Morgunblaðið - 10.12.1987, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
Stj órnarfrumvarp í efri deild:
A
Utflutningsleyfi og málefni
Utflutningsráðs í hönd-
um utanríkisráðuneytisins
Deilt um frjálsan fiskútflutning
HALLDÓR Ásgrímsson, sjávar-
útvegsráðherra, sem nú gegnir
starfi utanrikisráðherra í fjar-
veru Steingríms Hermannssonar
mælti í efri deild í gær fyrir
stjómarfrumvörpum til laga um
útflutningsleyfi og um breytingu
á lögum um Útflutningsráð Is-
lands. í fyrra frumvarpinu er
gert ráð fyrir því að utanríkis-
ráðuneytið geti bannað sölu eða
flutning vara til útlanda, en í því
síðara er orðið „utanríkisráð-
herra“ alls staðar sett i stað
orðsins „viðskiptaráðherra". All
snarpar deilur urðu um þessi
frumvörp; annars vegar um það
hvort rétt væri að flytja utanrík-
isverslunina til utanríksráðu-
neytisins og hins vegar hvort
Upphæð
sjúkradagpen-
inga of lág
Heilbrigðis- og trygginga-
nefnd hefur sent frá sér álit
vegna framvarps um breytingu
á lögum um almannatryggingar
nr. 67/1971, sem nokkrir þing-
menn Alþýðubandalags og
Kvennalista lögðu fram. I þvi
frumvarpi var gert ráð fyrir að
fullir dagpeningar skv. 4.mgr.
45.gr. laganna jafngiltu lág-
markslaunum ófaglærðs verka-
manns fyrir átta stunda
vinnuviku, eins og þau era á
hveijum tíma.
í áliti nefndarinnar segir að hún
sé sammála um að grunnupphæð
sjúkradagpeninga sé allt of lág. „í
trausti þess að ráðrúm gefíst til að
stíga skref til hækkunar og mark-
mið frumvarpsins náist í áföngum,
leggur nefndin til að frumvarpinu
verði vísað til ríkisstjómarinnar."
rétt væri að láta útflutning vera
háðan leyfum. Kvað HaJldór
frumvarpið vera eðlilegt fram--
hald hinnar breyttu skipan
ráðuneyta í rikisstjórninni.
Svavar Gestsson, (Abl.-Rvík.)
rakti sögu viðskiptaráðuneytisins
og hvemig það hefði í áranna rás
unnið að viðskiptamálum landsins.
Færði hann rök fyrir því, að rétt
væri að innanlands- og utanríkisvið-
skipti væru í sama ráðuneytinu, en
taldi engin sjáanleg rök með flutn-
ingnum. Taldi hann að með þessari
breytingu væru nánast engin verk-
efni eftir hjá viðskiptaráðuneytinu.
Júlíus Sólnes, (B.-Rn.) taldi
hæpið að utanríkisráðherra gæti
annað öllu fleiri verkefnum og dró
í efa að rétt væri að hafa innan-
lands- og utanríkisverslun í sitt
hvom ráðuneytinu. Að öðru leyti
taldi hann þetta mál ekki það brýnt,
að það væri sett á dagskrá, þegar
dagskrá þingsins dagana fyrir jól
væri jafn þétt.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagði að vissulega mætti um
þetta mál deila, en gild stjóm-
málaleg rök lægju því að baki að
utanríkisviðskiptin væm færð yfír
til utanríkisráðuneytisins. Hann
kvaðst ekki vera sammála því að
engin verkefni yrðu eftir hjá við-
skiptaráðuneytinu og taldi upp
mörg málefni, sem það kaemi til
með að hafa með höndum.
