Morgunblaðið - 09.06.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988
29
Iðnaðarbankinn:
Gjaldeyrisvið-
skiptin eðlileg
Iðnaðarbankinn hefur ritað við-
skiptaráðherra, Jóni Sigurðssyni,
bréf og fer það hér á eftir:
„{ umfjöllun í flölmiðlum að und-
anfömu um gjaldeyrissölu 9.—11.
maí sl. hefur verið látið að því liggja
að viðskiptabankamir hafi stundað
spákaupmennsku með gjaldeyri
þessa daga. Vegna þessa teljum við
nauðsynlegt að upplýsa yður, hr. við-
skiptaráðherra, um hlut Iðnaðar-
bankans í þessum viðskiptum.
í yfirliti Seðlabankans til yðar er
borinn saman gjaldeyrisjöfnuður 29.
apríl og 17. maí. Til frekari skýring-
ar viljum við upplýsa að 28. apríl
keypti Iðnaðarbankinn gjaldeyri af
Seðlabankanum fyrir 39 m.kr. á
sparisjóða 6.—11. maí, em í tölum
um Iðnaðarbankann taldar með
gjaldeyrissölu millifærslur þann 6.
maí að upphæð 172 m.kr. af gjald-
eyrisreikningi í Seðlabanka yfir á
viðskiptareikninga í erlendum bönk-
um. Slíkar millifærslur hafa að sjálf-
sögðu engin áhrif á gjaldeyrisjöfnuð
eða gjaldeyrissölu á innlendum
markaði.
Til þess að eyða hugsanlegum efa-
semdum um það að eðlilega hafi
verið staðið að gjaldeyrisviðskiptum
dagana fyrir gengisbreytingu fer hér
á eftir yfirlit um öll gjaldeyrisvið-
skipti Iðnaðarbankans síðustu dag-
ana fyrir gengisbreytingu og sem
fram fóm á gengi eins og það var
skráð dagana 9. maí til 11. maí:
þús. kr.
Gjaldeyrisjöfnuður 6. maí -12.470
Keypt af viðsk.mönnum 9. maí 821
Keypt af viðsk.mönnum 10. maí 8.399
Keypt af viðsk.mönnum ll.maí 1.355 +10.575
Selt viðsk.mönnum 9. maí 52.343
Selt viðsk.mönnum 10. maí 29.307
Selt viðsk.mönnum 11. mai 98.952 -180.602
Keypt af Seðlab. 9. maí 31.207
Keypt af Seðlab. 10. maí 89.515
Keypt af Seðlab. 11. maí 95.735 +216.457
Gjaldeyrisjöfnuður í lok dags 11. mai
gengi þess dags en sem að venju er
afgreitt af Seðlabanka 2 virkum dög-
um síðar. Raunvemlegur gjaldeyri-
sjöfnuður Iðnaðarbankans var því
jákvæður um 14 m.kr. 29. apríl en
ekki neikvæður um 25 m.kr. eins og
yfirlitið sýnir.
Þá teljum við mikilvægt að upp-
lýsa, að í yfirliti Seðlabankans um
gjaldeyrissölu til viðskiptabanka og
Breytt mynd-
sendaskrá
VIÐ sendingn myndsenda-
skrár Póst- og símamála-
stofnunarinnar til notenda
uppgötvuðust mistök varð-
andi stafrófsröð, bæði í not-
endaskrá og í skrá yfir póst-
faxstöðvar. Nú hefur stofn-
unin sent út nýja skrá og
feUur sú eldri þvi úr gildi.
í bréfi, sem sent var með
hinni nýju skrá segir, að ýmsir
notendur hafi tiikynnt breyt-
ingar frá því nýja skráin fór í
prentun og að auki hafi marg-
ir bæst við. Því sé útgáfa við-
bótarskrár eða nýrrar mynd-
sendaskrár fyrirhuguð. Not-
endur eru því beðnir að athuga
hvort allt sé rétt tilgreint varð-
andi myndsendi þeirra í
skránni og tilkynna Símamála-
skrifstofu Póst- og símamála-
stofnunarinnar um það sem
rangt kann að reynast.
+33.960
Gjaldeyrisjöfnuður Iðnaðarbank-
ans var þvi jákvæður um tæplega
34 m.kr. þegar gengisbreytingin átti
sér stað. Er það svipuð tala og stefnt
er að á hverjum degi og er að okkar
mati í samræmi við þær reglur sem
gilt hafa um gjaldeyrisjöfnuð.
Við vonumst til að þessar upplýs-
ingar skýri að Iðnaðarbankinn hefur
ekki leitast við að hagnast á gengis-
breytingunni heldur voru gjaldeyris-
viðskipti hans með venjubundnum
hætti þessa umræddu daga, en við
erum að sjálfsögðu fusir til að gefa
frekari skýringar sé þess óskað."
Fjármálaráðherra:
Karl Gunnlaugs-
son með bikara
þá sem hann
vann til, eftir að
hafa hafnað í
öðru og þriðja
sæti í keppnum
þennan daginn.
Karl í harðri
baráttu um ann-
að sætið í fyrstu.
keppni dagsins.
Hann er á hjóli
nr. 131.
