Morgunblaðið - 29.01.1988, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
55
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
i M XnS 'Lf If
Þekkir einhver konurnar?
Til Velvakanda
Ef einhver lesandi þekkir ein-
hverja af konunum á meðfylgjandi
ljósmjmd, er sá hinn sami vinsam-
legast beðinn að hafa samband við
undirritaðan. Myndin er tekin hjá
Sigríði Zoéga í Reykjavík, líklega
í kringum 1925. Konan lengst til
hægri á myndinni er Anna Geirs-
dóttir frá Múla í Biskupstungum,
en hinar þekki ég því miður ekki
og þætti vænt um að fá upplýsing-
ar um þær. Síminn hjá mér er
621339.
Jón Geir Asgeirsson
Sjónvarpið og list blekkinganna
Til Velvakanda.
Aldrei er góð vísa of oft kveðin.
Ekki er það verra að viskubrunnur
miðli af fróðleik sínum eins og ríkis-
sjónvarpið gerði er það sýndi
Galapagos myndina 24. nóvember
1987 og aftur 12. janúar 1988.
Betra væri þó að endursýninga
væri getið hveiju sinni. Kvikmynda-
iðnaður er í sókn þessa dagana.
Gerð var leikin kvikmynd um þrett-
ánda-prakkarastrik á Selfossi og
sýnd á Stöð 2. Kvikmyndalist er
list blekkinganna, mjög auðvelt er
að skapa alls konar árur og blik.
Enda hafa starfsmenn Ríkisút-
varpsins verið ötulir við að kynna
okkur á þess kostnað nýjan trúar-
söfnuð eða heimspekifélag sem
þekkist á boðskapnum.
Er helstu trúarbrögðum heims
hrært saman og anda-, vætta- og
tívatrú bætt í blöndudna. Nýjung
er og í hópi þessum að ákalla virk-
ar megineldstöðvar eins og Snæ-
fellsjökul og Hofsjökul. Óhætt
verður með orkulínumar taki að
gjósa eftir árþúsunda goshlé.
Það er óþarfi að spyija um trú-
frelsi, óhlutdrægni og rétt annarra
heimspekifélaga eða safnaða til
sömu kynningar í sjónvarpinu á
kostnað þess. Löngum hefur það
loðað við að litlu máli skipti þó-Jón,
Pétur eða Páll eigi hlutdeild í eigum
ríkisins, því hlutverk almúgamanns-
ins er fyrst og fremst að borga
kostnaðinn og tapið á skiladögum.
Fyrirferð þekkta fólksins er
hvergi meira áberandi en í sjón-
Góð morgun-
leikfimi
Kæri Velvakandi
varpinu. Er það af því að völd og
ríkidæmi heilla margan líkt og
ríkmannleg álfaþjóð gerði forðum,
þá sjaldan hún gæfí færi á sýn inn
í hamarinn. Þó voru það viðtöl
Ómars Ragnarssonar við óþekkta
fólkið sem gimilegust þóttu til sölu
á myndböndunum áður en þeir fóru
að falbjóða óperumar. Sumt er í
framför. Stiklur Ómars komnar aft-
ur. Annað er í voninni eins og að
tónlistarmyndbönd komi frá Arabíu
og Indlandi. Kínveijar eiga söng-
leiki og fleira er tónlist en sú sem
á uppruna sinn í Evrópu, þó marg-
ir vilji ekki við aðra kannast. Enda
gamalt hollráðið: „Þegar þú ert í
Róm, skaitu haga þér eins og Róm-
veijamir."
Bjarni Valdimarsson
Eru gengisfellingar-
postulamir þjóðhollir?
Ágæti Velvakandi.
Ýmsir sem kalla sig talsmenn
iðnaðar og fískvinnslu væla sí og æ
um að fella verði gengið, því ann-
ars fari allt í strand, og þessi eða
hinn geti ekki haldið þetta lengur
út. Ekki er að sjá á lífemi þessara
manna að skórinn kreppi að, öðru
nær. Virtir hagfræðingar segja að
gengisfelling leysi engan vanda,
heldur skapi hún vanda, allt verð-
lag hækkar. Það þýðir að enn
versna kjör fólksins og ég spyr, eru
þetta þjóðhollir menn? Vilja þeir
koma öllu í kaldakol með gengis-
fellingu, sem ef til vill leysir einn
hnút en býr til aðra í staðinn. Ég
vil minna þessa menn á, að við
höfum seðlabanka og við höfum
ríkisstjóm sem tekur ákvörðun um
gengismál þjóðarinnar. Þeir verða
aldrei spurðir.
Kristinn Sigurðsson
Hvað er í lyfjaskápnuríri?
Veistu ekki við hverju lyfin eru sem þú átt heima?
Komdu með lyfjasafn þitt í apótekið eða í kynning-
arbás lyfjafræðinga í Kringlunni í dag frá kl. 14-19
og fáðu upplýsingar.
Lyfjafræðingafélag íslands.
Glæsileg karlmannaföt
dökkröndótt o.fl. litir.
Kiassísk snið og snið fyrir yngir menn.
Verð kr. 5.500,-, 8.900,- og 9.900,-
Skólavörðustíg 22a, sími 18250.
Mig langar til að hrósa morgun-
leikfími Halldóru Bjamadóttur sem
vissulega er mjög góð. Æfíngamar
koma hægt og rólega og tel ég það
vera mikilvægast fyrir utan hina
fallegu tónlist sem aldrei er leikin
of hátt.
Katrín Guðjónsdóttir
TÖLVUPRENTARAR
MANST ÞÚ HVAÐ ÞÚ ÆTLAÐIR AÐ GERA í DAG?
JANUAR
29 föstudagur
MINNISPÓK fo)KRl')MAR. IrR'TIL ADHINNA ÞGÁ
nyjiiR mnM rér ny^an toplbik- .
fÆsr í mæstu 9n<hPi\p.
Ella Kolbrún Kristinsdóttir f. 1940. Námsbrautarstjóri í sjúkraþjálfun við Háskóla ísiands 1976-1981,
síðan dóscnt.