Morgunblaðið - 17.01.1988, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1988
NÝ KRABBAMEINS-
LÆKNIN GADEILD
opnar á Landspítalanum í
febrúar eftir gagngerar
endurbætur. Hjúkrunar-
fræðingar og sjúkraliðar; hér
er spennandi tækifæri til að
taka þátt í uppbyggingu
nýrrar starfsemi. Tveggja
vikna námskeið hefst 1.
febrúar um hjúkrun og
læknismeðferð krabbameins-
sjúklinga.
Boðið er upp á fastar
kvöld- og næturvaktir.
Allar nánari upplýsingar
geíur hjúkrunardeildar-
stjóri, Kristín Sophusdóttir,
eða hjúkrunarframkvæmda-
stjóri, Sigríður Snæbjörns-
dóttir í síma 29000 - 486.
BARNASPÍTALI HRINGS-
INS
Hjúkrunarfræðingar óskast á
Barnaspítala Hringsins. Við
bjóðum meðal annars upp á:
aðlögunartíma með reynd-
um hjúkrunarfræðingi, fjöl-
breytt, áhugavert og skap-
andi starf,- litlar notalegar
deildir með aðeins 12-14
sjúklingum,- góða vinnuað-
stöðu og möguleika á
símenntun og aðgang að
bókasafni.
Upplýsingar veitir hjúkrun-
arframkvæmdastjóri í síma
29000 - 285.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Á SKURÐSTOFUR
Dagvinna og gæsluvaktir.
Góð vinnuaðstaða. Þriggja
mánaða aðlögunartími.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
í SPEGLANIR.
Dagvinna, 50% starf
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
I GÆSLUSKÁLA
(RECOVERY)
Hjúkrunarfræðingur óskast
til afleysingá í gæsluskála
kvennadeildar. Dagvinna.
Lítill og þægilegur vinnustað-
ur.
Upplýsingar um framan-
greind störf gefur Bergdís
Kristjánsdóttir, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri í síma
29000 - 508.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Á KVENNADEILD
Hjúkrunarfræðingur óskast á
Krabbameinslækningadeild
kvenna 21 A, frá 1. febrúar.
LJÓSMÆÐUR Á SÆNGUR-
KVENNADEILD
Ljósmæður óskast á nætur-
vakt á Sængurkvennadeild.
Fyrir 60% vinnu greiðast
deildarstjóralaun. Ennfremur
óskast ljósmæður á aðrar
vaktir - sveigjanlegur vinnu-
tíirri.
Nánari upplýsingar gefur
hjúkrunarframkvæmdastjóri,
María Bjarnadóttir í síma
29000 - 509
STARFSMENN
Ófaglærðir starfsmenn óskast
í ýmis störf, bæði fastar
stöður og til afleysinga.
Nánari upplýsingar veitir
skrifstofa hjúkrunarfor-
stjóra, sími 29000 - 484.
STARFSMENN í ELDHÚS
Ófaglærðir starfsmenn óskast
í eldhús Landspítala, bæði í
75% starf og fullt starf.
Nánari upplýsingar í síma
29000 - 491 (Jóhanna eða
Olga).
LÆKNARITARIÁ GEÐ-
DEILD
Geðdeild Landspítalans
óskar eftir að ráða læknarit-
ara í 50% starf. Stúdentspróf
eða sambærileg menntun
æskileg og góð íslensku- og
vélritunarkunnátta.
Upplýsingar um starfrð
gefúr skrifstofustjóri geð-
deildar í síma 29000 - 637
...fyrr en þú hefnr kynnt þér málíð
RÍKISSPÍTALAR
LANDSPÍTALINN
UMHIRÐA
Það hefur verið mjög’ vinsælt
hér á landi að undanförnu að
stunda einhverskonar líkams-
rækt. En ekki er síður áríðandi
að hugsa um ásýndina. Og nú
þegar veturinn er greinilega
genginn í garð hjá okkur og
frostið bítur í andlitið er meiri
ástæða en ella til að hugsa vel
um hárið og húðina. Hér á eft-
ir koma fjórar góðar ábending-
ar.
Hárið
Áður en þú þværð á þér hárið
er gott að bursta það vel. Með
því næst burtu megnið af ryki og
óhreinindum sem sezt hafa í hár-
ið, eða leifarnar af gömlu hárlakki
hjá þeim sem það nota. Þetta er
eins og að ryksuga gólfið áður
en þú skúrar það.
Ekki sakar svo að nudda hár-
svörðinn í svona tíu mínútur með
fingurgómunum til að koma blóð-
inu á hreyfingu.
Þreytt andlit eftir
vökur?
Hér er ráð til að hressa upp á
útlitið á morgnana. Skolaðu and-
litið með köldu vatni, og berðu
svo „hreinsileir" á húðina. Leirinn
er látinn standa í nokkrar mínút-
ur, og síðan þveginn af. Undirrit-
uð getur óhikað mælt með
leimum. Hef sjálf notað hreinsi-
leir frá Clarin’s, sem ég fékk í
verzluninni Topptískunni við Að-
alstræti, en þar má einnig fá
fullkomnari upplýsingar um þenn-
•an hreinsileir.
Eftir þvottinn er gott að bera
frískandi andlitsvatn á húðina og
þerra hana svo með frotte-hand-
klæði. Loks er svo húðin klöppuð
með góðu dagkremi, sem í er
kollagen.
Þegar búið er að fríska húðina
er gott að bera ljósan andlitsfarða
á kinnbeinin og stijúka úr honum
í átt að gagnaugum. Á augnalok-
in er borinn ljós augnskuggi, og
augnháralitur á augnhárin með
bursta.
Notið varalitablýant til að
teikna útlínur munnsins og berið
ljósan varagljáa (lipgloss) á var-
imar. Forðist sterka liti og mikla
andlitsförðun - með léttri og ljósri
andlitsforðun ber minna á þreyt-
unni.
Augun
Vissir þú að pokar undir augun-
um myndast úr fitulagi innundir
húðinni? Fitan er þama til að
vemda augun. Með aldrinum
slaknar á vefum húðarinnar og
fitan þrýstist fram. Oft ganga
augnpokar í erfðir. Þá getur upp-
safnaður vökvi undir augunum
valdið stækkun pokanna.
Halda má þrota við augun í
skeflum með köldum tepokum eða
með sérstökum augnáburðum sem
herpa húðina. í neyðartilfellum
má svo leita aðstoðar hjá lýta-
lækni.
Þeir sem em með poka undir
augunum ættu að sofa með stóra
kodda undir höfðinu, helzt þannig
að höfuðið sé í það minnsta tíu
sentímetrum hærra en aðrir hlut-
ar líkamans. Einnig ber þeim að
forðast notkun feitra krema, sem
loka svitaholunum undir augun-
um. Þessi krem hindra eðlilegt
útstreymi svitans og stuðla að
rakasöfnun í húðinni.
Varirnar
Eftir því sem aldurinn faérist
yfír okkur vilja myndast hrukkur
umhverfis munninn og á vörun-
um. Éf þú notar varalitablýant til
að teikna útlínumar ber minna á
hrukkunum. Svo eru varimar
málaðar með venjulegum varalit.
Gott er að nota blýant með sama
ut og varaliturinn, en sértu með
dökka húð má blýanturinn vera
aðeins dekkri. Munurinn má þó
aldrei vera mikill.
Læt ég svo þetta nægja að