\
Morgunblaðið/Knstinn Ingvarsson
Mótorhj ólakappakstur:
Datt á 130 km hraða
Fór þó heim með tvo bikara úr þremur keppnum
London.
KARL Gunnlaugsson, 22 ára gamail Reykvikingur, hefur undan-
farnar vikur tekið þátt í kappakstri á mótorhjóli hér í Bretlandi
og staðið sig með ágætum. Tíðindamaður Morgunblaðsins fylgdist
með Karli i keppni laugardaginn 7. maí, en þann dag tók hann þátt
í þremur keppnum.
Karl hafnaði í öðru sæti S fyrstu
keppninni. í annarri keppni dags-
ins hélt hann forystunni fyrstu
fimm hringina. Á sjötta hring féll
hann og var úr leik. „Ég bremsaði
of harkalega fyrir eina beygjuna
og missti hjólið niður að framan
og skall í brautina á um 130 km
hraða," sagði Karl.
Hann sakaði þó ekki og tókst
að laga skemmdimar á hjólinu, en
þær voru tiltölulega litlar. Það
hafðist tímanlega fyrir þnðju og
síðustu keppni dagsins. I þeirri
keppni gekk betur og Karl hafnaði
í þriðja sæti. Hann hélt því heim
sæll og glaður eftir daginn með
tvo bikara í farteskinu.
Hjólið sem Karl keppir á er af
gerðinni Yamaha FZR 1000. Það
er með fjögurra strokka tuttugu
ventla og vatnskældri vél. Hjólið
er 210 kg þungt og aflið er 130
hestöfl. Hámarkshraði hjólsins er
275 km á klukkustund og það tek-
ur einungis 2,8 sekúndur að ná
100 km hraða á tryllitæki sem
þessu.
Brautin sem keppt er á nefnist
Brands Hatch og er talin vera ein
öruggasta og besta keppnisbraut
Breta. Til gamans má geta þess,
að heimsmeistarakeppnin í mótor-
hjólakappakstri hefur verið haldin
þar, einnig keppnir í Formula
Grand Prix keppninni.
Þau mót sem Karl Gunnlaugs-
son hefur tekið þátt í hafa verið
haldin á vegum British Motorcycle
Racing Club og Clubmans Racing
Club. Hann keppir í opnum flokki.
Mesti hraði sem næst í keppnum
sem þessum, á beinum köflum
brautarinnar, er um 210 km á
klukkustund, en meðalhraði er um
135 km á klukkustund.
Kristinn Ingvarsson
Ekki hægt að skerða lög-
bundna lánskjaravísitölu
„ÞAÐ ER ekki hægt að skerða lögbundna lánskjaravísitölu með aftur-
virkum hætti á skuldbindingar sem þegar hafa verið gerðar," sagði
Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, aðspurður um ummæli
Steingríms Hermannssonar að hann vildi skerða hækkun lánskjaravi-
sitölu fyrir næstu mánaðamót ef slikt væri unnt. Fjárfestingafélagið
hefur spáð nærri 5% hækkun á lánskjaravisitölunni, sem samsvarar
um 70-80% verðbólgu, en Seðlabankinn spáir 3,5-4,6% hækkun.
„Ég hef ekki forsendur til að
meta hvort spádómsgáfa Seðla-
banka eða fjárfestingarfélagsmanna
er haldbetri. Hitt þarf engum að
koma á óvart að gengisfelling hefur
verðbólguáhrif.
Það er auðvitað hægt að breyta
grundvelli lánskjaravísitölunnar og
taka upp aðra viðmiðun. Það er eitt
af álitamálunum, sem nefnd sem
viðskiptaráðherra skipaði fyrir
nokkrum vikum hefur til umfjöllun-
ar, en hún á að taka t.il rannsóknar
öll mál tengd lánskjaravísitölu og
sjálfvirkum vísitöluviðmiðunum.
Einn veigamesti þátturinn í hliðar-
ráðstöfunum ríkisstjómarinnar í
kjölfar gengisbreytingar var að
hraða störfum þessarrar nefndar,
en hún á að skila áliti upp úr mán-
aðamótunum."
Jón Baldvin sagði að hægt væri
að lækka vexti á verðtryggðum
skuldbindingum með lögum, en sú
tillaga hefði ekki fengið stuðning í
umfjöllun um efnahagsráðstafanir
ríkisstjómarinnar. Ef menn vildu
koma í veg fyrir sjálfvirka vísitölu-
viðmiðun launa væri rökrétt að
skoða einnig með hvaða hætti eigi
að draga úr sjálfvirkri verðtryggingu
Ijármagns og því væri gert ráð fyrir
því að niðurstöður nefndarinnar
lægju fyrir áður en reyndi á ákvæði
rauðu strikanna í júlí. Þá yrðu einn-
ig teknar ákvarðanir um vísitöluvið-
miðanir launa, en Jón Baldvin sagði
að hann vildi ekki tjá sig um það
fyrr tillögur nefndarinnar lægju fyr-
ir.
GÍSLI J. JOHNSEN
n i
NÝBÝLAVEGI 16 - P.O.BOX 397 - KÓPAVOGI - SÍMI 641222