Morgunblaðið - 29.01.1988, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
33
Stjömubíó:
Fundur um bóka-
vertíð liðins árs
FÉLAG áhugamanna um bók-
menntir gengst fyrir fundi í
Norræna húsinu laugardaginn 30.
janúar kl. 14.00. Yfirskrift fund-
arins er „Eftir flóðið“ og verður
eins konar uppgjör við bókavertíð
liðins árs.
Á fundinum verða flutt flögur
framsöguerindi: Friðrika Benónýs-
dóttir gagnrýnandi flytur erindi sem
hún nefnir „Draumleikar", Halldór
Guðmundsson bókmenntafræðingur
talar um „Fjölmiðla og bókamark-
að“, Þórarinn Eldjám skáld flytur
erindi sem hann kallar „Gunnlöð
Linker" og Þórður Helgason bók-
menntafræðingur talar „Vítt og
breitt um flóðið".
Að framsöguerindum loknum
verða almennar umræður um fund-
arefnið. Fundarstjóri er Torfí Tuli-
nius.
Sýningar á „Nadine“
STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á gaman- og spennumynd-
inni „Nadine“ þar sem Jeff
Bridges og Kim Basinger fara
með aðalhlutverk. Leikstjóri og
höfundur handrits er Robert Ben-
ton.
Myndin hefst í Austin í Texas
árið 1954. Nadine Highthower (Kim
Basinger) dreymir um betri daga og
Vemon Higthower (Jeff Bridges) er
eigandi hallærisstaðar sem enginn
sækir. Það sem þessi tvö eiga sam-
eiginlegt er eftimafnið og misheppn-
að hjónaband. En ýmislegt undarlegt
gerist áður en hjónaskilnaðurinn
verður fullgildur. Nadine brýst inn
á ljósmyndastofu til að endurheimta
ósiðlegar myndir og verður þar vitni
að morði. Hún biður Vemon um
aðstoð. Löggan er á hælum hennar,
morðingjar á hælum hans og saman
Kim Basinger og Jeff Bridges
reyna mikið til að flýja undan
morðingjum í myndinni „Nadine"
em þau á flótta, segir í fréttatilkynn-
ingu.
HofsjökuU í höfninni í Stykkishólmi. Flóabáturinn Baldur er við hliðina. Morgunbiaðia/Ámi Heigason
Hofsjökull:
Nær í skelfisk í Stykkishólmi
Stykkishólmi.
HOFSJÖKULL var hér fyrir
skömmu að taka skelfisk til að
koma honum á markað í
Ameriku.
Þetta er fyrsti farmur af sjávar-
afurðum sem héðan fer á árinu á
erlendan markað. Það er alltaf við-
burður þegar þessi stóm skip koma
hér að bryggju því yfírleitt þykir
hentugra að senda bifreiðar eftir
afurðunum heldur en að láta stór
skip og dýr í rekstri sleikja hveija
höfn. — Arni
Úr umferðinni í Reykjavík 27. janúar 1988
Árekstrar bifreiða urðu samtals 22.
Kl. 16.23 varð gangandi vegfarandi fyrir bifreið í Armúla. Hann var
fluttur með sjúkrabifreið í slysadeild.
Kl. 18.02 varð tveggja bíla árekstur á mótum Langholtsvegar og
Kleppsvegar. Farþegi var fluttur í sjúkrabifreið í slysadeild og krana-
bifi*eið fjarlægði bæði ökutæki af vettvangi vegna skemmda.
Radarmæling: 9 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur.'
Á Reykjanesbraut mældist hraði kærðra 105—122 km/klst og 90
km/klst í Ártúnsbrekku.
Einn ökumaður var kærður fyrir að aka mót rauðu ljósi á götuvita
og einn kærður fyrir stöðvunarskyldubrot.
í miðvikudagsumferðinni fundust tveir réttindalausir ökumenn og einn
var gmnaður um ölvun við akstur.
Kranabifreið fjarlægði 11 ökutæki vegna slæmrar stöðu.
Samtals 30 kærar fyrir umferðarlagabrot.
(Frétt frá lögreglunni í Reykjavík)
Úr umferðinni í Reykjavík 26. janúar 1988
Árekstrar: 27.
Kl. 16.18 varð bam fyrir bfl á Rangárseli. Það var flutt með sjúkrabfl
á Slysadeild.
Radarmæling leiddi til þess að 6 ökumenn vom kærðir fyrir of hrað-
an akstur á Sætúni, Kleppsvegi og Kringlumýrarbraut. Mestur hraði
mældist 101 km/klst.
Ekið mót rauðu ljósi á götuvita: 3 ökumenn kærðir.
Kranabifreið flarlægði 6 bifreiðir fyrir slæma stöðu.
Kært var fyrir vanrækslu á að fara til skoðunar, tilkjmna eigenda-
skipti og fyrir ólöglegar bifreiðastöður. «
í þriðjudagsumferðinni varð einn ökumaður að gangast undir blóðrann-
sókn vegna gmns um ölvun við akstur.
Samtals 30 kærar fyrir umferðarlagabrot.
Frétt frá lögreglunni í Reykjavík.