Frelsi í útflutningi
Július Sólnes, (B.-Rn.) hafði á
fundi efri deildar athugasemdir
fram að færa varðandi þá máls-
grein í lögunum um útflutnings-
leyfí, að af orðalagi hennar mætti
ráð þá afstöðu, að útflutningur
væri af hinu vonda. Júlíus taldi frá-
leitt að útflutningur væri háður
leyfum en innflutningur ekki; á
sama tíma og innflutningur
blómstraði væri útflutningur bund-
inn á klafa. Sagði hann það stefnu
Borgaraflokksins að gefa útflutn-
ingsverslun fijálsa, þar á meðal
fískútflutning, en eftir sem áður
yrði að fylgja reglum um gæðamat.
„Spumingin er sú, hvort menn
skilja nútímann, eða kjósa að lifa í
fortíðinnij" sagði Júlíus. Hann
þakkaði Olafí Thors hin sterku sölu-
samtök í fískiðnaði og hefðu þau
að unnið gott starf. Þau hefðu hins
vegar verið svar við því ástandi, sem
rikt hefði fyrir 50—60 árum, þegar
þjóðin hefði verið að skríða út úr
moldarkofunum og enginn hefði
kunnað nokkuð í erlendum tungum.
„Fyrir fískverkanda nútímans, í
beinu tölvusambandi við fískkaup-
endur erlendis eru stór sölusamtök
óþörf" og áréttaði hann að þessi
stefna flokksins væri ekki til höfuðs
sölusamtökunum, enda væri eitt-
hvað meira en lítið að hjá þeim ef
þau óttuðust bjástur lítilla fískverk-
enda. „Ég hef setið marga lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins, þar sem
samþykkt hefur verið frelsi í út-
flutningi, en þessi boðskapur virðist
ekki hafa náð eyrum þingmanna
flokksins.“
Guðmundur H. Garðarsson,
(S.-Rvík.) kvað það vera greinilegt
að Júlíus Sólnes hefði ekki kynnt
Fyrirspurmr
Guðrún Agnarsdóttir og Málm-
fríður Sigurðardóttir, þingmenn
Samtaka um kvennalista, spyija
dómsmálaráðherra: Hve . margir
starfsmenn vinna við ávana- og
fíkniefnadeild lögreglunnar, hve
mörg mál hafí borizt deildinni, hvort
starfsmenn hafi annað öllum verk-
efnum, hver meðalvinnutími starfs-
manna sé, hver sé tækjakostur
deildarinnar og hve mikið af fíkni-
efnum hafí verið gert upptækt á
sl. ári.
★ ★ ★
Ragnar Arnalds, þingmaður
Slj órnarfrumvarp um Brunamálastofnun:
Fái 0,04%o af vátryggingafjár-
hæðum fasteigna og lausafjár
JÓHANNA Sigurðardóttir, fé-
lagsmálaráðherra mælti á fundi
neðri deildar alþingis i gær fyrir
stjórnarfrumvarpi um breytingu
á lögum um branavarnir og
brunamál, nr. 74/1982. Fram-
varpið gerir ráð fyrir að 0,40%o
(prómill) af vátryggingarfjár-
hæðum fasteigna og lausafjár,
svo og samsettra trygginga, sem
hafa að geyma branatryggingu
eða 24 milljónir renni til Brana-
málastofnunar.
í framsögu félagsmálaráðherra
kom m.a. fram að nýverið skilaði
nefnd á vegum ráðuneytisins áliti,
þar sem talið var að efla þyrfti til
muna alla aðstöðu til fræðslustarfs
og þjálfunar og stuðla að menntun
leiðbeinenda fyrir slökkviliðsmenn.
Brunamálastofnun hefur með
höndum fræðslu og þjálfun slökkvi-
liðsmanna og kom það fram í ræðu
Jóhönnu að fjárhagur stofnunarinn-
ar hefði versnað mjög hin síðari ár
og áætlað væri að skuld stofnunar-
innar við ríkissjóð nemi um 14
milljónum króna við þessi áramót.
Samkvæmt núgildandi lögum er
tekjustofn stofnunarinnar 1,75%
iðgjaldá brunatrygginga og sam-
settra trygginga, en brunatrygg-
ingar hafa lækkað mikið undanfarin
ár.
