Morgunblaðið - 27.03.1988, Síða 25

Morgunblaðið - 27.03.1988, Síða 25
SVONA CERUM VIÐ ■ HLUTAFÉLAC SlA MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1988 25 V —* ■ * Gott fyrirtæki byggist á traustum grunni Allir byggingamenn vita að mikil mannvirki verða því aðeins byggð að undirstaðan sé traust. Með þessa vitneskju í huga horfa forráðamenn nýs byggingavörufyrirtækis bjartsýnir til ffamtíðar. Hin gamalgrónu fyrirtæki JL-byggingavörur og Timburverslunin Völundur hafa runnið saman í nýtt og öflugt fýrirtæki, JL Völund. Timburverslunin Völundur hf. var stofhuð af 40 ffamsýnum mönnum árið 1904. Fyrirtækið varð strax geysilega öflugt á sínu sviði og rak jöfhum höndum timburverksmiðju, tunnugerð, húsgagnagerð og verktakastarfsemi. Völundur byggði mörg af þekktustu húsum landsins, s.s. Landsbókasafhið við Hverfisgötu og Iðnaðarmannahúsið við Tjörnina. Og þá er ónefnt sjálft Völundarhúsið við Klapparstíg sem mörgum þótti jaíh sjálfsagt kennileiti og sjálf Esjan. Framkvæmdamaðurinn Jón Loftsson var ekki síður stórhuga en þeir Völundarmenn og lagði sitt af mörkum til þróunar í byggingariðnaði hér á landi. Hann hóf vikurnám við rætur Snæfellsjökuls, byggði stokk utan um heila á og flutti þannig vikurinn til skips. Vestur á Hringbraut stóð svo verksmiðjan sem ffamleiddi vikurplötur og mátsteina sem notaðir voru til húsbygginga áratugum saman. Það er á traustum grunni þessarar frumkvöðla sem JLVölundur byggir framtíð sína. JL Völundur er alhliða byggingavöruverslun sem starfar á tveimur stöðum. Á Hringbraut 120 er ný verslun þar sem höfuðáhersla er lögð á vandaðar og vel hannaðar vörur til innréttinga og frágangs, en á Viðarhöfða 4 er timbur, járn og annað byggingarefni í endalausu úrvali. JL Völundur býður alla þá sem vilja betri byggingavörur velkomna í viðskipti. JLVölundur Hringbraut 120, sími 28600 og Viðarhöfða 4, sími 671100 ______________ ' ________________

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.