Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988 Morgunblaðið/Kristján Jónsson Þannig var ástandið fyrir utan höfnina í Grísmey síðdegis í gær, þegar flugvél Landhelgisgæslunnar flaug þar yfir í ískönnunarflugi. Þrír Grímsejrjarbátar til Dalvíkur Tónlistarfélag Akureyrar: Gísli Magnús- son leikur ápianóí Borgarbíói FJORÐU tónleikar Tónlistarfé- lags Akureyrar verða haldnir i Borgarbíói á morgun, laugardag, og hefjast þeir kl. 16.00. Gísli Magnússon píanóleikari leikur verk eftir Bach, Beethoven og Brahms. Gísli stundaði nám í píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og síðan við Tónlistarháskólann í Ziirich og lauk einleiksprófi árið 1953. Kennari hans í Zurich var Walter Frey. Gísli hélt sína fyrstu opinberu tónleika á vegum Tónlist- arfélagsins árið 1951. Síðan hefur hann ieikið á fjölda tónleika á Is- iandi sem einleikari og þátttakandi í kammermúsíkflutningi. Haustið Gísli Magnússon 1974 fór Gísli í tónleikaferð ásamt Gunnari Kvaran sellóleikara um Norðurlöndin og árið 1977 lék hann einleik í Píanókonsert Jóns Nordal á opnunartónleikum Tónlistarhá- tíðarinnar í Bergen. Um nokkurt skeið hafa þeir Gísli og Halldór Haraldsson píanóleikari gert talsvert af því að leika saman á tvö píanó, m.a. héldu þeir tónleika á Listahátíð 1978. ÞRÍR Grimseyjarbátar héldu úr höfn i hádeginu i gær áleiðis til Dalvíkur svo þeir festust ekki í heimahöfn ef hafís legðist að eynni. Bátar þessir eru Þorleifur EA 88, 29 tonn að stærð, Magnús EA 25 og Sæbjörg EA 184, báðir milli 11 og 12 tonn að stærð. Ekkert var flogið til Grímseyjar í gær vegna veðurs og lélegs skyggnis. Þorlákur Sigurðsson oddviti Grímseyinga sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ísmagnið hefði aukist mikið upp úr klukkan 14.00 í gær og í stað stöku jaka, sem fram hjá eynni hefðu farið síðustu tvo sólarhring- ana, mjmduðu jakar nú sameigin- lega heilu ísrastimar. Skyggni var lítið í Grímsey í gær og það gekk á með éljum. Best var skyggnið þetta einn og upp í tvo km, en fór allt niður í 50 metra á köflum. Opinn fyrirlest- ur um heimspeki Björn Birnir Björn Birnir opnar sýningu BJORN Bimir myndlistarmaður opnar málverkasýningu sína í Glugganum galleríi á morgun, laugardag, kl. 14.00. Bjöm fæddist 22. júlí árið 1932. Hann lauk teiknikennaraprófi við Handíða- og myndlistaskólann árið 1952. Síðar lá leið hans til Banda- rílq'anna þar sem hann nam í nokkur ár. Fyrstu einkasýningu sína hélt hann í Norræna húsinu árið 1977. Bjöm hefur síðan sýnt hér heima og víða erlendis. Síðast sýndi hann á Kjarvalsstöðum 1987. Sýning Bjöms stendur til sunnu- dagsins 21. febrúar. Glugginn er til húsa á Glerárgötu 34 og er opinn daglega frá kl. 14.00 til 18.00. Lok- að er þó á mánudögum. DR. PALL Skúlason, prófessor í heimspeki við Háskóla íslands, flytur fyrirlestur á Akureyri í húsi Verkmenntaskólans á Eyrar- landsholti á morgun, laugardag, og hefst fyrirlesturinn kl. 14.00. Fyrirlesturinn nefnist „Hver er til- gangur lífsins?" og mun Páll Qalla um fjögur ólík viðhorf