Morgunblaðið - 29.01.1988, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
Saknað síðan
á sunnudag
ENN er leitað eldri konu frá
Seltjarnarnesi, sem ekki hefur
spurst til síðan á sunnudag. Lög-
reglan beinir þeim tilmælum til
íbúa á Seltjarnarnesi og í ná-
grenni að líta eftir konunni í
nágrenni húsa sinna.
Konan, Guðríður Kristinsdóttir,
er 81 árs gömul, um 160 cm á
hæð, grönn, létt á fæti og kvik í
hreyfíngum. Að öllum líkindum er
hún klædd í grænleita kápu og með
hatt. Hún býr að Ráðagerði á Selt-
jamamesi og er síðast vitað um
hana heima síðdegis á sunnudag.
Guðriður Kristinsdóttir
Þorskverð er lágt erlendis
VERÐ á ferskum fiski i Bret-
landi er enn lágt. Verð í Þýzka-
landi hefur einnig lækkað fá
upphafi vikunnar. Skýringin er
fyrst og fremst mikið fiskfram-
boð af frönskum togurum vegna
verkfalla í Frakklandi.
Snorri Sturlusön RE seldi í gær
142,5 lestir, mest karfa í Bremer-
haven. Heildarverð var 8,3 milljónir
króna, meðalverð 58,57. Guðmund-
ur Kristinn SU seldi sama dag 62
lestir, mest þorsk í Grimsby. Heild-
arverð var 4,1 milljón króna,
meðalverð 66,62. Meðalverð fyrir
þorek var 65,43 og ýsu 89,59.
Á miðvikudag vom seldar í Bret-
landi 366 lestir af gámafíski héðan.
Heildarverð var 22,4 milljónir
króna, meðalverð 61,15. Meðalverð
fyrir þorsk var 57,73, 71,08 fyrir
ýsu og 67,44 fyrir kola.
Væntanlegra verktaka ratsjárstöðva:
Fulltrúar frá 60 stórfyr-
irtækjum á ráðstefnu
KYNNINGARRÁÐSTEFNA fyr-
ir væntanlega verktaka að
byggingu ratsjárstöðva verður
haldin á Hótel Loftleiðum í næstu
viku. Ráðstefnuna munu sitja um
100 manns, 60 fulltrúar erlendra
stórfyrirtækja sem áhuga hafa á
verkefninu og 42 íslenskir full-
trúar fyrirtælqa í rafiðnaði,
hugbúnaði og verkfræði sem
sýnt hafa áhuga á að gerast und-
irverktakar. Að ósk Varnarmála-
deildar utanrikisráðuneytisins
verður ráðstefnan lokuð fjöl-
miðlum.
Að sögn Amþórs Þórðarssonar í
tæknideild Félags íslenskra iðnrek-
enda, fá einungis sérstaklega valin
fyrirtæki að senda fulltrúa sína á
ráðstefnuna. Hún er haldin til kynn-
ingar fyrir erlendu aðilana áður en
til útboðs kemur, en þeir ætla allir
að bjóða í verkið. Er hér um útboð
á tækjabúnaði og fjarskipatkerfí
stöðavanna að ræða. íslensku fyrir-
tækin 20, sem sitja ráðstefnuna,
era á sviði hugbúnaðar og kerfís-
verkfræði annars vegar og hins
vegar hönnunar, rafeinda og raf-
verktaka starfsemi.
Erlendu fyrirtækin era 30, þar á
meðal Lockheed, Boeing, Hughes,
Tomson, Brithish Aerospace, Marc-
oni Plessey og Harris. Farið verður
með erlendu þátttakendurna í skoð-
unarferð í Svartsengi og til Pósts-
og síma auk þess sem íslensk iðn-
fyrirtæki verða kynnt. „Það er gert
til að sýna fram á að við eram sjálf-
bjarga og að íslendingar geta meira
en margur heldur,“ sagði Amþór.
Húsnæðisstofnun ríksins:
••
Ollum umsækjend-
um send tilkynn-
ing um lánsrétt
VEÐURHORFUR í DAG, 29.01.88
YFIRLIT í gær: Um 900 km suð-vestur af landinu er víðáttumikil
954 mb djúp lægð sem hreyfist lítiö en lægðarmiðja er að mynd-
ast vestur af íslandi. Yfir Norður-Grænlandi er 1018 mb hæð. Hiti
verður víðast á bilinu 0—4 stig.
SPÁ: Austanátt, víða hvöss, við suðurströndina en heldur haggari
annars staðar. Él með suður- og austurströndinni en þurrt annars
staðar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG og LAUGARDAG: Austlæg átt og sæmi-
lega hlýtt. Þurrt um norðvestanvert landið en annars skúrir eða
slydduél. Hiti 0 til 4 stig.
