Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988
Mjög mikil
vonbrígði
— segir Guðjón B.
Ólafsson forstjóri
Sambandsins
ÞETTA eru okkur Sambands-
mönnum mjög mikil vonbrigði.
Við höfum verið að gera allt, sem
i okkar valdi hefur staðið til að
teygja okkur til móts við óskir
Kópavogsmanna. Okkur er ljóst
að þeir vildu að landið yrði byggt
upp sem hraðast. Við höfum talað
varfæmislega, en reynt að mæta
óskiun þeirra. Við vorum búnir
að semja um það við Hagvirki að
þeir kæmu með okkur inn í þessa
mynd,“ sagði Guðjón B. Ólafsson
forstjóri Sambandsins í samtali
við Morgunblaðið.
„Á miðvikudag afhentum við bæj-
arráði Kópavogs bréf, þar sem við
lýstum okkur tilbúna til að byggja
landið upp, jafnvel hraðar en gert
hafði verið í samningi Kópavogs-
kaupstaðar við fyrrverandi eigendur.
Þetta nægði nú ekki og skýring
þeirra er sú að þeir hafí verið að
leita aðila, sem væru tilbúnir til að
byggja landið hraðar upp en við. Við
litum þannig á málið, að það væri á
viðræðustigi með fullum trúnaði og
bróðemi við Kópavogskaupstað.
Okkur koma þessi vinnubrögð mjög
á óvart og þau valda okkur mjög
miklum vonbrigðum," sagði Guðjón
B. Ólafsson.
í frétt frá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga kemur fram að þrátt
fyrir að Sambandið hafí viljað koma
til móts við Kópavogsbæ, hafí bæjar-
yfírvöld ákveðið að nýta forkaups-
réttinn og selja landið í hendur nok-
kurra helstu samkeppnisaðila sam-
vinnuhreyfingarinnar í verslunar-
rekstri á höfuðborgarsvæðinu.
Þá segjr enn fremur: „Sambandið
bendir á að það þjónar tæplega hags-
munum Kópavogskaupstaðar að fara
þessa leið, því eitt af þeim fyrirtækj-
um (BYKO) sem ætlunin er að selja
landið, er þegar með atvinnurekstur
í Kópavogi og hitt (IKEA) hafði þeg-
ar fengið úthlutað lóð eða vilyrði
fyrir lóð annars staðar í Kópavogi.
Forráðamenn Sambandsins gera
sér enn vonir um að þessum áformum
verði breytt og að við endanlega af-
stöðu bæjaryfírvalda í Kópavogi
verði tekið fullt tillit til kaupa Sam-
bandsins á Smárahvammslandi."
Morgunblaðið/Sverrir
Frá vinstri Jón Pálmason og Sigurður Gísli Pálmason sem undirrituðu kaupsamninginn að Smára-
hvammslandi fyrir hönd Ikea og Hagkaups hf., Magnús Hreggviðsson fyrir Fijálst framtak, Kristján
Guðmundsson bæjarstjóri, Jón Guðmundsson og Jón Hjaltason fyrir Byggingarvöruverslun Kópavogs.
Fimm aðilar kaupa Smára-
hvammsland á 117 milljónir
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur milli Kópavogsbæjar,
Byggingarvöruveslunnar Kópa-
vogs, Hagkaups hf., Ikea-Miklat-
orgs sf. og Fijáls framtaks hf.
um kaup á 33 hekturum af landi
Smárahvamms í Kópavogi fyrir
117 milljónir króna. Áður hafði
Samband íslenskra samvinnufé-
Benedikt Blöndal
skipaður dómari
við Hæstarétt
FORSETI íslands skipaði í gær
að tillögu dómsmálaráðherra
Benedikt Blöndal, hæstaréttar-
lögmann, dómara við Hæstarétt
íslands frá og með 11. febrúar
að telja.
Benedikt Blöndal er 53 ára gam-
all, fæddur 11. janúar 1935 í
Reykjavík. Hann lauk prófí frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1954 og frá lagadeild Háskóla ís-
iands árið 1960. Á_ námsárunum
var hann ritstjóri Úlfljóts 1956-
1957 og formaður Stúdentafélags
Háskólans. Að loknu lögfræðiprófi
var hann um tíma við nám í sjórétti
í London. Hann réðst sem lögfræð-
ingur til Bæjarútgerðar Reykjavík-
ur í febrúar 1960 og starfaði þar
til ársloka 1965. Þá hefur hann
jafnframt rekið lögmannsskrifstofu
{Reykjavík ásamt fleirum frá 1961.
