Morgunblaðið - 29.01.1988, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
45
kennarinn eigi að koma hinum
„slæma“ til hjálpar — helst strax á
námsárunum með lengri og fleiri
kennsluæfingum. Þannig gefist þeim
sem ekki finni sig í starfinu líka tóm
til að hætta við í tíma.
Kennarar fá sjaldan hrós ef vel
er gert eða hvatningu til að halda
áfram á sömu braut. Eflaust myndu
kennarar una sér betur í starfi sínu
ef yfirmenn þeirra gerðu sér oftar
grein fyrir gildi hvatningar í starfí
sem oft felur í sér fleiri en eina lausn
á sama vandamáli. Kennarar eru oft
í vafa um hvort þeir eru að gera
rétt og því þurfa þeir að finna að
fylgst sé með því sem þeir eru að
gera. Hrós og lifandi eftirtekt yfir-
manns hvetur kennara til að leggja
enn meira af mörkum.
Hugsiim okkur að þúsundir glaðra
og ánægðra kennara sem hafa gam-
an af að halda bekkjarkvöld og
stinga upp á helgarferðum með nem-
endum og foreldrum bara af því að
þá langar til þess.
En hrósið eitt dygði ekki til.
Kennari verður að geta lifað af
launum sínum og búa við hæfilegt
vinnuálag til að geta orðið glaði og
ánægði kennarinn.
Samkvæmt nýlegri skoðanakönn-
un sem gerð var í Alaborg, þjáist
þriðji hver kennari af einhvers konar
taugaveiklun um lengri eða skemmri
tíma. Það má m.a. sjá merki um
þetta í því að æ fleiri eldri kennarar
kanna möguleika á að komast fyrr
en ella á skert eftirlaun (förtid-
spension).
Ole Wangel sálfræðingur gerir
þessa skoðanakönnun frá Álaborg
að umtalsefni í blaðagrein í Politiken
14.4. 1984. Hann lýsir þar aðstöðu
kennara sem hafi eitt erfitt barn í
bekknum. Togstreitan milli hans og
erfiða bamsins gerir hin bömin
hrædd og óömgg. Þau draga sig í
hlé og eru hissa og ergileg yfir þeirri
athygli sem erfíða bamið fær. Þau
sjá líka erfiða bamið fara oft með
sigur af hólmi í baráttunni við kenn-
arann. Kennarinn verður miður sín
í þessari daglegu valdabaráttu.
Hann verður hræddur um að missa
tökin á kennslunni og óttast við-
brögð foreldranna og samkennar-
anna. Slíka vinnuaðstöðu er ekki
hægt að bjóða nokkrum manni segir
Ole Wangel.
Fjöldi kennara þekkir þessar að-
stæður — sumir geta valdið þessu
en ófáir gefast algerlega upp.
Vandamálið er að kennarinn er einn
á báti, einn með bömunum inni í
bekknum og einn innan um sam-
starfsfólkið með vandamál sín. í
frímínútum hefur fólk nóg að gera
við að ljósrita, koma skilaboðum á
framfæri eða einfaldlega kærir sig
ekki um að hlusta á vandamál ann-
arra.
Hvað gerist svo þegar skóladegin-
um lýkur?
Þeir kennarar sem hafa átt „góð-
an dag“ hafa oft umfram orku til
að setjast niður og skipuleggja
næsta dag ásamt samkennurum
sínum sem sömuleiðis eru ánægðir
með daginn.
Þeir kennarar sem tekist hefur
misvel upp flýta sér hins vegar heim
fullir vonbrigða og sjálfsásakana.
Hvað hef ég gert rangt? Af hverju
mistekst hver dagurinn á fætur öðr-
um?
Einn daginn springur svo blaðran.
Kennarinn missir stjórn á sér og
erfíða barnið hittir í mark. „Mamma
segir líka að þú sért svo taugaveikl-
aður að þú ráðir ekkert við okkur!"