til spumingar- innar um tilgang iífsins og hvemig henni megi svara. Fyrirlestur þessi er sá fyrsti af þremur í fyrirlestraröð um „Siðferði og tilgang lífsins". í mars mun dr. Vilhjálmur Amason flytja fyrirlestur sem nefnist „Hvert er erindi siðfræðinnar við nútímann?" og í apríl fjallar dr. Eyjólfur Kjalar Emilsson um fom-gríska lífsspeki og lífsviðhorf nútímamanna. Fyrirlestr- amir verða öllum opnir og em þeir liður í að fjölga tækifærum almenn- ings til að leita sér fræðslu og hugð- arefna á sem flestum þekkingarsvið- um. Drögum eldiskvíarnar inn í höfn ef ísinn nálgast frekar — segir Þórólfur Antonsson framkvæmdastjóri Ölunnar hf. á Dalvík „VIÐ ERUM við öllu búnir og höfum hugsað okkur að draga kvíarnar inn í höfnina ef isinn ætlar að nálgast okkur enn frek- ar,“ sagði Þórólfur Antonsson framkvæmdasljóri fiskeldisfyr- irtækisins Olunnar hf. á Dalvík, í samtali við Morgunblaðið í gær. Dreifður ís er nú kominn inn í Eyjafjörð þó aðalísröndin sé enn úti fyrir Grímsey. Morgunblaðs- menn flugu um miðjan dag í gær út Eyjafjörð og sáust fyrst jakar á stangli úti fyrir Ólafsfjarðarmúla. Þórólfur sagðist ætla að bíða og sjá hveiju fram vindur með veðurútlit. Spáð er norðanátt fram yfír helgi, en Þórólfur sagðist ekki fara í nein- ar tilfæringar nema ástandið versni enn frekar. Ölunn hf. er með sex eldiskvíar úti í sjó þar sem í eru um 25 tonn af tveggja kg fiski og um 16.000 seiði. Fyrirtækið hóf starfsemi fyrir um xjúi'uni áram og hefui eidið gengið áfallalítið fyrir sig hingað til að sögn Þórólfs. Fyrirtækið hef- ur eldisstöð í landi einnig þar sem í eru um 15.000 seiði, en á undan- fömum árum hefur verið unnið að aukningu sjóeldisins á vegum Ölun- ar. Þórólfur sagðist hafa tryggt fyr- irtæki sitt hjá Samvinnutrygging- um vegna utanaðkomandi óhappa og tæki tryggingin bæði til óhappa vegna hafíss og einnig vegna undir- kælingar í sjó. Þórólfur sagði að hingað til hefðu menn ekki þurft að óttast undirkælingu í sjó í Eyja- firði, en aðstæðum væri öðruvísi háttað í Hvalfirði þar sem mönnum hefði ekki tekist að fá tryggingu gegn undirkælingu í sjó. Sjávar- hitinn úti fyrir Dalvík er nú um ein gráða sem er þokkalegt hitastig miðað við þennan árstíma. Hinsveg- ar sagði Þórólfur að hættumörkin væru mínus hálf til ein gráða. Morgunblaðið/GSV Eldiskvíar Ölunnar hf. úti fyrir Dalvík eru í hættu ef ísinn nálgast frekar. , • . . ; , ,■ ..... , . . f 11 i i i j {?;, i j-1 11 y; i Fyrirlesturinn á morgun er skipu- Iagður í samvinnu menningarmið- stöðvarinnar Gamla Lunds og Há- skólans á Akureyri. Dansleikur á laugardagskvöld. Hljómsveitin Helena fagra leikurfyrir dansi. HótelKEA. „GAUKUR AKUREYRAR- 1. flokks matur á teríuverði EKTA PIZZUR Opiö um helgar frákl. 11.30-03.00 Virkadaga frákl. 11.30-01.00 22. sýning föstudaginn 12. febrúar kl. 20.30. 23. sýning laugardaginn 13. febrúar kl. 20.30. 24. sýning sunnudaginn 14. febrúarkl. 16.00. Siðasta sýningarhelgi. MIÐASALA iA Aamm 96-24073 10KFÉLAG AKUREYRAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.