Morgunblaðið - 20.12.1987, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 20.12.1987, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. DESEMBER 1987 47 Akureyringar §ölmenntu á mótið sem fram fór á Húsavlk og settu flölmörg íslandsmet. Sextán íslandsmet drengja á Húsavík Frá Reyni Eiríkssyni áAkureyrí Sýningarmót í lyftingum var haldið á Húsavík fyrir skömmu. Þar kepptu 6 frá Akur- eyri og 3 úr Armanni í Reykjavík og voru ails sett 16 íslandsmet drengja á mótinu. 40 kg. flokkur Ingólfur H. Sigurðs- son úr Armanni vakti sérstaka athygli í þessum flokki. Hann snar- aði 30 kg og jafnhattaði 40 kg, sem hvort tveggja er íslandsmet. 48 kg. flokkur Aðalsteinn Jóhannsson, Akureyri, snaraði 27,5 kg og jafnhattaði 35 kg. Þetta eru einnig hvort tveggja íslandsmet. 56 kg flokkur Birgir Eiríksson, Ármanni, snaraði 27,5' kg og jafnhattaði 46 kg og Snorri Amaldsson, Akureyri, snar- aði 40 kg og jafnhattaði 50 kg og sigraði því í flokknum. Þetta eru hvort tveggja íslandsmet drengja hjá Snorra, og reyndar töluverð bæting á þeim. Birgir setti met í jafnhendingu á mótinu, lyfti 46 kg., en Snorri sló það stuttu síðar. 60 kg flokkur Tryggvi Heimisson, Akureyri, snar- aði 65 kg og_ jafnhattaði 75 kg. Tryggvi setti íslandsmet drengja í jafnhendingunni. 75 kg flokkur Kristján Magnússon, Akureyri, snaraði 60 kg og jafnhattaði 82,5 kg. 82,5 kg flokkur Haraldur Ólafsson, Akureyri lyfti 130 kg í snörun og l70 kg í jafn- hendingu. Formaður Lyftingasam- bandsins, Ólafur Öm Ólafsson, keppti einnig í þessum flokki, en þess má geta að hann er bróðir Haraldar. Ólafur snaraði 80 kg í skorun og jafnhattaði 105 kg. 90 kg flokkur Hermann Snorri Jónsson, Akureyri, lyfti 70 kg í snörun og 75 í jafn- hendingu. Þetta eru einnig íslands- met drengja. Allir keppendur á mótinu fyrir utan þá bræður Harald og Ólaf eru til- tölulega nýbyijaðir æfíngar, hafa stundað þær í 6-12 mánuði. Aðalsteinn Jóhannsson „Hefur bara gengið vel“ Þrátt fyrir að Aðalsteinn Jó- hannsson sé aðeins 12 ára gamall hefur hann æft lyftingar í eitt ár við góðan orðstír. „Ég byijaði að æfa eftir að hafa farið á námskeið hjá Jóni Páli. Núna æfí ég annan hvom dag en sleppi alltaf mánudögum úr. Ég var í karáte en hætti eftir að ég byijaði í lyftingunum. Það er alveg nóg að æfa bara lyftingar. Ég keppti á íslandsmótinu og gekk bara vel en ég vann minn flokk. Arangurinn er vissulega mjög mik- ilvægur því það drífur mann enn meira áfram við æfingamar. Ég er ákveðinn í að æfa áfram af krafti sagði Aðalsteinn. Draumurinn að verða jafn góður og Halli Kristján Magnússon byijaði að æfa lyftingar fyrir tveimur mánuðum. „Ég er eiginlega nýbyijaður, en áhuginn kviknaði hjá mér eftir að ég fór á námskeið hjá Jóni Páli sl. vor. Ég æfi 4 daga í viku og u.þ.b. 2 til 2V2 tíma í senn og fínnst það ekki mikið. Æfingamar eru mjög góð áreynsla og svo er félagsskap- urinn bæði þroskandi og skemmti- legur. Nú stefni ég á Unglingameistara- mótið í vor og einnig íslandsmeist- aramótið, og fer fljótlega að æfa eftir sérstöku prógrammi fyrir þau mót. Aðstaðan héma hjá okkur er að verða alltof lítil og fer versnandi eftir því sem fleiri heQa æfingar, en við látum það ekki á okkur fá því þröngt mega sáttir sitja. Ég er ákveðinn í að taka lyftingamar föst- um tökum og er draumurinn að verða eins góður og Halli þjálfari.