Morgunblaðið - 16.02.1988, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
__>
/A
Langar þig til
Ástralíu eða Nýja Sjálands?
Ef þú ert fædd/ur 1971 eða 1972 getur þú sótt um að kom-
ast þangað sem skiptinemi með ASSE á íslandi.
ASSE (American Scandinavian Students Exchange) eru skipti-
nemasamtök sem starfa í Vestur-Evrópu, Bandaríkjunum,
Kanada, Ástralíu og Nýja Sjálandi og hafa þaö að markmiði
að auðvelda ungu fólki að kynnast öðrum þjóðum og menning-
arsvæðum.
Farið verður til Ástralíu og Nýja Sjálands í janúar 1989 og
dvalið þar til í desember eða í 11 mánuði.
Nánari upplýsingar á skrifstofu ASSE í Nóatúni 17, sfmi
91-621455 ki. 13-17 virka daga.
Blaðberar
Simar 35408 og 83033
SKERJAFJ.
Einarsnes
SELTJNES
Látraströnd
Hrólfsskálavör
MIÐBÆR
Tjarnargata 3-40
Tjarnargata 39-
Lindargata 39-63 o.fl.
Hverfisgata 4-62
Laugavegur 1 -33 o.fl.
UTHVERFI
Sogavegur101-156
Sogavegur 158-210
Sæviðarsund hærri tölur
Efstasund 2-59
Kambsvegur
KOPAVOGUR
Sunnubraut
Kársnesbraut 77-139
VESTURBÆR
Hringbraut 37-77
JBórgMnM*í»ií>
Morgunblaðið/Kr.Ben
Um borð í Hrafni Sveinbjarnarsyni III á strandstað virða þeir Kjartan Ragnarsson útgerðarstjóri og
Skúli Óskarsson vélstjóri fyrir sér hrikalegar aðstæður.
Hrafn Sveinbjarnarson III:
Ekki tókst að losa
bátiiui af strandstað
Reynt að auka flot bátsins með 400 belgjum
Grindavík.
VARÐSKIPIÐ Óðinn og dráttar-
báturinn Goði reyndu án árang-
urs að draga Hrafn Sveinbjarnar-
son III af strandstað í Hópsnesi i
Grindavík í fyrrinótt. Háflóð var
kl. 4 um nóttina og var reiknað
með að flóðið yrði 50 sentimetrum
hærra en síðast þegar reynt var
að draga bátinn út. Straumur er
einnig stœkkandi. Báturinn valt
mikið í brimrótinu en náði ekki
að velta yfir á bakborðshlið þrátt
fyrir að bæði skipin toguðu þann-
ig. í hann.
Slysavamasveitarmenn og starfs-
menn Þorbjamarins hf., eiganda
Hrafn Sveinbjamarsonar III, unnu
alla helgina við að koma belgjum út
í bátinn í þeirri von að auka mætti
flotið í bátnum ef hann næðist af
strandstað. Rúmlega 400 belgjum
var safnað saman í Grindavík á laug-
ardaginn frá öllum útgerðarfyrir-
tækjum. Slysavamasveitarmenn
reyndu að komast um borð í Hrafn
á gúmmíbát frá varðskipinu Óðni.
Þeir urðu frá að hverfa þar sem
kvika og sog við bátinn í grýttri fjör-
unni kom í veg fyrir að þeir kæmust
um borð. Litlu munaði að illa færi
þegar gúmmíbáturinn fylltist af sjó
í einni kvikunni og drapst á vélinni.
Tókst mönnunum í bátunum að
draga sig út 'á liflínu sem lá í akkeri
skammt frá landi og forðast þannig
að jenda í stórgrýtinu.
Óskað var eftir að þyrla Land-
helgisgæslunnar aðstoðaði við að
koma mönnunum um borð svo hægt
væri að taka á móti fluglínu í landi
og flytja þannig belgina um borð.
Upp úr hádegi gerði éljagang svo
ekkert varð úr að þyrlan kæmist.
Snemma á sunnudagsmorgun tókst
einum slysavamamanni að komast
um borð og taka á móti fluglínu.
Fjórir menn úr áhöfn bátsins ásamt
Kjartani Ragnarssyni útgerðars-
stjóra voru síðan hífðir í björgunar-
stól um borð. Unnu þeir allan daginn
við að taka á móti belgjunum og
koma þeim fyrir í lest bátsins. Drátt-
arbáturinn Goði kom síðan á strand-
stað um eftirmiðdaginn og var unnið
við það fram í myrkur að koma taug
á milli sem fest var fremst í bátinn
en freista átti að feila hann á bak-
borðshlið í þeirri von að hann losn-
aði auðveldar af strandstað.
Fréttaritari Morgunblaðsins fór út
í Hrafn Sveinbjamarson III í björg-
unarstól og fylgdist með aðgerðum
um borð. Skúli óskarsson vélstjóri
Morgunblaðið/Kr.Ben.
Skúli Óskarsson vélstjóri kemur belgjunum fyrir í lestinni.
var heldur svartsýnn á að ná bátnum
heilum af strandstað. „Hann er þeg-
ar farinn að liðast mikið. Styttumar
í lestinni ganga upp í millidekkið við
hreyfingu bátsins. Steypan í lestar-
gólfínu er farin að molna upp bak-
borðsmegin í miðri lestinni gegnt rif-
unni á stjómborða svo ljóst er að
báturinn situr á klöpp sem myndar
kílfar upp í kjöl bátsins," sagði hann.
„Smámunir miðað við högg-
in þegar við strönduðum“
Báturinn hristist og skókst til þeg-
ar brimrótið skall á bakborðshliðinni
og urðu menn að halda sér til að
missa ekki fótanna þegar mestu
ólögin gengu á bátinn. „Þetta eru
smámunir samanborðið við höggin
þegar við strönduðum," sagði Hall-
dór Björgvinsson skipveiji þar sem
hann hélt sér við handriðið bak-
borðsmegin og horfði út yfir skerin
í fjörunni sem ýmist færðust í kaf í
briminu eða blöstu við svört og ægi-
leg. „Fyrst kom heljarhögg þegar
báturinn fór á fullri ferð yfír fyrsta
skerið og köstuðumst við allir til þar
sem við vorum að vinna á millidekk-
inu. Við urðum að ríghalda okkur til
að kastast ekki fram og aftur meðan
báturinn skrönglaðist með miklum
hávaða og braki yfir klappimar. Þeg-
ar hann stöðvaðist með miklum rykk
fórum við upp í brú en þá kom eitt
högg til viðbótar og báturinn kastað-
ist á þann stað sem hann situr nú.
Við höggið kastaðist kallinn út í
hom á brúnni en meiddist þó ekki.
Á meðan við biðum eftir björgun
buldu höggin á bátnum er brimið
skall á honum og kastaði honum til.
Já, þetta eru hreinir smámunir miðað
við það,“ sagði Halldór.
— Kr.Ben.