Morgunblaðið - 20.12.1987, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.12.1987, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987 spurt og svarad I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI Persónuafsláttur Ólafur Gústafsson spyr: Er persónuafsláttur ekki jafn hjá öll- um? Svar: Jú, persónuafsláttur er hinn sami fyrir alla. Samkvæmt stjómarfrumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð fyrir að persónuafsláttur verði kr. 14.797 á mánuði frá og með 1. janúar nk. Hann tekur breytingum. 1. júlí á staðgreiðsluári í samræmi við breytingu á lánskjaravísitölu á tímabilinu desember—júní. Aukaskattkort Aðalbjörg Jóhannesdóttir spyr: Ég er húsmóðir og hef eng- ar tekjur. Get ég afhent eigin- manni mínum skattkórtið mitt eða þarf ég að sækja um aukaskatt- kort? Svar: í því tilviki sem maki er tekjulaus er honum heimilt að afhenda maka sínum skattkort sitt til ráðstöfunar. Ekki þarf að sækja um aukaskattkort. Barnabætur Ólafía Leifsdóttir spyr: Hvemig er greiðslum bamabóta háttað? Er það rétt skilið að bamabætur lækki eftirað böm verða eldri en sjö ára? Eru ein- hveijar bætur greiddar vegna unglinga sem eru eldri en 17 ára og eru í skóla? Svar: Ifyrir Alþingi liggur stjómarfrumvarp þar sem gert er ráð fyrir að bamabætur verði greiddar út til framfæranda bama. Skiptast þær jafnt á milli framfærenda. Ráð er fyrir gert að útborgun verði ársfjórðungs- lega. Bamabætur lækka frá og með fyrsta ársfjórðungi eftir að bam verður 7 ára. Bamabætur em greiddar til og með lokum þess ársijórðungs að 16 ára aldri er náð. Uppgjörsaðfer launagreiðanda Haildór Jóhannsson spyr: Launatekjur á árinu 1987 eru skattfrjálsar og því spyr ég: Hvemig fer með laun f stað- greiðslukerfí eftir áramót þegar greitt er í janúar fyrir eftirvinnu og aukavinnu í desembermánuði? Svar: Hér sker úr uppgjörsað- ferð launagreiðanda. Hafi laun vegna eftirvinnu og aukavinnu í desember mánuði 1986 verið talin með launum skattlausa ársins 1987 verða slík laun vegna des- embermánaðar 1987 að teljast með launum ársins 1988. Sam- kvæmt því verða slík laun háð staðgreiðslu. Hafí hins vegar greiðslur vegna eftirvinnu og aukavinnu í desembermánuði 1986 verið taldar méð launum þess árs verða slík laun undanþeg- in staðgreiðslu á árinu 1988. Nýting- persónuafslátt- ar Pétur Steingrímsson spyr: Ef eiginkonan er húsmóðir og hefur engar tekjur en eiginmaður fær sínar tekjur á fáum mánuðum en hefur ekki tekjur stóran hluta ársins, hvemig getur þessi maður notað persónuafslátt sinn þannig að það nýtist sem best? Svar: Hafí annað hjóna eða sambúðaraðila ekki með höndum launað starf getur það afhent maka sínum skattkort sitt til af- 'nota. Launagreiðanda er hins vegar eingöngu heimilt að taka tillit til 80% af persónuafslætti maka við ákvörðun á staðgreiðslu iaunamannsins. Þegar launamað- ur hefur eigi nýtt nema lítinn hluta af persónuafslætti sínum þegar komið er fram yfir mitt staðgreiðsluár og eigi flutt hann yfír til maka, er honum heimilt að sækja um útgáfu skattkorts sem hefur uppsafnaðan persónu- afslátt frá ársbyijun staðgreiðslu- árs til næsta mánaðar á undan útgáfutima. Húsnæðisbætur Sigurður Jóhannsson spyr: Ég keypti mína fyrstu íbúð árið 1985. A ég rétt á húsnæðisbótum og ef svo er hversu lengi? Svar: Sá sem keypti eða byggði íbúðamúsnæði í fyrsta sinn 1985—1987 getur átt rétt á hús- næðisbótum ef hann naut ekki vaxtafrádráttar á þeim árum. Réttur til húsnæðisbóta varir í sex ár. Stjömuleikurinn: Dregið úr réttum úrlausn um í beinni DREGIÐ verður úr réttum úr- lausnum í Stjömuleiknum í beinni útsendingu frá Hótel Borg í dag, í þættinum „í hjarta borg- arinnar" á milli klukkan 14.00 og 16.00. Að sögn Björgvins Halldórssonar, dagskrárstjóra á Stjömunni, skipta útsendmgu bréfin með úrlausnum tugum þús- unda, en á föstudag vom þau yfír 30 þúsund og voru þá enn að ber- ast og varð að ráða aukfólk í vinnu til að flokka þau. Vinningur í get- rauninni er vöruúttekt í tíu verslun- um að upphæð samtals 500 þúsund krónum, sem skiptist á milli tveggja vinningshafa. Jólasöfnun Mæðrastyrks- nefndar MÆÐRASTYRKSNEFND Reykjavíkur hefur hafið árlega jólasöfnun til aðstoðar sjúku og efnalitlu fólki, og hafa söfnunar- listar verið sendir til fyrirtækja og einstaklinga. Tekið er á móti framlögum og umsóknum um styrki að Njálsgötu 3 frá kl. 14-18 virka daga, að því er segir í fréttatilkynningu frá Mæðrastyrksnefnd. Vill Mæðra- styrksnefnd jafnframt beina þeim tilmælum til allra sem fengið hafa söfnunarlista eða gíróseðla senda að senda framlög sem fyrst. Póstg- író söfnunarinnar er 36600-5. Unnur Jónasdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar (t.v.) og Guðlaug K. Rúnólfsdóttir, skrifstofumaður á skrifstofu nefndarinnar. HAUKUR OG ÓLAFUR HF. VIÐ EIGUM EITTHVAÐ HANDA ÖLLUM í FJÖLSKYLDUNNI ÁRMÚLA 32, SÍMI 37700. Viltu gera góð kaup, t.d. í loftljósum og jólaseríum hvort sem er úti eða inni. Viltu kannski jólastjörnu eða engil í gluggann? Við höfum líka frábært úrval heimilistækja. Einnig gott úrval rafmagnshandverkfæra. Þú getur fengið kerti í bílinn þinn, hvort sem hann er bensín eða díesel. Við höfum alternatora frá Motorola sjáfum og hinar heimsfrægu Hobart rafsuður. VERIÐ VEL KLÆDD UM JÓLIN Iðunnar-peysur á dömur, herra ogbörn. Jölapeysurnar á alla Qölskylduna Dömublússur og herraskyrtur frá OSCAR OF SWEDEN Dömubuxur, pils ogbuxnapilsfrá GARDEUR íV-Þýskalandi. / MX PRJÓNAST0FAN Uduntv, Verslunin er opin daglega frá kl. 9-18 23. desemberfrá kl. 9-22 Kreditkortaþjónusta. Skerjabraut 1 v/Nesveg, Seltjamamesi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.