Jóhanna sagði að frumvarp þetta
væri í samræmi við tillögur stjórnar
Brunamálastofnunar og að hér
væri ekki um háar upphæðir að
ræða; brunavamargjald yrði miðað
við fasteign metna á 5 milljónir 200
krónur. „Þegar svo mestur vandi
stofnunarinnar er leystur, vonandi
á næstu þremur árum, það er þegar
skuld stofnunarinnar við ríkissjóð
verður að fullu greidd, ætti að vera
hægt að lækka gjaldið, án þess að
dregið verði úr þjónustunni."
Það kom einnig fram hjá Jóhönnu
að frumvarp þetta væri í anda
starfsáætlunar ríkisstjómarinnar,
þar sem gert væri ráð fyrir að auka
sjálfræði og rekstrarábyrgð ríkis-
stofnana og notendur þjónustu
þeirra greiði fyrir hana í auknum
mæli.
Steingrímur J. Sigfússon
(Abl.-Ne.) taldi stofnunina ekki
vera ofhaldna af þessum 25 milljón-
um og varpaði fram þeirr spumingu
hvort ekki væri ástæða til þess að
ríkissjóður gæfí eftir skuld stofnun-
arinnar við.sig.
Ellert Eiríksson, (S.-Rn.) taldi
frumvarp þetta þarft, enda væri
brýn þörf á að efla stofnunina.
Taldi hann að miðað við umfang
þeirra brunatjóna, sem undanfarið
hefðu átt sér stað, væru umsvif
Július Sólnes
sér hvemig útflutningsverlsun væri
háttað. Taldi hann alrangt að segja
að ekki ríkti frelsi í útflutningi,
þegar um 400 aðilar stunduðu út-
flutningsverslun. Guðmundur var
þeirrar skoðunar að stjómvöld ættu
að koma við sögu þegar um væri
að ræða útflutning á jafn viðkvæm-
um og veigamiklum vöruflokki og
fískurinn væri. Taldi hann eðlilegt
að í þessum útflutningi væru tveir
til þrír aðilar, sem þannig fengju
hæfílegt aðhald. Benti hann á að
SH og Sambandið hefðu sett geysi-
legar fjárhæðir 4 gæðaeftirlit, en
samt sem áður væm til menn sem
vildu frelsi til handa þeim sem vildu
flytja út það sem þeir vildu og háð
þeim gæðum sem þeir eða kaupend-
umir vildu.
„í Bandaríkjunum hefur náðst
góð samstaða tveggja til þriggja
íslenskra fyrirtækja á Bandaríkja-
markaði, sem að miklu leyti geta
ráðið markaðsverði á frystum fisk-
flökum. Vegna þessa má ekki hlaða
of mörgum að, því þá riðlast sam-
staðan, offramboð verður og lægra
verð,“ sagði Guðmundur.
Alþýðubandaíags, spyr samgöngu-
ráðherra og félagsmálaráðherra um
ábyrgð af tjóni þegar ljósleiðari er
slitinn í gáleysi. Þingmaðurinn spyr,
hvort ekki sé nauðsynlegt að setja
sérstök ákvæði í lög um merkingar
á legu ljósleiðara sem og hvort úr-
skurður félagsmálaráðuneytis,
dagsettur 4. ágúst 1987, varðandi
samskipti Landssímans og skipu-
lagsyfírvalda um lagningu ljósleið-
ar, kalli ekki á breytingu á gildandi
skipulagslögum.
★ ★ ★
Guðrún Agnarsdóttir og Málm-
fríður Sigurðardóttir spyija
félagsmálaráðherra hvort hann viti
til þess að settar hafí verið á fót
hérlendis sérstakar ráðningarstofur
eða hvort einhver aðili hafi tekið
Guðmundur H. Garðarsson
Svavar Gestsson, (Abl.-Rvík.)
taldi það furðu sæta að ráðherra
frá jafnaðarmannaflokki fram-
kvæmdi „stuttbuxnafræði" Sjálf-
stæðisflokksins. Mönnum ætti að
vera það ljóst að í fisksölumálum
væri ekki áðeins um hagsmuni SH
eða Sambandsins að ræða heldur
allrar þjóðarinnar, því ef einhveijir
aðilar seldu fisk, sem væri slæm
vara kæmi það óorði á alla aðra
íslenska fiskframleiðslu. „Vegna
afstöðu núverandi viðskiptaráð-
herra gæti ég hugsað mér að færa
utanríkisviðskiptin til hvaða annars
ráðuneytis sem er,“ sagði Svavar.-
Vegna slælegrar mætingar þing-
manna var afgreiðslu frumvarpsins
frestað til næsta fundar.
