í sókninni. Skoraði glæsileg mörk
og lék félaga sína skemmtilega uppi.
lega hálfan síðari hálfleik. Sannað-
ist þarna það sem allir vissu en
flestir hafa gleymt, að það er fátt
skemmtilegra í íslenskum hand-
knattleik en að sjá Sigurð Sveinsson
á góðum degi. Þá var samvinna
Ottars Matthiesen við útileikmenn-
ina frábær, hann skoraði glæsileg
mörk eftir jafn glæsilegar línusend-
ingar. Svo má einnig tína til
gersamlega skothelda frammistöðu
homamannanna Guðmundar Guð-
mundssonar og Valdimars
Grimssonar, en það mæddi mikið á
þeim. Þeir skiluðu sínu frábærlega
vei og skoruðu báðir gullmörk eins
og þeim einum er lagið. Þetta var
ekki dagur Kristjáns Arasonar og
Atli var mistækur á köflum. Páll
og Sigurður Gunnarsson áttu sína
spretti, en minna fór fyrir öðrum
leikmönnum.
Júgóslavar spiluðu nú betur en í
fyrri leiknum, þetta er sterkt lið,
um það er engum blöðum að fletta
og þótt það hafi vantað nokkur
þekkt nöfíi í liðið er þetta lið samt
verðugur fulltrúi heimsmeistara
Júgóslavíu. Okkar mönnum gekk
oft afleitlega að ráða við Sarasevic
og raunar áttu hinir og þessir furðu
greiða leið að marki Islands. Þarna
gat líka að Iíta einn undarlegan,
að nafni Kuzmanovski, sem skoraði
þijú mörk og öll með uppstökkum
Iangt fyrir utan punktalínu. Vörn
og markvarlsa var einnig hausverk-
ur Júgóslava og þessi leikur hefði
getað farið á hvom veginn sem var.
Morgunblaðið/Bjami Eiriksson
Páll Ólafsson gerði þijú mörk úr jafti mörgum skotum. Hann gerði skemmti-
lega hluti að vanda — hér smýgur hann fímlega milli tveggja vamarmanna.
Nafn Skot Mörk Varín Yflroöa framhjá í stöng Fengin vfti Útaf í 2 mín Knetti glatað Línusend.sem gefur mark Skota- nýting
Einar Þorvarðarson 11
Guðmundur Hrafnkelsson 2
Þorgils Óttar Mathiesen 4 4 3 100%
Kristján Arason 8/4 4/3 4/1 2 3 50%
Páll Ólafsson 3 3 1 1
Siguröur Gunnarsson 4/1 2 2 1 50%
Siguröur Sveinsson 4 4 1 100%
Valdimar Grímsson 4 3 1 75%
Geir Sveinsson
Guðmundur Guömundsson 4 3 1 2 75%
Atli Hilmarsson
Júlíus Jónasson 1
Jakob Sigurösson
ísland—Júgóslavía
27 : 28
Vináttulandsleikur í handknattleik.
Laugardalshöll, raiðvikudagur 9. des-
eraber 1987.
Gangur leiksins: 1:0, 3:3, 5:5, 5:7,
7:7, 8:8, 8:12, 10:12, 10:14, 11:15,
12:15, 13:16, 14:17, 16:19, 20:20,
21:21, 21:22, 23:22, 24:24, 25:25,
26:26, 26:27, 27:27, 27:28.
Mörk íslands: Atli Hilmarsson 4,
Þorgils Óttar Matthiesen 4, Sigurður
Sveinsson 4, Kristján Arason 4/3, Guð-
mundur Guðmundsson 3, Valdemar
Grímsson 3, Páll Ólafsson 3, Sigurður
Gunnarsson 2/1.
Mörk Júgóslaviu: Sarasevic 6, Uz-
eirovic 6, Portner 5/3, Kuzmanovski
3, Simeilacic 3, Perkovac 3, Holpert 2.
Ahorfendur: 1580.
Dómarar: Broman og Eliasen frá
Svíþjóð eins og fyrri daginn og komust
þeir bærilega frá sínu.
Hvaó sögðu þeir?
SigurAur Sveinsson
„Mér fannst þetta mjög góður
leikur sóknariega séð. En vömin
var ekki nógu góð.
