Morgunblaðið - 10.12.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
Jóhanna situr
ekki ríkis-
stj órnarfundi
Fundarseta hennar skilyrt því að
frumvarp um húsnæðismál verði
samþykkt fyrir jólaleyfi
„FRUMVARP til laga um breyt-
ingar á lögum um Húsnæðis-
stofnun ríkisins var lagt fram í
upphafi þings og ríkisstjórnin
samþykkti að afgreiðslu þess
skyldi hraðað. Nú eru 10 dagar
fram að jólaleyfi alþingismanna
og ég hef engin merki séð um
að það væri á forgangslista ríkis-
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkismálanefndar, mælir fyrir tillögunni á þingfundi i gær. -
Alþingi sendir leiðtogum stórveldanna heillaóskir:
„ Viðræður sem nú hefjast
stuðli að varanlegum friði“
Samkomulagið
mikilvægur
áfangi, segja for-
sætisráðherra og
utanríkisráðherra
ALÞINGI samþykkti í gær með
49 samhljóða atkvæðum að senda
leiðtogum stórveldanna heilla-
óskir í tilefni samningsins um
afvopnunarmál. í þingsályktun
frá utanríkismálanefnd, sem
Eyjólfur Konráð Jónsson for-
maður nefndarinnar bar upp,
segir: „Alþingi lætur í ljós þá von
að áfanginn, sem náðist á fundi
þeirra í Reykjavik, beri rfkuleg-
an ávöxt í viðræðum þeim, sem
nú eru að hefjast, og þær stuðli
að varanlegum friði.“
„Ég tel að þetta samkomulag sé
mikilvægur áfangi og get tekið
undir ályktun Alþingis sem gerð
var af þessu tilefni," sagði Þor-
steinn Pálsson forsætisráðherra
þegar Morgunblaðið leitaði álits
hans á undirritun samnings risa-
veldanna um fækkun meðaldrægra
kjamorkuflauga. Þorsteinn sagði
það ljóst, að þessi niðurstaða væri
fengin vegna staðfestu Atlantshafs-
bandalagsins í afvopnunarmálum.
„Það er núna komið á daginn,
þótt það hafí verið umdeilt á sínum
tíma, að það var rétt ákvörðun
1979 að ákveða uppsetningu meðal-
drægra flauga í Evrópu, jafnframt
því sem farið var fram á 'útrýmingu
þessa vopnakerfís. Niðurstaðan er
sú að þetta hefur leitt til að þessum
mikilvæga áfanga er náð. Nú þarf
að stíga ný skref á öðmm sviðum,
varðandi langdrægar eldflaugar,
hefðbundin vopn og efnavopn. Fyr-
ir okkur íslendinga er það svo
fagnaðarefni að fundur leiðtoga
stórveldanna, sem haldinn var á
sínum tíma í Reykjavík, markaði
þáttaskil í þeirri þróun sem nú hef-
ur skilað þessum árangri,"
Þorsteinn sagði aðspuiður að
hann teldi ekki tímabært að vera
með spádóma um þróun afvopnun-
armála í kjölfar þessa samnings.
„Vafalaust kunna menn að hafa
óskir um hraðari þróun en á eftir
að verða. Aðalatriðið er að menn
em komnir af stað og það gmnd-
vallarviðhorf hefur verið viðurkennt
að þetta gerist með gagnkvæmum
samningum en ekki eftir leið ein-
hliða yfírlýsinga eða frystingar á
ástandi. Það er nú komið á daginn
að þær hugmyndir hafa orðið und-
ir. Leið hinna gagnkvæmu samn-
inga hefur skilað árangri og á þeim
gmndvelli verðum við að vinna
áfram," sagði Þorsteinn Pálsson.
Mikilvæg'ast er að
traust hefur aukist
„Ég fagna þessu sem fyrsta
áfanga í áframhaldandi samkomu-
lagi um afopnun og fækkun kjam-
orkuvopna én vil þó minna á að það
sem þama er sámið um er aðeins
brot af þeim kjamorkuvopnaforða
sem til er,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráðherra um
afvopnunarsamning risaveldanna.
Steingrímur sagðist ekki telja þá
fækkun sem um var samið mikil-
vægasta í þessu sambandi heldur
það, að breytt hefði verið um stefnu,
sem bæri vott um aukið traust milli
stórveldanna. „Ég hef oft sagt að
það sé fyrst og fremst skortur á
trausti sem vandræðum veldur. Ég
vil því vitna í gott íslenskt máltæki
sem segir: Hálfnað er verk þá hafíð
er,“ sagði Steingrímur.
Hann sagðist vera sannfærður
um það að ákvörðun Atlants-
hafsríkjanna um að mæta vopn-
væðingu Sovétríkjanna’ með styrk
hefði leitt til þessa samkomulags.
„Samstaða Atlantshafsbandalags-
ríkjanna og sú augljósa ákvörðun
þeirra að mæta Sovétríkjunum með
auknum styrk hefur sannfært Sov-
étríkin um að sú braut væri ekki
lengur fær,“ sagði Steingrímur.
Steingrímur sagðist telja að
næsti áfangi í afvopnunarmálum,
eða samningar um fækkun lang-
drægra eldflauga, yrði sínu erfíðari,
þar sem eftirlitsþátturinn yrði mun
viðkvæmari. Einnig taldi hann að
mjög mikil áhersla yrði lögð á það
af mörgum Evrópuríkjum að ná
jafnvægi í hefðbundnum herbúnaði
og mörg ríki vildu sennilega sjá
árangur þar áður en stór skref yrðu
tekín í átt að frekari fækkun kjam-
orkuvopna.
stjómarinnar til afgreiðslu nú.
