Morgunblaðið - 12.02.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988
25
Kapp-
akstur
bann-
aður
Brasilíu-
maðurinn
Emerson
Fittipaldi,
tvöfaldur sig-
urvegari í
Formula
One-keppn-
inni, varð fyr-
ir því á dög-
unum að vera
tekinn fyrir of'
hraðan akstur
í New York.
Fittipaldi var
að auglýsa
kappakstur-
skeppni sem
fram fer síðar
í þessum
mánuði í
Bandaríkjun-
um þegar lög-
reglan stöðv-
aði hann
vegna hrað-
aksturs.
Reuter
Suður-Afríka:
99
Oryggissveitir hreinsa
til í Bophuthatswana
Mmbatho. Reuter.
Stjórnvöld í Suður-Afríku
sögðu í gær, að Afríska þjóð-
arráðið, sem bannað er þar í
landi, hefði ef til vill átt þátt
I byltingartilrauninni í heimal-
andinu Bophuthatswana. Ör-
yggissveitir stjórnarinnar að-
stoðuðu við að elta uppi hópa
andófsmanna, eftir að upp-
reisnin hafði verið bæld niður.
í höfuðborg heimalandsins,
Mmabatho, var allt með kyrr-
um kjörum í gær.
Pik Botha, utanríkisráðherra
Suður-Afríku, sagði í Höfðaborg,
að foringi uppreisnarmanna,
Rocky Malebane-Metsing, sem
herinn ætlaði að setja í leiðtoga-
namibIÁ
........ ..........~r
Valdaránstilraun ( I
„heimalandinú“
j Bophuthatswana
Mmbatho „
ro0(> i
' ^Jóhannesarboi
Atlants-
haf
Knight-RidderGraphics Network
sæti í Bophuthatswana, hefði flúið
og væri hans nú leitað. Botha
Austurríki:
Fara stj ó riiarf 1 okkarnir
fram á afsögn Waldheims?
Ostaðfestar fréttir um að þeir séu farnir að ræða um eftirmann hans
sagði, að forsetinn, Lucas Man-
gope, væri við góða heilsu. „Hann
hefur fulla stjóm á aðstæðunum
í landinu ásamt lögregluliði sínu
og her,“ sagði Botha á fundi með
fréttamönnum.
Öryggissveitir Suður-Afríku-
stjómar eltu uppi 150 uppreisnar-
menn, eftir að byltingartilraunin
hafði verið brotin á bak aftur.
Þrír eða fjórir menn létu lífið í
átökunum.
Þegar Botha var spurður um
aðild. Afríska þjóðarráðsins að
uppreisninni, sagði hann: „Grun-
urinn um aðild hreyfingarinnar er
til kominn vegna tengsla Metsing
við ákveðin öfl í Afríska þjóðarráð-
inu og Lýðræðisfylkingunni.
Winnie Mandela, eiginkona Nel-
sons Mandela, vísaði fullyrðingum
Bothas á bug og sagði, að Afríska
þjóðarráðið hefði ekki átt neinn
þátt í þessari uppreisn: „Þetta
leppríki minnihlutastjórnarinnar í
Pretoríu hefur engá þýðingu fyrir
Afríska þjóðarráðið," sagði hún á
fundi með fréttamönnum í Jóhann-
esarborg.
Vín, Belg^ad, Bonn. Reuter.
VERULEGA er nú farið að hitna
undir Kurt. Waldheim, forseta
Austurríkis. Skýrsla sagnfræð-
inganefndarinnar um feril hans
á stríðsárunum þykir alvarlegur
áfellisdómur yfir honum og í gær
gaf þingmaður annars stjórnar-
flokksins í skyn, að hugsanlega
yrði Waldheim settur af. Er nú
þegar kominn á kreik orðrómur
um líklegan eftirmann hans.
