Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988 Persaflói: • • Onnur árásin ásama skipið Dubai, Bagdad. Reuter. ÍTÖLSK herskip fóru í gær norsku olíuflutningaskipi til hjálpar eftir að Iranir höfðu ráðist á það í annað sinn á tveimur mánuðum. Mikill eldur kom upp í skipinu. Barist við eldana í Happy Kari. Norrænu gíslarnir í Líbanon: Sairniingaviðræð- ur hefjast að nýju Stokkhólmi, frá Enk Liden, fréttaritara Morgtinblaðsins. NORRÆNUM sendimönnum tókst að koma á samningavið- ræðum að nýju til að reyna að frelsa norræna starfsmenn Sameinuðu þjóðanna, sem var rænt fyrir viku. Haft er eftir sænskum sendi- manni að samningaviðræður hafi hafist að nýju við palestínska embættismenn í Sídon, en þær gangi þó miklu hægar en fyrstu dagana eftir mannránið. Að sögn talsmanns Hjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna til handa Palestínumönnum, UNRWA, hef- ur Yasser Arafat einnig beitt sér fyrir því að gíslunum verði sleppt. A þriðjudag höfðu mannræn- ingjarnir lofað að norrænu mönn- unum yrði sleppt, en það loforð var ekki efnt. Talið er að mannrá- nið sé byggt á misskilningi og sé jafnframt hefndaraðgerð vegna rannsóknar sem fram hefur farið á stuldi á matar- og vörusending- um Hjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna til flóttamannabúða í Líbanon og ísrael. Norrænu mennimir rannsökuðu stuldinn. Aðstandendur mannanna í Svíþjóð og Noregi bíða í ofvæni eftir fréttum frá Líbanon, og líðan þeirra batnaði ekki þegar sænsk og norsk síðdegisblöð skýrðu frá því á dögunum að mönnunum hefði verið sleppt. Leiðtogafundur EB: Lokasamkomulag ríkj- annaenn ekki í sjónmáli Fjármálin vefjast enn fyrir bandalaginu BrUsscl. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunbiaðsins. Helmut Kohl, kansl- ari Vestur- Þýskalands, kemur til fundarins. Enn er mik- ill ágrein- ingur meðal aðildarríkja EB um fjár- lögin og ekki víst, að hann verði leystur að þessu sinni. Reuter Það tók áhafnir þriggja drátt- ar- og slökkvibáta sex klukku- stundir að slökkva eldana í Happy Kari, norska olíuflutningaskipinu, sem er 290.762 tonn að stærð, og var því síðan stefnt til hafnar í Sameinuðu arabísku furstadæ- munum. Aðrar fréttir hermdu þó, að það væri á siglingu út úr Pers- aflóa fyrir eigin vélarafli. Skipið var að flytja olíu frá Kuwait til Rotterdam í Hollandi. íraska herstjómin skýrði frá því í gær, að gerðar hefðu verið miklar loftárásir á mannvirki langt inni í íran. Hefði fjöldi flug- véla ráðist á rafvélaverksmiðju í Shiraz, 650 km fyrir sunnan Te- heran, og á eldsneytisgeyma í Imam Hasan í Suðvestur-Iran. LEIÐTOGAR Evrópubanda- lasríkjanna komu saman til fundar í Briissel í gær til að gera þriðju tilraunina til samkomulags um aðgerðir til að draga úr útgjöldum til landbúnaðar og tryggja fjárhag bandalagsins. Leiðtogarnir þrett- án, Frakkar senda tvo menn á fundinn, hafa á tæplega átta mán- uðum haldið tvo árangurslausa fundi um þessi efni. Fyrri fundur- inn var í Brttssel í fyrravor en sá seinni í Kaupmannahöfn í byijun desember sl. en þeim fundi var formlega frestað þar til nú. Það eykur llkumar á einhverjum árangri nú að um þessar mundir sitja V-Þjóðveijar í forsæti í ráðherra- nefndum bandalagsins, en áhrif þeirra á afstöðu Breta og sérstaklega Frakka eru mun meiri en smáþjóða á borð við Dani og Belga, sem stýrðu fundunum á síðasta ári. Helmut Kohl, kanslari V-hýskalands, sem er í forsæti á þessum fundi, hefur lagt fram drög að samkomulagi sem að margra mati er svo opið að það er miklu fremur umræðugrundvöllur og því eins líklegt til að draga þrefíð á langinn eins og að stuðla að sam- komulagi. Ljóst er, að á þessum fundi er ábyrgð leiðtoganna meiri en oft áð- ur. Takist þeim ekki að ná samkomu- lagi um efnahag bandalagsins blasir greiðsluþrot við því í júní eða júlí í sumar. Sömuleiðis yrði þriðji mis- heppnaði leiðtogafundurinn mjög al- varlegt áfall fyrir bandalagið og