Morgunblaðið - 29.01.1988, Page 54

Morgunblaðið - 29.01.1988, Page 54
54 MORGUNBLABIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988 y v ég er ekiki vi55 um ai> pol) Le-kann i krananum ieid húsinq naesfcu 7ánn-'' * Ast er... ... nytsöm gjöf. TM Reg. U.S. Pat Otf. — all righta rasarved • 1987 Los AogalM Timea Syndicata ^7 vcg’gimir í einhverri íbúð- anna sem selja á séu ekki svona þykkir? HÖGNI HREKKVÍSI //ÖðNiMIG FÓe. þ'A LlM „ KOMOU EIM5 06 f>ö EKT KU/CPPUR" PAR.TiiE>.'/ Þ»essir hringdu .. Verum á verði gagn- vart verðhækkunum Ásta hringdi: „Það er fýllsta ástæða til að vera vel á verði gagnvart verð- hækkunum þessa dagana. Nýlega keypti ég niðursuðudós sem kost- aði 238 krónur. Skömmu síðar sá ég þessa sömu vöru í annarri verslun á 175 krónur. Þarna höfðu að minnsta kosti 36 prósent verið lögð ofaná fyrir utan matarskatt- inn. Það er alveg furðulegt hvemig íslendingar láta leika með sig, þrátt fyrir sífeldar hækkanir á matvöm virðist fólk alveg sinnu- laust og hirðir ekki um að mótmæla." Sjónvarpsdagskráin að mörgu leyti góð 3970-9457 hringdi: „Annað slagið verið að kvarta yfír ríkisfjölmiðlunum og þá sérstaklega sjónvarpsdagskránni. Ég er mjög ánægður með Ríkisút- varpið, rás eitt, og tel dagskrá þess til fyrirmyndar. Það er margt frambærilegt í sjónvarpinu. Frétt- imar þar eru vel unnar og svo hefur sjónvarpið sýnt góðar fræðslumyndir t.d. dýralífsmynd- ina frá Galapagoseyjum. Þá hafa verið góðir þættir um listir og menningarmál í sjónvarpinu að undanfömu." Góð grein um endur- vinnslu H.Þ. hringdi: „Ég vil þakka fyrir góða og tímabæra grein um endurvinnslu, sem birtist í Mogrunblaðinu hinn 27. janúar, en greinin er eftir Friðrík R. Jónsson, verkfræðing. Þar er vikið að málefni sem við íslendingar höfum lengi látið reka á reiðunum okkur sjálfum til stórskaða. Alltof Iítið er gert af því að endurvinna það sem til fell- ur hér á landi en þess í stað er flutt inn alveg gengdarlaust. Mik- il verðmæti fara í súginn vegna þessa. Mikil þörf er á að íjalla meira um þessi mál og vekja þannig áhuga á endurvinnslu.“ Kvenúr Kvenúr fannst við Síðumúla á hinn 23. desember. Eigandi-þess getur hringt í síma 687215. Barnagleraugu Ljósblá bamagleraugu fundust við Suðurhóla sunnudaginn 24. janúar. Upplýsingar í síma 77175. Slæm umgengni sorp- hreinsunarmanna Cecil Jensen hringdi: „Ég er ekki ánægur með um- gengni sorphreinsunarmanna því þeir ganga hrikalega illa um, að minnsta kosti heima hjá mér. Þetta er sennilega vegna þess að sorphreinunarmenn vinna í akk- orði og em þess vegna að flýta sér. Við emm með tvær tunnur ef þær em háifar af sorpi hella sorphreinsunarmennimir því gjaman á milli til að flýta fyrir sér. Það er í sjálfu sér allt í lagi ef flýtirinn væri ekki svo mikill að hluti af sorpinu fer út um allt gólf og svo lendir það á mér að þrífa upp eftir þá. Við sem greið- um fyrir þessa þjónustu hljótum að eiga heimtingu á að sorphreins- unarmenn gangi vel um hvort sem þeir vinna verk sitt í akkorði eða ekki.“ Skjalataska Rústrauð skjalataska tapáðist á homi Vitastígs og Skúlagötu fyrir nokkm. í henni vom verslun- arskjöl og fleira. