Morgunblaðið - 29.01.1988, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C
JNtfgmifclafeife
23. tbl. 76. árg.
STOFNAÐ 1913
FOSTUDAGUR 29. JANUAR 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Samein-
ast gegn
alnæmi
Fyrstu alþjóða-
ráðstefnunni um
alnæmi lauk i gær
í London með þvi
að fulltrúar 149
ríkja stigu á stokk
og strengdu þess
heit að taka httnd-
um saman i barátt-
unni við þennan
hættulega sjúk-
dóm. Haifdan
Mahler, forstöðu-
maður Alþjóða-
heilbrigðisstofn-
unarinnar, heldur
hér á loft bæklingi
þar sem ferða-
menn eru hvattir
að fara varlega.
Reuter
Beirát:
Sýrlendingar leita
að þýska gíslinum
Viðræður sandinista og skæruliða:
Ovænar horfur
á samkomulagí
San Jose, Róm. Reuter.
FULLTRÚAR skæruliða og sijórnar sandinista í Nicaragua héldu í
gær sinn fyrsta fund í San Jose, höfuðborg Costa Rica, en ekki var
búist við, að greiðlega gengi að semja um vopnahlé í stríðinu, sem
nú hefur staðið í sex ár.
Mikið ber á milli í viðræðunum.
í yfírlýsingu frá skæruliðum sagði,
að af vopnahléi gæti orðið innan
mánaðar ef sandinistar samþykktu
víðtækar, lýðræðislegar umbætur
og endurskipulagningu stjómar-
hersins en sandinistar hafa vísað
því að bug að tengja vopnahléið
auknu lýðræði í landinu. Oscar
Tellez, háttsettur embættismaður í
utanríkisráðuneyti Nicaragua,
sagði í gær, að þessi krafa skæru-
liða væri „óaðgengileg". Væm
stjómmálalegar umbætur í landinu
háðar því, að skæruliðar legðu fyrst
niður vopn. Fyrirhugað var, að við-
ræðumar staeðu aðeins í einn dag
en það fer eftir framvindunni hvort
þeim verður haldið áfram í dag.
Daniel Ortega, forseti Nicaragua,
er nú á ferð um Evrópulönd og átti
í gær viðræður við Bettino Craxi,
fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, og
aðra ráðamenn þar. Fór hann fram
á það við ítölsku stjómina, að hún
hefði beint eftirlit með framkvæmd
áætlunarinnar um frið í Mið-
Ameríku.
Beirút. Reuter.
Sýrlenskir hermenn í Beirút
réðust í gær inn í stöðvar Hizb-
ollah-hreyfingarinnar, öfga-
samtaka, sem styðja írani, í
leit sinni að Vestur-Þjóðveij-
anum Ralph Schray en honum
var rænt á miðvikudag. Talið
er fuUvíst, að ránið á honum
tengist réttarhöldum yfir
tveimur líbönskum bræðrum í
Vestur-Þýskalandi.
Nokkur hundruð sýrlenskra her-
manna leituðu í húsum í tveimur
hverfum þar sem stuðningsmenn
Hizbollah-samtakanna em fjöl-
mennir, stöðvuðu bfla og handtóku
nokkra menn en vitni segjast hafa
séð mannræningjana með Schray á
þessum slóðum. Haft er eftir sýr-
lenskum embættismanni í Damask-
us, að einskis verði látið ófreistað
til að finna Schray. „Við lítum þenn-
an atburð mjög alvarlegum augum
og munum refsa mannræningjun-
um harðlega," sagði hann.
Fjölskyldu Schrays hefur verið
tjáð, að Abdel Hadi Hamadi, bróðir
þeirra tveggja manna, sem nú em
í fangelsi í Vestur-Þýskalandi, hafí
rænt honum og gert það til að
þvinga stjómina í Bonn til að leysa
þá úr haldi. Fyrir nokkm fóm
bandarísk stjómvöld fram á að fá
annan þeirra framseldan en þeirri
beiðni var hafnað. Hefur nú verið
upplýst í Vestur-Þýskalandi, að því
hafí ráðið ótti við örlög tveggja
vestur-þýskra gísla. Vestur-þýskir
embættismenn, sem ekki vildu láta
nafns síns getið, sögðu í gær, að
það hafí verið misráðið að skýra frá
þessu og augljóst, að nú verði að
Þingsályktunartillaga á Bandaríkjaþingi:
Önnur ríki beiti Japan
og ísland refsiaðgerðum
LÖGÐ hefur verið fram í fulltrúadeild Bandaríkj aþings tillaga
til þingsályktunar þar sem rikisstjómin er hvött til að leggja
að öllum ríkjum, sem aðUd eiga að Alþjóðasamþykktinni um
stjómun hvalveiða, að beita refsiaðgerðum gegn þeim þjóðum,
sem brjóta í bága við hana. Flutningsmaður tiUögunnar er Don
Bonker, demókrati frá Washington-ríki, og nefnir hann sérstak-
lega íslendinga og Japani í þessu sambandi.