evr- ópska samvinnu. Jacques -Delors, forseti fram- kvæmdastjómar bandalagsins, hefur varað leiðtogana við þvi að líta á hvort heldur er evrópskan landbúnað eða efnahag sem eina samlita heild. Hann lagði áherslu á að leiðtogamir yrðu að viðurkenna rétt aðildarríkj- anna til mismunandi áherslna í land- búnaði og efnahag og ljóst væri að virtu þeir ekki sérstöðu hvers og eins í þessum efnum væm líkumar á sam- komulagi á þessum fundi nánast engar. Deilt um peninga Sú kenning hefur verið sett fram að það sem helst geti bjargað Evr- ópubandalaginu nú og komið undir- búningi innri markaðarins svo- nefnda, sem koma á til framkvæmda 1992, á skrið, sé að leiðtogafundur- inn sem nú stendur yfír fari rækilega út um þúfur. Bandalagið þarfnist alvarlegrar kreppu til að rísa upp úr, öflugra og samstæðara en áður. Sennilega em þeir fáir sem em til- búnir til að láta reyna á þessa kenn- ingu. Deilumar innan bandalagsins em á engan hátt sérstakar, þær snúast fyrst og fremst um peninga. Annars vegar hversu há framlög aðildarríkj- anna eigi að vera og hins vegar hve mikið hvert þeirra eigi að fá til baka í styrkjum og bótum af ýmsu tagi. Tekjustofnar bandalagsins em tveir, annars vegar tollar og aðflutnings- gjöld af innflutningi til aðildarríkj- anna og hins vegar hlutfall af virðis- aukaskattsinnheimtu innan þeirra. Fyrri telq'ustofninn er kallaður eigin- tekjur vegna þess að innheimtan fer fram í nafni bandalagsins, hinn telst framlög aðildarríkjanna. Fram- kvæmdastjómin hefur lagt til að í stað virðisaukaskatts, sem gefl ranga mynd af auðlegð þjóðanna, verði miðað við þjóðarframleiðslu. tillaga framkvæmdastjómarinnar gerir ráð fyrir því að hlutfallið verði óbreytt, þ.e. 1,4%, en það jafngildir 2,2% af virðisaukaskatti. V-Þjóðveijar hafa lagt til að hlutfallið verði 1,25% af þjóðarframleiðslu en ljóst er að Bret- ar telja það óþarflega hátt. Sömuleið- is hefur framkvæmdastjómin lagt til að 1% af virðisaukaskatti verði talinn eigintekjustofn bandalagsins og að sú upphæð verði dregin frá framlög- um aðildarríkjanna. Líklegasta skýr- ingin á þessari kröfu er sú að eigin- tekjustofnar veiti framkvæmda- stjóminni aukna tilfínningu fyrir sjálfstæðri tilveru. Á fundinum þurfa leiðtogamir jafnframt að taka afstöðu til fram- leiðslutakmarkana í landbúnaði, sérstaklega hvað snertir kom- og olíufræsframleiðslu, og eins að ákveða verðskerðingar á umfram- framleiðsluna. í þessu efni takast á annars vegar þær þjóðir sem hafa öflugan, tæknivæddan landbúnað með mikilli framleiðni, t.d. Bretar og Hollendingar, og hins vegar þjóð- ir eins og Frakkar og V-Þjóðveijar, hverra landbúnaður byggir mjög á smáum fjölskyldubýlum og sérlega óhagstæðum útflutningi. Eins liggur fyrir fundinum að ákveða heildarþak á útgjöld til landbúnaðar. Leiðtogamir verða og að fínna leiðir til að jafna hið efnahagslega misvægi sem er á milli norðurs og suðurs innan bandalagsins. Fram- kvæmdastjómin hefur lagt til að innri þróunarsjóður þess verði tvö- faldaður fyrir árið 1992, V-Þjóðveij- ar hafa lagt til helmings hækkun á sjóðnum en Bretar telja þessar hækk- anir ástæðulausar. í rauninni hefur Thatcher, forsætisráðherra Bret- lands, hótað að setja fundarmönnum stólinn fyrir dymar í öllum efnum ef ekki næst samkomulag um að koma böndum á landbúnaðarófreskj- una sem tekur til sín sjö af hveijum tíu krónum sem bandalagið ráð- stafar. ^ v \ x-N- /\ <,1 L A- / y N I dag og næstu daga bjóðum við ótrúleg tilboð á Ijósmynda- vörum t.d. DIA STONE 10x21 SJÓNAUKA verð 6.495 eftir tollalækkun 4.490 verð nú- 3.990 TILBOÐSVERÐ CANON SNAPPY S verð 5.910 4.790 TILBOÐSVERÐ ► DIA STONE 20x50 SJÓNAUKA verð 5.945 eftir tollalækkun 3.950 verð nú 3.390 ► TILBOÐSVERÐ DIA STONE 12x50 SJÓNAUKA. verð 4.875 eftir tollalækkun 3.590 verð nú 2.990 LIÓSMYNDABÚÐIN Laugavegi 118 (við Hlemm) s. 27744 15% AFSLAIIUR AF FRAMKÖLLUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.