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 78240. Yíkverji Sonur góðvinar Víkveija varð fyrir því á dögunum að vönduðu reiðhjóli hans var stolið úr hjóla- geymslu þar sem hann á heima. Hjólsins var leitað í hverfínu í kring, en án árangurs. Eftir nokkra daga vom feðgamir orðnir svartsýnir á að hjólið kæmi í leitimar. Faðirinn sagði Víkveija frá þessu og fannst með ólíkindum að farið væri inn í hús og hjól tekið þar traustataki. Hann hafði talað við lögreglu og fannst sem þar litu menn á hlutverk sitt sem þeir væm fulltrúar tryggingafélags og væm nánast sannfærðir um að hjólið skilaði sér ekki. Þeir sögðust tilbún- ir að skrifa skýrslu til tryggingafé- lags um hvarf hjólsins, en bezt væri að bíða með það um sinn ef svo ólíklega vildi til að hjólið kæmi í leitimar, tvíverknaður við skrif- fínnskuna væri óþarfur. Þeir sáu enga ástæðu til að gera neitt í málinu sjálfír. Víkveiji vildi ekki sætta sig við að hjólið fyndist ekki án þess að eitthvað frekar væri gert. Hann benti fjölskylduföðumum á félaga Velvakanda og barin var saman stutt klausa um hjólhvarfíð og lýs- ing á gripnum látin fylgja með. Viti menn, að kvöldi birtingardags- ins hringdi kona nokkur í manninn og sagði honum að hjólið hefði hún fundið fyrir utan hús sitt fyrir skrifar nokkmm dögum. Það var með öllu óskemmt, en hafði verið hent hirðu- leysislega við húsgaflinn. Fjölskylduföðumum fannst mátt- ur Velvakanda með ólíkindum. Víkveija kom þetta hins vegar ekk- ert á óvart. Máttur þessa lesenda- og þjónustudálks Morgunblaðsins er ótrúlega mikill. XXX A Ivikunni barst Víkveija eftirfar- andi bréf frá veitingamanni: „Sá margskipti persónuleiki, Víkveiji, hneykslast á því í dag, fimmtudag (14. janúar) að þijár stúlkur, 15, 16 og 17 ára gamlar, hefðu haldið upp á afmæli einnar þeirra með því að fara út á veitinga- hús, fá sér austurlenskan mat og skipta með sér einni hvítvínsflösku. Umkvörtunarefni Víkveija er að þama skorti allt eftirlit. Kannski er Víkveiji forræðishyggjumaður og óskar þess að lagabókstafurinn blífi í stað þess að lög og reglur lagi sig að þróun samfélagsins. Sé svo, þá getur Víkveiji haft af því þungar áhyggjur að ungt fólk kunni í dag að umgangast vín á þann hátt sem alltof sjaldgæft var hér á landi til skamms tíma. Hann þarf minni áhyggjur að hafa af því að aðrar þijár ungar stúlkur hafi þetta sama kvöld sennilega haldið sig á Hlemmtorgi eða öðram útivistar- stað með sterkari vímugjafa. Því þannig hafa hlutimir gengið fyrir sig langa lengi. Það verður því að- eins hægt að óska Víkveija til hamingju með það ef hann með skrifum sínum getur komið lögum yfír það unga fólk, sem kann að meta menningarlega umgengni við vín á huggulegum veitingastað — í stað þess að pukrast í skúma- skoti. Og laganna verðir geta þá beint sjónum sínum frá hlemmtorg- um samfélagsins en farið að ganga um á veitingastöðum og krefja fólk um persónuskilríki. V eitingamaður“ xxx Haldi veitingamaðurinn að ungl- ingar eigi ekki aðra valkosti en að vera á „hlemmtorgum sam- tímans" eða austurlenzkum mat- sölustöðum þá er það rangt. Móðir 15 ára stúlkunnar í fyrmefndum hópi hefði gjaman gefíð dóttu sinni og vinkonum hvítvínstár ef því hefði verið að skipta. Henni og Víkveija var ofar í huga hvort veitingamenn þurfa ekki að fara eftir lögum og reglum í þessu landi eins og aðrir. ■ - ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.