Hann kenndi um tíma sjórétt við
Stýrimannaskólann í Reykjavík og
lagadeild Háskóla íslands og hefur
setið í Kjaradómi fá 1971, þar af
sem formaður frá 1978. Þá varð
hann formaður landskjörstjómar
árið 1983. Benedikt sat í stjóm
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar 1964-1966 og í stjóm Stúd-
entafélags Reykjavíkur um tíma,
þar af sem formaður 1970-1971.
Þá sat hann í stjóm Lögmannafé-
lags íslands í nokkur ár og var
laga fest kaup á landinu en bæj-
arstjórn Kópavogs ákvað að
neyta forkaupsréttar síns -og
ganga inn i kaupin. Byggingar-
vöruverslun Kópavogs og Ikea-
Miklatorg hyggjast reisa stórt
verslunarhús á sínum hluta, Hag-
kaup mun flytja skrifstofur sínar
í Kópavog og Fijálst framtak
hyggst byggja og selja verslunar
og iðnaðarhúsnæði og að auki
flytja þangað skrifstofur sínar.
„Ein megin ástæðan fyrir að við
ákváðum að ganga inn í kaupsamn-
ingin er að aldrei lá fyrir hvað Sam-
bandið ætlaði að byggja á þessu
landi,“ sagði Kristján Guðmundsson
bæjarstjóri. „Það varð ekki ljóst
fyrr en síðastliðinn þriðjudag að
þama ætti að rísa stórmarkaður og
bensínstöð en allt annað var óljóst.
Áður hafði þeim verið tilkynnt að
samningaviðræður væru hafnar við
aðra aðila. Þær viðræður höfðum
við dregið eins lengi og unnt var
þrátt fyrir að margir aðilar hafí
sýnt áhuga. Sambandsmenn lögðu
til að þeir héldu um helming lands-
ins eða jafnvel einum þriðja en það
dæmi gekk ekki upp. Við vildum
gjaman sjá þá héma en það gekk
ekki upp í þessari hörku samkeppni
sem ríkir nema þá með einhverjum
aðilum sem við treystum ekki fyrir
landinu."
í hlut Kópavogskaupstaðar koma
5 hektara, Byggingavöruverslun
Kópavogs, Hagkaup og Ikea fá 12
hektara til ráðstöfunar og um leið
er fyrri lóðaúthlutun Ikea afturköll-
uð. Fijálst framtak mun skipu-
leggja og byggja iðnaðar og versl-
unarhúsnæði á 16 hekturum. Nú
þegar verður hafíst handa við skipu-
lagningu á svæðinu og eiga bygg- -
ingaframkvæmdir að geta hafíst á
næsta ári að sögn Kristjáns. Standa
vonir til að fyrstu fyrirtækin hefíi
rekstur árið 1990. í samningum við
Sambandið var miðað við að rekstur
hæfíst árið 1993.
„Það væri hreint ábyrgðarleysi
af bæjarfulltrúum með hag bæjar-
ins í huga, ef þeir hugsuðu ekki til
þess að koma sem fyrst upp at-
vinnustarfsemi á þessu landi," sagði
Kristján. „í viðræðum við Sam-
bandið skömmu eftir að kaupin á
Kirkjusandi voru gerð, kom fram
að þeir mundu hugsanlega láta sér
nægja 5 hektara. Það stendur þeim
enn þá til boða. Hliðarspor þeirra
er þegar kaupin á Kirkjusandi eru
gerð. Eftir það eru þeir í raun
og veru ekki tilbúnir til að fara inn
á þetta svæði að svo stöddu þegar
öll þeirra fjárfestingaáform breytt-
ust. En við höfum sagt þeim að
þeir geti átt kost á landi austan
brautarinnar síðar.“
INNLENT
Benedikt Blöndal
formaður félagsins 1971-1973.
Hann sat í stjóm Rauða kross ís-
lands frá 1973-1986, þar af sem
formaður frá 1982. Hann hefur
setið í stjóm íslandsdeildar norrænu
lögfræðingaþinganna frá 1973 og
var safnáðarfulltrúi Dómkirkju-
safnaðarins 1975-1981.
