Morgunblaðið - 17.01.1988, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 17.01.1988, Qupperneq 64
SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. Iðnaðarráðherra í Bretlandi: Friðrik ræð- irviðCecil Parkinson FREDRIK Sophusson iðnaðarráð- herra mun hitta Cecil Parkinson orkumálaráðherra Bretlands á fundi nk. þriðjudag. Munu þeir ræða almennt um orkumál og stöðu þeirra í Bretlandi, en einn- ig er gert ráð fyrir að þeir ræði þær hugmyndir sem verið hafa uppi um hugsanlega raforkusölu um streng frá íslandi til Bret- lands. Friðrik er í Bretlandi í kynnis- heimsókn í boði þarlendra aðila og mun hitta ýmsa forvígismenn orku- mála, þar á meðal Parkinson. Þessi ^*heimsókn var ákveðin áður en hugr myndir um raforkusöluna frá íslandi komu fram og tengist því ekki beint því máli. Tekiimáll6 km hraða ÖKUMAÐUR BMW-bifreiðar var ■PWtekinn á 116 kílómetra hraða á EUiðavogi laust fyrir klukkan 11 á föstudagskvöldið. Hann missti ökuréttindin á staðnum. Alls kærði lögreglan í Reykjavík 31 ökumann fyrir hraðakstur á föstudag, 6 ökumenn voru grunaðir um ölvun og 4 reyndust hafa verið sviptir ökuréttindum. 12 voru kærð- ir fyrir að 'aka yfir gatnamót á móti rauðu ljósi. Morgunblaöið/Snorri Snorrason Lognkyrr vetrardagurá Þingvöllum í logninu og heiðríkjunni á Suð-Vesturlandi í vikunni sem leið skörtuðu Þingvellir sínu fegursta. Snorri Snorrason, sem festi þessa fegurð á filmu, sagði að fegurðin og kyrrðin á þessum sögufræga stað hefði verið ólýsanleg. Snorri sagði að skammdegisbirtan væri einstök. Vegurinn til Þingvalla er eins og að sumarlagi en á honum voru hálkublettir. Nú hefur hlýnað en ef frystir og birtir á ný er tilvalið að skjótast á Þingvelli og njóta vetrarfegurðarinnar, sem að mati Snorra tekur jafnvel fram fegurð staðarins að sumri til. Morgunblaðið/Sverrir Matreiðslumeistarar Múlakaffis að skera hákarl. Talið frá vinstri: Ingvi Jónsson, Stefán Stefánsson, Þórður Þorkelsson og Ragnar Sveinsson. Þorrinn nálgast BÓNDADAGUR er á föstudag- inn kemur og þá hefst þorrinn. Ef að líkum lætur múnu lands- menn blóta þorra af miklum ákafa næstu vikurnar. Að sögn Ingvars Stefánssonar, fram- kvæmdastjóra Múlakaffis, kostar 1,2 kg þorrabakki fyrir tvo 950 krónur en kostaði 800 krónur í fyrra. „í bakkanum eru 14 tegundir, þ.e.a.s. lundabaggar, bringukoll- ar, sviðasulta, hrútspungar, lifrar- pylsa, blóðmör, súr hvalur, hákarl, hangikjöt, harðfískur, rófur, salat, flatkökur og smjör. Selshreifar hafa hins vegar ekki gengið í fólk- ið,“ sagði Ingvar. Innbrot í Akraborg BROTIST var inn í Akraborgina, þar sem hún var bundin við bryggju á Akranesi, aðfararnótt laugardagsins. Talsverðar skemmdir voru unnar um borð í skipinu og einhverju stol- ið, aðallega skiptimynt, að sögn lögreglu. Ekki er enn vitað hver var að verki en lögreglan á Akranesi vinnur að rannsókn málsins. Skólasjónvarp að hefjast hér á landi VONIR standa til að hægt verði að hefja skólasjónvarp hér á landi á þessu ári, gera fyrstu til- raunir í vor, skipuleggja frani- haldið í sumar til að geta farið af stað fyrir alvöru næsta haust. Hefur dr. Sigrúnu Stefánsdóttur verið falið að hefja undirbúning, að hluta á vegum menntamála- ráðuneytisins gegnum Háskóla íslands, þar sem hún kennir fjöl- miðlafræði, og að hluta hjá sjónvarpinu þar sem hún mun hafa starfsaðstöðu. En Sigrún hefur nýlega varið doktorsrit- gerð sína, sem fjallar um rekstur og uppbyggingu skólasjónvarps. Þetta kemur fram í viðtali við dr. Sigrúnu Stefánsdóttur í blaðinu í dag, þar sem hún segir frá rann- sóknum sínum og niðurstöðum í doktorsritgerðinni. Telur hún mjög mikilvægt að tengja þessa tvo að- ila, menntakerfið og sjónvarpið, á þennan hátt frá upphafí, þar sem skólakerfið móti efnið en sjónvarpið sé tæknilegur ráðunautur. Bendir á að við séum orðin eina þjóðin í Evrópu, auk Lúxemborgara, sem ekki hafi skólasjónvarp. En sé þess einhvers staðar þörf, þá sé það í svo dreifbýlu landi þar sem skortur er á kennurum. Fáanlegir kennarar muni nýtast mun betur, enda sé skólasjónvarp ekkert annað en þjón- ustutæki fyrir kennara og nemend- ur, án þess að geta leyst kennarann I geti þannig fylgst með námi bam- af hólmi. Auk þess sem mikið sé anna og stjómmálamenn geti ekki hér af hlustendum sem hafi áhuga látið fræðsluna fara fram hjá sér. á fræðslu og vilji læra, foreldrar | Sjá nánar á bls. 28-29. Ung hjón unnu 500 þúsund: Konuna dreymdi fyrir vinningnum UNG hjón á Bakkafirði, Yngvi Kjartansson og Svanhvít Þórhalls- dóttir, unnu 500 þúsund krónur í Happaþrennu Háskóla íslands fyrir jólin. Vinningurinn kom sér vel, því Yngvi hafði misst tvo báta í ofsaveðri á árinu og verið atvinnulaus um tima. Svanhvíti hafði dreymt fyrir vinningnum nokkru „I mars missti Yngvi atvinnutæk- ið, 5 tonna bát, í veðurofsa og báturinn sem hann keypti í staðinn fór sömu leið í október," sagði Svanhvít. „Þegar leið að jólum vor- um við nokkuð uggandi, því horfur voru ekki góðar. Við ákváðum sunnudaginn 6. desember að skreppa í bíltúr til Þórshafnar og Yngvi var ákveðinn í að freista gæfunnar og kaupa Happaþrennu. Við keyptum 40 miða fýrir 2000 krónur, ókum heim og svo settist Yngvi við að skafa af miðunum. Ég tók sex miða sjálf og þegar ég skóf af þeim fyrsta kom í ljós að við höfðum unnið 500 þúsund krón- áður. ur. Við skoðuðum miðann vandlega, töldum núllin og þrennuna, en þetta reyndist rétt. Svo fengum við líka fimm litla vinninga, 250, 100 og 50 króna." Þegar þau hjón fengu vinninginn riíjaðist upp draumur, sem Svan- hvíti hafði dreymt nokkru áður. Þótti henni draumurinn vera fyrir- boði þess að systur hennar áskotn- aðist fé þar sem Svanhvíti dreymdi hana. „Þessi draumur var heldur ógeðfelldur, svo ég vil ekki rifja hann upp, en svo mikið er víst að vinningurinn kom sér ákaflega vel fyrir jólin," sagði Svanhvít.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.