Morgunblaðið - 09.06.1988, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 09.06.1988, Blaðsíða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 1988 Frá Bob Hennessy á Englandi toém FOLK ■ SÆNSKI knattspymumaður- inn Mats Magnusson hefur gert það gott hjá Benfica í Portúgal og nú eru tvö ensk félög á höttun- um eftir honum. Það eru Tottenham og Everton. Talið er að ef Benfica fáist til að selja Svíann verði kaupverðið ein milljón sterl- ingspunda. ■ DAVE Beasant, markvörður ensku bikarmeistaranna Wimble- don hefur ákveðið að taka tilboði Newcastle. Eins og greint var frá í blaðinu hafði Wimbledon sam- þykkt að selja hann fyrir 750.000 pund, og er þetta hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir markvörð á Englandi. ■ ARTHUR Albison, hinn gam- alkunni vinstri bakvörður Manc- hester United, hefur fengið frjálsa sölu frá félaginu. Albiston, sem er þrítugur að aldri, hefur ákveðið að fara til WBA, en þar er við stjóm- völinn Ron Atkinson, sem áður var hjá United. Albiston lék alls 570 leiki fyrir United, þar af um 400 undir stjóm Atkinsons. ■ HOWARD Wilkinson, stjóri Sheffield Wednesday vill kaupa miðvallarleikmanninn Mark Brennan, sem er 22 ára, frá Ips- wich. Hann hefur neitað nýjum samningi við félag sitt og vill fara. Southampton vill einnig fá hann. Ipswich vill fá 400.000 pund fyrir hann. KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN ?fÆtlum ekki að selja Pétur Guðmundssson" - segja forráðamenn San Antonio Spurs. Er á lista yfir „verndaða" leikmenn. Þjálfari liðsins rekinn Pótur QuAmundsson í leik með San Antonio Spurs í vetur. PÉTUR Guðmundsson er einn af þeim átta leikmönnum sem San Antonio mun „vernda'1 fyrir tilboðum nýju liðanna í NBA-deildinni. Nýju liðin fá að bjóða í leikmenn annarra iiða, en forráðamenn San Antonio Spurs vilja halda Pétri og segja að hann verði ekki seldur í sumar. Það þýð- ir að Pétur fer örugglega ekki til nýju liðanna Miami Heat og Charlotte Hornetts. Pétur Guðmundsson verður ekki seldur. Við viljum halda honum áfram og ætlum honum stórt hlutverk hjá liðinu," sagði Wayne Witt, stjómarmaður liðsins í samtali við Morgunblaðið í gær. „Hann fer ekki til nýju liðanna og við munum reyna að veija hann fyrir tilboðum annarra liða.“ „Þetta eru góðar fréttir fyrir mig. Eg kann mjög vel við mig í San Antonio og vildi gjaman skrifa undir nýjan samning til tveggja eða þriggja ára,“ sagði Pétur. Þjátfarlnn rekinn Þjálfari San Antonio Spurs, Bob Weiss, var rekinn í gær. Hann var í sakleysi sínu að leika golf þegar nýi framkvæmdastjórinn kom með uppsagnarbréfið. Weiss lét sér ekki bregða og kláraði hring- inn á golfvellinum! Arangur San Antonio hefur verið frekar slakur. Undir stjóm Weiss hefur liðið sigrað í 31 leik, en tapað 51, en Weiss sagðist vera vonsvikinn: „Þetta kom mér þó ekki á óvart, en mér fannst ég vera á réttri leið með liðið.“ „Ég féll ekki inn í kerfið hjá hon- um og-þrátt fyrir að mér hafi líkað vel við manninn em þetta góð tíðindi fyrir mig,“ sagði Pétur. „Ég vissi að þetta stóð til og get ekki sagt að þetta komi mér á óvart.