Morgunblaðið - 27.03.1988, Side 40
.40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Starfsfólk óskast
í fiskvinnslu. Góð laun. Mikil vinna. Háfsdags
starf kemur til greina.
Upplýsingar í símum 652512, 656111 og
24318.
Verslunarstjóri
Kaupfélag Suðurnesja óskar eftir að ráða
verslunarstjóra fyrir stórmarkaðinn Samkaup
á Suðurnesjum. Umsækjendur þurfa að hafa
reynslu í stjórnunarstörfum og verslunar-
rekstri.
Umsóknum með upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf sendist kaupfélagsstjóra
fyrir 10. apríl nk.
Kaupfélag Suðurnesja,
230 Keflavík,
sími 92-11500.
Sjúkraþjálfarar
Endurhæfingastöð NLFÍ, Hveragerði, óskar
að ráða sjúkraþjálfara sem fyrst. Húsnæði
og fæði á staðnum.
Upplýsingar gefa yfirsjúkraþjálfari eða yfir-
læknir í síma 99-4201.
Verið velkomin að koma og skoða aðstæður.
Dyravörður
Óskum eftir að ráða miðaldra mann til dyra-
vörslu í hótelinu. Viðkomandi þarf að eiga
auðvelt með að umgangast fólk, vera sam-
viskusamur og hafa góða framkomu. Vinnu-
tími er á kvöldin frá kl. 19-24 og eitthvað
lengur um helgar. Unnið er þriðju hverja viku.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á hótelinu
frá og með morgundeginum á skrifstofutíma.
Bergstaðastræti 37
Starf f orstöðu-
manns Áhaldahúss
Akraneskaupstaðar
Auglýst er eftir umsóknum í starf forstöðu-
manns Áhaldahúss Akraneskaupstaðar.
Starfið er m.a. fólgið í yfirumsjón með dag-
legum rekstri Áhaldahúss þ.e. véladeildar,
trésmíðadeildar, gatnadeildar og vatnsveitu-
deildar. Hann hefur yfirumsjón með og ber
ábyrgð á allri almennri verkstjórn með fram-
kvæmdum sem starfsmenn Áhaldahúss ann-
ast.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu í
stjórnun ásamt því að hafa iðnmenntun.
Nánari upplýsingar veitir bæjartæknifræð-
ingur í síma 93-11211 milli kl. 11.00 og 12.00
alla virka daga eða á skrifstofu sinni að
Kirkjubraut 28, Akranesi.
Umsóknum bera að skila til bæjartæknifræð-
ings Akranesskaupstaðar, Kirkjubraut 28,
300 Akranesi, ekki síðar en 8. apríl nk.
Bæjartæknifræðingur.
Hárgreiðsla
Hárgreiðslusveinn eða meistari óskast.
Góð laun fyrir duglegan aðila.
Upplýsingar eru veittar á stofunni mánudag
til miðvikudags.
Kópavogsbraot 1 Sími 45550
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
- fóstrur
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast.
Fastar stöður og sumarafleysingar.
Nánari upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra í
síma 45550.
Fórstra óskast. 70% staða. Vinnutími kl.
11.45-17.15
Upplýsingar hjá forstöðumanni barnaheimil-
is, virka daga í síma 45550.
Hrafnista, Reykjavík
Hjúkrunarfræðinga
vantar á kvöld- og helgarvaktir.
Einnig í sumarafleysingar.
Sjúkraliða
vantar á allar vaktir.
Starfsfólk
vantar í hlutastörf og sumarafleysingar.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í símum
35262 og 38440 frá kl. 10-12 virka daga.
Vinnustofur
Kópavogshæli
Deildaþroskaþjálfar óskast sem fyrst.
Starfshlutfall samkomulagsatriði Vinnutími
frá kl. 08.30-16.30.
Starfið felst í verkstjórn og skipulagi þjálfun-
ar á vinnustofum Kópavogshælis og þjálfun
vistmana.
Starfsleiðbeinendur óskast sem fyrst.
Starfshlutfall eftir samkomulagi. Vinnutími
miðað við fullt starf 08.30-16.30 virka daga.
Starfið felst í verkstjórn og aðstoð við þjálfun
vistmanna á vinnustofum. Æskilegt er að
umsækjendur hafi reynslu af starfi með
þroskaheftum.
Nánari upplýsingar um framangreind störf
gefa yfirþroskaþjálfi Kópavogshælis, sími
41500 eða yfirþroskaþjálfi á vinnustofum,
sími 45130.
Borðstofa Kópavogshælis
Starfsmenn vantar í borðstofu Kópavogs-
hælis. Um er að ræða 100% starf. Vinnutími
frá kl. 08-16.
Starfið felst í afgreiðslu í borðstofu og af-
greiðslu á aukapöntunum til deilda Kópa-
vogshælis.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Þorbjörg
Guðnadóttir, ráðskona, sími 41500 (borð-
stofa).
Reykjavík, 27. mars 1988.
Óskum að ráða afgreiðslustúlku sem fyrst.
Æskilegur aldur 18-25 ára.
Umsækjendur komi til viðtals í verslunina
mánudaginn 28. mars eftir hádegi.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
Austurlandi
Þroskaþjálfi
óskast til starfa á sambýlið Stekkjartröð 1,
Egilsstöðum frá 1. maí nk. eða eftir sam-
komulagi. Um er að ræða kvöld- og helgar-
vinnu.
Nánari upplýsingar hjá forstöðumanni í síma
97-11877 milli kl. 9 og 12 eða skrifstofu
Svæðisstjórnar í síma 97-11833 milli kl. 13
og 17.
REYKJMJÍKURBORG
AcucMn. Stöcúift
Sjúkraþjálfarar
- Spennandi
verkefni
Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur óskar eftir að
ráða sjúkraþjálfara. Verkefni hans verður m.a.
að hafa forystu um að móta starf sjúkraþjálfa
í heilsuvernd á vegum Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur í samvinnu við deildir stöðvarinnar
og heilsugæslustöðvarnar í borginni.
Ráðið verður í starf þetta til eins árs.
Upplýsingar um starfið veitir undirritaður í
síma 22400.
Umsóknir á þar til gert eyðublað sendist til
Starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Póst-
hússtræti 9.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk.
Borgarlæknirinn i Reykjavík.
Ritari óskast til
ráðgjafafyrirtækis
Komdu sæl(l), við leitum þín;
ef þú vilt annast um tylft skapgóðra en hjálp-
arvana tæknimanna með hjálp Hildar,
tækniteiknara;
ef þú hefur áhuga á almennu skrifstofu-
haldi, sem innifelur einnig símavörslu,
býrð yfir góðri vélritunarkunnáttu og hef-
ur gott vald á íslenskri tungu;
ef þú ert tilbúin(n) að tileinka þér tölvutækn-
ina við starf þitt;
ef þú ert eilítið stjórnsöm(-samur) og lætur
þér ekki allt fyrir brjósti brenna.
Fyrirtækið okkar er:
• Ráðgjafarfyrirtæki í byggingaverkfræði.
Fyrirtækið okkar býður:
• Skemmtilegt og krefjandi starf.
• Góða starfsaðstöðu í nýju, glæsilegu
húsnæði með fögru útsýni.
• Hressilegan starfsanda.
• Góð laun.
Hafir þú áhuga á starfinu, þá vinsamlegast
sendu okkur umsókn er tilgreini aldur, fyrri
reynslu og annað er máli kynni að skipta.
Við erum
Línuhönnun hF
veRkFRædistopa
Pósthólf8684, 128 Reykjavík.
Ekki verður tekið við umsóknum í síma.