Morgunblaðið - 29.01.1988, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
21
Samningarnir samþykktir á Suðureyri:
Fiskvinnslufólk bindur
vonir við þetta nýja kerfi
- segir Sveinbjörn Jónsson, formað-
ur verkalýðsfélagsins Súganda.
Herraleikfími
HEILSURÆKTIN SÓLSKIN, SÍM146055
„ÞAÐ eru ekki endilega launa-
hækkanirnar sem valda þvi að
fólk vill samþykkja þessa samn-
inga heldur miklu fremur þær
vonir sem fiskvinnslufólk bindur
við þetta nýja kerfi, sem verið
er að taka upp,“ sagði Sveinbjörn
Jónsson, formaður Verkalýðs-
félagsins Súganda á Suðureyri,
eftir að félagsmenn höfðu á ein-
‘róma samþykkt Vestfjarðasamn-
ingana á þriðjudagskvöld. Hann
sagði að reynslan i samningum á
undanfömum árum hefði sýnt
að hinir lægstlaunuðu, þar á
meðal fiskvinnslufólk, hefðu bor-
ið skarðan hlut frá borði og því
vildu menn nú reyna nýjar leiðir.
„En þetta verður erfiður tími fram-
undan, “ sagði Sveinbjöm ennfrem-
ur. „Það vita það allir að breytingar
eins og eru að eiga sér stað vegna
þessa kerfis munu reyna mjög á
félagslegan þroska fískvinnslufólks
og sjálfsagt fleiri í þjóðfélaginu og
við vonum bara að sú tilraun sem
hér er verið að gera verði þjóðinni
til blessunar. Það er út á vonina
sem menn vilja fara þessa leið að
þessu sinni og í trausti þess að þjóð-
félagið og stjómvöld bregðist rétt
við því auðvitað fá stjómvöld þama
tækifæri og við treystum því að þau
muni gera allt sem þau geta til að
halda niðri verðlagi. Annars væmm
við ekki að semja svona, “ sagði
Sveinbjöm.
Ekið á nýjan bíl:
Sökudólgurinn ók á brott
EKIÐ var á nýja bifreið fyrir utan
Hótel Óðinsvé að Þórsgötu 2 á
sunnudagskvöld, 24. janúar. Sá
sein það gerði ók hins vegar af
vettvangi og óskar slysarannsókn-
ardeild lögreglunnar eftir áð hafa
tal af honum.
Bifreiðin sem skemmdist er af
gerðinni Mitsubishi Lancer og er öll
hægri hlið hennar illa farin eftir
ákeyrsluna. Tjón eigendanna er til-
finnanlegt, enda stutt síðan þeir festu
kaup á bifreiðinni. Bifreiðin, sem ók
á, er blá að lit og telja sjónarvottar
að hún sé með Ö-númeri. Ökumaður-
inn er beðinn um að hafa samband
við lögregluna hið fyrsta, eða hver
sá annar sem kann að hafa upplýsing-
ar um atburðinn.
Gufa,
Ijós,
nudd,
Hressirtímar.
Byrjendatímar. - Púltímar.
Kennarí: ÓmarSamir, íþróttafræðingur
Úr bifvélavirkjadeild Iðnskólans
i Reykjavík. Nemandi les i við-
gerðarbók.
Iðnskólinn
fær gjafir
VELTIR hf. gaf fyrir skömmu
Iðnskólanum í Reykjavík búnað til
kennslu í undirstöðuatriðum raf-
eindatækni í bifreiðum. Með
þessari gjöf hefur Veltir hf. bætt
aðstöðu skólans til að mæta aukn-
um kröfum um kunnáttu bifvéla-
virkja á þessu sviði.
Frá árinu 1970, þegar bifvéla-
virkjadeild Jðnskólans í Reykjavík
var stofnuð, hefur Veltir hf. gefið
skólanum margvíslegan búnað til
deildarinnar. Má þar nefna vélar,
gírkassa, lofthemlabúnað, sérverk-
færi og margvíslegar handbækur.
sperra okkur í skóla og safna stór-
um skuldum ef réttindalausir menn
geta gengið í okkar störf fyrir-
hafnarlaust. Ef þetta er sýnishorn
af afgreiðslu undanþágubeiðna þá
er mér spum: Til hvers var allt
bramboltið og englasöngurinn? Má
ekki allt eins halda útsölu á undan-
þágum og spara stórt í skólahaldi?
Þá yrði Jón matarskattur kátur.
Að lokum
Skipstjóri fór út með mannskap-
inn ótryggðan og engar heimildir
fyrir hvetjir vom um borð. Hann
hefur ekki réttindi né stýrimaður
né annar vélstjóri. Þar brýtur hann
tvenn ef ekki þrenn lög á einu
bretti. Hann játar brotið og fær
90.000 kr. sekt. Til samanburðar
er skipstjórakauptrygging um
70.000 kr. á mánuði.
Svo fær hann klapp á kollinn og
lofar sjálfsagt að gera þetta aldrei
aftur. Að endingu kórónar svo und-
anþágunefnd allt saman með því
að verðlauna báða skipstjórnar-
menn með undanþágu. Sennilega
hafa þeir þurft að skjóta á skyndi-
fundi til þess. Ekki er sama Jón og
síra Jón.
Já, á íslandi komast menn stund-
um upp með ótrúlegustu hluti.
Höfuodur er nemandi Á öðru stigi
Stýrimannasíálans á Dalvík.
^ *
V&Af bongsi
BILLIARD
STORKOsHífi VBIBUEKKIW -
PILUKAST
15-40% verðlækkun
Dartpílur QUALITY BRASS.
Verð áður kr. 528,- nú kr. 350,-
DartpílurTUNGSTEN.
Verð áður kr. 1.990,- nú kr. 1.290,-
Dartspjöld 44 cm.
Verð áður kr. 675,- nú kr. 436,-
Dartspjöld Keppnis-BRISTLE.
Verð áður kr. 3.700,- nú kr. 2.150,-
r >> ' O >C,A‘ ^9
WB ' ^
Billiardborð2fet, 63cm. Verðáðurkr. 3.100,- núkr. 1.910,-
Billiardborð 3 fet, 92 cm. Verðáðurkr. 4.000,- núkr. 2.450,-
Billiardborð 4 fet, 122cm. Verðáðurkr. 5.950,- núkr. 3.850,-
Billiardborð 5 fet, 153cm. Verð áður kr. 14.900,- núkr. 9.670,-
Billiardborð 6 fet, 183 cm. Verð áður kr. 17.700,- nú kr. 12.550,-
Sendum ípóstkröfu
Kreditkortaþjónusta
Armúla 40, sími 35320
/M4RKID