Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988
51
HANDBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Niðurstaðan særir mig
- segir ívarWebster ítilefni keppnisbannsins
Kristján Arason
„Er ekki
tilbúinn
að víkja
fyrir
Kristjáni“
Erik Veje Rasmussen sagði í
blaðaviðtali í V-Þýskalandi
í gær, að hann hafi hug á að
leika með v-þýsku liði næstu tvö
ár.
„Ég er þó ekki tilbúinn að leika
með Gummersbach, því að þeir
eru með útlending í fastasæti -
íslendinginn Kristján Arason.
Nei, ég er ekki tilbúinn að að
víkja fyrir Kristjáni þegar hann
kemur aftur frá Seoul," sagði
Erik Veje, sem er 28 ára, þegar
hann var spurður um hvort það
kæmi til greina að hann léki
með Gummersbach á meðan
Kristján væri með íslenska
landsliðinu á Ólympíuleikunum..
„MÉR finnst þetta mjög
ósanngjart. íslenskir leikmann
hafa lent í vandræðum og þá
verið dæmdir í eins leiks bann.
Ég hef verið hér í níu ár —
þetta er mitt fyrsta brot og ég
er dæmdur í eins og Hálfs mán-
aðar bann,“ sagði Ivar Webster
í samtali við Morgunblaðið í
tiiefni af því að dómstóll KKÍ
dæmdi hann í bann í fyrradag.
Eg veit að það sem ég gerði var
rangt, en mér fínnst farið með
mig eins og ókunnugan mann. Mér
finnst ástæðan fyrir þessu langa
banni sú að það er verið að gera
mig að einhvers konar sýnishomi —
öðrum til aðvörunar," sagði Webst-
er.
Hann sagði niðurstöðu dómsins
ennfremur koma sér mjög á óvart
vegna þess að „ég hef unnið að því
að reyna að auka gæði körfuknatt-
leiksins og einnig að auka vinsæld-
ir íþróttarinnar fyrir KKÍ. Gæði
körfuboltans hér hafa aukist mikið
á undanförnum árum. Þegar ég
kom fyrst voru hér bandarískir leik-
menn í sumum liðum sem skoruðu
um 50 stig í hverjum leik og
íslensku strákamir höfðu ekki
nægilegt sjálfstraust. Nú er þetta
breytt og íslendingar eiga marga
mjög efnilega leikmenn.
Ég og Pálmar, þjálfari minn hjá
Haukum, fómm í alla skóla á
Reykjavíkursvæðinu í haust til að
sýna krökkum körfuknattleik. Við
vorum í þessu í tvo og hálfan mán-
uð, í 6-7 klukkutíma á dag. Ég hef
verið að reyna að gera körfuknatt-
leiknum gagn og því kom niður-
staða dómsins mér á óvart. Niður-
staðan særir mig. En Haukar em
með gott lið og ég vona að þeir
komist í úrslitakeppnina því ef svo
fer get ég leikið með liðinu. Ég
ætla að æfa með strákunum á hverj-
um degi og svo æfi ég aukalega
sjálfur — hleyp úti. Ef Haukar kom-
ast f úrslitakeppnina verðum við
íslandsmeistarar!"
KNATTSPYRNA
Kólumbíumenn vildu
mæta íslendingum
KNATTSPYRNUSAMBAND
Kólumbíu bauðst á dögunum
til að sendá landslið sitt hing-
að til lands til að leika við
íslendinga 20. eða 21. maí í
vor. KSÍ afþakkaði boðið þar
sem leikur á þessum tíma
passaði ekkí inn í áætlun
landsliðsins.
Kólumbíumenn leika gegn
Skotum á Hampden Park í
Glasgow 17. maí og síðan gegn
Englendingum á Wembley 24.
maí. Þeir vildu því nýta tímann
þama á milli.