Eiginkona Benedikts er Guðrún
Karlsdóttir og eiga þau hjón þijú
böm.
Auk Benediktssóttu um embætt-
ið þeir Gísli G. ísleifsson, yfírlög-
fræðingur, Hjörtur Torfason,
hæstaréttarlögmaður, Jóhann H.
Nielsson, hrl., Jóhannes L. L.
Helgason, hrl., Jón Oddsson, hrl.,
Sigurður Helgason, sýslumaður,
Skúli Jón Pálmason, hrl., og Sveinn
Snorrason, hrl. í umsögn Hæsta-
réttar um umsækjendur mælti rétt-
urinn sérstaklega með þremur,
þeim Benedikt, Hírtí og Sveini.
Teningakastið í tannlæknadeildinni:
Ógeðfelld aðferð til að
gera upp á milli nemenda
- segir Jónatan Þórmundsson varaháskólarektor
ÞRÍR nemendur voru í 6., 7.
og 8. sæti með meðaleinkunn-
ina 6,25 i haustprófum á fyrsta
ári í tannlæknadeild Háskóla
íslands, en einungis sjö fá að
halda áfram og samkvæmt
reglugerð Háskólans þurftu
þeir að kasta upp teningi um
það hver þeirra kæmist ekki
áfram. Jónatan Þórmundsson,
vararektor og forseti laga-
deildar, sagði í samtali við
Morgunblaðið i gær að honum
fyndist teningakastið ógeðfelld
aðferð til að gera upp á milli
nemenda. Háskólarektor réði
þvi hvort þetta mál yrði tekið
fyrir í háskólaráði og hugsan-
lega legði hann það fyrst fyrir
lögskýringarnefnd. Sigmundur
Guðbjarnason, háskólarektor,
er erlendis og kemur heim i
næstu viku.
Guðjón Axelsson, forseti tann-
læknadeildar, sagði að honum
fyndist þetta mál ekkert merki-
legt. „Fjölmiðlamir eru að reyna
að gera mál úr þessu," sagði
Guðjón.
Jónatan Þórmundsson, vara-
rektor, varaforseti háskólaráðs og
forseti lagadeildar, sagðist aldrei
hafa farið leynt með þá skoðun
sína að honum fyndist teninga-
kast ógeðfelld aðferð til að gera
upp á milli nemenda. „Háskóla-
rektor ákveður hvort hann tekur
þetta mál fyrir í háskólaráði og
hugsanlega leggur hann það fyrst
fyrir lögskýringamefnd," sagði
Jónatan.
Þórir Einarsson, forseti við-
skiptadeildar, sagði að í raun og
veru væri teningakast ekki fram-
bærileg aðferð til að gera upp á
milli nemenda. „Þetta er mjög
óskynsamleg aðferð sem getur
valdið mannlegum harmleik,"
sagði Þórir. „Ég hef lagt fram
tillögu um,“ sagði Þórir, „að þeir
nemendur sem em með níu bestu
meðaleinkunnimar á fyrsta ári í
tannlæknadeild fái að halda
áfram, í stað sjö eins og nú er.
Deildin er afspymudýr; bæði er
rekstrarkostnaður hennar mikill
og einnig hefur verið fjárfest þar
mikið í tælq'um. Ég tel að þar
hafí ekki verið gætt fyllstu hag-
ræðingar. Það þarf að nýta deild-
ina betur með því t.d. að fjölga
nemendum í henni og lengja
kennslutímann á hveiju ári. Fjöldi
tannlæknastóla í deildinni er viss
flöskuháls, en hins vegar ekki eins
mikill og menn vilja vera láta.
Ég álít að það sé hægt að fjölga
nemendunum þar eitthvað án þess
að bæta við tannlæknastólum,"
sagði Þórir.
Sveinbjöm Rafnsson, forseti
heimspekideildar, sagðist ekki
hafa heyrt um þetta mál. „Ég get
því ekkert um það sagt,“ sagði
Sveinbjöm.
Þórólfur Þórlindsson, forseti
félagsvísindadeildar, sagðist ekki
hafa séð nein gögn um þetta
mál. „Ég vil því ekkert um það
segja á þessu stigi," sagði Þórólf-
ur.