Morgunblaðið - 12.02.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1988
27
Hraðfrystihús
Patreksfjarðar:
Vinnsla
gæti hafist
eftír helgi
RAFMAGN er nú aftur komið
á hjá Hraðfrystihúsi Patreks-
fjarðar. Signrður Viggósson,
stjómarformaður HP, sagði í
samtali við Morgunblaðið að
góðar vonir væm til þess að
vinnsla gæti hafist í frystihús-
inu eftir helgi, þegar togarinn
Sigurey landar.
Sigurður sagði að ennþá væri
þó ekki búið að hnýta lokahnútinn
á fjárhagslega endurskipulagn-
ingu fyrirtækisins og því væri
ekki hægt að staðfesta það að
vinnslan hæfist eftir helgi. Hann
sagði að vegna erfiðrar stöðu
frystiiðnaðarins almennt vildu
menn ekki hefja rekstur á ný fyrr
en fullkomlega hefði verið gengið
frá íjármálum fyrirtækisins.
Framkvæmdastjóri HP sat í gær
fund á ísafirði þar sem forráða-
menn hraðfrystihúsa á Vestíjörð-
um ræddu um vanda frystiiðnaðar-
ins.
Eins og kunnugt er veitti
Byggðastofnun HP 35 milljóna
króna lán þann 2. febrúar sl. með
þeim skilyrðum að fyrirtækið legði
fram rekstrar- og greiðsluáætlun.
Sigurður sagði að lánið hefði verið
afgreitt og hlutafé samvinnufé-
laga í HP hefði verið aukið, þann-
ig að nú vantaði aðeins vantaði
herslumuninn á að starfsemin
gæti hafist að nýju.
INNLENT
jigging-
g vanti
gert deiliskipulag af því bæjar-
hverfí þar sem fyrirhuguð bygging
á að rísa. Hér beri þess að gæta
að um fullbyggðan bæjarhluta sé
að ræða og ekki hafí verið sýnt
fram á að þörf á deiliskipulagi sé
fyrir hendi. Þá vísaði dómari í skipu-
lagsreglugerð, en í henni sé ekki
kveðið fastar að orði en svo að jafn-
an skuli liggja fyrir samþykkt eða
staðfest deiliskipulag áður en ein-
stakar byggingarframkvæmdir eru
leyfðar. Hér breyti engu um hvort
borgaryfírvöld höfðu hafist handa
um gerð deiliskipulags eða höfðu
það í hyggju. Það leiði því ekki til
ógildingar byggingarleyfís að deili-
skipulag sé ekki fyrir hendi.
Varðandi nýtingarhlutfall lóðar-
innar leit dómari svo á, að bygging-
amefnd Reykjavíkur hafí farið út
fyrir valdmörk sín með því að leyfa
svo hátt nýtingarhlutfall á lóðinni
sem raun bar vitni og með því að
leyfa byggingu 3ja hæða húss á
lóðinni. Þá hafí byggingamefnd
ekki fengið heimild Skipulags-
stjómar til frávika, áður en leyfð
var bygging íbúðarhúss á lóðinni.
Annmarkar væm það miklir á leyf-
inu að það hafí borið að fella úr
gildi.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir WILLLAM SCOBIE
Kóngi teflt fram í fríðarsókn
Margir eru nú þeirrar skoðunar að Mohammed Zahir Shah, fyrr-
um konungur Afganistans, sem steypt var af stóli í valdaráni
kommúnista árið 1973 meðan hann var staddur á ítaliu, sé líkleg-
astur afganskra leiðtoga til að geta sameinað stríðandi öf 1 í
landinu og myndað bráðabirgðastjórn sem allir aðilar gætu sætt
sig við. Hann sneri þó ekki heim sem konungur, heldur forsvars-
maður „hlutlausrar" ríkisstjórnar er hefði umsjón með brott-
flutningi sovézkra hersveita og leiddi þjóðina á leið til friðar og
sjálfstæðis.
Afganskir útlagar i Pakistan
halda á lofti myndum af kon-
ungnum útlæga
er undraverður maður," sagði
hann við mig síðast þegar hann
kom til Rómar. „Ég bjó hjá honum
í gamla daga í Kabul og þekki
hann orðið vel. Hann er afburða
ráðagóður - rólegur, skarpskyggn
og göfuglyndur. Ár samsæra og
útlegðar hafa ekki raskað ró
hans."
Hammer miðlar málum
Hammer fór til Rómar til að
ráðgast við Zahir, hélt áfram flug-
leiðis til Islamabad, höfuðborgar
Pakistans, til að fá samþykki Zia
forseta, og bar loks málið undir
mjög áhugasaman áheyranda,
Anatolíj Dobrynin, sem hann
Um áramótin hófust umfangs-
miklar viðræður opinberra
aðila jafnframt því sem heiftarleg
átök urðu við borgina Khost, en
ein ástæða þeirra er talin sú að
báðir aðilar hafí viljað tryggja
stöðu sína áður en friðarviðræður
hæfust á vegum Sameinuðu þjóð-
anna í Genf. Meðan þessi mál öll
eru í biðstöðu gerist ýmislegt for-
vitnilegt bak við tjöldin varðandi
stöðu Zahirs konungs.