Heinz Fischer, þingflokksfor-
maður Jafnaðarmannaflokksins,
annars stjómarflokksins, sagði, að
„ef til vill er kominn tími til að at-
huga hvað unnt er að gera til losa
okkur við þessa byrði“ og stærsta
dagblaðið í Austurríki, Die Pressé,
birti í gær óstaðfestar fréttir um
að stjómarflokkamir, jafnaðar-
menn og þjóðarflokksmenn, væru
þegar famir að ræða um eftirmann
Waldheims. Var sagt, að Josef
Ratzenböck, kunnur stjómmála-
maður í Austurríki, þætti líklegast-
ur. Rat^enböck vísar því raunar á
bug.
Þjóðarflokkurinn studdi Wald-
heim í forsetakosningunum og hef-
ur alla tíð tekið upp hanskann fyrir
hann en nú eru þó farnar að renna
tvær grímur á menn. Sem dæmi
um það má nefna, að Helmut
Kukacka, framkvæmdastjóri
flokksins, sagði í gær, að skýrsla
sagnfræðinganna hefði grafið und-
an valdi og virðingu forsetaembætt-
isins og yrði Waldheim sjálfur að
ráða bót á því.
Waldheim heldur því fram,, að
ekkert nýtt sé að finna í sagnfræð-
ingaskýrslunni og segist ætla að
sitja út kjörtímabilið til ársins 1991.
Segir talsmaður hans, Gerold
Christian, að hann ætli að flytja
ávarp til þjóðarinnar vegna málsins
og er líklegt, að því verði sjón-
varpað.
Ekki er hlaupið að því að koma
forseta Austurríkis úr embætti ef
hann vill það ekki sjálfur. Það verð-
ur ekki gert nema tveir þriðju þing-
manna samþykki það að undan-
genginni þjóðaratkvæðagreiðslu.
Til hennar verður ekki örugglega
ekki efnt enda er óvíst, að austur-
rískir kjósendur sneru baki við
Waldheim. Stjórnarflokkarnir eiga
því ekki annarra kosta völ en biðja
Waldheim að segja af sér.
Júgóslavneski sagnfræðingurinn
Dusan Plenca sagði í gær, að það
væri hneyksli ef skeytið, sem hann
komst yfir og bendlar Waldheim
við stríðsglæpi, væri falsað eins og
stjómvöld í Júgóslavíu halda fram.
„Ef það er rétt, hef ég verið hafður
að ginningarfífli," sagði Plenca en
í skeytinu skipar Waldheim fyrir
um brottflutning 4.000 óbreyttra
borgara. Júgóslavneska fréttastof-
an Tanjug sagði á miðvikudag, að
sérfræðingar hefðu skorið úr um,
að skeytið væri falsað. Eyðublaðið
væri að vísu ekta en orðalagið særi
sig allt í ætt við það, sem kommún-
ískir skæruliðar hefðu notað, en
ekki það, sem tíðkast hefði með
Þjóðverjum og króatískum sam-
starfsmönnum þeirra.
Vestur-þýska vikuritið Der Spi-
egel birti skeytið og er hermt, að
það hafí greitt 50.000 mörk fyrir.
Ritstjórar þess sögðu í gær, að þeir
ætluðu að beita sér fyrir eigin rann-
sókn á tilurð skeytisins.
ERLENT
Bestu kjör
á íslandi ?
ENGIN ÚTBORGUN - ENGIR VEXTIR
Nú býður Vörumarkaðurinn
ný og betri greiðslukjör
Eftirtaldar hágæðavörur getur þú greitt með
4 greiðslum á Visa eða Eurocard greiðslukortum
á venjulegu afborgunarverði ÁN VAXTA
RYKSUGUR
VIDEO
GEISLASPILARA
SJÓNVÖRP
ÞVOTTAVÉLAR
BETRI KJÖR BJÓÐAST EKKI
TILBOÐ GILDIR TIL 20. FEBRÚAR. TILBOÐ ER HÁÐ ÞVl AÐ GILDISTlMI KORTA SÉ LENGRI EN GREIÐSLUTlMI.
Vörumarkaðurinn
KRINGLUNNI S. 685440