Morgunblaðið - 20.12.1987, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.12.1987, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987 31 landshöfðingjahneyksli komið. En nú er það skeð. Gamlir og ungir rófu-veifandi embættis-lúðrarar, þessi hin dyggu dýrin, henda „þén- ustusamlegast" á loft hvem þann hráka, er fram gengur af hinnar hneyksluðu tignar munni út yfír þá, er hneyksluninni hafa valdið. Allir oddborgarar bæjarins eru orðnir spönn lengri milli nefs og höku af „réttferðugri forundran", og fregn- in um þetta flýgur eins og eldur í sinu .út um allar sveitir. Hví skyldi „Göngu-Hrólfur" þá þegja? Hví skyldi hann ekki seðja forvitni manna og segja fréttimar á bæjun- um þar sem hann kemur, rétt eins og hver annar gestur og gangandi? Síðan birtast í Göngu-Hrólfí hver af annarri heiftarlegar árásargréin- ar á landshöfðingja, þar sem Jón Ólafsson hrúgar saman svæsnum stóryrðum. Hann talar um lands- höfðingjagarminn danska, um dæmafáa ósvífni landshöfðingja, staðhæfír að landshöfðingi sé ein- staklega óvandaður maður, sem beiti rógi til að fá menn setta frá embætti án dóms og laga, og að í orðum hans og ummælum sé fæst satt en flest logið. Hilmar Finsen stefndi Jóni Ólafs- Jón Ólafsson, latinuskólapiltur og ritstjóri Baldurs. syni fyrir ærumeiðandi ummæli og krafðist hinna þyngstu refsinga. Alls höfðaði landshöfðingi þrjú mál á hendur Jóni, sem haldið hafði áfram fúkyrðaaustri um hríð og síst mildað orðbragðið. Lauk málum þessum í undirrétti á þá lund, að Jón var í einu þeirra dæmdur í 200 ríkisdala sekt, í öðru í sex mánaða fangelsi og f hinu þriðja i eins árs fangelsi. Jafnskjótt og dómamir voru fallnir hugðist Jón áfrýja mál- unum til landsyfírréttar. En skyndilega tekur hann nýja ákvörð- un. Hann flýr land í annað sinn. í Ameríku Eftir landshöfðingjahneykslið flúði Jón ritstjóri tii Ameríku og brátt fór hann að láta til sín taka þar vestra. Grípum aftur niður í bókinni Ævintýramaður: Jón Ólafsson tók mörg heljar- stökk um dagana, og þó að sum þeirra væru ákveðin í skyndi og að því er virtist án mikillar fyrir- hyggju, kom hann jafnan niður á fætuma og náði ur.drafljótt jafn- vægýnu, þótt eitthvað hallaðist í bili. Svo var um hina skjótráðnu Ameríkufor. í nýrri heimsálfu og við gjörbreyttar aðstæður gekk Jón að því með oddi og egg að hasla sér völl og sækja fram til áhrifa meðal landa vestra. Er ekki að sjá að hann væri í neinum beyglum eftir að til Bandaríkjanna kom. Hann ræður sig fyrst sem af- greiðsiumann í pósthúsi, en það er aðeins hugsað sem bráðabirgðastaf. Fyrr en varir er hann líka orðinn hálfgildings blaðamaður. Hann gengur á fund ritstjóra blaðsins Skandinaven, sem var eins konar málgagn Norðurlandamanna vestra, og semur við hann um að skrifa í blaðið fréttir frá íslandi og af íslensku landnámsfólki í Ameríku. Jafnframt tekur Jón að AL ASK A. i.VsiXC Á LAXUI OS L4XI«.KOS7t M, AMVT l'NAJt ISLKX/Ci; IT.XI>ri(rtb«L V M STOFXUN ISLENZKR.AH NÍLENDU Mx ol*r*gox, KiX«IMiW»irn> Mí, * j». WASHINOTON, D. C, 1875. Titilsíða Alaskarits Jóns Ólafs- sonar. beita sér fyrir því, að stofnað verði íslendingafélag í Milwaukee, „því það er óviðunandi", segir hann í bréfí, „að íslendingar geti ekki rætt hagsmuna- og áhugamál sín í félagi". Gerði hann tilraun til slíkrar félagsstofnunar í ársbyrjun 1874, en varð að fresta þeirri fram- kvæmd að svo stöddu, taldi hyggi- legast að láta það bíða sumars, þegar íslendingar yrðu fjölmenn- astir í Milwaukee. Þetta fyrsta ár sitt í Vesturheimi lagði Jón allt kapp á að ná vaidi á enskunni. Varð hann á undra- skömmum tíma prýðilega fær í málinu, talaði það brátt og ritaði betur en flestir landar hans vestra. * Lögmaðurinn í Wall Street