Morgunblaðið - 10.12.1987, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
43
Ríkissjónvarpið:
Upptökum á ára-
mótaskaupinu lokið
Hafa gengið mjög vel
TÖKUM á áramótaskaupi
Ríkissjónvarpsins lauk í gær,
og- hafa þær gengið mjög vel
að sögn leikstjórans, Sveins
Einarssonar. Alls taka sextán
leikarar þátt í skaupinu, en
upptökustjóri er Andrés Ind-
riðason. Höfundar áramótas-
kaupsins að þessu sinni er
hulduher, og verða nöfn þeirra
ekki gerð opinber.
„Við reynum að drepa á það sem
hefur verið efst á baugi á árinu í
léttum dúr,“ sagði Sveinn Einars-
son í samtali við Morgunblaðið,
„skaupið er í þessum hefðbundna
revíustíl sem hefur mótast í gegn-
um árin. Upptökur hafa gengið
ótrúlega vel, enda einvalalið sem
Leiðrétting:
Heimkoman
verður sýnd
6. janúar
LEIKRITIÐ Heimkoman eftir Ha-
rold Pinter, sem Pé-leikhópurinn
hefur hafið æfingar á, verður frum-
sýnt 6. janúar næstkomandi.
Sýningar hófust því ekki 6. desem-
ber eins og sagt var í Morgun-
blaðinu í gær. Blaðið biður
Pé-leikhópinn og lesendur velvirð-
ingar á þessum mistökum.
stendur að þessu, meðal annars
nokkrir af þekktustu gamanleikur-
um okkar.“ Sveinn vildi ekki gefa
upp neitt um efni skaupsins, sagði
að það yrði bara að koma í ljós.
Leikarar í áramótaskaupi Sjón-
varpsins eru: Amór Benónýsson,
Bessi Bjarnason, Felix Bergsson,
Gísli Snær Erlingsson, Gísli Halld-
órsson, Guðlaug María Bjamadótt-
ir, Inga Hildur Haraldsdóttir,
Jóhannes Kristjánsson, Kjartan
Bjargmundsson, Margrét Ólafs-
dóttir, Pálmi Gestsson, Ragnheiður
Tryggvadóttir, Þóra Friðriksdóttir,
Þröstur Leó Gunnarsson, Ævar
Öm Jósepsson og Öm Ámason.
Úr áramótaskaupi Sjónvarpsins, f.v. Þröstur Leó Gunnarsson, Gísli
Snær Erlingsson, Ragnheiður Tryggvadóttir og Örn Árnason.
Laugavegur:
©
INNLENT
Ný verslunar- o g
þj ónustumiðstöð
NÝ verslunar- og þjónustumið-
stöð að Laugavegi 91 verður
formlega opnuð á morgun, föstu-
Leiðrétting
í GREIN um Samtök gegn hávaða,
sem birtist í blaðinu sl. miðvikudag
á blaðsíðu 60, var farið rangt með
föðumafn Svanhildar Halldórsdótt-
ur, sem kosin var í stjórn samtak-
anna, en hún var sögð Konráðs-
dóttir í greininni. Morgunblaðið
biðst velvirðingar á mistökunum.
Blaðamannafélag íslands:
AfmæKsfagnaður
á Hótel Islandi
BLAÐAMANNAFÉLAG ís-
lands heldur 90 ára afmælis-
fagnað sinn nk. laugardag, 12.
desember, á Hótel Islandi, ný-
reistu hóteli við Ármúla í
Reykjavík. Þykir það vel við
hæfi þar sem stofnfundur
Blaðainannaf élagsins var hald-
inn á gamla Hótel íslandi.
Lúðvík Geirsson formaður BÍ
sagði við Morgunblaðið að það
væri sérstaklega gaman að geta
haldið afmælishátiðina á þessum
stað, en þetta verður fyrsta sam-
koman í húsinu. Hefst samkoman
í húsinu kl. 19 og að loknu borð-
haldi verður ýmislegt til skemmt-
unar.
Aðgöngumiðar á afmælisfagn-
aðinn em til sölu á ritstjórnum
og fréttastofum fjölmiðlanna.
Gamlir blaðamenn og aðrir sem
vilja taka þátt í afmælishaldinu
geta snúið sér til skrifstofu Blaða-
mannafélags íslands til að fá
miða.
dag, kl. 19. í húsinu eru nú 7
verslanir, auk hársnyrtistofu og
kaffistofu og munu 2 verslanir
bætast við síðar. Fyrirtækin verða
á þremur hæðum, en áður var
verslunin Domus þarna til húsa.