Skapti Við fáum of mörg
Hallgrúnsson mörk á okkur af
skrifar línunni og þá
skora þeir of mikið
úr hraðaupphlaupum. Það var ein-
skær óheppni að tapa — munaði
ipjög litlu. Já, ég var ánægður
með sjálfan mig. Það var að duga
eða drepast Ég fann fjölina já, —
ég geri það þegar ég fæ að fara
á hana!“
„Leikurinn einkenndist af þreytu
beggja liða. Sóknin var betri en
í gær en vömin slakari. Þetta var
grátlegt þama í lokin — við sáum
hann bara ekki, þann sem skor-
aði.“
„Þegar andstæðingur er að kom-
ast einn í gegn um vömina á
síðustu sekúndum leiks og staðan
er jöfn verður að stöðva hann,
hvað sem það kostar. Það vora
hrikaleg mistök að enginn skyldi
stöðva Júgóslavann þaraa S lokin.
Menn verða að fóma sér — bijóta
á honum þó þeir fái rautt spjaid
fyrir vikið.“
„Ég fann mig ekki og fékk mikið
af „klafsmörkum* á mig — kom
J)á við boltann en náði ekki að
veija. En það er vika til steftiu í
næstu leiki en ég verð að nota
tfmann vel til að ná mér upp aft-
ur. Þetta var einn af þeim leikjum
þar sem ekkert gekk upp hjá mér
og ég reyni að gleyma honum sem
fyrst þó það verði erfítt. Það er
niðurbijótandi fyrir leikmenn að
tapa tveimur leikjum með svo
skömmu millibili á síðustu sekún-
dunni — fyrst gegn Norðmönnum
úti og svo nú. En við verðum að
bíta á jaxlinn."
„Það er ekki gaman að fá úrslita-
markið á sig svona í lokin. Þetta
var ægilega klaufalegt. Hann kom
inn á og og gleymdist — laumað-
ist alla leið í gegn. Grátlegur endir
á annars góðum leik. Leikurinn
hefur örugglega verið skemmti-
legur fyrir áhorfendur, mikill
hraði og læti. Vömin var slök,
mikið um misskflning milli manna,
sérstaklega í seinni hálfleik. Það
er hlutur sem þarf að laga á æf-
ingum. Við verðum að tala betur
saman í vörainnni."
„Það var leiðinlegt að tapa þessu.
Við áttum að stoppa hann þama
í lokin. Talningin f vöminni var
vitlaus. En leikurinn var skemmti-
legri en sá fyrri. Þeir vora betri
en þá. Ég fann mig ekki vel og
bað um skiptingu f sókninni —
og Siggi Sveins blómstraði sem
betur fer. Vömin var góð f gær
en ekki nú — við vorum ekki nógu
grimmir í fráköstunum. Þá skutu
þeir stundum af 12 metra færi,
vel fyrir utan punktalínu, og þau
skot á markmaðurinn að verja.
En það vantar samstarf milli vam-
ar og markmanns; um það hvort
homið vörnin á að veija tfl að
hjálpa markmanninum. Þetta er
æfingarairiði sem við verðum að
Iaga.“
J6n Hjaltalín WliiQnúimw
fomtaAurHSÍ
„Ég er ánægður með þetta. Ég
tel að landsliðið hafí staðist þessa
raun. Liðið hefur leikið marga
leiki á skömmum tíma — og það
hefur verið mun meira álag á leik-
mönnum en verður á ólympíuleik-
unum. Það var einmitt ætlun
landsliðsnefndar að hafa þetta
timabil stíft. í kvöld sáum við
ýmis smá mistök bæði í vörn og
sókn, tfl dæmis í lokin þegar varð
að stöðva manninn sem skoraði
sigurmarkið, en ég veit að Bogdan
lagfærir þessa hluti fyrir Worid
Cup í Svíþjóð og sérstaklega fyrir
ólympíuleikana. Liðið æfír nú vel
fyrir Suður Kóreu leikina f næstu
viku — en þá mætum við snilling-
um sem æfa sjö klukkutima á dag
allt árið! Markmiðið er að ná góð-
um árangri á Worid Cup og í
Seoul. Ég vfl bæta því við að ég
var mjög ánægður með stuðning
áhorfenda hér í kvöld. Það er Ijóst
að beinar sjónvarpssendingar frá
leikjunum draga nokkuð úr að-
sókn, en við verðum að hugsa um
alla stuðningsmenn okkar á lands-
byggðinni. Það er gífurlegur
áhugi á handknattleik um allt land
ogéger viss um að 90% þjóðarinn-
ar hefur horft á leikina. En f
framtíðinni gæti farið svo að við
yrðum að fara fram á meiri pen-
inga frá sjónvarpinu.“