Meðal merkismanna, sem Jón hafði komist í kynni við, var vel metinn lögfræðingur í New York, Marston Niels að nafni. Hann hafði áður verið foringi í bandaríska sjó- hemum, en rak nú ásamt bróður sfnum málflutningsskrifstofu í Wall Street. Marston Niels var íslands- vinur, og ásamt Willard Fiske og fleirum beitti hann sér fyrir því þetta vor, að fé var safnað í Banda- ríkjunum og bækur keyptar til að gefa Landsbókasafni í tilefíii þús- und ára hátíðarinnar. Framtíð íslendinga hefur án efa borið mjög á góma í viðræðum Jóns við Niels, harðindin á íslandi, ófrels- ið og annað, sem hvatti til vestur- ferða. Hefur Jón skýrt Niels frá því áformi íslendinga vestra, að mynda sérstaka nýlendu. Þá var það, að Niels benti Jóni á Alaska, sem Ulys- ses Grant forseti hafði skömmu áður keypt af Rússum fyrir rúmlega sjö milljónir dollara. Varð forsetinn fyrir hörðum árásum stjómarand- stæðinga fyrir þetta bmðl með ríkisfjármuni, því að þeir töldu landið einskis virði. Þótti forsetan- um því vænt um, ef einhveijir vildu nytja landið, og mun ekki hafa ta- lið ólíklegt, að íslendingar væm réttu mennimir til þess. Hinn 27. júní ritar Jón Ólafsson vini sínum, séra Jóni Bjamasyni, á þessa leið: Reit ég þér ekki síðast, að Mars- ton Niels, lagamaður f New York hefði ritað mér í maí og beðið mig þýða á íslensku lýsing á Alaska, er hann hugði lagað vel til bústaðar íslendingum. Ég reit honum aftur, að ég yrði til þessa búinn og boðinn ef hann hugsaði sér að fá íslend- inga til að emigrera til Alaska, væri nauðsyn að senda hóp íslend- inga í landaleit. Stutt af að segja, gegnum hann hef ég útverkað, að þrír íslendingar fái fría ferð til San Francisco í Kalifomiu, með jám- brautunum, að stjómin hafí þar herskip tilbúið til okkar þjónustu, er taki við sendimönnum og sigli með þá til Alaska og þar fram og aftur eftir vilja voram, svo vér get- um rannsakað allt landið. Er ekki þetta glæsilegt? Nú vil ég semja við kapítalista í New York um að mynda þegar í haust, er við komum aftur, ef okkur líst vel á, íslenskt útflutningsfélag, og senda þá ag- enta heim og hefja flutning vom árla. Tilgangurinn er, að fá þama land sem rúmar margfalt alla ís- lendinga, hvar þeír geta haldið tungu og þjóðemi og myndað íslenska Stat í Bandaríkjunum. ís- land á að leggjast í eyði, en byggjast upp nýtt og fíjálst og endurborið í AJaska... Er það ekki sindrandi fagurt plan að flytja ísland? Það er auðfundið, hvað Jón er ákafur, þegar hann talar um þessar ráðagerðir. Segist hann halda, að Alaska sé hentugt land, sem bjóði upp á mikil tækifæri fyrir íslend- inga, og hann bætir við: „Flytji íslendingar þangað, skjótum við Dönum ref fyrir rass. Væri þá Dön- um maklega goldin fósturlaun, ef við legðum land vort í eyði.“ Snörur Bakkusar Þegar Jón Ólafsson kom í apríl- mánuði árið áður til Winnipeg, hafði hann vænst þess að aðalstarf sitt yrði ritstjóm Lögbergs við hlið Ein- ars Hjörleifssonar, enda þótt nefnd hefði verið framkvæmdastjóm blaðsins jafnhliða. En þegar vestur kom var hann að eigin sögn nánast til þess knúinn að taka að sér inn- heimtu áskrifta og auglýsinga, hafa með höndum launagreiðslur og aðr- ar fjárreiður. Nú var það eins og áður greinir einn veikleiki Jóns Ólafssonar, að honum var afar ósýnt um rekstur fyrirtækja og alla peningaumsýslu. Það var eðli hans, að láta krónumar skoppa, og því vom flest þau blöð, sem hann rak fyrir eigin reikning, einatt á hausn- um ijárhagslega, þótt útbreiðsla væri í besta lagi. Þegar Jóni áskotn- uðust skildingar, var því likast sem hann lifði i samræmi við orðtak Brynjólfs Péturssonar Nógir em andskotans peningamir. Þessa við- horfs hefur trúlega einnig gætt, þegar Jón tók við Qárreiðum