Morgunblaðið - 29.01.1988, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
Noregur:
Þekktur lyftinga-
maður handtekinn
fyrir lyfjasmygl
Osló, Reuter.
LÖGREGLUYFIR V ÖLD í Noregi
gerðu heyrinkunnugt i gær að
belgiskur lyftingamaður, Eric
Coppin að nafni, hefði verið
handtekinn við landamæri
Svíþjóðar og Noregs vegna þess
að 28.000 skammtar af steróíða-
lyfjum, sem vitað er að sumir
íþróttamenn nota til að bæta
árangur sinn í keppnisgreinum,
hefðu fundist í bifreið hans. Að
sögn Ann Kristin Olsen, lög-
reglustjóra í bænum Halden í'
Suður-Noregi, var lyftingamað-
urinn handtekinn ásamt unnustu
sinni á miðvikudag og sagði lög-
reglustjórinn að lyfin sem
fundust væru sovésk.
Ann Kristin Olsen sagði lyfin
hafa fundist við venjulega leit á
landamærunum og hefðu þau verið
í papppakassa f baksæti bifreiðar-
innar. Sagði hún lyftingamanninn
hafa skýrt frá því að hann hefði
keypt lyfín í Gautaborg í Svíþjóð
og hefði hann ætlað að neyta þeirra
sjálfur. „Hann þarf að vera óvenju-
lega fíkinn f steróíða hafí hann
ætlað sér að neyta 28.000
skammta," bætti hún við. Hugsan-
legt er talið að Coppin hafí ætlað
sér að selja lyijaskammtana í Nor-
egi. Alþjóðleg samtök íþróttamanna
hafa öll lagt bann við notkun lyfja
til að efla þrek og þor.
Undanfarin ár hefur Coppin búið
í Noregi og setti heimsmet í nóvem-
ber á síðasta ári er hann lyfti
samtals 940 kílóum á móti í Fred-
rikstad.
Verði Coppin og unnusta hans
fundin sek um smygl eiga þau yfír
höfði sér tveggja ára fangelsisdóm.
Sala og notkun slíkra lyfja er ekki
bönnuð í Noregi en innflutningur
sovéskra lyfja er bannaður. Að sögn
talsmanns lögreglunnar virðist svo
sem ólöglegur innflutningur á ster-
ófðum fari vaxandi í Noregi.
Nýverið var sovéskur keppnismaður
í skautahlaupi handtekinn vegna
grunsemda um að hann hafí selt
norska skautahlauparanum Stein
Krosby steróíða og hefur það mál
vakið mikla athygli f Noregi.
ERLENT
Mótmæli er Strauss
kemur til Namibíu
Namibíu. Reuter.
FRANZ Jósef Strauss Iauk í gær
heimsókn sinni til Suður-Afríku
og hélt til Namibíu. Þar biðu
hans hundruð svartra þjóðemis-
sinna sem mótmæltu komu
bæverska stjómmálaleiðtogans.
Mennimir mótmæltu vinsamleg-
um samskiptum Strauss og
stjómarinnar i Pretóríu og
kröfðust sjálfstæðis undan Suð-
ur-Afríku í samræmi við ályktun
Sameinuðu þjóðanna frá árinu
1978.
biskupar kaþólsku kirkjunnar í Suð-
ur-Afríku né Cyril Ramaphosa
leiðtogi blakkra námumanna vildu
hitta Strauss. Astæðuna sögðu þeir
vera þá að hann væri allt of ná-
tengdur stjóm hvíta minnihlutans.
Austur-Þýskaland:
-'Nf' f flL
# ym• ■;
; iL
WBt- - ...*'*•** j * *»*
Sextán áríísnum
U.S.IJL
Fyrir sextán árum, var þessi bandaríska Hercules LC-130 flutningavél, sem hrapaði á Antarktíku,
skilin eftir enda talin gjörónýt. Nú hefur björgunarleiðangur veríð sendur á vettvang til að grafa
vélina upp, gera við hana og fjjúga henni til Bandarikjanna. Aðeins stél vélarinnar var sjáanlegt
þegar verkið hófst. Efri myndin er tekin skömmu eftir að björgunin hófst, um það bil helmingur
vélarinnar er sjáanlegur. Neðrí myndin sýnir þegar veríð er að draga vélina upp úr snjónum.
Reist verður skýli yfir vélina meðan viðgerð stendur yfir.
Andófsmaður dæmdur til
Undir lok tíundu heimsóknar
sinnar til Suður-Afríu lofaði Strauss
Pieter Willem Botha forseta fyrir
„varlegar breytingar" á kynþátta-
aðskilnaðarstefnunni. Hann vísaði
frá sér gagnrýni leiðtoga svertingja
og stjómmálamanna í Bonn og
sagði að menn skyldu viðurkenna
það sem þegar hefði unnist.
Ekki hefur verið gestkvæmt hjá
Botha undanfarin ár. Fyrir tveimur
ámm kom Willy Brandt fyrrum
kanslari til Suður-Afríku en mátti
hlusta á reiðilestur vegna „afskipta
af innanríkismálum landsins".