Bonker segir í tillögunni, að það
sé stefna Bandaríkjastjómar og
Alþjóðahvalveiðiráðsins að banna
allar hvalveiðar um ótiltekinn
tíma og því ætti hún að hvetja
aðildarþjóðir ráðsins til að beita
brotlegar þjóðir refsiaðgerðum,
sambærilegum þeim, sem kveðið
sé á um í Packwood-Magnuson-
lögunum. í þeim segir, að veiðik-
vótar hvalveiðiríkja skuli skomir
niður.
í rökstuðningi með tillögunni
segir Bonker, að Bandaríkjastjóm
hafi frá árinu 1972 beitt sér fyrir
ótímabundnu banni við hvalveið-
um og hafí Alþjóðahvalveiðiráðið
samþykkt árið 1982, að slíkt bann
tæki gildi árið 1986. Þá segir
hann, að á fundi ráðsins á síðasta
sumri hafí verið samþykkt að
skora á Suður-Kóreumenn, ís-
lendinga og Japani að hætta við
áætlaðar vísindaveiðar.
Við þessari samþykkt hafi ís-
lendingar og Japanir skellt skolla-
eyrum og einnig niðurstöðu
vísindanefndarinnar frá í desem-
ber síðastliðnum þar sem ný
áætlun Japana um hvalveiðar í
vísindaskyni var felld með miklum
meirihluta.
Þingsályktunartillaga bindur
ekki hendur stjómvalda en ef hún
er samþykkt með miklum meiri-
hluta er erfitt að hundsa hana.
Búist er við, að tillaga Bonkers
komi til afgreiðslu í mars næst-
komandi. Þess má geta, að
Suður-Kóreumenn eru hættir
hvalveiðum og því tekur tillaga
Bonkers fyrst og fremst til Japana
og íslendinga.
koma til uppgjörs með stjómvöldum
og mannræningjunum. „Nú dugir
engin undanlátssemi,"
þeirra.
sagði einn
Bandaríkin:
Spá áframhaldandi
hagvexti á þessu ári
Washington. Reuter.
Bandarísk stjórnvöld búast við, að mikil fjárfesting og aukinn
útflutningur muni stuðla að áframhaldandi hagvexti á nýbyijuðu
ári en hann var 3,8% fram til síðasta ársfjórðungs 1987 og 4,2%
síðustu þijá mánuðina. Hagvaxtarskeiðið í Bandaríkjunum hefur
staðið samfleytt í fimm ár og er það lengsta í sögunni.
Þegar skýrt hafði verið frá hag-
vaxtartölunum fyrir siðastliðið ár
sagði Robert Ortner aðstoðarvið-
skiptaráðherra, að vöxturinn yrði
áfram góður á þessu ári en þó
nokkru hægari. Stafar það m.a. af
því, að á síðasta fjórðungi liðins árs
söfnuðu framleiðendur birgðum
vegna minni eftirspumar. Sam-
kvæmt tölum, sem birtar vom í
gær, jókst hún hins vegar um 0,5%
í desember og almennar launatekjur
jukust um 0,7% í þeim mánuði. Þær
minnkuðu aftur á móti um 0,5% í
nóvember.
Slæmu fréttimar eru þær, að
spamaður sem hlutfall af ráðstöf-
unartekjum var ekki nema 3,8% á
síðasta ári og hefur ekki verið minni
síðan 1947 þegar hann var 3,1%.
Reuter
Klakahöllin
í borginni Harbin í Kína fer nú fram árleg tshátíð og skemmta
gestimir sér vel að venju, til dæmis þessir, sem hafa fengið sér eina
salíbunu frá átta metra háum ískastala. Fyrr í mánuðinum horfði
heldur illa fyrir hátíðinni því að þá gerði þeyviðri en sem betur fer
náði elrishundur aftur yfirhöndinni með frosti og fannkomu.