Lög- bergs, þar sem nýríkir Vestur- íslendingar áttu í hlut. En hér kom einnig annað til. Eins og fyrr var frá sagt, hafði gengið á ýmsu í viðskiptum Jóns Ölafssonar við Bakkus konung, uns Jón árið 1885 hugðist gera hann útlægan og gekk í stúku. Eftir að þangað kom varð Jón allra manna ákafastur hatursmaður hinna gör- óttu veiga og öllum öðmm dóm- harðari um þá sem breyskir reyndust og féllu á siðferðissvellinu. Og þegar Jón var á fömm til Vest- urheims á öndverðu ári 1890, stóð í ríti Góð-templara: Reglan hér á landi sér nú á bak sínum alsnjallasta og einbeittasta foringja, og sfnum starfhæfasta og ráðabesta félagsmanni. Bróðir Jón Ólafsson sagði f svarræðu sinni f samsætinu, sem stúkan Einingin hélt honum, að hve víða sem hann færi um veröldina, þá mundi hann aldrei svo langt ferðast, að hann færi út fyrir Regluna. Það vita all- ir, sem þekkja bróður Jón, að þetta er af alhuga mælt, og meðal íslend- inga og annarra reglubrasðra þar vestra mun nægt verksvið, nóg að starfa fyrir hann í Reglunnar þarf- ir. Vér getum eigi annað en óskað þeim bræðmm vomm fyrir handan haf og bróður Jóni allrar hamingju. Vér emm þess fullömggir, að vér munum enn oft geta glatt oss yfír dugnaði og framkvæmdum þessa bróður, og ef til vill notið í mörgu góðs af Iiðsinni hans, þótt hann sé kominn í aðra heimsálfu. Eftir að vestur kom gekk Jón Ólafsson þegar í eina af stúkum þeim, sem þá störfuðu í Winnipeg af hvað mestu fjöri, og áður en við varð litið var hann kominn þar í allra fremstu röð. En í ágústmán- uði 1890 hrasar bróðir Jón, hann stóðst ekki freistingar Bakkusar og féll kylliflatur fyrir honum. Jón var þó áfram í stúkunni, en tók upp úr þessu að blóta á laun. Hann fer að lenda á túmm og er endurreistur nokkmm sinnum, en um það leyti sem honum er vikið frá ritstjóm Lögbergs er hann dæmdur úr stúk- unni fyrir að sinna lítt eða ekkí ítrekuðum áminningum. Eins og nærri má geta, hefur áfengisneysla Jóns síst haft bæt- andi áhrif á elju hans og reglusemi við innheimtu og bókhald. Eftir tæplega eins árs fjármálastjóm hans á blaðinu, var látin fara fram endurskoðun á reikningum þess, og þóttust menn komast að raun um að nálega 300 dollara vantaði upp á sjóðinn. Þetta var megintilefni þess, að Jóni var fyrirvaralaust vik- ið úr ritstjórastarfi. En eins og nærri má geta, gekk slíkt ekki þegj- andi og hljóðalaust. Af minna tilefni en þessu, var Jóni öndverðum að mæta. Hann fékk þegar inni í and- stæðingablaðinu Heimskringlu, með svæsna árásargrein á Sigtrygg Jónasson og aðra Lögbergsmenn. Hét greinin Lygamerðimir, og vom þeim Sigtryggi ekki vandaðar kveðjumar. Eins og oftar þegar Jón átti hendur sínar að verja, hagaði hann sér í samræmi við kenninguna að sókn væri besta vömin. Fór hann þeim orðum um Sigtrygg Jónasson, að mútuþægari smásál hefði hann aldrei kynnst og kostaði kapps um að færa rök að þeirri staðhæfingu. Hins vegar viðurkenndi Jón, að sér hefði alltaf verið sámauðugt að hafa fjárreiður Lögbergs með hönd- um, enda ósýnt um bókhald. Viðurkenndi hann og, að sér kynni að hafa láðst að færa til bókar eina eða tvær auglýsingar, sem honum vora greiddar, nánast á fömum vegi. En um aðdróttanir um vem- lega sjóðþurrð segir hann: Þar sem þeir Lögbergs-kumpán- ar segja, að ég hafi tekið fé til eigin brúkunar af félagssjóði og engan staf skrifað fyrir i sumum tilfellum, þá er það sú helberasta og æm- lausasta lygi. Ég skuldaði mig fyrir hveijum peningi sem ég brúkaði sjálfur af fé Lögbergs. í löngum og stórorðum greinum, bar Jón ákaft til baka allar ákæmr um sjóðþurrð, kvað þær tilbúning eínan í ofsóknarherferð gegn sér. Að vísu viðurkenndi hann, að hafa greitt sér.fyrir fram rúmlega ein mánaðarlaun upp í