Morgunblaðið - 16.02.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
Háskólabíó:
Bassasöngvarinn
Burchuladze syngur
Rússneski söngvarinn Paata
Burchuladze heldur tónleika
ásamt píanóleikaranum Ludmilla
Ivanova á vegum Tónlistarfé-
lagsins í Háskólabíói á morgun,
miðvikudaginn 17. febrúar. A
efnisskrá eru lög eftir Rach-
maninov og Mussorsky, en tón-
leikarnir hefjast klukkan 19.15.
Tónleikunum varð að fresta í
síðustu viku vegna veikinda
söngvarans.
Paata Burchuladze fæddist í
Tbílisí í Grúsíu. Hann lagði stund
á píanóleik og söng í æsku sam-
hliða námi í byggingafræði. Tónlist-
aráhuginn náði þó brátt yfírhönd-
inni og árið 1972 hóf hann nám
við Tónlistarháskóla ríkisins í
Tbílisí. Burchuladze stundaði frek-
ara nám við La Scala í Mflanó frá
árinu 1976. Hann hlaut önnur verð-
laun í alþjóðlegu Verdi-söngkeppn-
inni 1981, en þá voru engin fyrstu
verðlaun veitt. Þau hlaut hann hins
vegar í alþjóðlegu Tchaikovsky-
keppninni í Moskvu ári síðar.
Nú er Burchuladze einn eftirsótt-
asti bassasöngvari heims og kemur
fram í stærstu óperuhúsunum, að
því er segir í fréttatilkynningu Tón-
listarfélagsins. Hann þykir hafa
óvenju mikla en jafnframt mjúka
rödd, og hefur oft verið talinn arf-
taki Sjalapins.
Flutningur Burchuladze á róm-
önsum Rachmaninovs og lögum
eftir Mussorsky hefur vakið mikla
hrifningu á tónleikum. Sérstaklega
hefur túlkun hans á „Söngvum og
dönsum dauðans" eftir Mussorsky
þótt sérstaklega áhrifamikil, eins
og segir í fréttatilkynningu Tónlist-
arfélagsins. Tónleikagestir á morg-
un fá að hlýða á söngvarann flytja
lög eftir þessi tónskáld, en miða-
sala er í Gimli við Lækjargötu og
við innganginn.
Fundur hjá samtökum
krahbameinssjúklinga
Hin nýju samtök krabbaméins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra
halda fund þriðjudaginn 16. febrúar
í Brautarholti 26, sal Kiwanis-
hreyfíngarinnar, og hefst fundurinn
kl. 20.30.
Þuríður Hermannsdóttir flytur
erindi um sérstakt mataræði
(macrobiotic).
Á fundinum verða lögð fram drög
að lögum samtakanna, kosið í stjóm
þeirra og kynntar hugmyndir um
nafn á samtökum.
Kiwanis-klúbburinn Esja sér um
kaffíveitingar.
Félagsmenn samtakanna eru á
þriðja hundrað. Krabbameinssjúkl-
ingar, aðstandendur þeirra og aðrir
sem áhuga hafa á málefnum sam-
takanna, eru hvattir til að koma á
fundinn.
Hlemmur ekkert
vandamál lengur
„ÞAÐ virðist sem ólæti þarna
hafi fjarað út og Hlemmur er
ekkert vandamál lengur fyrir
lögregluna," sagði Bjarki Elías-
son, yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, er hann var inntur
eftir því hvemig ástandið væri
nú í biðstöð' strætisvagna við
Hlemm.
Fyrir um það bil ári var oft
greint frá því í fjölmiðlum að lög-
reglan þyrfti að hafa afskipti af
fólki í biðstöðinni, sem olli öðrum
ónæði og ótta. „Þetta er liðin tíð,“
sagði Bjarki. „í>að má vera að vand-
inn hafi að hluta færst út á götur
borgarinnar og þá helst í miðbæinn.
Þessir hópar, sem héldu til á
Hlemmi, eru mun dreifðari núna
og það auðveldar lögreglunni mjög
störf. Við fögnum því hversu vel
hefur tekist að skapa gott ástand
á Hlemmi."
Rekstraraðili Skemmtigarðsins í Hveragerði:
Skuldar 20 starfs-
mönnum laun
Hefur ekki greitt í lífeyrissjóð, sjúkra
- og orlofssjóð eða félagsgjöld
REKSTRARAÐILI Skemmti-
garðsins í Hveragerði hefur ekki
gert upp laun um tuttugu starfs-
manna sinna frá því í október
og nóvember á síðasta ári, en um
miðjan nóvember var Skemmti-
garðinum lokað 'vegna sölu-
skattsvanskila. Samtals nemur
upphæðin um 1.200 þúsund krón-
um og hefur skuldin verið falin
lögfræðingi til innheimtu, að
sögn Þórðar Ólafssonar, form-
anns verkalýðsfélagsins Boðans.
Miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands samþykkti einróma ályktun á
síðasta fundi sínum þar sem þess
er krafíst að rekstraraðili Skemmti-
garðsins geri að fullu upp reikninga
við það launafólk sem á inni vinnu-
laun frá fyrri tíð. Þá lýsti miðstjóm-
in einróma stuðningi við aðgerðir
verkalýðsfélagsins Boðans og hvet-
ur fólk til þess að taka ekki störf
hjá fyrirtækinu á meðan launa-
greiðslur eru óuppgerðar.
Þórður sagði að Skemmtigarður-
inn hefði starfað í þijú ár og til
viðbótar ógreiddum launum hefðu
ekki verið gerð upp félagsgjöld og
greiðslur í sjúkra- og orlofssjóð, né
greiðslur 5 lífeyrissjóð, hvorki lífeyr-
isgreiðslur, sem teknar væru af
launþega, né það framlag sem á
að koma frá vinnuveitanda.
Hinn eini og sanni stórútsölumarkaður er á
FOSSHÁLSI 13-15
SDAfiAR
NYJAR
VÖRUR
DAGLEGA
Dæmi:
Þar er fjöldi fyrirtækja og stórkostlegt vöruúrval.
Heildverslunin Blik
Treflarfrá kr............lOO
Vettlingar frá kr........190
Sokkabuxurfrá kr..........55
Eyrnalokkarfrá kr.........50
Festar frá kr.............90
ft'" = Karnabær
Peysur í úrvali frá kr. 990
Buxur í úrvali kr .1.690
Vetrarfrakkar kr 6.500
Þunnirfrakkar kr 2.900
Jakkaföt kr Allt nýlegar vörur. 7.900
^
Gefjun
Jakkaföt frá kr 2.800
Stakirjakkarfrá kr 1.500
Stakarbuxurfrá kr 790
Skyrturfrá kr ... 290
Barnagallar og úlpur
frá kr 990
v^ - ú/
Axel Ó ^
Kuldaskórfrá kr.... 1.490
Hælaskórfrá kr 390
Herraskórfrá kr.... .1.490
Kínaskórá kr 290
J/
^
Anar
Jogginggallarfrá kr.... 894
Peysur frá kr 894
Gallabuxurfrá kr 998
^ ——4
Steinar 1
íslenskar plötur og
kassetturá kr. . 299
Erlendar plötur kr 49
Allar 12" plöturá kr.... 49
Óáteknar kassetturá kr....300
^ 4
v— ^
Radiobær
Vasaútvörp frá kr ... 695
Ferðatæki frá kr 1.500
Bíltæki frá kr 3.990
Hljómflutnings-
samstæðurfrá kr 12.950
^ L
Y~": —
Skoglugginn
Barnaskór frá kr ... 100
Dömuskórfrá kr 500
Kuldaskórfrá kr 500
Leðurfatnaður dömu og
herra 5-70% afsl.
— JJ
f Mæra *
Treflarfrá kr .... 300
Vettlingar frá kr .... 160
■ Sokkarfrá kr 90
Sokkabuxur frá kr.... ... 75
Skartgripir á mjög lágu verði.
V^ J
Kári
Handklæöi 50x100 kr. .200
Baðhandklæði kr.......350
Ýmis efni á mjög góðu verði.
Yrsa
Snyrtivörur og tiskuskartgrip
ir á mjög göðu veröi.
Bylgjubúðin
Allar peysur á kr.....750
Allar buxur á kr......950
Bamajogginggallar á kr.550
^
Theodóra
Blússur frá kri 400
Buxur frá kr 1.000
Dragtirfrá kr 2.500
V^ - 4
*
Hummelbúðin
Dúnúlpurfrá kr 990
Jogginggallar frá kr.. 690
íþróttaskórfrá kr 450
Skiðagallarfrá kr .1.990
Leikfirniskórá kr 290
IL -1
Nafnlausabúðin
Fataefni í miklu
úrvali frá kr.lOO pr. metra
Sængurveraefni sömuleiði's.
Sokkabuxurkr.......... 50
Toppleður
Leðurjakkar frá kr.5.900
Leðurpils frá kr...3.900
Pelsar á kr........5.500
NYTT
kreditkortatímabil er hafið
hjá okkur
Opnunartími:
Föstud. 13*19
Laugard. 10-16
Aðra daga 13-18