TÁKN:
■D
s, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
•J 0 Hftastig:
10 gráður á Celsius
stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * Él
V
Léttskýjað / / / / / / 7 Rigning = Þoka
/ / / — Þokumóða
Hálfskýjað * / * •> Súld
Skýjað / * / * Slydda OO Mistur
/ * /
■* # * —í* Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gœr að ísl. tíma
hhl veður
Akureyrl +1 hátfakýjað
Reykjavfk 1
Bargen 1 háKakýjað
Helslnkl +7 láttakýjað
Jan Mayen -:-3 ekýjað
Kaupmannah. y* hkýjað
Narasaraauaq <*c skýjað
Nuuk lóttakýjað
Oaló 1 anjókom
Stokkhólmur +2 komsnjór
Þórahöfn +£ anjóél
Algarve 16 léttakýjað
Amaterdam 7 rlgnlng
Aþena 18 léttskýjað
Barcelona 16 miatur
Bertfn 4 alskýjað
Chicago :-10 helðskfrt
Feneyfar vantar
Frankfurt S rfgnlng
GIiiqow 4 skýjað
Hamborg 3 rignlng
Laa Palmas 18 skýjað
London e alskýjað
LoaAngeles « alskýjað
Lúxemborg (i 8Úld
Madrfd u núld
Malaga 15 rlskýjað
Mallorca 1 ö ckýjað
Montreal rkýjað
NewYork <1 iáttskýjað
Parfa ?1 .kýjað
Róm 16 akýjað
Vín e frokumóða
Waahlngton +7 jkýjað
Wlnnlpeg alakýjað
Valencia 1 “tskýjað
Áskilur sér rétt til
að falla frá skuld-
bindingum kaupi
lífeyrissjóðir
ekki skuldabréf
HÚSNÆÐISSTOFNUN rikisins
sendi út tilkynningar í byrjun
þessarar viku til þeirra sem sent
hafa stofnuninni lánshæfar um-
sóknir um húsnæðislán. Þar
kemur fram að umsókn viðkom-
andi sé í lagi og búast megi við
afgreiðslu á láninu að því til-
skyldu að skuldabréfakaup
lifeyrissjóðs hans gangi eðlilega
fyrir sig.
Sigurður E. Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar
ríkisins sagði í samtali við Morgun-
blaðið að eftir næstu helgi yrði
hafíst handa við útgáfu lánsloforða
þar sem kveðið er á um að viðkom-
andi sé veitt lán, upphæð þess og
hvenær það kemur til greiðslu.
Hann sagði að samkvæmt hús-
næðislögunum bæri að gefa út
slíkar tilkynningar eigi síðar en 12
mánuðum áður en lánið á að koma
til greiðslu.
Fyrst í stað verða umsóknir
þeirra sem sóttu um húsnæðislán
um miðjan mars í fyrra teknar fyr-
ir og átti Sigurður von á að lánslof-
orð þeirra verði stíluð til greiðslu í
janúar eða febrúar 1989.
Allir sem sent hafa inn lánshæfar
umsóknir fá tilkynningar um láns-
rétt, en með þeim fyrirvara að lán
er aðeins veitt ef lífeyrissjóður við-
komandi einstaklings stendur sig
og bregst ekki í skuldabréfakaup-
im.
„Ef lífeyrissjóður bregst í skulda-
bréfakaupum áskiljum við okkur
rétt til þess að falla frá skuldbind-
ingum," sagði Sigurður. „Lífeyris-
sjóðimir hafa gert samninga við
okkur og við viljum að þeir standi
við sinn hlut. Ef einhver þeirra
hleypur út undan sér kemur það
því miður niður á félagsmönnum
þeirra," sagði hann.
Um.það bil 60% fjármagns sem
notað er til húsnæðislána kemur frá
lífeyrissjóðum, en 40% frá Hús-
næðisstofnun og úr ríkissjóði.
Kópavogur:
Hugað að
nýjum
kirkjugarði
KIRKJUGARÐAR Reykjavíkur
hafa óskað eftir landi undir
kirkjugarð f Kópavogi, sem taka
mun við af kirkjugarðinum í
Gufunesi innan næstu tíu ára.
Að sögn Kristjáns Guðmundsson-
ar bæjarstjóra, hefur bæjarráð
samþykkt að veita land undir
kirkjugarð í landi Fífuhvamms og
er gert ráð fyrir honum í aðalskipu-
lagi bæjarins. „Upphaflega var gert
ráð fyrir garðinum við Selhrygg
næst Seljahverfí í Breiðholti en nú
er verið að tala um að hann verði
jafnvel neðar, í Leirdal," sagði
Kristján. Reiknað er með að garður-
inn verði um 15 til 20 hektarar að
stærð.
Margrét Jónsdóttir látin
Margrét Jónsdóttir, ekkja Þór-
bergs Þórðarsonar, lézt að
morgni 28. janúar, að Droplaug-
arstöðum f Reykjavík. Hún var á
89. aldursári, fædd 3.9. 1899 í
Innri-Njarðvík. Foreldrar henn-
ar voru Jón Jónsson, kennari og
kona hans, Þorbjörg Ásbjamar-
dóttir.
Ung fór Margrét í Kvennaskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan
prófí, en hélt síðan til Danmerkur
og lærði þar til hannyrða. Að námi
loknu vann hún nokkur ár við kjóla-
saum í Kaupmannahöfn, en hélt
síðan heim aftur.
Margrét Jónsdóttir giftist Þór-
bergi nokkra síðar og setti mikinn
svip á líf meistarans þaðan í frá,
eða unz hann lézt 12. nóvember
1974. Þeim varð ekki bama auðið,
en Margrét hafði eignazt tvö böm
áður en leiðir þeirra Þórbergs lágu
saman. Þau lifa móður sína.