“ Kristján Magnússon „Ólympískar lyftingar heilluðu mig“ - sagði Einar Brynjólfsson Hann lyfti grimmt og var auð- sýnilegt að áhuginn var mikill hjá Einari Brynjólfssyni, 19 ára, en blaðamanni tókst að draga hann afeíðis og lagði fyrir hann nokkrar spumingar. Fyrst var hann spurður hvenær hann hefði farið að æfa lyftingar. „Ég byijaði í apríl og var bara að dúlla við þetta í upphafí og lagði þá stund á kraftlyftingar. Ég skipti þó fljótt yfir í ólympískar lyftingar því mér fannst þær mun meira heill- andi og sé svo sannarlega ekki eftir því. Því miður gat ég ekki æft mik- ið í sumar vegna vinnu minnar en með haustinu fór ég á fullt og æfi nú af krafti." , Hversvegna fórstu að æfa lyfting- ar? „Mig langaði að styrkja mig og þá sérstaklega bakið, en ég hafði verið slæmur í bakinu um alllangt skeið og litlar líkur á því að þetta batn- aði var mér sagt. En sem betur fer hafa lyftingamar haft góð áhrif á mig 0g bakverkurinn alveg horfið eftir að ég byijaði að æfa. Ég hef keppt á þremur mótum til Morgunblaðið/Guömundur Svansson Einar Brynjólfsson. þessa og borið sigur úr býtum í mínum flokki á þeim öllum svo ég get vel við unað hvað árangur varð- ar, enda er ég ákveðinn í að halda áfram að æfa eins og mér endist aldur tíL* Haraldur Ólafsson Morgunblaðið/ Guðmundur Svansson Mikill áhugi - segir Haraldur Ólafsson þjálfari Haraldur Ólafsson hefur um árabil veriðeinn fremsti lyft- ingamaður íslands í ólympískum iyftingum. Sam- hiiða æfingum sínum þjálfar Haraldur nú akureyska lyft- ingamenn og hefur náð mjög góðum árangri. Undirritaður leit inn á æfingu hjá Haraldi nýverið og spurði hann fyrst hvenær hann hefði byrjað að æfa lyftingar. w Eg er búinn að vera viðloðandi lyftingamar síðan 1976, en ég var þrettán ára þegar ég byij- aði að æfa. Ég æfði framanaf hér mHMMM á landi en fór svo Frá Reyni eitt ár til Svíþjóðar Eiríkssyni tfl að æfa og áAkureyn keppa, en því mið- ur stóðu Svíamir ekki við gefín loforð og því varð dvöl mín þar skemmri en gert hafði verið ráð fyrir í upphafi. Eftir að ég kom heim hef ég æft af kappi og einnig fór ég að fást við að þjálfa héma á Akureyri. Þegar ég kom heim frá Svíþjóð var dapurt ástand í ólympískum lyftingum héma í bænum og um tíma var ég sá eini sem æfði. En með tímanum hefur þetta aukist og eru þeir sem æfa nú orðnir jafn margir og þegar best lét hér á árum áður. Þeir sem æfa eru flestir mjög ungir og eiga framtí- ðina fyrir sér í íþróttinni, enda áhuginn mjög mikill. Árangurinn hjá strákunum hefur verið mjög góður og á meistaramótinu í fyrra eignuðumst við fjóra íslands- meistara. Eins og ég sagði áður er mikill áhugi á greininni og fer hann greinilega vaxandi, en það er allt- af pláss fyrir fleiri að æfa og hvet ég alla sem áhuga hafa á lyftingum til að koma og kynnast þeim af eigin raun,“ sagði Harald- ur að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.