Samkvæmt könnun frá Social
arbejdernes fællesudvalg um vinnu-
aðstæður kennara kemur í ljós að
um fertugt eru kennarar og uppeld-
isfræðingar orðnir þreyttir og
útkeyrðir og margir þeirra snúa sér
að öðrum störfum á þeim aldri.
Margir kennaranna segjast vera
ánægðir með starf sitt en segja það
jafnframt of erfitt og reikna ekki
með að endast lengur i því en fram
að fertugu.
í bókinni „Udbrændthed" eftir
Oskar Plougman o.fl. er ofþreytu
kennara þannig lýst: Hann, þ.e. út-
brunni kennarinn, veit aldrei hvar
hann stendur. Stöðugt koma fram
nýjar kröfur og væntingar frá um-
hverfinu sem hann reynir að uppfylla
en veit sjaldriast hvort hann er að
gera rétt. Þessi stöðuga spenna veid-
ur ótta, spennu og ofþreytu. Oft
leiðir þetta spennuástand til þess að
kennarinn verður smátt og smátt
ófær um að valda starfi sínu.
Þessir kennarar missa sjálfsvirð-
ingu sína og fjölskylda og félagar
líta á þá sem misheppnaða, en skilja
ekki að ástand kennarans eru aðeins
heilbrigð viðbrögð við óþolandi að-
stæðum.,
Kennararnir gera sér ekki grein
fyrir líðan sinni m.a. vegna þess að
enn er aðeins lítill hluti kennara sem
yfirgefur starfið af þessum ástæð-
um. Samstarfsfólkið bregst við með
athugasemdum eins og: Hvað sagði
ég ekki? Hann hefði átt að vera
hættur fyrir löngu. En einmitt slíkar
og þvílíkar athugasemdir lýsa vel
andrúmslofti vinnustaðarins sem á
stóran þátt í líðan kennarans.
Samkvæmt bókinni eru hættu-
merkin mörg og margvísleg.
Útbrunni kennarinn hefur enga
löngun til að mæta í vinnu á morgn-
ana.
— Hann hefur það á tilfinning-
unni að hann sé algerlega misheppn-
aður og hagar sér samkvæmt því.
— Fólk á vinnustað fer að um-
gangast hann sem slíkan.
— Hann sér engan tilgang með
starfí sínu.
— Hann er stöðugt þreyttur.
— Hann hættir að umgangast
nemendur sína sem einstaklinga með
mismunandi þarfir.
— Hann forðast að lenda í um-
ræðum um kennslufræðileg málefni.
— Hann á við erfiðleika að stríða
í hjónabandi.
— Hann finnur til vaxandi kjark-
leysis.
Fleiri skólamenn benda á ein-
manakenndina sem stóran þátt í
erfiðleikum kennara í starfi. Kerinar-
inn vinnur einn fyrir framan hóp
bama fyrir luktum dymm. Henning
Ask kennari sagði í blaðagrein að
þetta fyrirkomulag hlyti að vera að
ganga sér til húðar með tilkomu
sveigjanlegri kennsluhátta. Hann
benti líka á að á sínum tíu ára
kennsluferli hefði hann aðeins einu
sinni fundið til vemlegrar gleði og
ánægju í starfi.
Það var þegar hann vann í hópi
kennara aö útfærslu sameiginlegs
verkefnis. Það hefði að vísu verið
bæði tímafrekt og krefjandi en um
leið afar spennandi og þroskandi —
öfugt við það sem hann hefði átt
að venjast í stressuðu, einmanalegu
andrúmslofti skólastofunnar. Ole
Wangel sálfræðingur benti líka á •
einmanakenndina sem mikilvægan
þátt og að önnur meginorsök vax-
andi erfiðleika kennara væri sú að
óömggum og órólegum börnum
hefði fjölgað mjög í skólanum á
undanfömum ámm.
