Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLASIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988 eg: ELKE Kr. 23.980.- IANDSINS MESTA ÚRVAL AFSVEFNSÓFUM E) GREIÐSLUKJÖR httsgafliKtitðllin REYKJAVlK PAÐEKMAIffi! Eigum til svefnsófa fyrir alla, hjónafólk, einstaklinga, börn, unglingaogallahina. Teg: FRAUKE Kr. 18.260.- Teg: PAX Kr. 32^420.- Teg: HELSINKI Teg: AFRODITE Kr. 31.280.- Kr. 27.680.- Vörum dreift milli manna i Niassa i Mósambík. Hjálparstofnun kirkjunnar: Akveðið hvernig ráðstafa eigi hluta söfnunarfjár I JÓLASÖFNUN Hjálparstofnunar kirkjunnar hafa nú borist tæp- m lega 17 milljónir króna. Stjórn Stofnunarinnar hefur þegar ákveðið #J1 - hvernig hluta þessa fjár verður ráðstafað: 1. Til heimilis fyrir munaðarlaus böm í Eþíópíu voru sendar 1,5 milljónir króna í desember sl., en nokkru áður hafði jafnhá fjár- hæð verið send, eða samtals 3 milljónir króna. Smíði heimilisins hefur nú verið boðin út, og mun það rísa á skömmum tíma í vor eða snemma í sumar. Þar verður rými fyrir 150 böm, en flest þeirra nutu umönnunar íslenskra hjúkrunarfræðinga í hungurs- neyðinni 1985. 2. Stjóm Hjálparstofnunar hefur ákveðið, að taka þátt í verkefni í Niassa í Mósambík, sem er áætlað að kosti alls um 1,9 millj- ónir dollara. Stofnunin tekur þátt í þessu verkefni ásamt hjálparstofnunum hinna Norður- landanna. í Niassa em nú um 11.000 manns, sem flúið hafa hungursneyð og stríðsátök. Fólk þetta býr gjörsamlega einangr- að, án matar og hjálpargagna. Til fólksins er ekki hægt að kom-' ast nema með flugvélum. Að- stoðin felst í matvælaflutningum og hjálp til sjálfshjálpar. Fyrsta fjárframlag Hjálparstofnunar kirkjunnar verður sent innan fárra daga. 3. Þá hefur stjóm Hjálparstofnun-. ar kirkjunnar ákveðið að ræða við Lúthetska heimssambandið í Genf um aðild að fiskveiðiverk- efni í Massawa í Eþíópíu, en þar hafa íslendingar talsvert komið við sögu. Þar hafa íslenskir sjó- menn starfað og kennt og mikið magn íslenskra veiðarfæra og ýmissa tækja hefur verið sent þangað. Hjálparstofnunin vill fylgja starfi sínu í Massawa eft- ir með því að taka þátt í físk- veiðiverkefninu á nýjan leik, en nokkurt hlé hefur orðið á starf- seminni, m.a. vegna skorts á kennurum úr sjómannastétt. (F réttatilkynning) Eitt af þeim verkefnum sem Hjálparstofnun kirkjunnar tekur þátt í er i Niassa í Mósambík þar sem búa um 11.000 manns sem flúið hafa hungursneyð og stríðsátök. Fólkið býr þar ein- angrað, án matar og hjálpar- gagna og er einungis hægt að komast til fólksins með flugvél- um. ísafjörður: Deilt um öldrunarmál ísafirði. HARÐAR deilur hafa staðið undanfarið á ísafirði milli bæjarstjórnar- meirihlutans, sem samanstendur af þrem fulltrúum Alþýðuflokksins ásamt fulltrúa frá Alþýðubandalagi og Framsóknarflokki, og minni- hluta fjögurra sjálfstæðismanna, í Vesturlandi, málgagni sjálf- stæðismanna, sem út kom 3. febrú- ar er veist að ákvörðun meirihlutans og Halldóri Guðmundssyni formanni bæjarráðs og bæjarfull- trúa Alþýðuflokksins, en hann er jafnframt forstöðumaður dvalar- heimilisins Hlífar, fyrir að taka fram fyrir hendumir á öldrunarráði og taka upp viðræður við Halldór um störf nýs öldrunarfulltrúa áður en ráðið hefur flallað um málið. Þær sögusagnir hafa gengið hér á ísafirði að vegna ummæla blaðs- ins hafi Halldór Guðmundsson ákveðið að láta af störfum bæjar- fulltrúa og snúa sér að öðrum störf- um. Fréttaritari Morgunblaðsins bar þessar sögusagnir undir hann. Sagðist Halldór ekki kannast við að hann hyggðist láta af störfum bæjarfulltrúa og þó að hann hefði ekki setið fundi í bæjarráði síðan á föstudag þá væri það ekki mál sem þyrfti sérstakrar umræðu við. Hann sagði hinsvegar að því væri ekki að leyna að hann hefði tekið mjög nærri sér skrif Vesturlands sem um skipun öldrunarmála. hann sagði vera langt fyrir neðan, virðingu þeirra manna sem þar ættu hlut að máli. Málin snérust fyrst og fremst um það að öldrunar- mál á Isafírði væru í samræmi við það besta sem þekktist í landinu og að því væri hann að vinna. Hann vildi ekki tjá sig frekar um þessi mál að sinni. í frétt Vesturlands segir orðrétt: Kristján K. Jónasson kratahöfðingi á ísafírði bar fram eftirfarandi til- lögu á síðasta bæjarstjómarfundi: „Bæjarstjóm ísafjarðar samþykkir að 'fela bæjarstjóra og formanni öldrunarráðs að taka upp viðræður við Halldór Sig. Guðmundsson for- stöðumann Hlífar og félagsstarfs aldraðra um áframhaldandi starf að öldrunarmálum, ásamt því að hann taki að sér þau verkefni sem forstöðumanni öldrunarráðs eru ætluð.“ Ef þessum texta er snúið á skiljanlegt mál og síðan athugað hvað tillagan merkir í raun þá kem- ur í ljós að ætlunin er að ráða Halldór í hina nýju stöðu áður en gengið hefur verið frá starfslýsingu og án þess að staðan sé auglýst. Síðar í fréttinni segir um hinn nýja forstöðumann að hann gæti tekið að sér að endurskoða húsa- leigu forstöðumanns Hlífar sem er sögð í fréttinni 4.000 krónur á mánuði með ljósi og hita og hafí verið óbreytt í krónutölu frá því að Halldór hóf þama störf fyrir. 6 árum. Á sama tíma hafí gamla fólk- ið þurft að hlíta stighækkandi húsa- leigu sem nú sé 10.400 krónur á mánuði fyrir helmingi minni íbúð en forstöðumaðurinn hafí. Hlynur Þór Magnússon ritstjóri Vesturlands og höfundur fréttar- innar sagði í viðtali við fréttaritara að það hefði komið sér á óvart hvað viðbrögð manna hefðu orðið hörð. Nokkrir menn hefðu strax dagana á eftir tilkynnt um harðorðar mót- mælagreinar sem þeir ætluðu að fá blaðinu til birtingar. Hins vegar væri það þó staðreyndin að þegar blaðið var að fara í prentun höfðu viðkomandi tilkynnt að þeir mundu ekki senda blaðinu nein ummæli. Hann sagðist að sjálfsögðu standa við hvert orð sem í greininni stæði, hins vegar yrðu stjómmálamenn að gera sér grein fyrir því að störf þeirra væru gagnrýnd og því yrðu þeir að taka. - Úlfar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.