Það skrýtnasta í málinu er trú-
lega að Míkhaíl Gorbatsjov leið-
togi Sovétríkjanna, sem þekktur
er fyrir annað en að tefla í tvísýnu,
skuli hafa neytt fulltrúa sinn í
Afganistan, dr. Najib, til að veðja
á kónginn. Þessi lágvaxni og feit-
lagni fyrrum yfirmaður leynilög-
reglu Afganistans - Khad, - sem
þjálfaður var hjá KGB, óttast um
líf sitt þegar Rússamir fara. Hann
hefur ekki hikað við að bjóða kon-
ungi opinberlega að koma heim
til að standa sameiginlega fyrir
myndun ríkisstjómar á breiðum
gmndvelli, og hann hefur jafnvel
boðizt til að skila aftur jörðum
sem hirtar hafa verið af leiðtogum
múslíma og öðrum landeigendum.
Zahir, sem er minnugur þess þeg-
ar leppforsetinn opnaði fyrir
nokkm sýningu á ljósmyndum er
áttu að sanna hryðjuverk gegn
kommúnistum í stjómartíð kon-
ungs („herfílegar falsanir" segir
hans hátign), telur þessa hug-
mynd út í hött.
Hugmyndinni vel tekið
En ýmislegt hefur gerzt á ný-
liðnu ári: hugmyndinni um að
konungurinn sé rétti maðurinn til
að koma á friði í landinu með því
að snúa heim sem forseti landsins
og leiðtogi nýrrar samsteypu-
stjómar hefur verið vel tekið í
Pakistan. Einnig hefur hugmynd-
in hlotið jákvæðar undirtektir í
Washington og London.
Stöðugur straumur gesta,
stjómarerindreka og hernaðar-
ráðgjafa, hefur legið til hallarinn-
ar í Róm til viðræðna við konung
og tengdason hans, Abdul Wali
hershöfðingja, sem heldur því
fram að flestir leiðtogar Muja-
hideen-frelsissveitanna séu nú
fylgjandi hugmyndinni.
Konungurinn neitaði fyrir
löngu að fallast á tillögu Banda-
ríkjanna um myndun útlaga-
stjómar, rétt eins og hann nú
hefur neitað að mynda stjóm í
samvinnu við dr. Najib. „Hann
tekur ekki að sér undirlægjuhlut-
verk hjá einum eða neinum," segir
Wali hershöfðingi. „Hann hélt
völdum í Afganistan um 40 ára
skeið. Annaðhvort snýr hann heim
eftir að gengið hefiir verið að
skilyrðum hans eða hann fer
hvergi.“
Þessi skilyrði fela það í sér að
hann hafí fijálsar hendur til að
mynda hlutlausa en „sjálfstæða
(það er óháða) ríkisstjóm sem sjái
um brottflutning 120.000 manna
hers Sovétríkjanna" og vísi dr.
Najib og nánustu fylgismönnum
hans í útlegð í Sovétríkjunum.
Og hvað svo?
„Mér er það ekkert metnaðar-
........ j
mál að endurreisa konungdóm í
landinu, því megið þið trúa,“ seg-
ir Zahir. „Það eina sem mér liggur
á hjarta er að skapa á ný einingu
og hagsæld í landi mínu eftir þetta
hörmulega stríð. Er Evrópubúum
það ljóst að við höfum misst hlut-
fallslega fleira fólk en Rússar í
síðari heimsstyijöldinni, eða að
fjórar milljónir til viðbótar em
landflótta í búðum í Pakistan og
Iran? Ég verð að gera það sem
ég get til að fá þetta fólk heim á
ný.“
Engin blekking
Zahir lifír ekki í neinni sjálfs-
blekkingu varðandi þær þrautir
og raunir sem framundan em. A
bamsaldri varð hann vitni að því
þegar faðir hans var myrtur þar
sem hann var að úthluta verðlaun-
um til skólabama. Sjálfur hefur
hann komizt undan launmorðingj-
um þegar hann var að taka upp
fijálslyndari stjómskipan í stað
lénsskipulagsins. Það væru ekki
allir á hans aldri (hann er 73 ára)
fúsir til að skipta á þægilegu fjöl-
skyldulífí í höll sem ítalska ríkið
rekur fyrir landflótta þjóðhöfð-
ingja (á undan honum bjó þar
Frederica fyrrum drottning Grikk-
lands) og setjast að í stríðshijáðu
heimalandi. En afganskir gestir
hans fullvissa hann um að þjóðin
minnist allra stjómardaga hans
sem gullaldar vaxandi velmegun-
ar og ömggs friðar. Þjóðin vilji
fá hann heim.