„Vinna kennarans einkennist af
óljósum, síbreytilegum kröfum.
Henni er í raun aldrei lokið og erfitt
að koma auga á sýnilegan árangur.
Kennarinn er eina fullorðna mann-
eskjan inni í bekknum og er því einn
með ábyrgðina og lausn vandamála
sem upp kunna að koma.“ .
Samkvæmt Nordstress-könnun-
inni telja kennarar eftirfarandi þætti
einkenna starf sitt:
Svigrúm — frelsi. Engin skylda
að vinna með öðmm fullorðnum.
Einangmn. Litlir möguleikar á að-
stoð við erfiðar aðstæður. Að vera
bundinn vinnustaðnum. Kennari get-
ur ekki leyft sér að yfirgefa bekkinn.
Takmarkaðir möguleikar á að meta
starfið með öðmm kennurum. Kenn-
ari verður einn að dæma um árangur
starfs síns.
Það er deginum ljósara af hverju
kennumm er legið á hálsi fyrir víl
og væl í fjölmiðlum. Það er líka er-
fitt fyrir þá að setja aðra plötu á
fóninn og nær væri fyrir yfirvöld
að fá sér nýtt plötusafn til ágóða
fyrir komandi kynslóð sem aldrei
hefur verið afskiptari en einmitt nú.
Það er líka ljóst að enn er í þessari
stétt fullt af ungu fólki sem er enn
ekki búið að missa móðinn og hefur
yndi af starfi sínu. Og þá ætti að
vera verkefni yfirvalda og stjóm- •
málamanna að sjá til þess að við
horfum ekki á eftur þessu fólki á
flótta úr stéttinni fyrir aldur fram
þjáð af þreytu og vantrú á starfi
sínu. Eða hver getur ímyndað sér
þá tilfinningu nema sá sem hefur <
reynt hvemig það er að horfa á eft-
ir hópi tuttugu krakka sem þakka
fyrir daginn brosandi út að eyrum,
ánægð með afköst dagsins?
Heimildir
Skolelærer, hvad nu? Mogens Warborg.
Politiken.
Útvarpsþáttur í Danmarks Radio.
Udbrændthed, Oskar Plougman o.fl.
Höfundur er kennari.
Whonda
WHORTDA
ÍwobllO'
5 Caiwn
Æ
Æf
JmSSr
Honda á íslandi, Vatnagörðum 24 s. 689900.
Leiðandi í hönnun og tækninýjungum.
HONDAPRELUDE
2.0i DOHC 16v
Bjóðum örfáa PRELUDE2.0EXSÍ - 16várgerð 1987.
Vél: 137 hestöfl, bein innspýting (PGMFI)
Viðbragð: O-100 km/k: 7,9 sek.
Vökvastýri - rafdrifin sóllúga - rafdrifnar rúður —
rafdrifið loftnet — álfelgur — útvarp/segulband — 4
hátalarar -ALB bremsukerfi (ANTI-LOCK-BRAKE)
tölvustýrt ásamt mörgu öðru.
VERÐ AÐEINS KR. 915.000.-
HONDA GÆÐI - HONDA KJÖR - AÐEINS 25% ÚT
HONDAACCORD
Aerodeck 1988 EXS-i
Enn einn einstakur frá HONDA.
Bjóðum þennan frábæra bíl með öllum fáanlegum
aukahlutum.
Vél: 122 hestöfl m/beinni innspýtingu (PGMFI)
Viðbragð: O-100 km./k: 8,9 sek.
ALB bremsukerfi (ANTILOCK BRAKE) tölvustýrt.
Rafdrifnar rúður - rafdrifin sóllúga - rafstýrðir spegl-
ar - rafdrifið loftnet - útvarp/segulband, 4 hátalarar
- vökvastýri ásamt mörau öðru.
VERÐ AÐEINS KR. 870.000.-
HONDA GÆÐI - HONDA KJÖR - AÐEINS 25% ÚT