Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988 35 < Íllll§|li M Starfsmenn við vöruþjónustu í nýja vöruhúsi íslenskra aðalverktaka við nýja lyftarann.<ep> íslenskir aðaiverktakar: Hagræðing í vöruþjónustu Vogum. ÍSLENSKIR aðalverktakar hafa tek- ið í notkun nýtt vöruhús á athafna- svæði fyrirtækisins á Keflavíkurflug- velli. Nýja húsið er um 1500 fermetr- ar að stærð, og fara um 1000 fer- metrar undir vörur. Jafnframt þessu hefur verið keyptur nýr vörulyftari sem er að nokkru leyti sjálfvirkur. Hjörtur Benediktsson, innkaupa- stjóri íslenskra aðalverktaka, segir að með þessu sé verið að auka hag- ræðingu og að forsenda þess að tölvuvæðast sé að flytja saman. Nýja vöruhúsið er hluti af stærra dæmi þar sem stefnt er að því að byggja við það í framtíðinni og færa starf- semi sem hefur verið í 12—15 vöru- húsum undir eitt þak. Gömlu vöru- húsin voru flest byggð á Hamilton- tímanum og eru þau yngstu um 30 ára gömul, en þá voru aðrar kröfur gerðar til vöruhúsa undir eitt þak. Gömlu vöruhúsin voru flest byggð á Hamilton-tímanum og eru þau yngstu um 30 ára gömul en þá voru aðrar kröfur gerðar til vöruhúsa en eru gerðar í dag. í nýja húsinu er vörurými upp í rúmlega 6 metra hæð og pláss fyrir 1712 pallettur af evr- ópskri gerð. Þá hefur nýr vörulyftari verið tek- inn í notkun í vöruhúsinu, og er hann að nokkru leyti sjálfvirkur. Sjálf- virknin felst í því að lyftarinn fer eftir stýringu eftir göngum og er mataður í tölvu á hæð hillanna. Kostnaður við lyftarann er svipaður og kostnaður við venjulegan raf- magnslyftara, en nýting á gólfplássi er um 35% meiri. - EG Amnesty Intematioiial: BURMA Noor Jahan var fangelsuð eins árs gömul, þegar hún og móðir hennar voru handteknar, að því er virðist vegna þess að þær voru grunaðar um að vera ólöglegir innflytjendur. Stjómvöld í Burma hafa aldrei gefið opinbera skýr- ingu á handtöku þeirra, og þær hafa aldrei verið ákærðar eða dregnar fyrir rétt. Noor Jahan er nú 31 árs gömul og móðir hennar 62 ára. Þær hafa setið í fangelsi í þijá áratugi. Noor Jahan og Azima Khatun móðir hennar voru handteknar í Sittwe, höfuðborg Rakhine-fylkis á vesturströnd Burma, árið 1957 og grunaðar um að hafa komið þangað ólöglega frá Austur- Pakistan (nú Bangladesj). Stað- hæft er að þær mæðgur hafi báð- ar fæðst í Sittwe, eri fæðingar- vottorð þeirra verið eyðilögð þeg- ar þær voru teknar höndum. Stjómvöld hafa aldrei fengið stað- fest fyrir dómstólum að þær hafi komið til landsins með ólögmæt- um hætti. Á árunum eftir 1956 vom margir aðrir múslímar af beng- ölskum uppmna handteknir, þeg- ar stjómvöld vora að reyna að hefta stórfelldan ólöglegan inn- flutning farandverkamanna frá Austur-Pakistan. Að minnsta kosti sumir fangan'na höfðu pappíra sem sönnuðu ríkisfang þeirra, en allmargir þeirra vom settir í gæsluvarðhald, meðal þeirra Noor Jahan og móðir henn- ar, sem að sögn vom dæmdar í eins dags varðhald. Þær og fjöl- margir aðrir fangar fengu ekki frelsi þegar varðhaldstímanum lauk, heldur vom fluttir frá Sittwe til Insein-fangelsis fyrir norðan Rangoon. Á áranum 1984—85 var 104 þessara fanga loks sleppt úr haldi og þeir sendir til Bangla- desj, en um 20 þeirra em enn í haldi án ákæm eða réttarhalda, þeirra á meðal Noor Jahan og móðir hennar. Amnesty Intemational telur að Noor, Jahan og Azima Khatun kunni að vera samviskufangar vegna þjóðemislegs uppmna síns og trúarbragða. Síðustu fréttir sem af þeim mæðgum bárast em frá 1984, ogþess vegna fara sam- tökin þess á leit við stjómvöld í Burma, að þau skýri ástæðumar fyrir áframhaldandi fangelsun þeirra, og hvetja þau til að láta þær lausar hið bráðasta, verði þær ekki sannar að sök fyrir óvilhöll- um dómstóli. Áskorunum skal beint til: U san Yu Chairman of the Council of State Office of the Council of State 15—16 Windermere Park Rangoon, BURMA. (Fréttatilkynning) Háir vextír Grunnvextir á Kjörbók eru nú 34% á ári og leggjast þeir við höfuðstól tvisvar á ári. Ef innstæða eða hluti hennar, hefur legið óhreyfð í 16 mánuði hækka vextir í 35,4% og í 36% eftir 24 mánuði. Þrepahækkun þessi er afturvirk, hámarks ársávöxtun er því allt að 40,2% án verðtryggingar. Verðtrygging Á 3ja mánaða fresti er ávöxtun Kjörbókarinnar borin saman við ávöxtun 6 mánaða bundinna verðtryggðra reikninga. Reynist ávöxtun verðtryggðu reikninganna hærri ergreidd uppbót á Kjörbókina sem því nemur. Örugg og óbundin Þrátt fyrirháa vexti og verðtryggingu er innstæða Kjörbókar alltaf laus. Vaxtaleiðrétting við úttekt er 0,85%, en reiknastþó ekkiafvöxtum tveggja síðustu vaxtatímabila. Kjörbókin er'bæði einfalt og öruggt sparnaðarform. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.