Islenska Ólympíulandsliðið leikur
gegn Portúgölum 24. maf og síðan
gegn ítölum 29. maí. Báðir leik-
imir era hér heima. Heil umferð
verður væntanlega í 1. deildar-
keppninni 20. maí, og forráða-
mönnum KSÍ fannst ekki tfmi til
að bæta landsleik inn í dagskrána
á þessum tíma. Þá þóttu Kól-
umbíumenn fara fram á helst til
mikla fjárhæð fyrir heimsóknina
— en með öllu hefði hún líklega
kostað Knattspymusamband Is-
Iand á Qórðu milljón króna.
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALDSDEILD
J6n Kr. Qfslason skoraði þriggja stiga körfu sem tryggði Keflvíkingum fram-
lengingu og sigur.
KNATTSPYRNA / SJÓNVARP
Bikarveislan
áfram hjá Stöð 2
Um aðra helgi heldur bikarveislan áfram hjá Stöð 2. Þá er fyrir-
hugað að sýna tvo leiki beint frá ensku bikarkeppninni - bæði
laugardag og sunnudag. Hér er um að ræða tvo stórleiki. Arsenal og
Manchester United á Highbury í London og Mersey-risanna Liverpool
og Everton, sem fer franvá Goodison Park ( Liverpool.
Jón Kr. hetja
Keflvflcinga
Skoraði þriggja stiga körfu sem tryggði
Keflvíkingum framlengingu og sigur í Grindavík
JÓN Kr. Gíslason var svo sann-
arlega hetja Keflvfkinga þegar
þeir lögðu Grindvfkinga að
velli, 73:69, eftirframlengingu
í gærkvöldi í Grindavík. Þegar
nokkrar sek. voru eftir að
venjulegum leiktíma, skoraði
Jón Kr. þriggja stiga körfu og
jafnaði, 66:66, við geysilegan
fögnuð leikmanna Keflavfkur-
liðsins, sem stigu strfðsdans.
Þeir voru svo sterkari i fram-
lengingunni og tryggðu sér sig-
ur.
UMFG-ÍBK
69 - 73
Iþróttahúsið 1 Grindavfk. Úrvalsdeildin
i körfuknattleik, fimmtudagur 11. fe-
brúar 1988.
Gangur leiksins: 4:2, 6:14, 16:22,
22:24, 82:80. 36:32, 42:34, 49:45,
62:47, 61:63,66:68,66:66. Framleng-
inr. 69:73(7:3).
Stig UMFG: Guðmundur Bragason 14,
Jón Páll Haraldsson 14,'E>jólfur Guð-
laugsson 11, Rúnar Ámason 11,
Hjálmar Hallgrimsson 10, Steinþór
Helgason 6, Sveinbjöm Sigurðsson 4.
Stig ÍBK: Axel Nikulásson 17, Sigurö-
ur Ingimundarson 12, Jón Kr. Gfslason
11, Guðjón Skúlason 10, Ólafur Gott-
skálksson 7, Falur Harðarson 6, Hreinn
Þorkelsson 6, Magnús Guðfinnsson 4.
Dómarar: Ómar Scheving og Kristinn
Albertsson. Þeir dœmdu nyög vel.
Áhorfcndur: 434.
Leikmenn Grindavíkurliðsins
vora miklir klaufar að tapa.
Þeir vora með átta stiga forskot,
61:53, rétt fyrir leikslok og, 66:58,
þegar aðeins ein
Frá mín. var til leiks-
Kristni loka. Þá léku
Benediktssyni Keflvíkingar sterka
pressuvöm og settu
Grindvíkinga, sem komust ekki
fram yfír miðju, út af laginu.
Keflvíkingar bytjuðu á miklum
krafti og léku pressuvöm með þá
Jón Kr. og Guðjón Skúlason sem
fremstu leikmenn. Ákafur og grófur
leikur þeirra var nokkuð sem
Grindvíkingar réðu ekkert við. Svo
grófur var leiku þeirra, að Gunnar
Þorvarðarson, þjálfari Keflvíkinga,
varð að taka leikmenn byijunarliðs
síns af leikvelli - til hvíldar. Leik-
mennimir vora með 2-3 villur.