Samkvæmt áreiðanlegum upp-
lýsingum fulltrúa allra þeirra aðila
sem em nánast í daglegu sam-
bandi við konung og starfslið hans
er nú smám saman að skýrast
hvemig endanleg lausn mála get-
ur orðið. Hún yrði á þessa leið:
1. Tveimur mánuðum eftir að
samkomulag hefur náðst um frið
í landinu hefst brottför sovézku
hersveitanna - vel skipulagður sex
mánaða „brottflutningur með
sæmd“, og með þeim fæm lepp-
forseti þeirra í Afganistan og um
3.000 menn úr starfsliði hans.
Aðstoð Bandaríkjanna við skæm-
liða, sem nú nemur um einni
milljón dollara á dag, yrði hætt.
2. Á sama tíma yrði samið um
myndun bráðabirgða þjóðstjómar
undir fomstu Zahirs sem aðallega
yrði skipuð sérfræðingum án
áberandi tengsla við stríðsrekst-
urinn.
3. Síðan kallaði Zahir fulltrúa
deilandi ættbálka og trúarleiðtoga
saman til ráðstefnu til að semja
um framtíðina.
4. Ári síðar yrði boðað til al-
mennra og lýðræðislegra kosn-
inga þar sem Afganir fengju að
kjósa sér þá ríkisstjórn sem þeir
vildu fá.
5. Þremur áram eftir þetta yrði
gefin út almenn sakamppgjöf,
sem heimilaði öllum fyirum sam-
starfsmönnum Rússa að snúa
heim úr útlegðinni - og þá einnig
dr. Najib, ef hann vildi taka
áhættuna.
Sovézkt Víetnam
Najib, sem kvíðir eigin framtíð,
hefur verið að kynda undir óttan-
Zahir konungur situr og biður
í höllinni í Róm. „Það eina sem
mér liggur á hjarta er að skapa
á ný einingu og hagsæld í landi
mínu.“
um við sovézkt Víetnam með því
að benda yfírboðumm sínum á
örlög innrásarsveita brezka hers-
ins sem lögðu Kabul undir sig á
19. öld en vom stráfelldar á heim-
leið til Indlands ásamt afgönskum
stuðningsmönnum sínum: hvað,
spyr hann, ef „uppreisnarmenn-
imir“ hafa komið sér upp miklum
vopnabirgðum og nota sér brott-
flutninginn til að stráfella sovézku
hermennina og stuðningsmenn
þeirra?
„Það er ábyrgðarleysi að vera
að tala um eitthvert blóðbað,"
segir konungurinn. „Margskonar
öryggisráðstafanir verða gerðar,
auk sameiginlegrar ábyrgðar
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna."
Eitt af mörgu sem flækir málið
er að Bandaríkjamönnum virðist
ekkert liggja á að græða það sem
Gorbatsjov nefíiir „flakandi sár
Rússa“. „Þetta er sjálfsáverki,“
sagði fulítrúi frá bandaríska ut-
anríkisráðinu, sem sótti Zahir
konung heim. „En við viljum einn-
ig að þú snúir heim. Spumingin
er aðeins hvenær."
Hvemig komst Zahir inn í
myndina? Hvað fékk ráðamenn í
Moskvu og Kabul til að tefla fram
kónginum? Dr. Henry Kissinger
impraði fyrst á hugmyndinrii við
dr. Armand Hammer, sem er eftir-
lætis auðvaldssinni Banda-
ríkjanna í augum Kremlveija og
fomvinur Zahirs. „Konungurinn
þekkti frá því Dobrynin var sendi-
herra í Washington áður en hann
varð helsti ráðgjafí í utanríkismál-
um í Moskvu. Við heimkomuna
til Bandaríkjanna skýrði hann ut-
anríkisráðuneytinu frá hugmynd-
inni, og ekki leið á löngu áður en
George Shultz var farinn að segja
þeim sem heyra vildu að hugsan-
lega mætti flýta lausn mála í
Afganistan með því að fá Zahir
til að taka að sér myndun bráða-
birgða ríkisstjómar í landinu sem
„primus inter pares" (fremstur
meðal jafíiingja).
Þótt málsvarar þessara aðila
séu hlynntir hugmyndinni, er enn
eftir að fá samþykki frelsishreyf-
inganna, sem em sjö talsins og
eiga oft í innbyrðis deilum. Wali
hershöfðingi heldur því fram að
þar sé meirihlutastuðningur við
heimkomu konungs, og að and-
stæðingamir séu öfgafullir
bókstafstrúarmenn sem telji Zahir
„ekki nógu trúrækinn". Þar sem
tsæði Bandaríkjamenn og Sovét-
menn vilja fyrir alla muni koma
í veg fyrir að eins fari fyrir Afgan-
istan og íran, að Khomenifarald-
urinn taki við stjóm í múslimsku
Afganistan, em þeir fyllilega sátt-
ir við þessa skoðun öfgasinnanna.
Þeir segja að Zahir konungur
sé fijálslyndur í skoðunum og
.geti einbeitt sér að því að koma
í veg fyrir mannskæða borgara-
styijöld milli stríðandi fylkinga í
landinu eftir brottför Rússanna,
en fijálslyndi sé vandfundið í Afg-
anistan í dag.
Höfundur er blaðamaður Jyá
brezka blaðinu The Obaerver.