Morgunblaðið - 20.01.1988, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988
Áskriftarsíminn er 83033
í hátíðarúgáfu merkisins, sem mynd er af, eru tunga, klær og
skjöldur á bringu fuglsins í rauðum lit en goggur, fætur og
kornknippi í gulum lit.
Skjaldarmerki Akureyrar
AKUREYRI hefur eignast nýtt skjaldarmerki. Reyndar er nýja
merkið náskylt því eldra, þar sem það er ný útfærsla Guðmund-
ar Armanns á skjaldarmerki því, sem Tryggvi Magnússon
teiknaði fyrir Akureyri fyrir Alþingishátíðina 1930.
Skjaldarmerki Akureyrar er bauð flölkunnugum manni að fara
Eorum til Isl
blár skjöldur með hvítum fugli. Á
bringu fuglsins er skjöldur mark-
aður með komknippi. Blái liturinn
er litur himinsins og fjarlægra
fjalla, komknippið tákn nafnsins
Akureyri, en fuglinn tengdur frá-
sögn Heimskringlu um landvætt-
ir. Haraldur Gormsson konungur
hamfömm til íslands. Sá fór í
hvalslíki. Er hann fór inn eftir
Eyjafírði kom á móti honum fugl
svo mikill, að vængimir tóku út
qöllin tveggja vegna, og fjöldi
annarra fugla, bæði stórir og
smáir.
Nýtt útgerðarfélag
kaupi Súluna EA
SVERRIR Leósson útgerðar-
stjóri Súlna hf. á Akureyri og
þrír af yfirmönnum loðnu-
skipsins Súlunnar EÁ 300
vinna nú að þvi að kaupa skip-
ið af Súlum hf. Aðaleigandi
fyrirtækisins er Leó Sigurðs-
son og hefur hann haft í
hyggju að selja skipið allt frá
þvi síðla síðasta árs.
Þá hafði verið gerður kaup-
samningur Krossanesverksmiðj-
unnar og Leós Sigurðssonar um
kaup verksmiðjunnar á skipinu og
kaupverð ákveðið 160 milljónir
króna með veiðarfærum. Kaup-
samningurinn var þó undirritaður
með fyrirvara um samþykki bæjar-
stjómar og síðan var ákveðið á
fundi hennar að fresta kaupum á
skipinu.
Sverrir sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að nú lægi fyrir
stofnun /íýs útgerðarfélags um
kaup á skipinu og auk hans stæðu
að því þeir Bjami Bjamason skip-
stjóri, Finnur Kjartansson vélstjóri
og Hermann Haraldsson stýrimað-
ur. Þá er hugsanlegt að Krossa-
nesverksmiðjan komi inn í nýja
fyrirtækið sem fimmti aðili og eigi
smáhluta í því. Sverrir sagði óvíst
hvemig samningum yrði háttað
ef úr kaupunum yrði. Viðræður
stæðu ennþá yfir og gengju heldur
seint fyrir sig þar sem þrír af fyrir-
huguðum hluthöfum væra á
loðnumiðunum.
Morgunblaðið/GSV
Þorrahlaðborð Bautans og Bautabúrsins.
Bautinn og Bautabúrið:
Soðinn, súr, kæstur
og reyktur þorramatur
ÞORRINN nálgast nú óðum, en
hann hefst með bóndadegi þann
22. janúar. Að vanda keppast
menn nú við að skipuleggja góðu,
gömlu þorrablótin með tilheyr-
andi alíslenskum þorramat.
Bautinn á Akureyri tók forskot
á sæluna fyrir' skömmu þó svo
að þorrinn sjálfur væri ekki
genginn formlega í garð og bauð
nokkrum mektarmönnum upp á
þorramat.
Bautinn og Bautabúrið bjóða upp
á 20 til 22 tegundir af soðnum,
súram, kæstum og reyktum mat
ásamt brauði. smjöri, rófustöppu
og stúfuðum kartöflum. í þorra-
bakka Bautabúrsins má fmna
hangikjöt, saltkjöt, nýtt kjöt, sviða-
sultu, hrútspunga, súrar og reyktar
bringukollur, magál, lundabagga,
reykt hrossabjúgu, grísasultu,
pressað kjöt, hval, hákarl, slátur,
harðfisk, rúgbrauð, flatbrauð,
laufabrauð og annað viðeigandi
meðlæti.
Verð fyrir hvem einstakling er
980 krónur sé pantað fyrir allt að
níu manna hóp. Sé pantað fyrir 10
til 50 manna hóp er vetðið 940
krónur fyrir manninn og sé um 50
eða fleiri að ræða lækkar verðið
niður í 900 krónur.
Hátt á þriðja hundrað
manns heimsótti RÚVAK
Morgunblaðið/GSV
Útvarpshúsið á Akureyri er til húsa að Fjölnisgötu 3.
ÓHÆTT er að segja að ríkisút-
varpið á Akureyri hafi verið
fótum troðið á siðasta sunnudag
þegar þar var opið hús í tilefni
norræns tækniárs. Opið var hjá
RÚVAK frá 13 til 17 og komu
hátt á þriðja hundrað manns.
„Þetta var sérstaklega skemmti-
legt. Við skiptum öllum þessum
fjölda upp í nokkra hópa og slógum
upp hópferðum undir fararstjórn
leiðsögumanna sem hagvanir era
héma innandyra. Við leyfðum fólki,
aðallega krökkum, að komast í
hljóðver og kynna lög. Til dæmis
settum við púða undir eina sex ára
svo hún rétt náði upp á borðið til
þess að stauta sig fram úr kynning-
artextanum. „Ema sagði að yngsti
gesturinn hefði verið rúmlega fjög-
urra mánaða og sá elsti hátt í 70
ára.
Þá var gestum RÚVAK boðið í
kaffi og meðlæti að hópferðinni lok-
inni og krökkum jafnframt boðið
upp á Svala og súkkulaði á meðan
birgðir entust, en eins og Erna sagði
fór aðsókn fram úr björtustu vonum
manna.
PÁLL Svavarsson formaður reið sem þau hlutu út á miða í
Styrktarfélags lamaðra og fatl- happdrætti Styrktarfélags lam-
aðra afhendir þeim hjónum aðra og fatlaðra.
Óskari Pálmasyni og Guðnýju Bifreiðin er af gerðinni Nissan
Helgu Bjarnadóttur á Dalvík bif- Sunny Sedan og kostar 524.000
krónur. Afhendingin fór fram á
Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdi-
marssonar á Akureyri sl. laugar-
dag.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra:
Hjón á Dalvík fengn bílinn