Þvi tók ég þá ákvörðun að sitja
ekki ríkisstjórnarfundi nema
frumvarpið verði samþykkt fyrir
jól,“ sagði Jóhanna Sigurðardótt-
ir, félagsmálaráðherra, í samtali
við Morgunblaðið.
„Ég hef í raun lítið um þetta að
segja,“ sagði forsætisráðherra, Þor-
steinn Pálsson, er Morgunblaðið bar
ákvörðun Jóhönnu undir hann.
„Þetta er í fyrsta skipti svo ég viti
til, sem ráðherra fer í verkfall gagn-
vart Alþingi. Ég vona að þetta
sprell teQi ekki framgang málsins
og vona að Alþingi láti það ekki
hafa áhrif á störf sín þannig að
frumvarpið verði afgreitt eins og
ekkert hafi í skorizt. Hins vegar
veit ég að mönnum er alveg ljóst,
að ekki er hægt að samþykkja lög
með afturvirkri gildistöku,“ sagði
Þorsteinn.
„Það liggur mikil alvara að baki
þessari ákvörðun minni. Ég hef
ákveðnum skyldum að gegna sem
ráðherra húsnæðismála. Hús-
næðislánakerfíð hefur verið lokað í
9 til 10 mánuði og Alþingi er ekki
stætt á því að fara í jólaleyfi án
þess að afgreiða frumvarpið, þannig
að hægt verði að fara að ganga frá
lánum til þeirra 6.000 lántakenda,
sem bíða. Það er sérstök ástæða
til að knýja á um samþykkt þessa
frumvarps, sem í raun hefur fengið
sömu meðferð og frumvarp frá
stjómarandstöðu," sagði Jóhanna.
Skipulagsstjóm og Kvosarskipulagið:
Oslóartréð
er komið á
sinn stað
OSLÓARTRÉÐ var sett upp á
Austurvelli í gær og verða Ijós-
in tendruð á þvi á sunnudag.
Myndin er tekin í gærkvöldi er
starfsmenn Reykjavikurborgar
nnnu við að reisa tréð og ganga
frá stögum. Frá vinstri eru Jón
Stefánsson, Gunnsteinn Ol-
geirsson og Vilhelm Þór
Finnsson.
Morgunblaðið/Bjami
Fyrri samþykkt ítrekuð
Formaður skipulagsstjórnar telur stjórnina hafa sam
þykkt skipulagið með ráðhúsi borgarinnar
i das.
•« umwr Skór • I
JUor0imblntiit>
VIÐSKIPn AIVINNULÍr
* . ,,
BLAÐ B
Skipulagsstjóm ríldsins sam-
þykkti á fundi sinum í gær með
tveimur atkvæðum gegn einu
svör sín til félagsmálaráðherra
vegna erindis eins stjórnar-
manna varðandi afgreiðslu
stjórnarinnar á skipulagi Kvos-
arinnar. Fyrri samþykkt um
skipulagið var ítrekuð þar. Tveir
sátu hjá við afgreiðslu svaranna.
Hér var um að ræða svör við
einstökum efnisatriðum skipu-
lagsins annars vegar og hins
vegar svör við athugasemdum
við mál8meðferð. Formaður
skipulagsstjóraar, Hermann
Guðjónsson, telur að skipulagið
með ráðhúsi borgarinnar hafi
þegar verið samþykkt i stjórainni
og nú hafi stjórnarmenn aðeins
verið að gefa ráðherra svar við
athugasemdum eins stjórnar-
manna.
Ifyrir um mánuði síðan sam-
þykkti skipulagsstjóm ríkisins
skipulag Kvosarinnar með 4 at-
kvæðum þeirra Hermanns Guðjóns-
sonar, Sigurgeirs Sigurðssonar,
Garðars Halldórssonar og Snæ-
bjamar Jónassonar gegn atkvæði
Guðrúnar Jónsdóttur. Skipulagið
með ráðhúsi borgarinnar var síðan
samþykkt með atkvæðum Sigur-
geirs, Garðars og Snæbjamar gegn
atkvæðum Guðrúnar og Hermanns.
Guðrún Jónsdóttir sendi nokkru
síðar sérstakt erindi til félagsmála-
ráðherra, þar sem hún lagði til að
ráðherrann staðfesti ekki skipulag-
ið, heldur legði það fyrir skipulags-
stjóm að nýju. Viðbrögð félags-
málaráðherra vom þau, að hún
óskaði eftir því að skipulagsstjóm
gæfí ítarlega umsögn um einstaka
liði í erindi Guðrúnar.
Gangur mála í stjóminni í gær
var á þá leið, að meirihlutinn, skip-
aður Garðari, Sigurgeiri og Snæ-
bimi gekk frá svöram, sem þeir
undirrituðu og fengu ráðuneyti Jó-
hönnu Sigurðardóttur félagsmála-
ráðherra fyrir fund stjómarinnar. í
svöram þeirra var fyrri samþykkt
rökstudd og ítrekuð. Snæbjöm
mætti síðan ekki á fundinn, þar sem
hann fór til útlanda en í hans stað
kom Helgi Hallgrímsson. Við at-
kvæðagreiðslu um svör þremenn-
inganna sátu Hermann og Helgi
hjá, Guðrún var á móti og vora
svörin samþykkt með atkvæðum
hinna tveggja.
Jóhanna Sigurðardóttir féiags-
málaráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hún hefði ekki séð
þetta svar þremenninganna. Hún
hefði talið það skyldu sína að fá
nánari umsögn skipulagsstjómar
um erindi Guðrúnar Jónsdóttur og
því sent beiðni þess efnis til stjóm-
arinnar. Enn sem komið væri, hefði
hún enga afstöðu tekið um það
hvort hún staðfesti skipulagið eða
ekki.