Morgunblaðið - 20.12.1987, Page 46
»46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / KÖRFUKNATTLEIKUR
Kynningarátak Körfubotta-
sambandsins í grunnskólum
Pálmar Sigurðsson og ívar Webster kynna körfuna
Körfuknattleikssamband ís-
lands hefur ýtt úr vör kynning-
arherferð í grunnskólum til að
vekja athygli á körfuboltanum.
Til starfsins var fenginn körfu-
^ knattleikskappinn snjalli
Pálmar Sigurðsson úr Hauk-
um. Honum til aðstoðar er
síðan leikmaðurinn hávaxni
ívar Webster. Hafa þeir nú
heimsótt marga skóla á höfuð-
borgarsvœðinu og þegar
blaðamaður unglingasíðunnar
heimsótti þá voru þeir f Digra-
nesskóla f Kópavogi.
Andrés
Pétursson
skrifar
Það var grár miðvikudagsmorg-
unn en það var ekkert húm í
hugum 10 ára bekkjanna í Digra-
nesskóla. Þeir áttu nú að fá að
fylgjast með og von-
andi læra eitthvað
af þeim Pálmari og
ívari. Spennan jókst
frammi í ganginum
því inni í sal voru þeir félgamir að
undirbúa sýninguna. En svo kom
að því að þeir Guðmundur Skúli
Stefánsson og Þórir Bergsson
íþróttakennarar hleyptu stóðinu inn
í sal. Það var grafarþögn er Pálmar
bauð alla velkomna og kynnti ívar
og sagði síðan hvað þeir ætluðu að
Hér sést allur hópurinn í körfuboltakynningunni í Digranesskólanum ásamt þeim Pálmari, Webster, Þóri og Guðmundi Skúla.
Morgunblaðið/Þorkell
gera í þessum tíma. Óþarfí er að
lýsa tímanum í smá atriðum enda
gera myndimar það betur en nokk-
ur orð.
Að sögn þeirra Guðmundar og Þór-
is er þetta lofsvert framtak hjá KKÍ
og ættu önnur sérsambönd að taka
þetta til fyrirmyndar. Krakkamir
væm mjög opin fyrir því að ein-
hveijir þekktir íþróttamenn kæmu
og kynntu íþrótt sína. Pálmar sagði
að áhugi hefði verið mjög mikill.
Þegar hefðu þeir farið í fíesta skóla
í Breiðholti, Árbæ, Hafnarfírði og
Kópavogi og daginn eftir var ferð-
inni heitið á Hellu.
Blaðamaður tekur undir orð íþrótta-
kennaranna og greinilegt að
krakkamir höfðu gaman af því að
láta „atvinnumenn" leiðbeina sér.
Góð kynning fyrir
körhibottann
-segja þeir piltamir Grétar, Rúnarog Garðar
eir félagamir Garðar H. Guð-
mundsson, Grétar Már Sveins-
son og Rúnar Ágústsson vom í efstu
sætum keppni í boltaraki. Við
spurðum þá hvort þessi kynning
hefði kveikt í þeim löngun til að
fara að æfa körfubolta.
Garðar var ekki frá því að hann
myndi prófa það en eins og stendur
æfir hann badminton og fótbolta.
Hann sagðist vera ánægður að sjá
góða leikmenn koma og leiðbeina
þeim. Ekki vildi hann þó gera lítið
úr íþróttakennumnum í skólanum
enda vom þeir á næstu grösum:
„Þeir em ágætir," sagði Garðar og
brosti.
Grétar Már Sveinsson er knár Bliki
sem æfir fótbolta og handbolta upp
á kraft. Ekki var hann viss um
hvort hann myndi fara að æfa
körfubolta. Hann sagðist hafa nóg
með hinar tvær íþróttimar en hann
viðurkenndi að það hefði verið flott
að sjá Webster troða tveimur bolt-
um í einu ofan í körfuna.
Rúnar Ágústsson var sá eini sem
sagðist ekki ætla að fara að æfa
körfu. Hann er á fullu í fótbolta á
sumrin en handbolta og badminton
á vetuma. Það sem hann hefur
áhuga á að bæta á listann hjá sér
er skíði. Miðað við veðrið eins og
það er nú er ekki líklegt að það
takist fljótlega, viðurkenndi Rúnar
fúslega.
Sunna Guðmundsdóttir og Valgerður Jónsdóttir.
Morgunblaðiö/Þorkell
„Ekki líklegt að
við náum að troða
eins og Webster"
Rættvið Sunnu Guðmundsdóttur
og Valgerði Jónsdóttur
ær stöllur Sunna Guðmunds-
dóttir og Valgerður Jónsdóttir
vom einar í hópi margra stúlkna
sem tóku þátt í körfuboltakynningu
Pálmars og ívars. Þær vom nokkuð
hressar með kynninguna en sögðust
ekki vita hvort þær myndu fara að
æfa körfubolta seinna.
Sunna æfir fótbolta og handbolta
en Valgerður stundar ekki neina
íþrótt sem stendur. Hún var áður
í fimleikum en hefur nú tekið sér
frí frá þeim. Sunna stóð sig með
^mikilli prýði í boltaleiknum og var
ein af ijórum sem komust í úrslit
í keppninni og eina stelpan.
Þegar við spurðum þær hvort þær
héldu að þær myndu einhvem tíma
geta troðið eins og Webster, svör-
uðu þær neitandi og hlógu. „Hann
er svo stór,“ sagði Valgerður og
Sunna mæltí alvarleg á svipinn:
„Það er ekki líklegt að við náum
að troða eins og hann." Með þessum
orðum stúlknanna kvöddum við
þessa hressu krakka í Digranes-
skóla og héldum út f vetrarrigning-
una.
Morgunblaðið/Þorkell
Rúnar Ágústsson, Grétar Már Sveinsson og Garðar H. Guðmundsson.