Morgunblaðið - 20.12.1987, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987
7
Borgardómur um ábyrgðarskírteini í lausafjárkaupum:
Heimilt að undanþiggja flutnings-
og ferðakostnað vegna bilunar
Björn Th. Björnsson
GENGINN er dómur í Borgar-
dómi Reylgavíkur, þar sem
reynir á 29. gr. laga um órétt-
mæta viðskiptahætti. Samkvæmt
ákvæði þessu er því aðeins heim-
ilt að gefa út ábyrgðaryfirlýs-
Þættir úr sögu
myndlistarinnar
BÓKAÚTGÁFA Máls og menn-
ingar hefur gefið út bókina
Aldaslóð eftir Björn Th. Björns-
son. Þetta verk er af svipuðum
toga og ein af fyrri bókum höf-
undarins, Aldateikn.
í umsögn útgefanda segir: „Hér
rekur Bjöm ýmsa þætti úr sögu
myndlistarinnar með hliðsjón af því
umhverfi og þeim tíðaranda sem
verkin eru sprottin úr. Rætt er um
almanakið „Gullnu stundimar" sem
talið er eitt af perlum evrópskrar
myndlistar við lok gotneska stflsins,
hið fræga málverk „Amolfíni og
brúður hans" eftir Jan van Eyék,
ógnvekjandi myndheim Hierony-
musar Bosch í „Dauðasyndunum'
sjö“, höggmyndir dagsstundanna
eftir Michelangelo og barokkverkin
„Dómur Parísar" eftir Rubens,
„Batseba" eftir Rembrandt og
„Mjólkurstúlkan" eftir Vermeer.
Frá 19. öld kynnumst við tilurð
tímamótaverks Géricaults, „Flekinn
af Medúsa" og hneykslunarhellu
Manets, „Morgunverðurinn í skóg-
N eytendaf élagið:
Skorað á kaup-
menn að taka
upp tvöfaldar
verðmerkingar
NEYTENDAFÉLAG Reykjavík-
ur og nágrennis hefur skorað á
kaupmenn að taka upp tvöfalda
merkingu á vörum, um takmark-
aðan tíma, vegna fyrirhugaðra
breyting á skatta- og tollalögum.
Sýni verðmerkingarnar verð vör-
unnar fyrir og eftir breytingu.
í fréttatilkynningu frá Neytenda-
samtökunum segir að þessar
lagabreytingar muni hafa I för með
sér margvíslegar breytingar á vöru-
verði, og því sé nauðsynlegt að
gera allt sem dregið gæti úr hugs-
anlegum misskilningi og tortryggni.
Neytendafélag Reykjavíkur og ná-
grennis skorar jafnframt á neytend-
ur að fylgjast vel með væntanlegum
verðbreytingum, og minnir á
reynslu þá sem fékkst af mynt-
breytingunni í upphafí áratugarins.
inurn". Stórverk Picassos, „Lífíð“
frá 1903, rekur svo lestina. Bjöm
fjallar einnig einkar aðgengilega
um form myndlistarinnar í köflun-
um „Að skoða myndir", „Staða,
stefna og hreyfing í myndfleti" og
„Sjón og sjónvilla".
Aldaslóð er 157 blaðsíður, bæði
litmyndir og svarthvítar. Bókin er
prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf.
ingu, að hún kveði á um betri
rétt viðtakanda en samkvæmt
gildandi Iögum. í dómi Borgar-
dóms var ákvæði þetta skýrt
þröngri skýringu, þannig að selj-
anda hlutar i máli þessu þótti
vera heimilt að undanskilja sig
ábyrgð á kostnaði vegna flutn-
ings bilaðs söluhlutar sem hann
bar ábyrgð á samkvæmt ábyrgð-
arskírteini, svo og ferðakostnaði
kaupanda.
Málavextir voru með þeim hætti,
að dráttarvél stefnanda af Zetor-
gerð var tvívegis send til viðgerðar
hjá stefnda, vegna bilunar sem
stefndi bar ábyrgð á samkvæmt
ábyrgðarskírteini því, sem um kaup
aðila gilti. Viðgerð var framkvæmd
stefnanda að kostnaðarlausu, en í
máli þessu var deilt um hvort stefn-
andi ætti rétt á því að fá endur-
greiddan úr hendi stefnda útlagðan
kostnað við flutning dráttarvélar-
, innar á viðgerðarstað.