Breytingar á húsinu hafa staðið
yfir síðan í október, en þá var því
skipt niður í smærri einingar. Nú
hafa 9 fyrirtæki komið sér þar fyrir
en það era: Rafeind (sjónvörp, hljóm-
tæki, símtæki ofl.), Barcelona
(spænskur og franskur tískufatnað-
ur), Taka tvö (herra- og dömutísku-
fatnaður, ítalskir skór), Evrópa
(hársnyrtistofa), Rýabúðin (hann-
yrðavörar), Litla Glasgow (leikföng,
skart, fatnaður, töskur ofl.), Þóra
(handunnar gjafavörur og myndir),
Nýborg (húsgögn) og Kafé Madrid
(kaffistofa).
Davíð Oddsson, borgarstjóri, opnar
verslunar- og þjónustumiðstöðina
formlega kl. 19 á morgun, föstudag.
Þá verður haldin tískusýning og hár-
greiðslusýning og jólasveinn kemur í
heimsókn. Boðið verður upp á jóla-
glögg og piparkökur, auk gosdrykkja
og ávaxtasafa. Stöð 2 verður með
beina útsendingu frá Laugavegi 91
í fréttaþættinum 19:19.
Egghækka
um 5-10%
FÓÐURGJALD til eggjafram-
leiðslu verður endurgreitt á
sama hátt og fóðurgjald til fram-
leiðslu svínakjöts og kjúklinga.
Fram hefur komið í Morgun-
blaðinu undanfarna daga að egg
muni hækka um 25% um áramót- -
in vegna breytinga á tekjuöflun
rikisins en rétt tala er 5—10%
af teknu tilliti til framanritaðs.
Einnig hefur verið hætt við að
láta osta hækka um 25%. Ríkið
mun auka niðurgreiðslur búvara til
að verð þeirra haldist óbreytt eins
og á öðrum mjólkurvöram.
Hreinsunardeild
Reykjavíkurborgar:
Leiga á
sorpílátum
hækkar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu hreinsunardeildar
Reykjavíkurborgar um að hækka
leigu á sorpílátum úr kr. 300 á
ári í kr. 400 fyrir árið 1988.
Sorpílát kosta í dag um kr. 2.400
og segir í bréfi Péturs Hannessonar
deildarstjóra, að búast megi við
auknum tilkostnaði á næsta ári og
því er lagt til að tunnuleiga verði
hækkuð. Leigugjaldið stendur undir
kaupum á nýjum sorpílátum úr plasti
sem reynst hafa vel og geta væntan-
lega lækkað kostnað við sorphirð-
ingu.
Fræðslufund-
ur hjá Sörla
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Sörli
í Hafnarfirði heldur fræðslufund
í íþróttahúsinu við Strandgötu i
Hafnarfirði í kvöld, 10. desem-
ber. Fundurinn hefst kl. 20.00.
Á fundinum flytur Sigurbjöm
Bárðarson erindi um fóðran og vetr-
arþjálfun. Einnig verða sýnd
myndbönd frá hestamótum. Kaffí-
veitingar verða á staðnum.
Morgunblaðið/BAR
Frá æfingu jassballettflokksins á sýningunni Áfram veginn.
Jassballettflokk-
urinn sýnir í kvöld
ÍSLENSKI jassballettflokkurinn
var stofnaður fyrir tæpum þrem-
ur mánuðum. Flokkinn skipa niu
dansarar, átta karlar og ein
kona. í kvöld, fimmtudag klukk-
an 21, heldur flokkurinn sýningu
á veitingahúsinu Broadway. Sýn-
ingin heitir Áfram veginn.
Markmið flokksins er að skapa
íslensku dansfólki fleiri tækifæri til
að vinna að listgreininni en nú bjóð-
ast. í fréttatilkynningu segjast
aðstandendur hans vonast til að
íslenskt leikhússfólk geti haft not
af dansflokknum í leikritum sínum
og söngleikjum og aukið þannig
fjölbreytni í efnisvali leikhúsanna.
Þjálfari flokksins er Evrol Pue-
kerin. Listdansstjórar eru Karl
Barbee og María Gísladóttir.
Stjóm flokksins skipa: Bára
Magnúsdóttir skólastjóri JSB, Anna
Nordal yfirkennari í JSB, María
Gísladóttir ballerína, Hermann
Ragnar Stefánsson formaður
Dansráðs íslands, Magnús Kjart-
ansson tónlistarmaður og Þórhildur
Þorleifsdóttir leikstjóri.
FALLEGAR OG
VANDAÐAR
INNRÉTTINGAR
í ALLA ÍBÚÐINA
Innréttingarnar einkennast af góðri nútíma-
legri hönnun og sígildu útliti sem stenst
tímans tönn.
Þar sem góöu kaupin gerast.
2 Kópavogi
44444