kaup sitt, og féllst á að endurgreiða Lögbergi um 150 dollara. öllum öðmm ásök- unum vísaði hann umsvifalaust á bug. Eftir því sem deila Jóns við Lög- * • bergsmenn harðnaði, dróst Einar Hjörleifsson æ meira inn í átökin, enda ábyrgðarmaður Lögbergs, en Jón fékk inni í Heimskringlu. Kom þar, að Jón réðst með heift á Einar vin sinn og sagði hann veita óberm- inu Sigtryggi Jónassyni að málum. Væri Einar mannleysa, sem léti Lögbergsdótið segja sér fyrir verk- um. Nú var ekki að sökum að spyija. Þama hófust hin hatrömmustu svívirðingaskrif milli Jóns og Ein- ars. Varð viðureign þeirra ákaflega * hörð og illvíg, og sparaði hvomgur persónulegan austur. Gætti þar afar mikilla sárinda á báða bóga, eins og verða vill þegar óvild kviknar milli vina og samheija og verður að fullum fjandskap. Hér verður látið hjá líða að vítna til þessara óvirðingarskrifa, þar sem ekki mátti á milli sjá hvor svæsnari var og heiftúðugri. Um orðbragðið skal látið nægja að nefna tvö greina- heiti: Tuddinn Jón ólafsson; Kirkju- rottan Einar Hjörleifsson. Báðir tóku deilur þessar nærri sér, og Einar þó miklu fremur. Seint mun hafa gróið alveg um heilt á milli þeirra, en þó sættust þeir að lokum og stóðu meðal annars að því í sam- einingu á efri ámm ásamt tengda- syni Jóns, Ágústi H. Bjamasyni, að hleypa nýju tímariti af stokkun- um. Mikið var rætt og ritað um mál þessi öll, bæði vestan hafs og aust- an. Athyglisverð em ummæli Valtýs Guðmundssonar í bréfí til stjúpföður síns í Vesturheimi: „Hvað Jón ólafsson snertir, þá hef ég nú í Lögbergi fengið upplýs- ihgar um hvemig á því stóð að hann fór frá Lögbergi, og sé ég af þeim, að ég hef átt kollgátuna, þvf ég ímyndaði mér strax að orsökin mundi vera sams konar og þar er frá skýrt, því Jón hefur aldrei kunn- að með fé að fara og er mesti trassi. En eígi að síður sakna ég hans mikið sem ritstjóra, því þó margt megi að Jóni fínna, þá verður það aldrei frá honum tekið, að hann hefur meiri ritstjómarhæfíleika en nokkur annar íslendingur, og ég álít það mikið spursmál, hvort nokk- ur annar íslendingur yfír höfuð að tala hefur aðra eins hæfíleika eins og hann. Hann er næstum jafnvígur á allt; ég hef oft dáðst að honum og skal ávallt gera það, þó allir lasti hann. Annað mál er það, hvort hann ávallt hefur brúkað sína hæfí- leika eíns vel og skyldi. En þegar dæma- skal um það, þá verður mað- ur líka að lfta á hvemig lffskjör hans hafa verið, og sérstaklega hvemig hans opinberi lífsferill byij- aði, sem hefur háð honum allt lífíð í gegnum, en framkoma hans þá var þó sannarlega sprottin af brenn- andi ættjarðarást. Það bera kvæði hans frá þeim tíma og allt hans framferði þá vott um, að það var ekki nein uppgerð. Ég held að Lög- berg hljóti að hafa skaða af því að missa hann sem ritstjóra, en að fá honum fjármál í hendur var aldrei skynsamlega ráðið, það vita allir sem Jón þekkja. Að Einar Hjörleifs- ' son sé mjög nýtur maður sem ritstjóri efast ég alls ekki um, en jafnoki Jóns er hann ekki. Best hefði að minni meiningu verið að hafa þá báða." Sögur af þessu tagi em í bókinni um Jón Ólafsson ritstjóra. Hann var að mörgu leyti undarleg persóna. Kannski lifði hann ekki á réttum tíma: hann var hvatyrtur og stór- huga umsvifamaður á þeim tfma þegar flestir kappkostuðu að láta lítið á sér bera og boðorð dagsins var að skipta sér ekki af því sem - manni kemur ekki við. í lok for- mála bókarinnar um Jón ólafsson ritstjóra segir höfundurinn, Gils Guðmundsson: Margt mátti um Jón Ólafsson segja, og margt var um hann sagt, skapgerð hans, skoðanir og athafn- ir. Dómamir vom misjafnir. En eitt er víst, hann var sjaldan leiðinlegur. *"

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.