í greindu ábyrgðarskírteini var
tekið fram að flutnings- og ferða-
kostnaður innanlands vegna vélar,
varahluta eða viðgerðarmanna væri
undanþeginn greiðsluskyldu. Af
hálfu stefnanda var því hins vegar
haldið fram að þetta ákvæði væri
ógilt þar eð það bryti í bága við
29. gr. laga um verðlag, samkeppn-
ishömlur og óréttmæta viðskipta-
hætti, þess efnis að yfírlýsingu um
ábyrgð megi því aðeins gefa, að
ábyrgðaryfirlýsingin veiti viðkom-
andi betri rétt en hann á samkvæmt
gildandi lögum.
Dómarinn í máli þessu, Eggert
Óskarsson, tekur þann kost að
skýra 29. grein þröngri skýringu.
í dómnum segir hann meðal annars
að í athugasemdum, sem lagafrum-
varpinu fylgi, sé meðal annars að
fínna þau ummæli að ákvæðinu sé
ætlað það hlutverk að tryggja í lög- ■
um þann lágmarksrétt, sem svari
til hinna frávíkjanlegu reglna
kaupalaga. „Af athugasemdum
þessum verður ráðið, að hér sé eink-
um átt við ákvæði 54. gr. laga
39/1922 um ábyrgðartíma vara,"
segir í dómnum. Bendir dómarinn
á þau ummæli flutningsmanns
frumvarpsins á Alþingi, þar sem
segir að 29. grein leiði til þess að
mönnum verði óheimilt að semja
um skemmri ábyrgðartíma en kveð-
ið sé á um í hinum frávíkjanlegú
reglum kaupalaganna.
Síðan segir í dómnum: „Lögskýr-
ingargögn þessi benda eindregið til
þess, að ætlan löggjafans hafí verið
sú, að gildissvið 29. gr. laga
56/1978 yrði mun takmarkaðra, en
greinin sjálf gefur til kynna sam-
kvæmt orðanna hljóðan. Þegar
þetta er virt, en einnig það að lagaá-
kvæði þetta ber einnig að skýra
þröngt, sem einstaka undantekn-
ingu frá meginreglunni um samn-
ingsfrelsi aðila, þá þykir ekki unnt
að fallast á þá meginástæðu stefn-
anda, að lagaboð þetta ógildi
fyrmefnt ákvæði ábyrgðarskírtein-
is, sem undanþiggur stefnda
greiðsluskyldu vegna flutnings- og
ferðakostnaðar, sem og stefnandi
hafí undirgengist. Ber því að hafna
aðalkröfu stefnanda um endur-
greiðslu flutningskostnaðar."
INÖ
ÆgiÞHvís-
að í land
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar,
TF-SIF, vísaði síðdegis í fyrra-
dag báti í land, en hann var á
dragnótaveiðum án tilskilinna
leyfa.
Þyrlan kom að Ægi Jóhannssyni
ÞH 212 að veiðum á Kirkjuvogi,
út af Reykjanesi. Báturinn, sem er
29 tonn að stærð, reyndist ekki
hafa leyfi til veiðanna og var honum
því vísað í land. L
Nú verður
SÖNGUR, GLEÐIOG GAMAN
í Broadway með hinum frábæru, landsþekktu
og sívinsælu skemmtikröftum sem höfða til
landsmanna allra
ALS
Hljómsveitir Ingimars Eydals ásamt söngvur-
unum Þorvaldi Halldórssyni, Erlu Stefáns-
dóttur, Helenu Eyjólfsdóttur, Grími Sigurðs-
svni og Ingu Eýdal rifja upp lögin
A sjó - í sól og sumaryl - O hún er svo sæt
- Bjórkjallarann - í fyrsta sinn ég sá þig -
Róti raunamæddi o.fl. o.fl.
Dansarar frá Dansstúdíói Alice sýna frábæra
tilburði við túlkun þessara sígildu laga.
Handrit og verkstjóm: Saga Jónsdóttir.
Kaffí
Yfírmatreiðslumaður:
Francois Louis Fons 1
Yfirþjónar: Gísli Guðmundsson -
Baldur Sæmundsson
Yerð aðeins kr. 4.500,-
fyrir ljúffenga hátíðarmáltíð og stórkost-
lega skemmtun, hatta, skraut og knöll.
Ómar Ragnarsson
og Haukur Heiðar flytja
gamanmál eins þeim einum
er lagið.
Hin frábæra hljómsveit Ingimars
Eydals leikur fyrir dansi
frameftir nóttu.
ceADWAy
Miða- og borðapantanir í síma 77500 daglega.