Morgunblaðið - 20.01.1988, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988
21
Helgi Hálfdanarson:
KERLIN GU GREYIÐ
FÓR í JARÐGÖNGUR
Föstudaginn 15. þ.m. gerðist
það sem oftar, að ég hlustaði á
fréttir sjónvarpsins kl. 8 um
kvöldið.
Oft hefur verið að Ríkisút-
varpinu vegið fyrir málfar, og
hafa starfsmenn þeirrar stofn-
unar þá einatt verið sakaðir um
hreinar og beinar málvillur og
hirðuleysi um að bæta ráð sitt.
Nú þóttist ég verða þess var,
að þar hefði orðið breyting til
batnaðar. Farið var rétt með orð
og orðasambönd, sem áður
höfðu sætt sorglegum misþyrm-
ingum, og eiga fréttamenn og
þulir skilið lof og þakkir fyrir
þann myndarskap.
Samt þótti mér enn vanta
herzlumuninn að þarna væri
komin sú fyrirmynd um málfar,
sem til er ætlazt í lögum og
sanngjarnt verður að telja. Því
til staðfestingar skulu nefnd
dæmi, sem heyra mátti í þessum
eina fréttaþætti.
í fyrsta lagi var sagt vegna
breytingu í stað vegna breyting-
ar, og veit ég nú ekki hve oft
ég hef heyrt umsjónarmenn
þáttarins um daglegt mál leið-
rétta sams konar villur og benda
á þá einföldu reglu, að kven-
kynsorð, sem enda á -ing, enda
í eignarfalli á -ar en ekki -u.
Þessi villa hefur sem sé gert
vart við sig að undanfömu víðar
en í útvarpi; og má nú spyija,
hversu langt muni í það, að sagt
verði: Grímur fékk rigninguveð-
ur á giftingudaginn. En þegar
svo er komið, er hætt við að
fleira fari að riðlast.
í öðru lagi var sagt: grunur
Svía bar á góma í stað: grun
Svía bar á góma. Þætti ýmsum
fróðlegt að heyra hvers konar
koppafeiti það var, sem grunur-
inn bar á gómana. En hér er
dæmi þess, að ópersónuleg notk-
un sagnorða á í vök að veijast
nú á dögum vegna þess að kenn-
arar vanrækja að skýra fyrir
krökkum nauðsynlegustu atriði
í beygingarfræði. Raunar á það
við um bæði dæmin, sem nefnd
hafa verið, og eins þau sem á
eftir fylgja.
í þriðja lagi var fleirtöluorðið
jarðgöng haft í eignarfalli jarð-
gangna í stað jarðganga.
Vonandi verður þess þó langt
að bíða, að gangnamenn fari í
jarðgöngur; nóg er nú mæða
bændanna samt.
I fjórða lagi var eignarfall
fleirtölu af hvorugkynsorðinu
prósent haft prósentna í stað
prósenta. Að réttu lagi er pró-
sentna eignarfall fleirtölu af
kvenkynsorðinu prósenta, sem
merkir annað. Og fyrir kom, að
orðið prósent fékk áherzlu á
síðara atkvæði, sem er ekki
íslenzka. Þéss er að geta, að í
þætti þessum bar þulum ekki
saman um tvö síðar töldu atrið-
in; þar heyrðist líka greinilega
farið rétt með þau bæði, og ber
að lofa það.
Fyrir skömmu var undirritað-
ur, aldrei þessu vant, að
skammast út af málfari útvarps-
manna, og var þá svo frekur að
ráðleggja þeim að eyða hálftíma
í að renna augum yfir örlítinn
pésa, sem nefnist Gætum tung-
unnar. Svei mér ef mig langar
ekki til að klykkja út með sömu
tilmælum einnig í þetta sinn, því
ef farið hefði verið að þeim ráð-
um, hefði engin málvilla komið
fyrir í fréttaþætti þeim sem hér
var á minnzt.
Þessi glæsilegi, nýtískulegi Plymouth
Voyager, árg. 1986, frá Chrysler-USA, er til
sölu. Bíllinn er með sjálfskiptingu, vökvastýri
og aflbremsum ásamt öðrum aukabúnaði.
í bílnum eru 3 bekkjaraðir fyrir 7 manns í sæti.
I • ||» I. ■
Ford Econoline Van 250 Extra long
Til sölu árgerð 1982. Sjálfskiptur, vökvastýri, 6
strokka mótor.
Framdrif fylgir. Liturgrár.
Toyota Tercel 4WD árgerð 1984.
Amerísk útgáfa. Vökvastýri, aflbremsur o.fl.
Fallegurbíll.
Upplýsingarhjá
BÍLASÖLUNNI START,
sími 687848