Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 52
| 'ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA 1 GuðjónOlhf. 91-2 7233 I L FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. Morgunblaðið/Kristján Jónsson Þannig blasti landsins forni fjándi við augum manna í ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar siðdegis i gær. Sums staðar var isinn mjög þéttur. Hafísinn hefur lokað sigl- ingaleið við Melrakkasléttu Siglingaleiðir undan Norðurlandi varasamar - Almannavarnir í viðbragðsstöðu FLUGVÉL Landhelgisgæslunnar TF-SÝN kannaði hafís í gær út af Vestfjörðum og Norðurlandi allt austur að Langanesi. Skilyrði voru góð norður af Vestfjörðum, en versnuðu verulega þegar austar dróg og voru afleit á svæðinu norður af Skaga og austur að Langanesi. Var lögð aðaláhersla að kanna ísröndina, en ekki farið aiveg að landi. Hafís er nú kominn að Grímsey og Melrakkasléttu og seint í gær var siglingaleiðin þar að lokast. Er siglingaleiðin út af Norður- Snjóflóða- hættaá Siglufirði NOKKUR hætta var talin á snjóflóðum fyrir ofan Siglu- fjarðarbæ i gær og var þeim tilmælum beint til íbúa nokkurra húsa að yfirgefa þau á meðan hættuástand ríkir. Miklum snjó hefur kynngt niður á Siglufirði að undanfömu og í gærmorgun bættist við 20 sm jafhfallinn snjór. Kom í ljós við mælingar í gær að hætta var á snjóflóðum. Vakt var í áhaldahús bæjarins í nótt ef grípa þyrfti til snjómokst- urstækja og lögreglan bað fólk í þremur húsum við Suðurgötu, sem talin eru í mestri hættu, að yfír- gefa þau. Stjómir BSRB og VR; Heimild til að semja við Lion Air STJÓRNIR Verslunarmanna- félags Reykjavíkur og Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja samþykktu báðar á fundum sínum í gær heimildir til að ganga til samninga við Lion Air í Luxembourg um orlofs- ferðir fyrir félaga sína á grundvelli tilboðs, sem flugfé- lagið gerði á dögunum. Kristján Thorlacius formaður BSRB sagði í samtali við Morgun- blaðið að orlofsnefnd BSRB hefði nú heimild til að semja við Lion Air. Hins vegar er gert ráð fyrir því að áfram verði leitað samninga við íslensk fyrirtæki. Magnús L. Sveinsson formaður VR sagði að ekkert nýtt tilboð hafí enn borist frá Flugleiðum þrátt fyrir að leitað hefði verið eftir því. VR væri hins vegar til- búið til að taka við tilboði frá Flug- leiðum ef það verður hagstæðara en fyrra tilboð. „Við höfum lagt áherslu á að semja við innlenda aðila og það hefur ekki breyst," sagði hann. landi öli talin varasöm. Norðvestur af Rit kom TF-SÝN að mjórri og gisinni ísræmu og var henni fylgt þar til komið var að þétt- um meginís rúmlega 50 sjómílur norðnorðvestur af Straumnesi. fs- brúninni var fylgt austureftir. Um 20 sjómílur norður af Kolbeinsey var samfelldur ís og sunnan við meginís- inn voru þéttir ísflákar. Reyndist erfitt að kanna umfang þeirra vegna lélegs skyggnis. Austan við Kol- beinsey sást illa í ísinn vegna snjó- komu, en 30—40 sjómílur, norður og austnorðaustur af Kolbeinsey sást sums staðar niður á samfelldan ís. Þétt ísbrún sást 45 sjómílur norðnorðaustur af Hraunhafnar- tanga og víða voru ísrastir sunnan við hana. Þéttar ísrastir voru 60 sjómílur norðaustur af Langanesi. Á siglingaleiðinni frá Langanesi að Rauðanúp voru víða stakir jakar og þéttar ísrastir, sérstaklega út af Melrakkasléttu. Þétt ísspöng var 20 sjómílur norður af Melrakkasléttu. Á leiðinni frá Rauðanúp að Grímsey og umhverfis eyna voru víða þéttar ísrastir og stakir jakar. Einnig voru víða stakir jakar og fáeinar ísrastir á svæðinu vestan Eyjafjarðar og á Homi og sérstaklega norður af Skaga. Frá Homi að Straumnesi sáust fáeinir jakar og