Morgunblaðið - 10.12.1987, Síða 76
76
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987
Verslunln Valðlmaðurlnn opnaði í nýjum og glæsilegum húsakynnum í
Hafnarstræti á mánudaginn. Er óhætt að segja að víkkað hafí til veggja frá
gömlu búðinni í Tryggvagötu. Að sögn Paul 0' Keefe verður áhersla lögð á
að auka veiðistangaúrval, einnig verður lögð meiri rækt við veiði- og útivistar-
fatnað. Þá er bryddað upp á þeirri nýbreytni að selja gamla muni og má þar
nefna flugustangir, kast- og fluguhjðl frá síðustu öld og fyrri hluta þessarar
aldar. Meðfylgjandi mynd er frá opnun nýju verslunarinnar. Frá vinstri: Albert
Erlingsson stofnandi Veiðimannsins, Halldór Amason, Nicholas O ' Keefe, Ester
Jónsdóttir, Paui O' Keefe og Anna Gunnarsdóttir.
-
; m l p &
P %/ i
»JL W JL
J c
wmmmmmmammmm
mmm
m
1
■A
■
sfjgsks
Álafoss værðarvoðir
í fjölbreyttum litum.
Ódýr og skemmtileg gjöf
Verð frá krónum 1.270,-
/Ilafossbúöin
Vesturgötu 2, Reykjavík © 13404
ULLARFATNAÐUR, GJAFAVÖRUR, GARN
Netaveiði á Borgar-
fjarðarsvæðinu
Ifrétt Morgunblaðsins á baksíðu
fyrir fáum dögnm var greint frá
þreifíngum landeigenda við berg-
vatnsár Borgarfjarðarsvæðisins og
leigutaka veiði
þeirra í þá átt að
kaupa „óveiddan"
lax af netabændum,
þ. e. a. s. greiða
þeim bætur fyrir að
taka netin upp. Nú
er málið í suðupottinum og það
reynir á samtakamáttinn. Þótt að
allir stangveiðimenn hljóti að sjá
hvers lags stórmál þetta er, er rétt
að undirstrika það aðeins með
nokkrum staðreyndum og aukaupp-
lýsingum sem ekki komu fram í
umræddri frétt.
VEIÐI
Guðmundur
Guðjónsson
skrifar
Til dæmis munu ekki allir gera sér
ljóst, að um er að ræða hátt í 200
net og eru sum þeirra sjávamet sem
halda réttindum samkvæmt hefða-
reglum þrátt fyrir að laxveiði í sjó
sé bönnuð með lögum á íslandi.
Þessi net taka þetta 6-12.000 laxa
á sumri hveiju og munar heldur
betur um minna sérstaklega þegar
laxagöngur eru með rýrara móti
eins og títt hefur verið sum hin
síðari ár. Þó ekki kæmi nema helm-
ingur netaaflans upp í bergvatns-
ámar við upptöku neta, myndi
muna gríðarlega um 3-6000 laxa
sem væntanlega myndu dreifa sér
um hið víða vatnasvæði. Stanga-
veiðin myndi taka kipp.
Þá er þess að geta, að hér er ekki
ALMAIVÖKIIV
☆
Góð kveðja og landkynning til vina
og ættingja heima og erlendis.
RAiVíiVIISLEVSKIR
JÓLASVEINAR
aðeins um jökulvatnslagnir að ræða
í Hvítá heldur einnig sjávar- og
leirulagnir allt frá Andakflsá til
leimsvæðis Langár og Urriðaá. Má
í því sambandi nefna, að beggja
vegna Langáróss eru gamlar sjáv-
arlagnir sem hafa löngum tekið
dijúgan toll af Langárlaxinum og
hugsanlega einnig öðmm Borgar-
fjarðarstofnum. Aldrei hafa upp-
gripin verið jafn mikil í þessi net
og eftir að fískræktarátakið í Langá
náði hámarki sínu síðustu 3-4 árin.
Jón G.Baldvinsson formaður
Stangaveiðifélags Reykjavíkur
sagði í samtali við þann er þetta
ritar, að samningar á borð við þá
sem nú ætti að reyna myndu hafa
í för með sér hækkun á veiðileyfum.
Bjóst hann við að leyfín myndu
verða þetta 500 til 2000 krónum
dýrari, eftir aðstæðum. Á móti kem-
ur að þeir sem hafa keypt veiðileyfí
í bergvatnsám Borgarfjarðar hafa
aldrei verið að kaupa sambærilega
vöm og þeir sem veiða í flestum
ám landsins. Aðeins á hinu Hvítár-
svæðinu gengur laxastofninn í gegn
um annað eins völundarhús dauða-
gildra. Nú standa menn jafnfætis,
eða jafn vel feti framar og því ekki
óeðlilegt að fyrir það sé borgað
hærra verð. Það breytir því þó ekki,
að laxveiðileyfí em yfírleitt allt of
dýr.
Ef að samningurinn næst er von á
góðu. Það vita þeir sem hafa litið
inn í íshúsið í Borgamesi og séð
þar stæðu við stæðu af laxi. Og það
em ekki neinir tittir. Fjöldi 20 pund-
ara sem em svo sjaldgæfír í afla
stangveiðimanna, að menn hafa
álitið að stofninn væri nær horfinn.
í bókum Bjöms vinar okkar Blön-
dals er það gegnumgangandi
hversu algengt það var fyrr á þess-
ari öld og fram eftir henni, að fá
20 punda lax. Þeir em enn þá til,
bara heilmikið af þeim þrátt fyrir
allt. En netin höggva ægileg skörð
í raðir þeirra og svo hleðst laxaijal-
lið upp.
Hasgur fundur.
Aðalfundur Stangaveiðifélags
Reykjavíkur var haldinn um helgina
og var hann hægur að þessu sinni.
Kyrrð og friður sveif yfír vötnunum.
Jón G. Baldvinsson var endurkjör-
inn formaður og var ekkert mót-
framboð. Nokkrar umræður vom
um reglugerðina sem kveður á um
að vísa megi félagsmönnum úr fé-
laginu ef þeir bjóði gegn félaginu
i veiðivötn. Virðist ríkjandi skoðun
að reglan eigi rétt á sér þar eð
menn gangi að reglunni er þeir
gerast félagar. Stöku menn em þó
á því að reglan beri vott um kúgun
einstaklinga og stæðist ekki fyrir
dómsstólum ef út í það færi.
SVFR er líkast til að bæta við sig
athyglisverðu veiðisvæði, veiði-
svæði Gíslastaða í Hvítá eystri. Þar
hefur verið dijúg stangaveiði seinni
árin, en erfítt að sækja veiðina sem
er langt frá samgönguæðum og
ekkert húsaskjól að hafa á veiði-
stað. SVFR er með tíu ára samning
í burðarliðnum og á þeim tíma verð-
ur neglt saman veiðihús og lagður
akfær vegur.
Litprentadar myndir til skreytinga
og skemmtunar fyrir börnin.
DTHÖUIHTADIK: Bókaverslanir - RammagerAin - Kaupfélttgin.