Morgunblaðið - 19.03.1988, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1988
37
Ljósmynd/BS
Sykurmolarnir, sem nú eru rétt við
það að ná plötusamning í Banda-
rfkjunum og hafa þegar treyst sig
í sessi á Bretlandi, virðast við það
að festa sig í sessi á íslandi. Á
skemmtikvöldi Smekkleysu s/m f Hótel ísiandi
á fimmtudagskvöld, þar sem um sex hundruð
manns hlýddu á leik hljómsveitarinnar, mátti
sjá 14 til 17 Ijósmyndara, en fyrir 7
mánuðum hélt hljómsveitin tónieika á Hótel
Borg og þar var Ijósmyndarinn aðeins einn.
Ljósmynd/BS
sveit landsins. Tónleikarnir hófust
á því aö tvíeykið Einar og Björk
seig upp á hluta gólfsins, sem
hafði sigið niður stuttu áöur, með
gyllta styttu á milli sín sem kalla
mætti táknræna fyrir félagsskap-
inn sem tónleikana, eða skemmti-
kvöldið, hélt.
Ekki er að merkja neinar grund-
vallar tónlistarbreytingar þó bæst
hafi ( sveitina hljómborðsleikari,
eina er að undiraldan er eilítið
þyngri, sem gefur góða raun. Það
var helst í nýju lögunum sem
hljómborðið var áberandi. Sem fyrr
eru það taktgrunnur Sigtryggs og
söngur Bjarkar sem einkenna
sveitina en Einar, Þór og Bragi
bæta því við sem á vantar og úr
verðurtónlist sem erfitt er að lýsa.
Ekki get ég sagt þetta bestu
tónleika sem ég hef séð með Syk-
urmolunum, til þess er minningin
um tvenna framúrskarandi tón-
leika í október sl. of sterk, en það
er víst að þetta er með bestu tón-
leikum sem ég hef séð með nokk-
urri íslenskri rokksveit og eini
mínusinn er sá að það eiga eftir
að líða nokkrir mánuðir þar til það
gefst kostur á að sjá Molana aftur
hér á landi.
Meðal tónleikagesta var blaða-
maður bandaríska tónlistarblaðs-
ins Rolling Stone, David Fricke.
Hann hefur verið hér ( viku til að
fylgjast með Sykurmolunum og
undirbúa grein í Rolling Stone um
Molana og íslenskt tónlistarlíf. Að
tónleikunum loknum lýsti hann
hrifningu sinni á þeim hljómsveit-
um sem á undan Sykúrmolunum
höfðu leikið en sagði að Sykurmol-
amir hefðu verið betri en hann
hefði þorað að gera sér vonir um;
Bleiku bastarnir hefðu verið
skemmtilegir, Sogblettir hefðu ver-
ið kraftmiklir, en Sykurmolarnir
hefðu verið framúrskarandi og
þetta væri á meöal bestu tónlelka
sem hann hefði séð.
Textl: Áml Matthfasson
Á tónleikunum á fimmtudag
sýndi hljómsveitin þó að hún er
enn aö leika sömu tónlistina og
þá, það eina sem hefur breyst er
háralitur Einars og Þórs og nýr
maður hefur slegist í hópinn, Einar
Melax hljómborösleikari.
Fyrsta hljómsveit kvöldsins var
Bleiku bastarnir og Sogblettir
fylgdu á eftir. Á undan tónleikunum
og á milli atriða var það sem að-
standendur kölluðu dragt, á ensku
„drag show“, en þá komu fram
karlmenn í kvenklæðnaði, þeirra á
meðal Sigtryggur trommuleikari
Molanna.
Dagskrá Sykurmolanna var
byggð á framúrskarandi eldri lög-
um eins og Mamma, Heitt kjöt,
Ámmæli og Guð og gaman var að
heyra Tekið í takt og trega, eitt
besta lag íslenskrar rokksveitar frá
upphafi, en það hafa Molarnir ekki
flutt hér á landi í langan tíma. (
bland voru svo nýrri lög, sem
hljómuöu vel og lofa góðu.
Eins og áður sagði voru um 600
manns í Hótel (slandi sem vel voru
með á nótunum, enda eru Sykur-
molamir orðin besta atvinnurokk-
Ljósmynd/BS
< I
il
I
I
<
ÞAÐ BÝR MARGT
í SKEIFUNNI
Ég ætla aö segja ykkur frá nýju bílasölunni sem í
Skeifunni býr. Hún nefnist TOYOTA BÍLASALAN og þar er
gott val notaðra bíla af öllum tegundum. Langi ykkur til aö
skoöa gripina, takiö þá eftir stóra nýja húsinu sem stendur
austan við Hagkaup... eða: vinstra megin viö aðalinngang
Hagkaups.
Þar gangið þið inn í nýtt fyrirtæki, TOYOTA BÍLASÖLUNA
sem byggir þó á langri reynslu og öruggri þjónustu Toyota.
Verið velkomin alla virka daga milli kl. 9:00 og 19:00
og laugardaga milli kl.10:00 og 17:00.
TOYOTA
BÍLASALAN
\
I
SKEIFUNNI 15, SÍMI 687120
11 I) V * Jj 8 3 • i 11 II A | t . i >. i
8
i i * &