Grindvíkingar náðu þá tökum á
leiknum og komust yfír, 32:30, fyr-
ir leikshlé. Þeir höfðu síðan undir-
tökin fram að lökamínútunum. Þá
datt botninn úr leik þeirra og
Keflvíkingar fögnuðu jöfnunar-
körfu, 66:66, Jóns Kr. og síðan
sigri, 73:69.
Það var hreint ótrúlegt hvemig leik-
menn Grindavíkurliðsins misstu
trúnna á því að þeir gætu lagt
Keflavíkurliðið að velli. Þegar leik-
menn Keflavfkurliðsins léku grimmt
pressuvöm undir lokin, gáfust þeir
hreinlega upp. Leikmenn Keflavík-
urliðsins léku vel og gáfu Grindvík-
ingum aldrei tækifæri að komast
fram yfír miðju.
ívar Wabestar
■ ALFREÐ Gíslason skoraði
ekki mark fyrir Essen, þegar félag-
ið lagði Dormagen að velli, 17:13.
Þess má geta að Alfreð skoraði tíu
mörk í fyrri leik liðanna. Dortmund
tapaði, 23:27, fyrir Hofweier.
■ BRIAN Clough, fram-
kvæmdastjóri Nottingham Forest,
verður ekki landsliðsþjálfari Wales.
Sjö af átta stjómarmönnum For-
est, sem komu saman í gærmorg-
un, töldu það útilokað að Clough
myndi stjóma landsliði Waies á
sama tíma og hann væri fram-
kvæmdastjóri Forets. Clough var
ekki ánægður með þessa ákvörðun.
Hann taldi það ekkert mál að vera
með landslið Wales í hlutastarfí í
undankeppni HM, á sama tíma og
hann stjómaði Forest.
■ JOHAN Cruyff, sagði í við-
tali við útvarpsstöð í Hollandi í
gær, að frásögn blaðs á Spáni, um
að hann væri að taka við Barce-
lona væri ekki rétt. „Ég veit ekki
hvaðan þessi frétt kemur," sagði
Cruyff.
■ MIKLAR líkur em á að Aad
de Mos, þjálfari belgíska félagsins
Mechelen gerist næsti þjálfari
Ajax í Hollandi. Mos mun taka
ákvörðun um það í næstu viku,
hvort hann taki boði Ajax.
■ PÉTUR Guðmundsson og
félagar hans hjá San Antonio
Spurs máttu þola tap, 120:136,
fyrir Celtic. Larry Bird skoraði
39 stig fyrir Celtic í leiknum, en
Pétur skoraði átta stig.
■ ANDERLECHT vann í fyrra
kvöld Mechelen, 2:0, í seinni leik
liðanna í belgísku meistarakeppn-
inni. Liðin skildu jöfn í fyrri leikn-
um, 1:1, sem fram fór í Brassel.
Arnór Guðjohnsen lék með And-
erlecht og átti ágætan leik. Það
vora De Grote og Grun sem skor-
uðu mörk Anderlecht.
■ SAID Aouita, heimsmethafi í
1.500 og 5.000 m hlauþi frá Ma-
rakkó, tábrotnaði á æfíngu í gær.
Hann mun því ekki sjást á hlaupa-
brautinni næstu sex vikumar.
Aouita hefur ákveðið að leggja
hlaupaskóna á hilluna eftir
Ólympíuleikana i Seoul.
■ ÞAÐ verður lið UMFS sem
tekur sæti HSÞ c í B-riðli 3. deildar-
innar í knattspymu næsta sumar.
HSÞ c hætti við þátttöku og stjóm
KSÍ samþykkti á fundi sínum í
fyrrakvöld að Ungmennafélag
Svarfdæla frá Dalvík kæmi í
þeirra stað. UMFS varð í öðru
sæti á eftir Hvöt í E-riðli 4. deildar
í sumar, var með jafn mörg stig
en lakari markatölu. Hvöt sigraði
svo í 4. deild.