um 12 sjómíl- ur norður af Homi og 15 sjómílur norður af Kögri sáust nokkrar dreifðar ísrastir. Strandferðaskipið Esja var á leið inn Skagafjörð um kl. 17.30 í gær og tilkynnti þá um talsvert íshrafl og jaka alveg inn að Drangey. Sást ismn illa í radar og var talinn hættu- legur skipum. Að sögn Guðmundur Einarssonar forstjóra Skipaútgerðar ríkisins hefur hafís enn ekki tafið siglingar meðfram landinu, en fólk á afskekktum stöðum er farið að hafa nokkrar áhyggjur ef svo færi að siglingaleiðir tepptust. Esjan er væntanleg til Akureyrar í dag og síðan til Húsavíkur og á samkvæmt áætlun að halda aftur vestur eftir Norðurlandi á laugardag. FVá Miðtúni á Melrakkarsléttu sást eftir hádegi í gær all stór ísspöng sem rak hratt til suðurs. Víkur austan og vestan Hraunhafn- artanga voru fullar af ís og rekís sást þar úti fyrir og út af Ásmundar- stöðum. Var skyggni slæmt á þess- um slóðum. Þór Jakobsson hjá hafísrannsókn- ardeild Veðurstofu íslands sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld að seint í gær hefði siglingaleiðin við Melrakkarsléttu verið að lokast. Sagði hann að siglingaleiðin úti fyr- ir Norðurlandi væri alls staðar vara- söm. Þór vildi taka það fram að Veður- stofan tæki feginshendi öllum upp- lýsingum sem fólk getur gefíð um hafís. í gær var norðan- og norðvestan- átt á Norðurlandi og 4—6 vindstig. Samkvæmt upplýsingum frá Veður- stofunni eru horfur á að veður verði svipað fram á sunnudag og meðan svo er nálgast hafís landið. Líkur eru á að veður breytist upp úr helg- inni og að vindátt verði þá suðlæg eða suðaustlæg. Almannavamir ríkisins hafa að- varað almannavamanefndir í þeim byggðum sem geta teppst vegna hafíss að þær verði viðbúnar því að loka höfnum með vír og minnka þannig hættu á skemmdum á bátum og mannvirkjum ef hafís leggst að. Einnig er verið að kanna birgðir, sérstaklega á þeim stöðum sem háð- ir em flutningum á sjó. Könnunar- viðræður um nýtt álver TVÖ fyrirtæki á mcginlandi Evr- ópu hafa sýnt áhuga á nýju álveri í Straumsvík. Gerðir hafa verið hagkvæmnisútreikningar fyrir 180 þúsund tonna álver þar og þeir sendir til ýmissa erlendra stórfyrirtælqa. Tvö fyrirtæki hafa sýnt áhuga og fara fulltrúar starfshóps um stækkun álvers til könnunarviðræðna við þau í byrjun mars. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, sem er formaður starfshópsins, sagð- ist ekki geta gefið upp hvaða fyrir- tæki þetta væm. Lax farinn að drep- ast í Grundarfirði Frostið fór í 1,6 stig í Hvalfirði í gær FROSTIÐ við sjókvíar Fiskeld- isfélagsins Strandar hf. í Hval- firði fór niður í 1,6 stig í gær og eru nú laxaseiði farin að drepast í stórum stíl vegna kuidans til viðbótar matfiskin- um sem þar hefur verið að drepast að undanförnu. Sjórinn í kvíum Snælax hf. í Grundar- firði hefur snöggkólnað undan- farna daga og hefur lax í einni kví fyrirtækisins drepist. Starfsmenn Strandar luku í gær við að flytja á land allan lax- inn úr kvínni sem þeir byijuðu að háfa úr á fimmtudag. Finnur Garðarsson stöðvarstjóri segir að meirihluti físksins úr kvínni hefði drepist úr kulda og stressi og væri því óblóðgaður. Hefur þó tekist að selja hann til Frakk- lands. Unnið er að athugun á-að koma seiðunum í verð, til dæmis að sjóða þau niðúr. Starfsmenn Strandar hyggjast ganga í að slátra laxinum upp úr kvíunum þegar veðrið batnar, en í gær var rok í Hvalfirði. Það ætlar Vífill Búason bóndi á Fer- stiklu einnig að gera. Laxalóns- menn hafa hins vegar ákveðið að hreyfa ekki við þeim laxi og regn- bogasilungi sem þeir eiga í sjókv- íum í Hvammsvík. Sjá fréttir á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.