“ Pétur dvelur nú á íslandi þar sem hann sér um körfuknattleiksskóla KKÍ, en fer aftur út í lok sumars. KNATTSPYRNA / OLYMPIULEIKAR ítalir í léttum riðli Olympíulandslið ítala í knatt- spymu hafði heppnina með sér þegar dregið var í riðla í loka- keppni Ólympíuleikanna í gær. Liðið, sem lék í riðli með íslenzka olympíulandsliðinu í undankeppn- inni, mun leika í riðli með Irak, Mexíkó og Zambíu. Riðlamir verða þannig: A-riðill: Kína, Túnis, Svíþjóð og V-Þýzkaland. B-riðill: Irak, Italía, Mexíkó og Zambía. C-riðill: Argentína, Bandaríkin, Sovétríkin og S-Kórea. D-riðill: Ástralía, Brasih'a, Júgó- slavía og Nigería. Tvö lið komast áfram í hveijum riðli. í átta liða úrslitum leika síðan saman: Sigurvegari í A-riðli - lið I öðm sætí I B-riðli Sigurvegari í B-riðli - lið I öðm sæti í A-riðli Sigurvegari í C-riðli - lið í öðm sæti í D-riðli Sigurvegari I D-riðli - lið í öðm sæti í C-riðli KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Meistararnir fengu skell á heimavelli Detroit sigraði Los Angeles 105:93 í íyrsta leik liðanna ÍSLANDSMÓTIÐ I I KR-VOLLUR KL, 20,00 Gunnar Valgeirsson skrifar Woodex A VIÐINN Tölvupappír ílM FORMPRENT Ferðaskrifstofan ÚTSÝN BAR STEAK HOUSE DETROIT Pistons kom heldur betur á óvart á þriðjudagskvöld er liðið yfirspilaði Los Angeles Lakers á heimavelli Lakers í úrslitum NBA-deildarinnar. Leikmenn Detroit voru betri á öllum sviðum og Lakers átti sér ekki viðreisnar von gegn frísku og baráttuglöðu liði Pistons, sem sigraði auðveldlega, 105:97. Lakers hafði ekki tapað byijun- arleik í úrslitakeppninni síðan 1981 eða 20 leikjum í röð. Þetta létu leikmenn Detroit lítil áhrif hafa á sig og náðu strax 8:0 forystu. Los Angeles jafnaði leik- inn þó fljótlega og staðan eftir fyrsta leikhluta var 22:21 fyrir Detroit. í öðmm leikhluta gerði Detroit eigin- lega út um leikinn. Liðið náði 17 stiga forystu í hálfleik eftir að hafa unnið aðra lotu 35:19. í seinni hálf- leik höfðu svo leikmenn Pistons leikinn í sínum höndum, höfðu 80:68 forystu eftir þrjá leikhluta og unnu eins og fyrr segir með 105 stigum gegn 93. Frábasrvöm Detrott Leikmenn Lakers áttu ekkert svar við stórleik Detroit sem lék frábæra vöm, rétt eins og liðið gerði gegn Boston í úrslitum Austurdeildarinn- ar. Þá kom enn í ljós að Detroit hefur besta varamannabekkinn í deildinni. Varamenn Lakers skor- uðu einungis 4 stig í leiknum, en varafnenn Detroit skoraðu 32. Þannig tók Michael Cooper hjá Lakers sjö skot, en ekkert þeirra rataði í körfuna. Detroit tókst að stöðva hraðaupphlaup Los Angeles þannig að liðinu tókst aldrei vel upp Adrlan Dantley hjá Detroit var besti maður leiksins. í sókninni. Lið Lakers hitti aðeins úr 34% af skotum sínum gegn 64% hjá Detroit. Það var Adrian Dantley hjá Detroit sem var besti maður vallarins. A.C. Green réði ekkert við hann og Dant- ley gat skorað að vild. Hann skor- aði 34 stig. Isiah Thomas skoraði 19 stig og Vinnie „örbylgjuofn" Johnson var með 16 stig fyrir Detroit. Annars léku allir leikmenn liðsins vel að þessu sinni. Hjá Los Angeles stóð ekki steinn yfir steini. Aðeins „Magic“ Johnson (28 stig) og Byron Scott (25 stig) léku vel. Abdul-Jabbar hitti mjög illa í leikn- um, svo illa að þjálfari Lakers, Pat Riley, tók hann útaf á þriðju mínútu síðari hálfleiks og notaði hann ekki meira það sem eftir var af leiknum! Allir helm Svo miklir vom yfirburðir Detroit að þegar sjö mínútur vom eftir hafði liðið náð 17 stiga forystu. Þetta likaði hinum kröfuhörðu stuðningsmönnum Los Angeles illa og flykktust út úr Foram-höllinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.