MMiMil
að sér að auglýsa eftir erlendu
starfsfólki til vinnu hér á landi. I
hvaða löndum hefur helzt verið
auglýst? Hafa slíkir aðilar fengið
vilyrði hjá ráðuneytinu fyrir veit-
ingu atvinnuleyfa fyrir erlent
starfsfólk? Hve margir erlendir
menn hafa komið til starfa á ís-
landi á árinu 1987, skipt eftir
mánuðum?
★ ★ ★
Guðrún Agnarsdóttir spyr fjár-
málaráðherra hvernig nýlegar
ráðstafanir í ríkisfjármálum, þ.e.
breytingar á söluskatti og tollum
af matvælum, samræmist manneld-
ismarkmiðum íslenzkrar heilbrigð-
isáætlunar sem lögð var fram á
síðasta þingi og ætlað er að leggja
fram á því þingi sem nú situr?
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra.
stofnunarinna lítil. Hann taldi og
ástæðu til þess að stofna sérstaka
rannsóknardeild við stofnunina.
Stefán Valgeirsson, (Sl.-Ne.)
lýsti yfír stuðningi við frumvarpið,
enda hefði hörmulega að stofnun-
inni verið staðið.
Það var samþykkt með 24 sam-
hljóða atkvæðum í neðri deild að
vísa frumvarpinu til annarrar um-
ræðu og félagsmálanefndar.
Ólafur G. Einarsson:
Stj órnarflokkarnir
hafa náð saman um
flest ágreining’smál
Niðurlag viðtals við Ólaf G.
Einarsson, formann þingflokks
sjálfstæðismanna, sem birtist á
þingsíðu Morgunblaðsins í gær,
féll niður. Niðurlag viðtalsins
fer hér á eftir:
Verðlagsþróun? Kjarasamning-
ar? Fastgengisstefna?
Þetta er erfið þrenning sem þú
spyrð um, sagði þingflokksform-
aðurinn. Verðlagsáhrif lagabreyt-
inga, sem ríkisstjómin beitir sér
fyrir, eru þessar:
* 1) Framfærsluvísitalan breytist
ekki.
* 2) Byggingarvísitala lækkar
um 2,3%.
* 3) Lánskjaravísitala lækkar um
tæp 0.8%.
* 4) Að auki koma hækkanir á
bamabótum og lífeyristrygging-
um, sem ekki mælast í þessum
bótum.
* 5) Bamabætur verða greiddar
út fyrirfram á þriggja mánaða
fresti. 600 m.kr. verður varið til
hækkúnar á bótum lífeyristrygg-
inga og barnabóta.
* 6) Niðurgreiðslur búvöru
hækka um 1.250 m.kr.
Það er von mín að þessar að-
gerðir greiði fyrir gerð raunhæfra
kjarasamninga. Gangi það eftir
verður verðlagsþróun næsta árs
hófsamari og viðráðanlegri og
meiri líkur á því að fastgengis-
stefnan haldi velli, sem er mikil-
vægt. Allt kapp verður að leggja
á það að víxlhækkunarverðbólgan
verði ekki leyst úr böndum.
Sama gildir um aðila vinnu-
markaðarins þegar þeir ganga frá
samningum á hinum almenna
vinnumarkaði. Þar verða heildar-
hagsmunir að ráða ferð og mál
að leysast innan þess ramma sem
efnahagslegar staðreyndir þjóðar-
búsins setja þeim.