Síðan hefur að sögn vikuritsins Der
Spiegel enginn vestrænn leiðtogi
komið í opinbera heimsókn að
breska utanríkisráðherranum,
Geoffrey Howe, undanskildum.
Strauss, einn síðasti stuðningsmað-
ur stjómarinnar í Pretóríu á
Vesturlöndum, fékk enda herlegar
móttökur. En meðal andstæðinga
kynþáttaaðskilnaðarstefnunnar
bæði í Vestur-Þýskalandi og í Suð-
ur-Afríku vakti heimsóknin mikla
reiði. Heimsóknin til Namibíu er í
hróplegu ósamræmi við stefnu
Hans-Dietrichs Genschers utanrík-
isráðherra sem ekki viðurkennir
leppstjóm Pretóríu í Namibíu.
Amm saman hefur Genscher for-
dæmt mannréttindabrot í Suður-
Afríku en Strauss hefur gengið svo
langt að gagnrýna hið formlega
jafnrétti kynþáttanna í Mozambique
og segir það ekki þjóna réttlætinu
heldur „ryðja öngþveiti braut".
Til stóð að Strauss miðlaði mál-
um í suðurhluta Afríku en sú
viðleitni dó í fæðingu því hvorki
sex mánaða fangavistar
Dagblöð birta neikvæðar fréttir um Vestur-Þýskaland
AuBtur-Berlín, Reuter.
FYRRUM félagi í austur-þýska
kommúnistaflokknum var í gær
dæmdur tíl sex mánaða fangels-
isvistar fyrir að hafa staðið fyrir
ólöglegrí fjöldasamkomu. Dag-
blöð f Austur-Þýskalandi birtu
áfram að birta neikvæðar fréttir
nm Vestur-Þýskaland en ráða-
menn þar hafa gagnrýnt harð-
lega fangelsanir andófsmanna
eystra.
Wolfgang Schnur, lögfræðingur
mótmælendakirkjunnar í Austur-
Þýskalandi, sagði fréttamönnum
Botha forseti S-Afríku og Strauss kampakátir.
að Vera Wollenberg hefði verið
dæmd til sex mánaða vistar innan
fangelsismúra samkvæmt þeirri
grein hegningarlaga sem fjallar um
ólöglegar fjöldasamkundur. Kvað
hann ríkissaksóknara hafa farið
fram á átta mánaða fangelsisvist.
Schnur krafðist þess á hinn bóginn
að skjólstæðingur hans yrði lýstur
saklaus og kvaðst hann hafa í
hyggju að áfrýja dómnum.
Oryggislögreglumenn handtóku
rúmlega 200 andófsmenn þann 17.
þessa mánaðar er þeir hugðust fara
í mótmælagöngu í minningu þýsku
kommúnistaleiðtoganna Karls Li-
ebknechts og Rósu Luxemburg en
þau voru myrt árið 1919. Flestum
þeirra hefur nú verið sleppt og 60
hafa fengið leyfí til að flytjast til
Vestur-Þýskalands. Talið er að tíu
séu enn í haldi og einhveijir þeirra
eiga yfír höfði sér ákæru fyrir land-
ráð.
f forystugrein Neues Deutsch-
land, málgagns austur-þýska
kommúnistaflokksins, í gær sagði
að andófsmennimir hefðu ekki ætl-*
að sér að heiðra minningu
kommúnistaleiðtoganna heldur
hefðu þeir eingöngu viljað vekja
athygli á sjálfum sér. Var þetta
athæfi andófsmannanna lagt að
jöfnu við guðlast en þau Rósa Lux-
emburg og Karl Liebknechet
stofnuðu hinn upprunalega komm-
únistaflokk Austur-Þýskalands.
Hálf forsíða blaðsins var á hinn
bóginn lögð undir frétt þess efnis
að stjómvöld í Vestur-Þýskalandi
meinuðu vinstri mönnum að vinna
störf innan ríkisgeirans. Sagði í
fyrirsögn fréttarinnar að almenn-
ingsálitið í heiminum krefðist þess
að látið yrði af þessari stefnu. Með
fréttinni fylgdi mynd af fólki sem
neitað hafði verið um vinnu sökum
stjómmálaskoðana sinna. Önnur
blöð birtu sambærilegar fréttir en
á miðvikudag snerust flestar aðal-
fréttir austur-þýskra dagblaða um
eiturlyfjavandamálið í Vestur-
Þýskalandi.
Vestrænir stjómarerindrekar
sögðu að fréttir þessar væru greini-
lega hugsaðar til mótvægis við
gagnrýni háttsettra embættis-
manna í Vestur-Þýskalandi. Sagði
einn þeirra að með þessu væri ver-
ið að aðvara stjómvöld í Bonn við
þvi að ganga of langt í gagnrýn-
inni því Austur-ÞJóðveijar teldu sig
geta svarað slíkri gagnrýni fullum
hálsi. Nokkrir bættu við að frétta-
flutningnum væri einnig ætlað að
ná til almennings í Austur-Þýska-
landi til að vekja athygli á að
stjómvöld vestan Berlínarmúrsins
ættu einnig við vanda að etja ekki
síður en austur-þýskir ráðamenn.